Tíminn - 20.11.1990, Síða 14
14 Tíminri
Þriðjudagur 20. nóvember 1990
Nýjar bækur
I
&\K W
HEIMUR
BARNSINS
lí
Bendibók
Komin er út hjá Máli og menn-
ingu stór bendibók fyrir yngstu
börnin. Bókin er með þykkum
blaðsíðum sem þola harkalega
meðferð, enda ætluð fyrir
minnstu börnin til að skoða sjálf
hluti og hugtök úr daglega lífinu.
Bókina prýða ljósmyndir af nyt-
sömum hlutum úr heimi litla
bamsins, myndir af dóti, fatnaði,
matvælum, hreyfingum og um-
fjöllun um liti og tölumar upp í
tíu svo eitthvað sé nefnt.
íslensk
myndabók
Komin er út hjá Máli og menn-
ingu myndabók eftir nýjan ís-
lenskan höfund. Bókin heitir
Gullfjöðrin og segir frá litlum
fugli sem finnur gullfjöður sem
hann vill koma til eiganda síns.
Hann flýgur í sólarátt yfir höf og
lönd, fjöll og dali og leitin að
gullfuglinum verður bæði löng
og ströng. En sá sem er tilbúinn
að leggja á sig erfiði nær oftast
takmarki sínu að lokum og það
tekst litla fuglinum.
Áslaug Jónsdóttir hefur stundað
myndlistamám bæði hér heima
og í Danmörku þar sem hún
dvelur nú. Hún vann bókina
með vatnslitum og klippimynda-
tækni. Bókin var prentuð í Prent-
smiðjunni Odda.
Vinningstölur laugardaginn
17. nóv. '90
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1« 5af 5 0 2.455.090
o €.m 4af5Bfjjfjyjl 6 71.098
3. 4af 5 103 7.144
4. 3af 5 3.786 453
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
5.332.568 kr.
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
14 Tíminn
\ /A
.V/ \ LU
NA
- *
Tilbrigði ástar-
innar
Út er komin hjá Máli og menn-
ingu bókin Eva Luna segir frá
eftir skáldkonuna Isabel Allende.
í bókinni em 23 smásögur um
jafnmörg tilbrigði ástarinnar. Hér
segir af skuggalegum stigamönn-
um og háttprúðum hefðarmeyj-
um sem elskast með ærslum og
glæframönnum sem stíga í
vænginn við annálaðar sóma-
konur; tinandi gamalmenni hefja
upp langþráð bónorð, mæðgur
keppa um hylli farandsöngvara,
draumar rætast og skýjaborgir
hrynja.
Isabel Allende er íslenskum les-
endum að góðu kunn fyrir skáld-
sögur sínar Hús andanna, Ást og
skuggar og Eva Luna, en Eva
Luna segir frá er nýjasta bók
hennar, kom út á fmmmálinu
fyrr á þessu ári og er íslenska út-
gáfan meðal þeirra fyrstu í Evr-
ópu.
Tómas R. Einarsson þýddi bók-
ina úr spænsku.
Eva Luna segir frá er 218 bls.,
prentuð í Prentsmiðjunni Odda.
Ingibjörg Eyþórsdóttir hannaði
kápu.
Ný saga eftir
Kundera
Út er komin hjá Máli og menn-
ingu bókin Ódauðleikinn eftir
tékkneska rithöfundinn Milan
Kundera. Þetta er skáldsaga,
byggð á mörgum ástarþríhyrn-
ingum, og valsað er aftur og
fram um evrópska sögu, þótt að-
alsögusviðið sé Frakkland nú-
tímans. Meðal þeirra, sem leiddir
em fram á sjónarsviðið, em Go-
ethe og Hemingway sem Iýst er í
lifanda lífi og eiga svo spaklegar
viðræður eftir dauðann. Sem fyrr
er það aðalsmerki Milans Kund-
era hversu snjall hann er að
tengja fjörlega frásögn við hug-
leiðingar um ástina, dauðann og
ódauðleikann — mannlegt hlut-
skipti sem hann sér oft speglast í
óvæntum hlutum.
Ódauðleikinn kom fyrst út í
Frakklandi í janúar á þessu ári.
íslenska útgáfan á bókinni er
með þeim fyrstu utan Frakk-
lands. Friðrik Rafnsson þýddi
bókina. Áður hefur komið út á
íslensku skáldsaga Kimdera
Óbærilegur léttleiki tilverunnar.
Ódauðleikinn er 316 bls.
Nískur hani
Hjá Máli og menningu kemur nú
út tékkneska myndabókin Níski
haninn. Hún var fyrst gefin út
1960 og varð mjög vinsæl, líkt og
Lata stelpan sem er eftir sömu
höfunda. Bækumar tilheyra báð-
ar flokknum Segðu mér söguna
aftur, flokki sígildra myndabóka
í endurútgáfu.
Sagan segir af hamingjusömum
hana og hænu sem skipta öllu
jafnt á milli sín þar til dag einn
að haninn gerist eigingjam og ét-
ur einn og sjálfur gimileg ber
sem hann finnur. Það borgar sig
ekki að vera nískur og þetta kem-
ur honum í koll, en allt fer þó vel
að lokum, því hænan góða bregst
honum ekki hvað sem á gengur.
Hallfreður öm Eiríksson þýddi.
Aladdínlampi
Aladdín og töfralampinn úr Þús-
und og einni nótt segir frá götu-
stráknum Aladdín sem galdra-
maður sendir til undirheima að
sækja töfralampa. Hann lokar
Aladdín þar niðri þegar hann
óhlýðnast honum, en Aladdín
tekst að komast undan. Með að-
stoð töfralampans kemst hann til
æðstu metorða í Persíu, en átökin
um töfralampann halda áfram,
töframaðurinn er grænn af öfund
og hyggur á hefndir.
Silja Aðalsteinsdóttir endursagði
söguna en myndskreyting í litum
er eftir enskan listamann. Bókin
sem er 36 bls. kemur út hjá Máli
og menningu.
Sölt ljóð
Út er komin hjá Máli og menn-
ingu ljóðabókin Blint í sjóinn eft-
ir Guðlaug Arason. í ljóðum bók-
arinnar er víða að finna hvers-
dagsmyndir af sjómannslífinu:
„sjávarilmurinn, tjörulyktin, vél-
arhljóðið, veltingurinn". Meðal
annarra yrkisefna eru söknuður-
inn, erfiði og mannraunir — og
ástin. Ljóðin einkennast af nær-
fæmum og mildum tóni, þótt
kímni sé sjaldan langt undan.
Guðlaugur Arason (f. 1950) hefur
shmdað jöfnum höndum sjó-
mennsku og ritstörf, og er þjóð-
kunnur fyrir skáldsögur sínar.
Blint í sjóinn er hans fyrsta ljóða-
bók.
Bókin er 73 bls., prentuð í Prent-
smiðjunni Odda.
Timbur:
1x6 lengd 3,60, 3,90, 4,20, 4,50 kr. 83.- pr. m
1x6 lengd 4,80, 5,10 kr. 85.- „
1,5x5 lengd 4,80 kr. 123.-„
2x4 lengd 3,00 kr. 115.- „
2x7 lengd 4,80 kr. 221.- „
2x8 lengd 5,40, 5,70 kr. 290,- „
2x9 lengd 5,70, 6,00 kr. 333.-
# aifaborg H F
Byggingamarkaður. Sími 91-686755
Skútuvogi 4, Reykjavík
Þriðjudagur 20. nóvember 1990
Aukakjördæmisþing
í Vesturtandskjördæmi
ikjördæmisþing framsóknarmanna á vesturiandi haldiö aö
Aukakjördæmisþing
amesi sunnudaginn 2. desember kl. 10.
Hótel Borg-
Dagskré:
Forval og frágangur framboðslista Framsóknarflokksins (Vesturtandskjör-
dæmi til alþingiskosninganna 1991.
Væntanlegir þátttakendur (forvali hafi samband viö formann uppstillingar-
nefndar, Elís Jónsson Borgarnesi, s: 71195.
Borgnesingar- Bæjarmálefni
I vetur veröur opið hús á mánudagskvöldum frá kl. 20.30-22.30 á skrifstofu
Framsóknarflokksins aö Brákarbraut 1.
Bæjarfulltrúar flokksins i Borgarnesi verða á staðnum og heitt á könnunni.
Allir sem vilja fylgjast meö og hafa áhrif á málefni Borgamesbæjar eru vel-
komnir.
Framsóknarfélag Borgamess.
Suðuriand
Skrifstofa Kjördæmasambandsins á Eyrarvegi 15, Selfossi, er opin á
þriöjudögum og fimmtudögum kl. 15.00-17.00. Síminn er 22547.
Félagar enj hvattir til aö lita inn.
K.S.F.S.
Rangæingar, spilakvöld
Framsóknarfélag Rangæinga gengst aö vanda fyrir hinum áriegu spila-
kvökfum sunnudagana 11. og 25. nóvember, 9. desember og 13. janúar f
Hvoli kl. 21.00. Fjögurra kvölda keppni, 3 gilda.
Heildarverðlaun ferö til Akureyrar fyrir 2, gist á Hótel KEA 2 nætur.
Góð kvöldverölaun. Mætið öil.
Stjómin
Borgames — Nærsveitir
Spilum félagsvist (Félagsbæ föstudaginn 23. nóvember kl. 20.30. Mætum
vel og stundvlslega. Allir velkomnir. „ ,, ,,,
Framsóknarfélag Borgamess.
Selfoss og nágrenni
Fjögurra kvötda keppni
Félagsvist verður spiluö aö Eyrarvegi 15, þriðjudagana 30. okt., 6. nóv., 13.
nóv. og 20. nóv. kl. 20.30.
Kvöldverðlaun - Heildarverölaun
Fólk má missa úr eitt kvöld án þess að verða af heildarverðlaununum.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélag Selfoss
Skagfirðingar-
Sauðárkróksbúar
Komið ( morgunkaffi með Stefáni Guðmundssyrii
alþingismanni laugardaginn 24. þ.m. kl. 10.00-
12.00 (Framsóknarhúsinu, Sauðárkróki.
Stefán