Tíminn - 20.11.1990, Page 15
Þriðjudagur 20. nóvember 1990
Tíminn 15
ÍÞRÓTTIR
Guðmundur Guðmundsson þjálfari Víkinga skorar e'rtt marka sinna í leiknum gegn í ÍR í gærkvöldi. Til vamar
er þjálfari ÍR, Guðmundur Þórðarson. Víkingar unnu 24-22 marka sigur í kaflaskiptum leik. í leikhléi varstðan
14-12. Markahæstur Víkinga var Birgir Siqurðsson með 8 mörk, en Guðmundur Guðmundsson skoraði 6
mörk, öll í fýrri hálfleik. Fyrir ÍR skoraði Olafur Gylfason með 6 mörk, en þeir Frosti Guðlaugsson, Róbert
Rafnsson og Magnús Ólafsson með 5 mörk hver.
í Hafnarfirði unnu Haukar 32-28 marka sigur á KR-ingum, sem léku í fýrsta sinn undir stjóm Páls Ólafsson-
ar, en Jóhann Ingi Gunnarsson hætti þjálfun liðsins um helgina. í leikhléi varstaðan 18-16. Peter Bammkátti
stórieik fýrir Hauka og skoraði 13 mörk úr 14 skotum. ___________________________________________BL
Opna norska meistaramótið í júdó:
BJARNIHLAUT
SILFURVERÐLAUN
Bjami Friðriksson júdómaður
varð í öðru sæti á opna norska
meistaramótinu í júdó sem
haldið var í Ósló um hclgina.
Halidór Hafsteinsson keppti
einnig á mótinu og varð í 7. sæti
í sínum þyngdarflokki.
Bjami keppti iyrst við Norð-
manninn Moten Olsen og sigr-
aði Bjami á fallegu „Uchi Mata“
bragði og fékk fyrir „ippon“ eða
10 stig. Næsti andstæðingur
Bjama var Egil Kvaale, einnig
fií Noregi. Bjami sigraði á
„Sasae thuri komi asha“, sem
gaf „yuko“ eða 5 stig og síðan
náði Bjami armlás á Norðmann-
inn. í 3. umferð glímdi Bjami
við Bretann Tony Brownsa. Við-
ureignin var mjög hörð, en
Bjama tókst að knýja fram sigur
á bragði, sem ekki er til í júdó-
bókum, en upprunnið er og þró-
að í Rússlandi. Þar með var
hann kominn í úrslit Þar mætti
hann Rússanum Vadin Voinov.
Viðureignin var mjög spennandi
og lauk henni með sigri Rúss-
ans sem náði vinstra ,4ppon
seoenage“ bragði, sem gaf wasa-
ari eða 7 stig. Undir lokin sótti
Bjami grimmt og hlaut Rússinn
„chui“ eða mínus 5 stíg vegna
ofmikillarvaraar.
Halldór sigraði Ame Eriksson
frá Svíðþjóð af ötyggi á vinstra
„ippon seoenage" sem gaf 5
stígl og „morote gari“ sem gaf 3
stig, í fyrstu umferðinnJ í 86 kg
flokknum. í næstu umferð átti
Halldór í höggi við Kay Otto
Nilssen frá Noregi, en hann er
sterkasti júdómaður Noið-
manna. Nilssen náði vinstri „uc-
hi mata“ bragði á Halidór og
fékk fyrir 7 stíg. Þar sem Niels-
sen sigraði á mótínu, komst
Haiidór í uppreisnarglímu og
mætti þar Rússanum Nour-
magomedov. Eftír snarpa viöur-
eign og baráttu um tÖldn, tókst
Rússanum að skora 5 stíg með
„morote gari“ og síðan að vinna
sig áfram inn í fastatak og sigra.
Þar með var Rússinn kominn í
úrslitaglímu um bronsverðlaun
þar sem hann vann sigur á landa
sínum Rousian Mashourenko,
nokkuð ömgglega á „ippon“.
Halldór hafnaði í 7. sætí.
Mótið var óvenjulegt að því ieyti
að auk landsiiðsmanna ftá Sov-
étríkjunum kepptu Iandsliðs-
menn einstakra iýðveida einnig.
Alls tóku 51 lið eða rúmlega
200 manns þátt í mótínu. BL
Körfuknattleikur - Úrvalsdeild:
LYKILMENN ÍR BRUGÐUST
KR-ingar unnu langþráðan sigur í
úrvalsdeildinni í körfuknattleik á
sunnudagskvöldið er þeir heim-
sóttu ÍR-inga í Seljaskóla. Leikur
liðanna var mjög slakur, hittni léleg
og mikið um mistök. Á hinn bóginn
var vamarleikurinn sterkur og hart
var barist þótt munurinn væri jafn-
an nokkuð mikill á liðunum KR í
vil. Lokatölur vora 62-76.
Báðum liðum gekk ákaflega illa að
koma boltanum í körfuna í upphafi
leiksins og um miðjan hálfleikinn
var staðan 8-15. Hittnin skánaði lít-
ið þegar á ieið og í leikhléi var stað-
an 19-29 KR í vil. Langt er síðan úr-
valsdeildarlið hafa skorað jafn fá stig
í einum hálfleik.
í síðari hálfleik lifnaði heldur betur
yfir; KR-ingar skoruðu þá 47 gegn
43 og unnu langþráðan sigur 62- 76.
Jonathan Bow, Páll Kolbeinsson og
Matthías Matthíasson héldu KR- lið-
inu á floti í leiknum og komu í veg
fyrir eitt tapið enn. Axel Nikulásson
átti einnig þokkalega spretti.
Hjá ÍR munaði mestu að þeir Dou-
glas Shouse og Jóhannes Sveinsson
fundu sig engan veginn í leiknum.
Það kom sér illa því aðrir leikmenn
liðsins áttu sinn besta leik í vetur.
Fráköstin hafa verið ein veikasta
hliðin hjá ÍR-ingum í vetur, en í
þessum leik voru ÍR- ingar sterkara
Leikur Víkinga og Hauka í 1. deild-
inni í handknattleik, VÍS- keppninni,
var ágætlega leikinn og spennandi
lengst af. Hart var barist í fyrri hálf-
leik og fram í þann síðari, en undir
lokin var allur móður af Haukum og
Víkingar hreinlega stungu af og
unnu 8 marka sigur, 31-23.
Liðin skiptust á um að ieiða í fyrri
hálfleik og mikið fjör var í leiknum.
Haukar virtust líklegir til að verða
fyrstir liða til að reita stig af Víking-
um, undir iok hálfleiksins náðu
Haukar tveggja marka forystu og þeg-
ar flautað var til leikhlés var staðan
13-15.
Víkingar gerðu 4 fyrstu mörkin í síð-
ari hálfleik og breyttu stöðunni í 17-
15. Haukar náðu að jafna 18-18, en
Víkingar náðu aftur 2 marka forskoti.
Um miðjan hálfleikinn munaði 4
mörkum 22-18, Haukar réttu sinn
hlut í 22-20, en því næst tóku Víking-
ar öll völd á vellinum og leikmenn
Hauka komust ekkert áleiðis. í einar
7-8 mínútur tókst Haukum ekki að
skora og staðan breyttist úr 24-21 í
30-21. A þessum kafla var mikið bráð-
frákastliðið. Vörnin var mjög góð
hjá ÍR í fyrri hálfleik, en í þeim síð-
ari tókst KR- ingum að finna glufur.
Karl Guðlaugsson lék á ný með ÍR-
liðinu á sunnudag eftir nokkra fjar-
veru og styrkir hann Iiðið mikið.
Leikinn dæmdu þeir Helgi Braga-
son og Kristján Möller. Smámuna-
semin var allsráðandi í athöfnum
þeirra.
Stig ÍR: Karl 16, Björn B. 12, Sho-
use 11, Björn L. 8, Brynjar 4, Hilm-
ar 4, Halldór 4 og Jóhannes 3.
KR: Bow 17, Matthfas 15, Páll 14,
Axel 8, Gauti 8, Lárus 7, Björn 4,
Hermann 2 og Böðvar 1.
læti í sóknarleik Hauka og Víkingar
svöruðu jafnan með hraðaupphlaup-
um. Lokatölur voru síðan 31-23.
Víkingsliðið var sterkt sem fyrr í vet-
ur og ekki líklegt til að gefa eftir á
næstunni. Leikmenn liðsins léku
hver öðrum betur, en helst var það
markvarslan sem bilaði í þessum leik.
Hrafn Margeirsson varði ágætlega
undir lok leiksins, en Reynir Reynis-
son stóð í markinu megnið af leikn-
um og varði sæmilega.
Hjá Haukum má segja að í fyrri hálf-
leik hafi nokkrir leikmenn staðið upp
úr og ber þar af nefna Magnús Áma-
son markvörð og þá Peter Bamruk og
Steinar Birgisson. í síðari hálfleik var
fátt um fína drætti hjá liðinu.
Leikinn dæmdu þeir Rögnvald Er-
lingsson og Stefán Arnaldsson og
báru þeir full mikla virðingu fyrir Vík-
ingum og voru þeim hliðhollir.
Mörk Víkings: Birgir 8, Bjarki 7,
TVufan 6/1, Karl 4, Guðmundur 3 og
Ámi 3/1. Haukar: Bammk 6, Steinar
5, Sigurjón 4, Sveinberg 2, Pétur Ingi
2, Snorri 1, Gunnlaugur 1 og Jón Öm
1. BL
Handknattleikur -1. deild:
Valssigur um síðir
Valsmenn lentu í nokkru basli með
Gróttu á Hb'ðarenda á laugardag.
Jafnræði var með liðunum alveg fram
á lokamínútumar að Valsmenn sýndu
styrk sinn og tryggðu sér sigur 26- 22.
í leikhléi var staðan jöfn 12-12.
Mörk Vals: Jakob 7, Jón 6, Valdimar
6/1, Finnur 3, Brynjar 3/1 og Júlíus
1, Grótta: Halldór 7/5, Páll 4, Stefán
3, Friðleifur 2, Gunnar 2, Davíð 2 og
Svafar 2.
Skiptur hlutur
í botnslagnum
Fram og Selfoss skildu jöfn 17-17 í
botnslag deildarinnar í Laugardais-
höll á sunnudag.
í leikhléi voru gestimir frá Selfossi
yfir, 7-10.
MörkFram: Karl 5, Páll 4/3, Gunn-
ar 3, Andri 2, Jason 2 og Hermann 1.
Selfoss: Gústaf 5/1, Einar G. 5/1,
Stefán 2, Sævar 2, Einar S. 1 og
Sverrir 1.
Enn spennufall
hjá Stjörnumönnum
Stjaman var komin með yfirburðar-
stöðu gegn ÍR í leikhléi 15-8, en
eins og í undanfömum leikjum varð
ákveðið spennufall í síðari hálfleik
og ÍR-ingar náðu að minnka mun-
inn í 2 mörk.
Stjaman vann þó öruggan sigur 24-
22.
Mörk S(jömunnar: Magnús 8, Skúli
6, Axel 5, Patrekur 4 og Hafsteinn 1.
ÍR: Frosti 6, Ólafúr 5, Matthías 4,
Magnús 4, Róbert 4 og Guðmundur 1.
FH vann KA
Á fóstudagskvötd unnu FH-ingar
24- 27 sigur á KA-mönnum á Akur-
eyri.
Mörk KA: Sigurpáll 7/1, Pétur 6,
Erlingur 5, Hans 5 og Andrés 1. FH:
Stefán 8/3, Guðjón 8, Knútur 4, Pét-
ur 3, Hálfdán 2 og Þorgils 2.
Sjötta jafntefli
KR-inga staðreynd
KR og ÍBV gerðu 20-20 jafntefli í
Laugardalshöil á fóstudagskvöld.
KR- ingar hafa því gert 6 jafntefli í 12
leikjum.
Mörk KR: Páll 5, Konráð 5, Willum
2, Guðmundur 2, Björgvin 1 og
Þórður 1. ÍBV: Þorsteinn 5, Jóhann
3, Sigurður F. 3, Gylfi 3, Sigurður G.
3/1, Guðfinnur 2 og Sigbjörn 1. BL
Körfuknattleikur - Úrvalsdeild:
Sigurganga Grindvík-
inga enn óslitin
Grindvíkingar unnu ævintýralegan
sigur á grönnum sínum Keflvík-
ingum 82-86 í Keflavík á sunnu-
dagskvöld. Þar með era Grindvík-
ingar komnir í harða samkeppni
við Keflvikinga um annað sætíð í
B-riðli, en Grindvíkingar töpuðu 3
fyrstu leikjum sínum í mótinu.
Það voru Keflvíkingar sem voru
sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og
höfðu 20 stiga forystu í leikhléi,
52-32. Hittni þeirra var með ólík-
indum góð í hálfleiknum og úrslit-
in virtustvera ráðin. Grindvíkingar
voru á öðru máli og náðu að kom-
ast yfir í fyrsta sinn í leiknum, 82-
83, á síðustu mínútunni. Sigurinn
var þeirra 82-86, eftir að þeir höfðu
gert síðustu 9 stigin í leiknum.
Þessi úrslit sína hvað hægt er að
gera ef baráttan er næg, en hana
hefur sjaldan skort þegar Grindvík-
ingar eru annars vegar. Dan
Krebbs var óstöðvandi í leiknum
og hér er áreiðanlega á ferðinni sá
leikmaður sem þeir Grindvíkingar
hafa verið að leita að svo lengi.
Stig Keflvíkinga: Sigurður 18,
Lytle 17, Albert 16, Falur 13, Jón
Kr. 10 og Egill 8. Grindvíkingar:
Krebbs 38, Guðmundur 16, Stein-
þór 10, Jóhannes 10, Sveinbjöm 4,
Rúnar 4, Guðlaugur 2 og Marel 2.
BL
Stórsigur hjá Þór
Þórsarar án Sturlu Örlygssonar
unnu stóran sigur á Valsmönnum
110- 78 er liðin mættust á Akur-
eyri á sunnudagskvöld.
Sturla tók út síðari leikinn í
tveggja leikja banni sem hann var
dæmdur í fyrir skömmu.
Þórsarar voru yfir í leikhléi 51- 45
og gerðu síðan út um leikinn í upp-
hafi síðari hálfleiks. Jón Öm, Cedr-
ic Evans, Guðmundur og Konráð
vom mennimir á bak við sigur
Þórs, en hjá Val stóð Magnús Matt-
híasson sig vel.
Stig Þórs: Evans 25, Jón Öm 23,
Konráð 20, Guðmundur 19, Ágúst
4, Davíð 2 og Helgi 2. Valur: Magn-
ús 23, Ragnar 16, Grissom 15,
Gunnar 9, Helgi 7, Guðni 5 og
Bjarki 3. BL
Naumur sigur Hauka
í Stykkishólmi
Haukar sluppu með skrekkinn er
þeir sóttu Snæfell heim í Stykkis-
hólm á sunnudagskvöld. Haukar
höfðu yfir í leikhléi 40-51.
tsíðari hálfleik náði Snæfell að
jafria, en síðan ekki söguna meir og
Haukar unnu mikilvægan sigur
80-88.
Stig Snœfells: Brynjar 29, Per-
egeoud 17, Bárður 13, Ríkharður
11, Hreinn 6, Sæþór og Þorkell 2.
Haukar: Jón Amar 26, Noblet 22,
ívar 17, Henning 12, Pálmar 9 og
Reynir 2. BL
Staðan
í úrvalsdeildinni
A-riðiU:
Njarðvík 10 7 3 900- 774 14
KR 11 7 4 888- 865 14
Haukar 11 6 5 910- 904 12
Snæfell 11 2 9 778- 900 4
ÍR 11 0 11 824-1060 0
B-riðiU:
Tindastóll 10 9 1 1002- 879 18
Keflavík 10 8 2 993- 900 16
Grindavík 11 7 4 940- 895 14
Valur 11 4 7 895- 970 8
Þór 11 4 7 1052-1025 8
Handknattleikur -1. deild:
Víkingar stungu
af undir lokin