Tíminn - 20.11.1990, Blaðsíða 15

Tíminn - 20.11.1990, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 20. nóvember 1990 Tíminn 15 ÍÞRÓTTIR Guðmundur Guðmundsson þjálfari Víkinga skorar e'rtt marka sinna í leiknum gegn í ÍR í gærkvöldi. Til vamar er þjálfari ÍR, Guðmundur Þórðarson. Víkingar unnu 24-22 marka sigur í kaflaskiptum leik. í leikhléi varstðan 14-12. Markahæstur Víkinga var Birgir Siqurðsson með 8 mörk, en Guðmundur Guðmundsson skoraði 6 mörk, öll í fýrri hálfleik. Fyrir ÍR skoraði Olafur Gylfason með 6 mörk, en þeir Frosti Guðlaugsson, Róbert Rafnsson og Magnús Ólafsson með 5 mörk hver. í Hafnarfirði unnu Haukar 32-28 marka sigur á KR-ingum, sem léku í fýrsta sinn undir stjóm Páls Ólafsson- ar, en Jóhann Ingi Gunnarsson hætti þjálfun liðsins um helgina. í leikhléi varstaðan 18-16. Peter Bammkátti stórieik fýrir Hauka og skoraði 13 mörk úr 14 skotum. ___________________________________________BL Opna norska meistaramótið í júdó: BJARNIHLAUT SILFURVERÐLAUN Bjami Friðriksson júdómaður varð í öðru sæti á opna norska meistaramótinu í júdó sem haldið var í Ósló um hclgina. Halidór Hafsteinsson keppti einnig á mótinu og varð í 7. sæti í sínum þyngdarflokki. Bjami keppti iyrst við Norð- manninn Moten Olsen og sigr- aði Bjami á fallegu „Uchi Mata“ bragði og fékk fyrir „ippon“ eða 10 stig. Næsti andstæðingur Bjama var Egil Kvaale, einnig fií Noregi. Bjami sigraði á „Sasae thuri komi asha“, sem gaf „yuko“ eða 5 stig og síðan náði Bjami armlás á Norðmann- inn. í 3. umferð glímdi Bjami við Bretann Tony Brownsa. Við- ureignin var mjög hörð, en Bjama tókst að knýja fram sigur á bragði, sem ekki er til í júdó- bókum, en upprunnið er og þró- að í Rússlandi. Þar með var hann kominn í úrslit Þar mætti hann Rússanum Vadin Voinov. Viðureignin var mjög spennandi og lauk henni með sigri Rúss- ans sem náði vinstra ,4ppon seoenage“ bragði, sem gaf wasa- ari eða 7 stig. Undir lokin sótti Bjami grimmt og hlaut Rússinn „chui“ eða mínus 5 stíg vegna ofmikillarvaraar. Halldór sigraði Ame Eriksson frá Svíðþjóð af ötyggi á vinstra „ippon seoenage" sem gaf 5 stígl og „morote gari“ sem gaf 3 stig, í fyrstu umferðinnJ í 86 kg flokknum. í næstu umferð átti Halldór í höggi við Kay Otto Nilssen frá Noregi, en hann er sterkasti júdómaður Noið- manna. Nilssen náði vinstri „uc- hi mata“ bragði á Halidór og fékk fyrir 7 stíg. Þar sem Niels- sen sigraði á mótínu, komst Haiidór í uppreisnarglímu og mætti þar Rússanum Nour- magomedov. Eftír snarpa viöur- eign og baráttu um tÖldn, tókst Rússanum að skora 5 stíg með „morote gari“ og síðan að vinna sig áfram inn í fastatak og sigra. Þar með var Rússinn kominn í úrslitaglímu um bronsverðlaun þar sem hann vann sigur á landa sínum Rousian Mashourenko, nokkuð ömgglega á „ippon“. Halldór hafnaði í 7. sætí. Mótið var óvenjulegt að því ieyti að auk landsiiðsmanna ftá Sov- étríkjunum kepptu Iandsliðs- menn einstakra iýðveida einnig. Alls tóku 51 lið eða rúmlega 200 manns þátt í mótínu. BL Körfuknattleikur - Úrvalsdeild: LYKILMENN ÍR BRUGÐUST KR-ingar unnu langþráðan sigur í úrvalsdeildinni í körfuknattleik á sunnudagskvöldið er þeir heim- sóttu ÍR-inga í Seljaskóla. Leikur liðanna var mjög slakur, hittni léleg og mikið um mistök. Á hinn bóginn var vamarleikurinn sterkur og hart var barist þótt munurinn væri jafn- an nokkuð mikill á liðunum KR í vil. Lokatölur vora 62-76. Báðum liðum gekk ákaflega illa að koma boltanum í körfuna í upphafi leiksins og um miðjan hálfleikinn var staðan 8-15. Hittnin skánaði lít- ið þegar á ieið og í leikhléi var stað- an 19-29 KR í vil. Langt er síðan úr- valsdeildarlið hafa skorað jafn fá stig í einum hálfleik. í síðari hálfleik lifnaði heldur betur yfir; KR-ingar skoruðu þá 47 gegn 43 og unnu langþráðan sigur 62- 76. Jonathan Bow, Páll Kolbeinsson og Matthías Matthíasson héldu KR- lið- inu á floti í leiknum og komu í veg fyrir eitt tapið enn. Axel Nikulásson átti einnig þokkalega spretti. Hjá ÍR munaði mestu að þeir Dou- glas Shouse og Jóhannes Sveinsson fundu sig engan veginn í leiknum. Það kom sér illa því aðrir leikmenn liðsins áttu sinn besta leik í vetur. Fráköstin hafa verið ein veikasta hliðin hjá ÍR-ingum í vetur, en í þessum leik voru ÍR- ingar sterkara Leikur Víkinga og Hauka í 1. deild- inni í handknattleik, VÍS- keppninni, var ágætlega leikinn og spennandi lengst af. Hart var barist í fyrri hálf- leik og fram í þann síðari, en undir lokin var allur móður af Haukum og Víkingar hreinlega stungu af og unnu 8 marka sigur, 31-23. Liðin skiptust á um að ieiða í fyrri hálfleik og mikið fjör var í leiknum. Haukar virtust líklegir til að verða fyrstir liða til að reita stig af Víking- um, undir iok hálfleiksins náðu Haukar tveggja marka forystu og þeg- ar flautað var til leikhlés var staðan 13-15. Víkingar gerðu 4 fyrstu mörkin í síð- ari hálfleik og breyttu stöðunni í 17- 15. Haukar náðu að jafna 18-18, en Víkingar náðu aftur 2 marka forskoti. Um miðjan hálfleikinn munaði 4 mörkum 22-18, Haukar réttu sinn hlut í 22-20, en því næst tóku Víking- ar öll völd á vellinum og leikmenn Hauka komust ekkert áleiðis. í einar 7-8 mínútur tókst Haukum ekki að skora og staðan breyttist úr 24-21 í 30-21. A þessum kafla var mikið bráð- frákastliðið. Vörnin var mjög góð hjá ÍR í fyrri hálfleik, en í þeim síð- ari tókst KR- ingum að finna glufur. Karl Guðlaugsson lék á ný með ÍR- liðinu á sunnudag eftir nokkra fjar- veru og styrkir hann Iiðið mikið. Leikinn dæmdu þeir Helgi Braga- son og Kristján Möller. Smámuna- semin var allsráðandi í athöfnum þeirra. Stig ÍR: Karl 16, Björn B. 12, Sho- use 11, Björn L. 8, Brynjar 4, Hilm- ar 4, Halldór 4 og Jóhannes 3. KR: Bow 17, Matthfas 15, Páll 14, Axel 8, Gauti 8, Lárus 7, Björn 4, Hermann 2 og Böðvar 1. læti í sóknarleik Hauka og Víkingar svöruðu jafnan með hraðaupphlaup- um. Lokatölur voru síðan 31-23. Víkingsliðið var sterkt sem fyrr í vet- ur og ekki líklegt til að gefa eftir á næstunni. Leikmenn liðsins léku hver öðrum betur, en helst var það markvarslan sem bilaði í þessum leik. Hrafn Margeirsson varði ágætlega undir lok leiksins, en Reynir Reynis- son stóð í markinu megnið af leikn- um og varði sæmilega. Hjá Haukum má segja að í fyrri hálf- leik hafi nokkrir leikmenn staðið upp úr og ber þar af nefna Magnús Áma- son markvörð og þá Peter Bamruk og Steinar Birgisson. í síðari hálfleik var fátt um fína drætti hjá liðinu. Leikinn dæmdu þeir Rögnvald Er- lingsson og Stefán Arnaldsson og báru þeir full mikla virðingu fyrir Vík- ingum og voru þeim hliðhollir. Mörk Víkings: Birgir 8, Bjarki 7, TVufan 6/1, Karl 4, Guðmundur 3 og Ámi 3/1. Haukar: Bammk 6, Steinar 5, Sigurjón 4, Sveinberg 2, Pétur Ingi 2, Snorri 1, Gunnlaugur 1 og Jón Öm 1. BL Handknattleikur -1. deild: Valssigur um síðir Valsmenn lentu í nokkru basli með Gróttu á Hb'ðarenda á laugardag. Jafnræði var með liðunum alveg fram á lokamínútumar að Valsmenn sýndu styrk sinn og tryggðu sér sigur 26- 22. í leikhléi var staðan jöfn 12-12. Mörk Vals: Jakob 7, Jón 6, Valdimar 6/1, Finnur 3, Brynjar 3/1 og Júlíus 1, Grótta: Halldór 7/5, Páll 4, Stefán 3, Friðleifur 2, Gunnar 2, Davíð 2 og Svafar 2. Skiptur hlutur í botnslagnum Fram og Selfoss skildu jöfn 17-17 í botnslag deildarinnar í Laugardais- höll á sunnudag. í leikhléi voru gestimir frá Selfossi yfir, 7-10. MörkFram: Karl 5, Páll 4/3, Gunn- ar 3, Andri 2, Jason 2 og Hermann 1. Selfoss: Gústaf 5/1, Einar G. 5/1, Stefán 2, Sævar 2, Einar S. 1 og Sverrir 1. Enn spennufall hjá Stjörnumönnum Stjaman var komin með yfirburðar- stöðu gegn ÍR í leikhléi 15-8, en eins og í undanfömum leikjum varð ákveðið spennufall í síðari hálfleik og ÍR-ingar náðu að minnka mun- inn í 2 mörk. Stjaman vann þó öruggan sigur 24- 22. Mörk S(jömunnar: Magnús 8, Skúli 6, Axel 5, Patrekur 4 og Hafsteinn 1. ÍR: Frosti 6, Ólafúr 5, Matthías 4, Magnús 4, Róbert 4 og Guðmundur 1. FH vann KA Á fóstudagskvötd unnu FH-ingar 24- 27 sigur á KA-mönnum á Akur- eyri. Mörk KA: Sigurpáll 7/1, Pétur 6, Erlingur 5, Hans 5 og Andrés 1. FH: Stefán 8/3, Guðjón 8, Knútur 4, Pét- ur 3, Hálfdán 2 og Þorgils 2. Sjötta jafntefli KR-inga staðreynd KR og ÍBV gerðu 20-20 jafntefli í Laugardalshöil á fóstudagskvöld. KR- ingar hafa því gert 6 jafntefli í 12 leikjum. Mörk KR: Páll 5, Konráð 5, Willum 2, Guðmundur 2, Björgvin 1 og Þórður 1. ÍBV: Þorsteinn 5, Jóhann 3, Sigurður F. 3, Gylfi 3, Sigurður G. 3/1, Guðfinnur 2 og Sigbjörn 1. BL Körfuknattleikur - Úrvalsdeild: Sigurganga Grindvík- inga enn óslitin Grindvíkingar unnu ævintýralegan sigur á grönnum sínum Keflvík- ingum 82-86 í Keflavík á sunnu- dagskvöld. Þar með era Grindvík- ingar komnir í harða samkeppni við Keflvikinga um annað sætíð í B-riðli, en Grindvíkingar töpuðu 3 fyrstu leikjum sínum í mótinu. Það voru Keflvíkingar sem voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og höfðu 20 stiga forystu í leikhléi, 52-32. Hittni þeirra var með ólík- indum góð í hálfleiknum og úrslit- in virtustvera ráðin. Grindvíkingar voru á öðru máli og náðu að kom- ast yfir í fyrsta sinn í leiknum, 82- 83, á síðustu mínútunni. Sigurinn var þeirra 82-86, eftir að þeir höfðu gert síðustu 9 stigin í leiknum. Þessi úrslit sína hvað hægt er að gera ef baráttan er næg, en hana hefur sjaldan skort þegar Grindvík- ingar eru annars vegar. Dan Krebbs var óstöðvandi í leiknum og hér er áreiðanlega á ferðinni sá leikmaður sem þeir Grindvíkingar hafa verið að leita að svo lengi. Stig Keflvíkinga: Sigurður 18, Lytle 17, Albert 16, Falur 13, Jón Kr. 10 og Egill 8. Grindvíkingar: Krebbs 38, Guðmundur 16, Stein- þór 10, Jóhannes 10, Sveinbjöm 4, Rúnar 4, Guðlaugur 2 og Marel 2. BL Stórsigur hjá Þór Þórsarar án Sturlu Örlygssonar unnu stóran sigur á Valsmönnum 110- 78 er liðin mættust á Akur- eyri á sunnudagskvöld. Sturla tók út síðari leikinn í tveggja leikja banni sem hann var dæmdur í fyrir skömmu. Þórsarar voru yfir í leikhléi 51- 45 og gerðu síðan út um leikinn í upp- hafi síðari hálfleiks. Jón Öm, Cedr- ic Evans, Guðmundur og Konráð vom mennimir á bak við sigur Þórs, en hjá Val stóð Magnús Matt- híasson sig vel. Stig Þórs: Evans 25, Jón Öm 23, Konráð 20, Guðmundur 19, Ágúst 4, Davíð 2 og Helgi 2. Valur: Magn- ús 23, Ragnar 16, Grissom 15, Gunnar 9, Helgi 7, Guðni 5 og Bjarki 3. BL Naumur sigur Hauka í Stykkishólmi Haukar sluppu með skrekkinn er þeir sóttu Snæfell heim í Stykkis- hólm á sunnudagskvöld. Haukar höfðu yfir í leikhléi 40-51. tsíðari hálfleik náði Snæfell að jafria, en síðan ekki söguna meir og Haukar unnu mikilvægan sigur 80-88. Stig Snœfells: Brynjar 29, Per- egeoud 17, Bárður 13, Ríkharður 11, Hreinn 6, Sæþór og Þorkell 2. Haukar: Jón Amar 26, Noblet 22, ívar 17, Henning 12, Pálmar 9 og Reynir 2. BL Staðan í úrvalsdeildinni A-riðiU: Njarðvík 10 7 3 900- 774 14 KR 11 7 4 888- 865 14 Haukar 11 6 5 910- 904 12 Snæfell 11 2 9 778- 900 4 ÍR 11 0 11 824-1060 0 B-riðiU: Tindastóll 10 9 1 1002- 879 18 Keflavík 10 8 2 993- 900 16 Grindavík 11 7 4 940- 895 14 Valur 11 4 7 895- 970 8 Þór 11 4 7 1052-1025 8 Handknattleikur -1. deild: Víkingar stungu af undir lokin

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.