Tíminn - 20.11.1990, Qupperneq 16
■ Ikl Æk <E* ■ Kk Ji Æk 131
AUGLYSINGASImAR
& 686300
RÍKISSKIP
NHTIMA FLUTNINGAR
Hatnarhusinu v Tryggvagoiu,
S 28822
SAMVINNUBANKINN
Í BYGGÐUM LANDSINS
a NI5SAIM
Réttur bíll á
réttum stað.
^asi-. Ingvar
í II I Helgason hf.
Sævarhöfða 2
Sími 91-674000
■
ríniinn
ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER1990
Gott samræmi er á milli raunvaxta af verðtryggðum og óverðtryggðum skuldabréfum:
VAX1 URBANKANNA
JRAU KIST Á ÁRINU
í skýrslu Seðlabanka íslands um vaxtaþróun og afkomu banka
og sparisjóða kemur fram að vaxtamunur á tímabilinu janúar til
ágústs í ár var að meðaltali 4,5%. Á sama tíma í fyrra var vaxta-
munurinn 3,43%. Tryggvi Pálsson bankastjóri íslandsbanka
segir að þessar tölur komi sér mjög á óvart og bendir á að vaxta-
munur hefur minnkað í íslandsbanka á þessu ári.
Þegar íslandsbanki hækkaði
vexti sína um síðustu mánaða-
mót, sagði Tryggvi Pálsson
bankastjóri, að vaxtamunur á
þessu ári hefði minnkað veru-
lega. Upplýsingar f skýrslu
Seðlabanka ganga þvert á full-
yrðingu Tryggva. Hann sagði í
samtali við Tímann að vaxta-
munur í íslandsbanka hefði
minnkað stig af stig allt þetta ár
og væri nú umtalsvert minni en
hann var að meðaltali á síðasta
ári hjá bönkunum þremur sem
nú mynda ísiandsbanka. Þá var
vaxtamunurinn hjá þeim 5,4%. Á
fyrsta ársfjórðungi þessa árs var
vaxtamunur í íslandsbanka
4,6%, á öðrum ársfjórðungi
4,0% og á þriðja ársfjórðungi
3,5%.
Tryggvi sagðist ekki hafa undir
höndum upplýsingar um hvern-
ig Seðlabankinn reiknar vaxta-
muninn. Hann sagði prósentu-
tölurnar koma sér á óvart, eink-
um í ljósi þeirrar þróunar sem
orðið hefði hjá Islandsbanka.
Tryggvi sagði að hjá íslands-
banka hefði náðst fram veruleg
hagræðing í kjölfar sameiningar
bankanna. Minni vaxtamunur
væri bein afleiðing þessarar hag-
ræðingar.
í skýrslu Seðlabanka eru raun-
vextir erlendis af skammtímalán-
um fyrirtækja bornir saman við
raunvexti af verðtryggðum
skuldabréfum. Þessi samanburð-
ur leiðir í ljós að raunvextir hér á
landi eru svipaðir og á hinum
Norðurlöndunum (8,5%), eilítið
hærri en í öðrum Evrópulöndum
(7,2%) en mun hærri en í Banda-
ríkjunum (3,2%) þar sem raun-
vextir eru lágir um þessar mund-
ir samanborið við önnur lönd. í
skýrslunni segir að vart verði
önnur ályktun dregin af þessum
samanburði en að raunvextir hér
á landi séu á svipuðu stigi og í
grannríkjunum.
Miðað við endurskoðaða verð-
lagsspá Seðlabankans hækkar
lánskjaravísitala á næsta þriggja
mánaða tímabili um 4,8% (mið-
að við heilt ár) samanborið við
6,7% í fyrri spá. Miðað við þessa
nýju spá eru raunvextir af óverð-
tryggðum skuldabréfum 7,7% til
9,5%. Algengir raunvextir verð-
tryggða skuldabréfa eru á bilinu
7,75% til 8,75%. Það verður því
ekki annað séð en allgott sam-
ræmi sé á vöxtum á þessum
tveimur lánsformum. Ein af rök-
semdum íslandsbanka fyrir
vaxtahækkun sinni var að mikið
ósamræmi væri milli vaxta á
verðtryggðum og óverðtryggð-
um skuldabréfum, en samkvæmt
skýrslu Seðlabanka fær hún tæp-
ast staðist. Bankinn segir um
vaxtaákvörðun bankans að hún
hafi verið ótímabær.
Svo virðist sem að um næstu
mánaðamót geti bankarnir notað
eitthvað af rökum fslandsbanka
fyrir vaxtahækkun, en Seðla-
bankinn spáir því að þá hækki
lánskjaravísitala á tímabilinu
desember til febrúar um 10%.
Bankinn spáir því að úr þessari
hækkun dragi þegar kemur fram
á útmánuði.
-EÓ
Rammagerðin reið á vaðið með jólaskreytingar í ár, eins og venjulega. Jólaskreytingar í miðbænum verða þó
komnar upp nokkru fyrr en vanalega að þessu sinni. Tfmamynd: Ami Bjama
Jólaundirbúningur í miðbænum:
Allt skreytt fyrir helgina
Verslunareigendur í miðbænum ætla
ekki að verða eftir í jólaundirbúningn-
um. Nú þegar eru nokkrar verslanir
búnar að setja upp jólaskrúðann en
það er nokkru fyrr en undanfarin ár.
„Það eru engin jól nema að fara niður
í miðbæ, ef fólk ætlar að versla á ann-
að borð“, sagði Guðlaugur Bergmann
talsmaður samtakanna Gamli mið-
bærinn. Guðlaugur bætti við að versl-
unareigendur í miðbænum ætluðu að
vera snemma á ferðinni með jólaund-
irbúninginn í ár og samkomulag hefði
náðst um að allar verslanir væru bún-
ir að skreyta fyrir næstu helgi.
En það eru ekki bara þeir í miðbæn-
um, sem ætla að taka jólin snemma í
ár, því að verslanir í Kringlunni ætla
ekki að láta sitt eftir liggja og þar á
einnig að vera búið að skreyta allar
verslanir fyrir næstu helgi. khg.
Hreinsað út úr íbúð
Brotíst var inn í íbúð á Vestur- var þá nánast búið að hrelnsa út
gÖtunni á sunnudag og þaðan úr íbúðinni. Þá var brotist inn í
stolið sjónvarpi, segulbandstæki, Náttúrulækningabúöina að Lauga-
myndavélum, bókum og matvæl- vegi 25 á sunnudaginn og ein-
um. Eigandi íbúðarinnar fór að hverri skiptimynt stoUð, en ekki
heiman um miðjan daginn og kom vitað hvað miklu.
aftur klukkan tíu um kvöldið og —-SE
Handtekinn við innbrot:
EINN VOÐA
SAKLAUS!
Maður var handtekinn í fyrrinótt
við innbrot í heildverslun í Skip-
holti. Að sögn RannsóknarlögregÍu
ríkisins kvaðst maðurinn hafa verið
hressingargöngu áður en hann færi
að bera út Moggann. Hann sagðist
hafa komið að versluninni með
brotinni rúðu og farið inn til að
kanna málið. Maðurinn ætlaði að
hringja á lögregluna en sagðist ekki
hafa kunnað á símann í versluninni
og þess vegna ákveðið að fara út og
hringja og tekið með sér peninga-
kassa verslunarinnar til að fyrir-
byggja það, ef einhver þjófur kæmi,
að hann tæki hann. Aðspurður sagð-
ist Helgi Daníelsson hjá RLR ekki
rengja þessa sögu en hins vegar
mætti setja spurningamerki við
hana þar sem Mogginn kæmi ekki
út á mánudögum.
—-SE
Rjúpnaskyttur á
friðsömum fundi
Skotveiðifélag Akrahrepps hefur
kært fjórar íjúpnaskyttur fyrir
ólöglegar veiðar á Öxnadalsheiði,
að sögn Kára Gunnarssonar for-
manns félagsins. Eins og Tíminn
hefur greint frá, leigir Skotveiði-
félag Akrahrepps veiðiréttinn á
heiðinni af Akrahreppi og eru fé-
lagsmenn í Skotveiðifélagi Eyja-
fjarðar ekki sáttir við þá ráðstöfun
og telja á rétti sínum brotið. Því
héldu þeir til veiða um helgina
með fyrrgreindum afleiðingum.
Fundur Skagfirðinganna og Ey-
firðinga fór friðsamlega fram.
„Þeir komu þama upp eftir, Gísli
Ólafsson formaður Skotveiðifé-
lags Eyjafjarðar við annan mann“,
sagði Kári í samtali við Tímann,
en hann var fyrir ásamt hrepp-
stjóra Akrabrepps, Áma Bjama-
syni á Uppsölum. „Við buðum
þeim veiðileyfi, en þeir sögðust
ætla að veiða þarna án leyfis. Því
báðum við um nöfnin á þeim og
Íeggjum inn kæra á morgun“,
sagði Kári. Þá vora kærðir tveir
aðrir. „Það vora ekki nema fjórir
bflar á heiðinni, þrátt fyrir alls-
herjar herkvaðningu hjá bæði
skotveiðifélögum Eyjafjarðar og
íslands, sem er náttúrulega gjör-
sigur fyrir okkur í þessu máli“,
sagði Kári. Hann sagði að skot-
veiðifélagið myndi halda áfram að
kæra menn á heiðinni fyrir ólög-
legar rjúpnaveiðar.
-hs.