Tíminn - 21.11.1990, Side 1

Tíminn - 21.11.1990, Side 1
6% einstæðra íslenskra foreldra býr í Svíþjóð íslendingum búsettum í Svíþjóð fjölgaði um 1.200 manns í fyrra, sem er um 25% aukn- ing frá árinu áður. Þessir miklu fólksflutn- ingar í fýrra svara til þess að allir íbúar staða eins og Ólafsvíkur eða Ólafsfjarðar hafi tekið sig upp og flutt út. Ástæður fyrir þessarí fjölgun útflytjenda eru eflaust mis- munandi, en trúlega vegur þungt það orð- spor sem fer af sænska velferðarkerfinu, „sósíalnum“, ásamt því að sú skoðun hefur lengi veríð útbreidd að betrí lífkjör bjóðist í Svíþjóð en víðast annars staðar, m.a. hér á landi. Raunar hefur vitnisburður Svíþjóðar- fara, sem snúið hafa til baka á síðustu mánuðum, nokkuð slegið á trú manna um betri kjör í Svíaríki en hér. Hitt er þó Ijóst að ótrúlega hátt hlutfall íslendinga búsettum í Svíþjóð eru einstæðir foreldrar og er mjög trúlegt að það megi að einhveiju leyti rekja til hins heimskunna sænska velferðarkerfis. Nærrí annað hvert íslenskt bam búsett í Svíþjóð er bam einstæðs foreldrís og er nú svo komið að fjöldi einstæðra foreldra bú- settra í Svíþjóð svarar til um 6% af öllum einstæðum foreldrum á íslandi. • Blaðsíða 5 IBH Islendingum í Svíþjóð fjölgaði um 25% í fýrra: Flykkist fólkið á sænska sósíalinn?

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.