Tíminn - 11.12.1990, Side 2
2 Tíminn
Þriðjudagur 11. desember 1990
Oísli Sigurösson laeknir loksins frjáls:
ÍSLENSKIGÍSLINN
ER NÚ Á HEIMLEIÐ
Gísli Sigurðsson læknir, sem haldið hefur verið sem gísl í Kúvæt og
írak frá því því í byrjun ágúst, er nú frjáls maður og er kominn til
London. Gísli yfirgaf írak á sunnudag og fór fyrst til Amman í Jórd-
aníu þar sem Stefanía Reihantsdóttir, ræðismaður íslands í Jórdan-
íu, tók á móti honum. Gísli er væntanlegur til íslands á morgun,
miðvikudag, en Birna Hjaltadóttir, eiginkona Gísla, fór til London
að taka á móti manni sínum.
í tilkynningu sem utanríkisráðu- ^■
neytið sendi frá sér á sunnudag kem-
ur fram að frá því í byrjun september
sl., þegar Birna Hjaltadóttir og Krist-
ín Kjartansdóttir og börn hennar
komu til landsins, hefur miklum
þrýstingi verið beitt til að fá Gísla
lausan frá Kúvæt. Framan af voru
þaö sendiráð Svíþjóðar og Danmerk-
ur sem önnuðust hagsmunagæslu
fyrir Gísla, en síðar tók v-þýska sendi-
ráðið við þegar norrænu sendiráðun-
um í Kúvæt var lokað.
Eftir að Gfsli fór til Baghdad þann 9.
nóv sl. voru Svíar beðnir um að veita
honum alla þá fyrirgreiðslu sem
möguleg væri og gekk íslenska utan-
ríkisráðuneytið í ábyrgð fyrir öll út-
gjöld sem féllu til vegna Gísla. Þann
12. nóv. skrifaði Jón Baldvin Hanni-
balsson utanríkisráðherra Marwan
Qasem, utanríkisráðherra Jórdaníu,
bréf þar sem hann óskaði eftir lið-
sinni hans. Qasem ritaði að bragði
bréf til starfsbróður síns í írak, Táriq
Aziz, og óskaði eftir að Gísli fengi
brottfararleyfi. Þann 27. nóv. fékk ís-
lenska utanríkisráðuneytið skeyti frá
Moskvu þar sem boðið var að sovésk-
ir erindrekar beittu sér fyrir því í írak
að Gísli fengi brottfararleyfi og var sú
aðstoð þegin. Þegar síðan fréttist að
Norðmenn hygðust þann 30. nóv.
gera úrslitatilraun til að ná löndum
sínum brott frá írak var norski utan-
ríkisráðherrann beðinn að hafa Gísla
í huga ef gripið yrði til aðgerða
norskum gíslum til hagsbóta. Var því
vel tekið.
Þann 5. des. sl. var síðan sendiherra
Jórdaníu á íslandi afhent bréf frá Vig-
dísi Finnbogadóttur, forseta íslands,
til Husseins Jórdaníukonungs þar
sem konungurinn var beðinn um að
beita persónulegum áhrifum sínum
máli Gísla til framdráttar.
f tilkynningu utanríkisráðuneytis-
ins er sérstaklega talað um fram-
göngu sænska sendiherrans í Baghd-
ad, Henrik Amneus, sem fór daglega í
íraska utanríkisráðuneytið til að
árétta kröfur um brottfararheimild
fyrir Gísla. Þá hefúr komið fram hjá
Gísla sjálfum að samtal Jóhönnu
Kristjónsdóttur við forseta íraska
þíngsins hafi komið á heppilegum
tíma, en hann mun hafa litið á dvöl
Jóhönnu í Baghdad sem eins konar
heimsókn íslensks sendimanns.
Frásögn Gísla af ástandinu í Kúvæt,
einkum af ástandinu á sjúkrahúsum
þar, hefur vakið mikla athygli í
heimspressunni, eins og viðtalið við
Reutersfréttastofuna hér á síðunni
ber með sér.
Vanheill maður
heldur barni
Sjö ára gamals drengs var sakn-
að frá því kl. 18:00 á laugardag
þar til klukkan að verða hálf þrjú
aðfaranótt sunnudags, er hann
fannst í húsasundi við Baróns-
stíg þar sem andlega vanheill
maður hafði haldið honum allan
tímann. Drengurinn hafði farið
að fylgja stúlku á svipuðu reki
heim til sín, en stúlkan bjó við
Laugaveg en drengurinn á
Njálsgötu. Þegar drengurinn
kom ekki fram var farið að leita
hans og hjálparsveitir með
hunda voru kallaðar út. Maður-
inn var yfirheyrður á sunnudag,
en hann mun ekki hafa skaðað
barnið líkamlega.
Frásögn Gísla Sigurðssonar vekur heimsathygli:
Smábörnin deyja
á sjúkrahúsunum
Alþjóðlegir fjölmiðlar hafa birt viðtöl við Gísla Sigurðsson lækni,
eftir að hann var laus úr prísundinni í írak, enda hefur hann frá
mörgu að segja sem ekki hefur áður komið fram. Við birtum hér
viðtal Reutersfréttastofunnar við Gísla:
Smábörn deyja á sjúkrahúsum í
Kúvæt vegna þess að innrás íraka
hefur rekið á brott starfslið sem
gæti hafa bjargað lífi þeirra, að sögn
vestræns læknis sem starfaði í sigr-
aða furstadæminu þar til fyrir þrem
vikum.
íslendingurinn Gísli Sigurðsson
lýsti því hvernig ung kúvæsk börn
urðu að fá meðhöndlun eftir að
íraskir hermenn höfðu skotið þau í
brjóstið. En hann sagði líka frá því
að fregnir af vísvitandi slæmri með-
ferð á starfsliði sjúkrahúsanna af
hendi íraskra hermanna hefðu verið
orðum auknar.
„Þær fregnir eru ekki sannar,"
sagði Gísli um útbreiddar frásagnir
af því að íraskir hermenn hefðu tek-
ið fyrirbura úr hitakössum og flutt
útbúnaðinn til Bagdad. „Reyndar
tóku þeir ekki tæki úr sjúkrahúsum,
nema hersjúkrahúsum og heilsu-
gæslustöðvum," sagði Gísli.
Hins vegar dóu fjölmörg ungbörn
vegna skorts á starfsfólki síðustu
vikurnar, að sögn Gísla.
Útlagar frá Kúvæt hafa sagt Sam-
einuðu þjóðunum og Bandaríkja-
þingi sögur af því að kornabörnum
hafi verið hvolft úr hitakössum og
hefur George Bush Bandaríkjafor-
seti haft þær eftir. írakar hafa mót-
mælt þeim.
Gísli Sigurðsson, eini íslenski gísl-
inn í haldi íraka og einn af síðustu
vestrænum mönnum sem héldu
áfram að starfa í hinu hersetna
furstadæmi, dvaldist í fimm ár í Kú-
væt. Hann var yfirlæknir svæfmga-
og gjörgæsludeildarinnar á stóru
sjúkrahúsi, Mubarak al-Kabeer, og
kenndi við Háskóla Kúvæt. Það sem
Gísli upplifði er einhver greinar-
„Gling - Gló“ í Óperunni!
Það var þétt setinn bekkurinn í l's-
lensku óperunni sl. fimmtudags-
kvöld, þegar Tríó Guðmundar Ing-
ólfssonar og Björk Guðmundsdóttir
kynntu í fyrsta sinn lög af nýút-
komnum geisladisk sínum. Tón-
leikagestir tóku vel á móti þessari
nýbreytni og klöppuðu sveitina upp
í þrígang í lokin. Djasstríó Guð-
mundar, sem samanstendur af Guð-
mundi Steingrímssyni og Þórði
Högnasyni, auk Guðmundar Ing-
ólfssonar, er löngu landsþekkt. Það
verður hins vegar að teljast til
meiriháttar viðburða þegar þeir fé-
lagar fá til liðs við sig náttúrubarn
eins og Björk Guðmundsdóttur. Af-
raksturinn er „Gling - Gló“, sextán
djassblandin dægurlög frá sjötta
áratugnum, þrykkt á plast og borin
af fingrum fram. - ÁG
besta og nýlegasta lýsingin á því
sem hefur átt sér stað á sjúkrahús-
um í Kúvæt eftir innrás íraka 2. ág-
úst sl.
„Ég vann á sjúkrahúsinu þar til um
miðjan nóvember, en það var óger-
legt að starfa þar lengur vegna þess
að það var sífellt verið að handtaka
mig,“ segir hann. Gísli sagðist hafa
verið tekinn fastur ellefu sinnum og
hefði að síðustu verið gefin skipun
um að fara til Bagdad.
Hann sagði að sjúkrahúsið, sem
hann starfaði við og hefði verið eitt
það sjúkrahús í Kúvæt sem hvað
best hefði verið skipað starfsliði fyrir
innrásina, hefði ekki ráðið yfir nema
10-15% eðlilegs starfsmannafjölda
þegar hann fór.
Þetta bitnaði hvað verst á smábörn-
um vegna þess að flestir fæðingar-
og barnalæknar hefðu verið útlend-
ingar. Arabískir læknar og hjúkrun-
arkonur lögðu á flótta við innrásina,
rétt eins og Vesturlandamenn.
,Á hverjum degi koma upp flókin
sjúkdómstilfelli á spítölunum sem
þarf að fylgjast mjög vel með og þeg-
ar hvorki eru til tæki né starfsfólk er
ekkert hægt að gera,“ segir hann.
„Fársjúk smábörn köfnuðu vegna
þess að enginn gat fylgst með með-
ferðinni á þeim. Tæki voru ónothæf
vegna þess að enginn var til að gera
við þau. Fúkalyf og hjartalyf voru af
skornum skammti. Á þeim fimm
sjúkrahúsum, sem starfrækt eru í
Kúvæt, voru ekki gerðar skurðað-
gerðir nema um líf og dauða væri að
tefla.“
Gísli sagði að á sjúkrahúsinu sem
hann starfaði við hefði verið tekið á
móti særðum írökum og mörgum
hundruðum Kúvæta, þ.á m. ungum
börnum, þegar eftir innrásinu. Þeg-
ar hann fór komu þrír til tíu sjúk-
lingar á dag með skotsár. Þeir voru á
öllum aldri, allt frá eins árs til aldr-
aðra. „írösku hermennirnir skjóta
alltaf í þeim tilgangi að drepa. Þeir
skjóta ekki í fótleggi eða handleggi,
þeir miða alltaf á brjóstið," segir
Gísli.
„Það var skotið á fólk að tilefnis-
lausu — við fengum fólk sem hafði
verið skotið á götunni við að skipta
peningum. Ég man vel eftir einum
Kúvæta. Hann var að mótmæla því
að hann hefði beðið í tvær klukku-
stundir í biðröð eftir brauði. Ein-
hverjir íraskir hermenn voru að
troða sér áfram í biðröðinni. Hann
viðhafði einhverja athugasemd og
var ýtt út úr biðröðinni og skotinn í
brjóstið og magann."
Gísli sagði að komið hefði verið á
sjúkrahúsið hans fyrir u.þ.b. mán-
uði með yfirmann íraska hersins,
sundurskotinn eftir kúlnahríð þegar
hann yfirgaf þorp í Kúvæt. Hann
lést við komuna á sjúkrahúsið.
Gísli sagði að yfirmaður íraska al-
þýðuhersins hefði fengið aðhlynn-
ingu á sjúkrahúsinu eftir að kú-
væska andspyrnuhreyfingin hefði
skotið á hann. Svo mörg mikilvæg
líffæri hefðu hins vegar orðið fyrir
skotum að ekki hefði reynst unnt að
bjarga lífi hans.
Blaðamenn í Bagdad segja að ekki
sé ljóst hver liðsforinginn sé sem
Gísli ræðir um. Engar fregnir hafa
verið sagðar í írak um breytingar á
yfirstjórn alþýðuhersins í Irak, en í
því liði eru þeir karlmenn sem eru
of ungir eða of gamlir til að gegna
herþjónustu í sjálfum hernum.
.Ástandið í Kúvæt var afar, afar
slæmt. Það var lítið orðið eftir af
matvælum og það sem til var var
dýrt. Fólk er hrætt," segir Gísli.
„Það var allt annað að koma til
Bagdad, það var næstum eins og að
fara í frí.“
Tveir menn á Þorskafjarðarheiði:
Sátu fastir í
biluðum jeppa
Tveir menn höfðust við í biiuð-
um jeppa á Þorskafjarðarheiði í
fyrrinótt. Þeir höföu lagt upp
frá Nauteyri við Isafjarðardjúp
um kl. 18 á sunnudag áleiðis til
Reykjavíkur á upphækkuðum
Willysjeppa með blæjum. Þegar
þeir höfðu ekkl komíð fram um
kl. 10 í gærmorgun var haft
samband við lögreglu og hún
hafði samband við Landhelgis-
gæsluna og Siysavamafélagið.
Gæslan var komin í viðbragðs-
stöðu og björgunarsveitir SVFÍ
á Hólmavik og í Reykhóiasveit
voru famar til leitar á Þorska-
fjarðarheiöi og Steingrímsfjarð-
arheiði þegar bóndi úr Nauteyr-
arhreppi fann mcnnina um kl.
11 á sunnanverðri Þorskafjarð-
arheiðinni. Ekkert amaði að
mönnunum, en öxuli hafði
brotnað í bílnum um kl 20 á
sunnudagskvöld og létu þeir
fyrirberast þar sem þeir vom og
biðu hjálpar.