Tíminn - 11.12.1990, Síða 5
Þriðjudagur 11. desember 1990
Tíminn 5
Innkaupaferðir almennings á erlenda grund aukast þegar jólin nálgast:
Fimm til átta tösku
fólk snýr heimleiðis
Asókn í helgarferðir og innkaupaferðir á erlenda grund hefur auk-
ist í ár miðað við í fyrra, þrátt fyrir minni kaupmátt. Aukningin er
mest í hópferðum, en svokallaðar „árshátíðarferðir“ njóta mikilla
vinsælda, þar sem starfsfólk fyrirtækja og félagasamtaka tekur sig
saman og skreppur yfir helgi utan í stað hefðbundinnar árshátíð-
ar.
Kaupmenn eru þó bjartsýnir, þrátt
fyrir að svo margir geri jólainnkaup-
in erlendis, en óska þess að sama
verði látið yfir alla ganga og einstak-
lingum verði gert að borga tolla og
gjöld af sínum innflutningi sem er
umfram leyfilegt magn, til jafns á
við þá. Einhver dæmi eru nefnilega
um að einstaklingar komi hlaðnir
fimm til átta ferðatöskum úr helgar-
innkaupaferðum erlendis.
Magnús Finnsson, formaður Kaup-
mannasamtakanna, sagði, er hann
var inntur eftir því hvort kaupmenn
hefðu almennt áhyggjur af þessari
þróun: „Já, það virðist vera lítið eft-
irlit með því hvað fólk kemur með,
en í lögum er sagt til um hámarks-
upphæð sem hver ferðamaður má
koma með og í mörgum tilfellum er
því ekki framfylgt. Hið eina sem við
óskum eftir er að við stöndum jafn-
fætis ferðamanninum, þ.e.a.s. að
borga skatta og gjöld af þeirri vöru
sem flutt er inn. Við teljum ekki rétt
að ferðamaðurinn megi flytja inn
fullt af varningi án þess að borga
nokkuð af honum, af þeim gjöldum
sem lögboðin eru, eins og t.d. virðis-
aukaskattinn."
Magnús sagðist ekki þekkja þess
dæmi að einstaklingar reyni að selja
þann varning sem þeir koma með úr
slíkum innkaupaferðum, en sagði
þó að hægt væri að láta sér detta
ýmislegt í hug þegar einstaklingar
koma jafnvel með 5 töskur fullar úr
svona ferðum. Þótt Magnús taki ekki
dýpra í árinni en að nefna fimm
tösku fólk, þá þekkir Tíminn dæmi
þess að fólk hefur komið til landsins
með átta troðfullar ferðatöskur af
fatnaði og öðrum varningi.
Inga Engilberts hjá Ferðaskrifstof-
unni Sögu sagði í samtali við Tím-
ann að ásókn í helgarferðir hafi auk-
ist frá í fýrra. „Asókn í ferðir til
Glasgow hefur aukist áberandi mik-
ið og er búið að vera fullt meira og
minna síðan í október," sagði Inga.
Ferðir til Amsterdam eru einnig vin-
sælli en í fyrra, að sögn Ingu, en vin-
sældir London hafa dvínað, því þar
er tiltölulega óhagstætt að versla
um þessar mundir, pundið sterkt og
vöruverð ekki mikið lægra en hér-
lendis. Einnig hefur verið farið mik-
ið í ferðir til Lúxemborgar og Trier í
Þýskalandi.
Ásókn í hópferðir þar sem starfs-
mannahópar, félagasamtök, sauma-
klúbbar og slíkt taka sig saman og
skella sér í stuttar ferðir hefur auk-
ist all verulega, að sögn þeirra hjá
ferðaskrifstofum sem Tíminn talaði
við. Til dæmis fyllti stór hópur frá
einu fyrirtæki í Reykjavík flugvél til
Dublin á írlandi á vegum Sam-
vinnuferða/Landsýnar nú í haust,
tjáði Unnur Helgadóttir hjá Sam-
vinnuferðum/Landsýn Tímanum.
Svokallaðar „árshátíðarferðir" virð-
ast rjúka upp í vinsældum um þess-
ar mundir og voru viðmælendur
Tímans hjá ferðaskrifstofum sam-
mála um það. Inga hjá Ferðaskrif-
stofúnni Sögu sagði að flestar helg-
arferðir í haust og nú fyrir jólin
væru þessar hefðbundnu helgar-
ferðir, en upp úr áramótunum og al-
veg fram að páskum væri bókað í
þessar árshátíðarferðir.
Dröfn Björnsdóttir hjá Úrval/Útsýn
sagði að þau hefðu orðið vör við að
einstaklingar sæktu jafnvel frekar
eftir að komast í fyrirfram skipu-
lagðar hópferðir með fararstjóra um
helgar heldur en áður. „Það er eins
og að fólk vilji fá meira út úr ferðun-
um heldur en eintómt verslunar-
ráp.“ —GEÓ
Alþjóðaráðstefna um varnir
gegn olíumengun í sjó:
Samræmdar reglur
um neyðanriðbrögð
við olíumengun
Frá ráöstefnu BHMR.
BHMR heldur ráðstefnu um mannréttindi
á Mannréttindadegi Sameinuðu þjóðanna:
Verðum að virða leik-
reglur samfélagsins
Þessi mikla skákþjóð verður að fara að skilja að það er auðvelt að
vinna eina skák með því að fara ekki eftir mannganginum, m.ö.o. að
svindla á andstæðingnum. En ef út af leikreglunum er brugðið er á
hinn bóginn hætt við að tafi, eins og við þekkjum það í dag, muni
fijótt Iíða undir lok. Búast má við að andstæðingurinn hætti einnig
að virða mannganginn. Þá spyr maður sjálfan sig: Hvers virði var
það að hafa unnið eina skák eða tvær með því að svindla á mann-
ganginum?“
Á ráðstefnu Alþjóðasiglingamála-
stofnunarinnar, sem nýlega er Iok-
ið, var gengið frá nýrri alþjóðasam-
þykkt um viðbúnað, hreinsun og
samstarf ríkja vegna olíumengunar
í sjó. Fulltrúar 90 rílqa og 17 al-
þjóðasamtaka og - stofnana sátu
ráðstefnuna. Samþykktin öðlast
gildi þegar 15 ríki hafa staðfest
hana. Magnús Jóhannesson sigl-
ingamálastjórí sat ráðstefnuna fyrir
hönd íslands.
Samþykkt þessari er ætlað að
tryggja að alls staðar þar sem hætta
er á olíumengun í sjó, séu fyrir
hendi áætlanir um viðbrögð við ol-
íuslysum, svo takast megi að draga
sem mest úr olíumengun og hættu
sem lífríkinu stafar af henni. Þannig
verður sérhverju ríki skylt að hafa
sérstaka neyðaráætlun tiltæka sem
miðast skal við aðstæður á hverjum
stað.
Þá verður aðildarríkjum að sam-
þykktinni skylt að veita hverju öðru
Aukin starfsemi verður í Hlaðvarp-
anum í desember og verður þar
jólatréssala sem opin er alla daga
til jóla. Hljómsveitarpaili hefur
verið komið fyrir í portinu þar sem
þekktar hljómsveitir landsins
munu skemmta og árita plötur sín-
ar.
Tónlistarfólkið mun skemmta á
laugardögum til jóla og mun Dóm-
kórinn, Megas, Rokklíngarnir,
Björk Guðmundsdóttir og tríó Guð-
aðstoð þegar óhöpp verða, bæði með
því að lána tæknibúnað eða að veita
ráðgjöf. Jafnframt er hvatt til svæð-
isbundinnar samvinnu nálægra
ríkja um neyðaráætlanir sem tækju
til stórslysa.
Þess verður krafist að öll stærri
skip, olíubirgðastöðvar, borpallar og
olíuvinnslustöðvará hafi úti og önn-
ur starfsemi, sem getur valdið olíu-
mengun sjávar, séu með sérstakar
neyðaráætlanir til að bregðast við
mengun frá eigin starfsemi.
Siglingamálastofnun fslands hefur
lagt til við umhverfisráðuneytið og
fjárveitinganefnd Alþingis að veitt
verði tæpum 19 milljónum á fjár-
lögum næsta árs til þess að koma
upp búnaði til olíumengunarvarna í
kringum landið. Þessi fyrirhugaði
búnaður verði í samræmi við sam-
þykkt Alþjóðasiglingamálastofnun-
arinnar og komist hann upp, ætti að
verða auðveldara fyrir ísland að
staðfesta samþykktina. —sá
mundar Ingólfssonar, Langi Seli og
skuggarnir, Bubbi og fleiri koma
fram.
í kjallaranum í Hlaðvarpanum
verður bókamarkaður fyrir þá aðila
sem eru að gefa út verk sín sjálfir,
auk annarra bóka.
Einnig mun listafólk verða sjálft
með varning sinn til sölu, svo sem
textíl, myndir, silki og fleira. Margt
fleira er á boðstólum í Hlaðvarpan-
um að Vesturgötu 3 —GEÓ
Þetta sagði Eiríkur Tómasson lög-
fræðingur á ráðstefnu sem Bandalag
háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna
og Bandalag háskólamanna héldu til
að minnast Mannréttindasáttmála
Sameinuðu þjóðanna, en ráðstefnan
var haldin á Mannréttindadegi Sam-
einuðu þjóðanna. Efni ráðstefnunar
var siðferði stjómvalda. Framsögu-
menn á ráðstefnunni auk Eiríks vom
Jón Steinar Gunnlaugsson lögfræð-
ingur, Guðrún Agnarsdóttir læknir
og Atli Harðarson heimspekingur.
Ráðstefnunni stýrði sr. Auður Eir Vil-
hjálmsdóttir.
í erindi sínu talaði Eiríkur um það
sem hann kallaði stjómkerfisvanda í
íslenskum stjómmálum. Hann sagði
að þessi vandi væri ekki síður alvar-
legur en margumræddur efnahags-
vandi. Hann sagði stjómvöld um-
gangast réttarreglur með ákveðinni
léttúð. Skýringar á þessu sagði hann
m.a. vera að leita í því að reglum og
reglugerðum færi stöðugt fjölgandi.
Á sama tíma færðist það í vöxt að
þessum reglum væri ekki fylgt eftir.
Svo virtist sem enginn gerði neina at-
hugasemd við það. Skýringarinnar
væri einnig að leita í því að fram-
kvæmdavaldið væri stöðugt að teygja
sig inn á valdsvið löggjafarvaldsins.
Eiríkur sagði að það væri ekki við því
að búast að í þjóðfélagi þar sem
stjórnmálamenn umgangast réttar-
reglur með léttúð, hefðu þróast pólit-
ískar siðferðisreglur á sama hátt og í
öðmm lýðræðisríkjum.
Eiríkur sagðist telja bráðabirgðalög-
in frá því í sumar aðeins eitt dæmi af
mörgum um siðferðiskreppu í ís-
lenskum stjómmálum. Hann tók
fram að allir flokkar sem átt hafa aðild
að ríkisstjómum væm sekir í þessu
efni. Eiríkur sagði ekki einungis við
stjórnmálamennina að sakast Öll
þjóðin bæri hér nokkra sök.
„Við þurfum að gera miklu skýrari
greinarmun á leikreglunum í þjóðfé-
laginu annars vegar og hins vegar
þeim efnahagsmarkmiðum sem
stefnt er að. Þessu tvennu má með
engu móti blanda saman, því þá er
voðinn vís,“ sagði Eiríkur að lokum.
Félagið í Miðbænum:
Jólastemning í
Hlaðvarpanum