Tíminn - 18.12.1990, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 18. desember 1990
Tíminn 5
Páll Arnór Pálsson hefur áfrýjað til Hæstaréttar dómi undirréttar
________gagnvart fjórum af sautján sem ákærðir voru:
Fjórir Hafskipsmenn
sendir í Hæstarétt
Páll Arnór Pálsson, sérstakur saksóknari í Hafskipsmálinu svo-
nefnda, hefur áfrýjað dómi Sakadóms Reykjavíkur, gagnvart fjórum
mönnum af þeim sautján sem upphaflega voru ákærðir, til Hæsta-
réttar. Þrír af þessum mönnum, Björgúlfur Guðmundsson, fyrrver-
andi forstjóri Hafskips, Páll Bragi Kristjónsson, fyrrum fram-
kvæmdastjóri fjármálasviðs, og Helgi Magnússon endurskoðandi
voru sakfelldir í undirrétti, en auk þess var máli Ragnars Kjartans-
sonar, sem var sýknaður í undirrétti, skotið til Hæstaréttar. Þrettán
aðrir voru sýknaðir, þeirra á meðal voru bankastjórar Útvegsbank-
ans, og var þeirra málum ekki áfiýjað til Hæstaréttar.
Ragnar Kjartansson, einn fjór- telja hana tekna gegn betri vitund
menninganna og fyrrum stjórnar- hans sjálfs. „Þetta er ekki sakamál
formaður Hafskips, sagði aðspurður og hrundi til grunna í Sakadómi.
að honum litist mjög illa á þessa Menn geta velt því fyrir sér hverjir
ákvörðun saksóknara og sagðist hafa rétt fyrir sér, sakadómararnir
Yfimefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins
ákvað fiskverð í gær:
2,83% hækk-
un á fiskverði
Yfimefnd Verðlagsráðs tók í gær
ákvörðun um að lágmarksfiskverð
verði áfram ákveðið og það hældd frá
1. desember sl. um rúmlega 2,8%.
Fulltrúar sjómanna í Verðlagsráði
tóku ekki þátt í störfum yfimefndar í
mótmælaskyni, en þeir vilja að fisk-
verð verði gefið frjálst.
Á fundi yfimefndar Verðlagsráðs sjáv-
arútvegsins í gær var ákveðið almennt
lágmarksfiskverð, sem gildir frá 1.
desember sl. til 15. september 1991.
Nefhdin ákvað jafnframt að fiskverð
hækki um 2,83% frá 1. desember sl.
til loka febrúar, frá 1. mars hækkar
fiskverð um 2,5% og gildir hækkunin
til 1. júní. Frá þeim tíma hækkar fisk-
verð um 2%, með þeim fyrirvara að
hækki laun almennt um meira en 2%
þann 1. júní áskilur yfirnefndin sér
rétt til að endurskoða fiskverðshækk-
unina.
Um þessa verðákvörðun varð sam-
komulag milli tveggja fulltrúa fisk-
kaupenda og fúlltrúa útgerðarmanna,
en oddamaður yfimefndar, Þórður
Friðjónsson, forstjóri Þjóðhagsstofti-
unar, sat hjá. Fulltrúar sjómanna í
Verðlagsráði sátu ekki fund nefndar-
innar, en þeir höfðu lýst því yfir þegar
fiskverðsákvörðun var vísað til yfir-
nefndar að þeir myndu ekki taka þátt í
störfúm hennar.
Fulltrúar sjómanna höfðu lagt fram
þá tillögu í Verðlagsráði að fiskverð
yrði gefið ftjálst, en því var hafnað og
ákvörðun um fiskverð var, eins og áð-
ur sagði, vísað til yfimeftidar. Oskar
Vigfússon, annar fúlltrúa sjómanna í
Verðlagsráði, sagði í samtali við Tím-
ann að verðlagning samkvæmt gömlu
reglunni væri ekki lengur tímabær
vegna þess að fiskverð væri mjög mis-
munandi um allt land. „Við teljum
okkur óbundna af ákvörðun yfir-
nefndar," sagði Óskar.
Hann var spurður um hvort sjómenn
hygðust grípa til einhverra aðgerða til
að knýja á um kröfúr sínar. „Eg bendi
bara á það að við eigum óafgreidda
samninga við okkar viðsemjendur og
þessi uppákoma veldur okkur vissum
erfiðleikum í þeim efnum. Nú liggur
fiskverð fyrir og þeir sem þá ákvörðun
tóku hljóta að hafa haft það í huga
hvað það getur leitt af sér.“ -hs.
Tímamót urðu sl. föstudag hjá fýrírtækinu Marel hf. sem hefúr sérhæft sig í
gerð alls kyns voga til nota í sjávarútvegi. Skipavog númer 1000 var þá af-
hent sovéskum kaupendum en Marel hefúr í gegnum tíðina átt mjög góð
viðskipti við Sovétmenn. Vogirfrá Marel er að finna í um 400 skipum frá um
20 löndum. Jón Sigurðsson iðnaðarráöherra varfenginn til að prófa vogina
góðu í síðasta sinn áður en hún var afhent kaupandanum. Geir Gunnlaugs-
son, forstíóri Marel, aðstoðaði hann við prófunina Tímamynd: Ámi Bjama
þrír sem unnu í málinu misserum
saman og fóru ofan í alla grasrót
málsins og kváðu síðan upp meiri-
háttar sýknudóm, eða Páll Arnór
Pálsson, sem unnið hefur með
ákværuvaldinu í tvö ár í þessu sér-
staka máli, og hefur alls ekki hlut-
lausa afstöðu til þess. Hann er að
verja eigin heiður og þeirra sem
sátu ákæruvaldsmegin í þessu
rnáli," sagði Ragnar. Aðspurður
hvernig stæði á því að einungis hans
máli, af þeim fjórtán sem voru sýkn-
aðir, var skotið til Hæstaréttar, sagði
Ragnar að hann væri ekki búinn að
fá upplýsingar um það hverju væri
áfrýjað. „Það er áfrýjað gagnvart
okkur fjórum þannig að það hlýtur
að tengjast þeim hluta upphaflegu
ákæru Jónatans Þórmundssonar
sem snertir okkur fjóra. Páll Arnór
er ekki að segja annað með þessari
ákvörðun en að sakadómararnir þrír
höfðu rangt fyrir sér, en það vil ég
meina að hann segi gegn betri vit-
und, því hann veit af mörgum ein-
stökum málsþáttum sem gjörsam-
lega hrundu til grunna og mér er því
alveg óskiljanlegt hvað drengurinn
er að fara,“ sagði Ragnar. —SE
ELSTS-MARIE TllOKR
FÓRTMFÚS mÓUXK
í
WftyriíMaro kkc
FÓRNFÚS MÓÐIR
ELSE-MARIE NOHR
Hún hefur aldrei verjð mikið fyrir börn, en
f fríi sfnu verður hún ástfangin af manni
nokkrum og kynnist lítilli dóttur hans, sem
er hjartveik og bíður eftir því að komast
undir læknishendur.
í DAG HEFST LÍFIÐ
ERIK NERLÖE
Aðeins sautján ára gömul er hún að verða
fræg og rík. Og rnargt er að gerast í lífi henn-
ar. Hún fær tækifæri sem söngkona; hún
verður ástfangin; hún hittir móður sina,
sem hún hefur aldrei þekkt, en hefur svo
oft dreymt um.
HAMIN G JU HJARTAÐ
EVA STEEN
Hún er rekin úr ballettskólanum og fer því
til London, þar sem hún gerist þjónustu-
stúlka hjá fjölskyldu einni, og gætir lítillar
stúlku. Á leiðinni til London kynnist hún
ungum manni, sem sýnir henni mikinn á-
huga.
SKUGGSJÁ
BÓKABÚÐ OLIVERS STEINS SF
ÆVINTÝRI í MAROKKÓ
BARBARA CARTLAND
Nevada Van Arden var bæði mjög falleg og
vellrík, og hún naut þess að kremja hjörtu
ungu mannanna. Tyrone Strome varð æva-
reiður, þegar hann komst að raun um,
hvernig hún fór með aðdáendur sfna, og
hve laus hún var við alla tillitssemi og
hjartahlýju.
í SKUGGA FORTÍÐAR
THERESA CHARLES
Ilona var dularfuíl f augum samstarfsfólks
sfns. Engu þeirra datt í hug, að hún skrifaði
spennusögur í frftfma sínum, eða að þessi
,,Nikulás" sem hún átti að vera trúlofuð,
væri aðeins til í hugarheimi hennar.
ASTARSOGURNAR
VINSÆLU