Tíminn - 22.12.1990, Síða 3

Tíminn - 22.12.1990, Síða 3
Laugardagur 22. desember 1990 Tíminn 3 Nefnd á vegum heilbrigðisráðherra hefur skilað inn tillögum sínum sem m.a. miða að því að lækka lyfjaverð og efla yfirstjórn lyfjamála: Lagt til að stofnað vevði hlutafélag um lyfjainnkaup Nefnd, sem Guömundur Bjamason heilbrigöisráðherra skipaði 15. október sl. hefur samþykkt tíllögu og er starfsmönnum nefndarinnar falið að útfæra þar nánar nokkur atriði. Þær hugmyndir, sem nefndin kemur með, eru m.a. þær að eitt fyrirtæki í eigu ríkisins skuli kaupa frá framleiðendum öll iyf sem ríkið greiðir að fullu eða hluta til og að lyfjabúðir eða heilbrigðisstofnanir semji við stjómvöld um þóknun fyrir afhendingu lyfja til neytenda Einnig var samþykkt að útfæra nán- ar hugmynd um að yfirstjóm lyfja- mála verði efld og einföfduð með stofnun embættis lyfjamálastjóra sem verði hliðstætt embætti land- læknis og að afgreiðsla, söfnun og úr- vinnsla lyfjatengdra upplýsinga fari fram í samræmdu tölvu- og upplýs- ingakerfi. Forveri nefndar þessar er vinnuhóp- ur sem skipaður var fyrir um ári síð- an og fylgja skyldi eftir tillögu nefhd- ar sem skipuð var árið 1986, af Ragn- hildi Helgadóttur, þáverandi heil- brigðisráðherra. Nefndin, sem skipuð var 1986, átti að gera úttekt á for- sendum álagningar á lyfjum svo og á tilhögun álagningar. Hún skilaði skýrslu 8. okt 1989 og í nóvember sama ár skipaði heilbrigðisráðherra fyrrgreindan vinnuhóp sem í voru Guðjón Magnússon aðstoðarland- læknir, Guðmundur Sigurðsson heilsugæslulæknir, Haukur Ingi- bergsson deildarstjóri og Ingólfúr J. Petersen skrifstofústjóri. Vinnuhóp- urinn hefur m.a. komið því til leiðar að heildsölu- og smásöluálagning var Iækkuð, þak var sett á álagningu dýr- ustu lyfja, gefin var út samheitaverð- skrá lyfja, gefinn var út listi með skrá yfir ódýrustu sambærileg lyf og að reynt var með auglýsingum að hvetja til notkunar ódýrari lyfja og minni lyfjanotkunar. Hefur þetta m.a. leitt til þess að kostnaður ríkisins vegna lyfjakaupa er 300 milljónum lægri en ella hefði verið. í vinnuhópnum var einnig rætt um breytingar á skipu- lagi lyfjamála sem leiddi til þess, eins og áður sagði, að Guðmundur Bjamason skipaði nefnd í október sl. í nefndina voru skipaðir Guðjón Magnússon skrifstofustjóri í heil- brigðis- og tryggingamálaráðuneyt- inu formaður, Almar Grímsson lyf- sali, Bjami Bjamason forstjóri, Bolli Héðinsson formaður TVyggingaráðs, Haukur Ingibergsson deildarstjóri í fjármálaráðuneytinu, Jón Bjömsson lyfsali og Kristján Linnet lyfjafræð- ingur. Nefndin hélt alls fjórtán fundi og á 6. fundi nefndarinnar var samþykkt fyrrgreind tillaga. Þar segir að nefnd- in feli starfsmönnum sínum að út- færa eftirfárandi hugmyndir nánar m.a. með tilliti til fyrirkomulags, hagkvæmni, laga- og reglugerðar- breytinga og að leggja niðurstöður sínar fyrir nefndina eins fljótt og tök eru á. í greinargerð með tillögunni þar sem hugmyndimar em nánar út- færðar segir að embætti lyfjamála- stjóra, sem nefndin leggur til að verði stofnað, verði heilbrigðisráðherra til ráðuneytis og aðstoðar, og annist fyr- ir hans hönd framkvæmd tiltekinna þátta lyfjamála. Gert er ráð fyrir að lyfjamálastjóri sé lyfjafræðingur og að innan embættis hans starfi fimm deildir, tölvudeild, hagdeild, skrán- ingardeild, fræðslu- og upplýsingar- deild og eftirlitsdeild. Til þess að efla samstarf þeirra aðila sem að lyfjamál- um standa leggur nefndin til að stofnað verði Lyfjamálaráð, sem ann- ars vegar verði ráðgefandi fyrir ráð- herra um stjómvaldsaðgerðir og hins vegar verði það umræðuvettvangur um ýmis mál við hagsmunaaðila. Þar sem nánar er fjallað um hug- myndir um að stofna fyrirtæki sem kaupi lyf frá framleiðendum, segir að verð lyfja á íslandi sé með því hæsta í Evrópu. Síðan segir að með því að hætta að skrá innkaupsverð lyfja eins og nú er gert, en kaupa lyf þess í stað inn á alþjóðlegum markaði eftir því sem verð og skilmálar gerast hag- stæðari hverju sinni, má væntanlega ná fram lækkun á innkaupsverði lyfja. Til þess þarf að koma á fót öfl- ugu innkaupafélagi, t.d. hlutafélagi. Hlutafé mætti t.d. bjóða lyfsölum, sjúkrahúsum, ríkissjóði, lífeyrissjóð- um, lyfjainnflytjendum, félagasam- tökum og öðrum þeim aðilum er tengjast heilbrigðismálum. í hugmyndum nefndarinnar um af- hendingu til neytenda segir að lyfja- dreifing sé einn þáttur heilbrigðis- þjónustunnar, enda sé lyfjakostnaður landsmanna greiddur að stærstum hluta úr ríkissjóði. Þar sem um sé að ræða heilbrigðisþjónustu verði end- urgjald í formi þóknunar Ld. að hluta til fast afgreiðslugjald og að hluta til stiglækkandi álagning. Þóknunin verði samningsatriði milli IVygging- arstofnunar ríkisins og lyfsala með svipuðum hætti og þóknun til ann- arra heilbrigðisstétta, sem fai greiðsl- ur frá TVyggingastofnun ríksins fyrir þjónustu sína. Með þessu móti sé unnt að tryggja rekstrarafkomu minnstu lyfjabúðanna, þar sem þóknunin yrði mismunandi, La.m. hærri í strjálbýlinu þar sem rekstur sé erfiðari en á þéttbýlustu stöðum. Á síðasta fundi nefndarinnar lagði Jón Bjömsson, formaður Apótekara- félags íslands, fram bókun þar sem segir að hann geti ekki samþykkt skýrslu nefndarinnar, þar sem hún gefi ekki rétta mynd af störfúm henn- ar og þeim umræðum sem þar fóru fram. í bókun Jóns segir að nefndin hafi ekki lokið umfjöllun um þau málefni sem henni voru falin sam- kvæmt skipunarbréfi hennar og jafn- framt segist Jón ekki treysta sér til að bera ábyrgð á því að færa sjálfstætt vald faglegrar nefridar, þ.e. lyfjaverða- lagsnefndar, í lyfjadreifingu undir pólitískt vald. Lokaorð bókunar Jóns eru: „Ég áskil mér rétt til aö skila sér- áliti innan skamms tíma." Guðjón Magnússon, formaður nefndarinnar, lýsti fúrðu sinni og harmaði að Jón Bjömsson kysi í fyrsta sinn á síðasta fúndi nefndar- innar að skýra frá því að hann treysti sér ekki til að standa að því nefndar- áliti sem hann hafi sjálfur tekið þátt í að semja og byggt er á tillögum sem samþykktar vom samhljóða á fúndi sem haldinn var 24. nóvember. —SE Síðasti Tími fyrir jólin Blaðið í dag er síðasta blaðið sem kemur út fyrir jól. Tíminn kemur út næst föstudaginn 28. desember. Við óskum lesendum okkar gleðilegrar jólahátíðar. Sprenging í stálbræðslu Sprenging varð í háspennuher- bergi stálbræðslunnar í Hafnarfirði á fimmtudag með þeim afleiðingum að 25 metra hlaðinn útveggur þeytt- ist út og fór í mél. Engin slys urðu á fólki. Tálið er að bilun í olíufylltum aflrofa hafi valdið sprengingunni. GS. e .X' t i r • s k <i t t u f s l á t t u r • / á n s r é t t i n d i Með reglulegum sparnaði, hæstu vöxtum, skattafslætti og lánsrétti leggurðu Grunn - O Út er komin í fslenskri þýðingu Þorsteins Siguriaugssonar skáld- sagan „Uppmninn", (The Founta- inhead), eftir rússnesk-banda- rísku skáldkonuna Ayn Rand. Uppmninn kom fyrst út f Banda- ríkjunum árið 1943 og hefur síð- an komið út á IJölmörgum tungu- málum og selst í milljónum ein- taka. Uppmninn birtist nú í fyrsta sinn í íslenskri þýðingu. sem er sniðinn að þínum þörfum. Grunnur er húsnædisreikningur Landsbankans. Hann er bundinn í 3 til 10 ár og nýtur ávallt bestu ávöxtunarkjara sem bankinn býður á almennum innlánsreikningum sinum. Leggja þarf inn á Grunn eigi sjaldnar en ársfjórðungslega. Hámarksinnlegg á ári er nú rúm 360.000,- eða 90.000, - ársfjórðungslega. Þannig gefur til dæmis 360.000 króna innlegg 90.000 krónur i skattafslátt. Grunni fylgir sjátfkrafa lánsréttur að sparnaðar- tímanum loknum, en skilyrði er að lánið sé notað til húsnæðiskaupa eða endurbóta og viðhalds. \ Hámarkslán er nú 1,8 milljónir króna. Grunnur er þannig bæði góð sparnaðarleið fyrir þá sem hyggja á húsnæðiskaup eða byggingu og kjörinn iífeyrissjóður fyrir sparifjáreigendur. L Landsbanki íslands Banki allra landsmanna

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.