Tíminn - 22.12.1990, Qupperneq 4
4 Tíminn
ov; 'i's'J irl32fáL 1UQSbl3g!JSj
Laugardagur 22. desember 1990
Persaflói:
Tyrkir biöia NATO
um hernaðaraðstoð
Að sögn talsmanns tyrknesku stjómarinnar, ákvað stjómin á fundi á
fimmtudagskvöldið að biðja NATO, en TVrkir eru aðilar að bandalag-
inu, um að senda til sín þrjár flugsveitir til að styrkja vamir sínar
gagnvart hugsanlegri árás íraka. Landamæri ríkjanna liggja saman.
Flugsveitirnar eru úr hreyfanlegri flugvélar frá Ítalíu, Belgíu og Þýska-
herdeild innan NATO (Allied Mobile
Force), sem var stofnuð árið 1960,
en hefur aldrei verið send á róstu-
svæði áður. Flugherinn hefur um 40
landi.
Frá NATO í Brússel bárust þær
fregnir að þótt ekki væri fordæmi
fyrir slíkri aðstoð, væri líklegt að
bón TVrkjanna yrði samþykkt. Flug-
sveitirnar myndu ekki verða notaðar
til árásar á íraka, því að þeir væru
fyrir utan hið hefðbundna varnar-
svæði NATO.
Samkvæmt samningum milli
Bandaríkjanna og Tyrklands mega
Bandaríkjamenn hafa 48 flugvélar í
Incirlik herstöðinni í Suður- Tyrk-
landi og eru nú með hátt í það. En
þeir mega ekki beita þeim nema
með fullu samþykki Tyrkja. Tyrkir
hafa nú 100 þúsund manna herlið
skammt frá landamærunum.
Saddam Hussein sagði fyrir um
viku að TVrkir þyrftu ekki að óttast
að írakar réðust á múslimska vini
sina.
Reuter-SÞJ
AÞENA - Einn maður lét Kfið og
þúsundir manna misstu heimili
sín í jarðskjálfta í norðurhluta
Grikklands í gær. Skjálftinn
mældlst 5,5 á Richter og hefur
ekki komið eins Öflugur jarð-
skjálfti á þessum slóðum í 12 ár.
Skjálftans varð einnig vart í Júgó-
slavíu og Búlgaríu.
MOSKVA - Iiáttsettur aðstoðar-
maöur Shevardnadzes, utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna, segir að
hann muni, þrátt fyrir afsogn
sína, starfa áfram með Gorbatsjov
forseta.
MOSKVA - Sovéskir lýðræðis-
sinnar eru óttaslegnir út af afsögn
og ummælum Shevardnadzes, ut-
anríkisráðherra Sovétríkjanna.
LUNDÚNIR - Vestrænir leiðtogar
halda allri áætlun I milliríkjavið-
skiptum, þótt menn séu hræddir
Shevardnadzes
muni hafa veruleg áhrif á sam-
starf Sovétrfkjanna við Vestur-
lönd.
BANI SA’D, írak - írakar æfa nú
brottflutning borgarbúa I undir-
búningi fyrir mögulegt stríð.
RIYADH - Cheney, vamarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, og Po-
well, einn af aðalhershöfðingjum
Bandaríkjahers, heimsóttu banda-
rfska hermenn í norðaustur
Saúdí-Arabíu eftir að þeir höfðu
rætt skipulagningu hemaðarað-
geröa í þíjá daga.
TIRANA - Albanir hafa tekið nið-
ur risastóra styttu af Lenín í Tlr-
ana, höfuðborg landsins, og er það
táknrænt um breytta tíma í Alban-
BEIRÚT - Hinn nýi forsætisráð-
herra Líbanons, Karami, hóf í gær
stjómarmyndunarviðræður og
virðist sem nú sé kominn varan-
legur friður í Líbanon eftir borg-
arastyrjöld sem hefur geisað í 15
TÚNIS - Leiötogi Palestínuaraba
segir að með afsögn Shevardnadz-
es geti Sovétmenn tekið upp nýja
stefnu gagnvart Aröbum og fjar-
lægst stefnu Bandaríkjamanna í
Persaflóadeilunni.
NAZARET, Palestínu -
ástandið við Persaflóa fælir burtu
ferðamenn sem vanir eru að heim-
sækja heimabæ Krists á hverjum
UÚBUANA, Júgóslavíu - Lýð-
veldið Slóvenía ætlar að halda al-
menna atkvæðagreiðslu í lýðveld-
inu um hvort lýðveldið eigi að lýsa
yfir sjálfstæði og kljúfa sig frá
öðrum lýðveldum Júgóslavíu.
Reuter-SÞJ
Japanskir vísindamenn segjast
hafa gert merka uppgötvun í
rannsóknum sínum á háum
blóðþrýstingí, sem jafnvel gæti
leitt til lækningar. Hár blóð-
þrýstlngur er einn af mann-
skæðustu velferðarsjúkdóm-
unum.
Uppgötvun þeirra er nánar út-
listuð í vísindatímaritinu Nat-
ure og fylgir hún í kjölfarið á
einangrun vísindamannanna á
hormóninu endothelln fyrir
tveimur árum. Hormón gegna
svipuðu hlutverki og vítamín í
Iífverum, nema hvað þau er
framleidd í hkamanum en þarf
ínin. Þetta endotheiin-hormón
veldur því að æðar þrengjast
sem aftur veldur hækkuðum
blóðþrýstingí, en okkur cr
nauðsynlegt að geta stjómað
þrýstlngi blóðsins. Vísinda-
menn telja að ofgnótt af þessu
hormóni sé aðalorsökin fyrir
háum blóðþrýstingi.
Frá því að endothelin var upp-
götvað hafa lyfjafyrirtækl
keppst um að finna lyf sem geti
hindrað verkun hormónsins.
Tveir rannsóknarhópar jap-
anskra vísindamanna sögðust
hafa fundlð tvær gerðir endot-
helin-móttakara (receptors),
en þeir gera endothelin-horm-
ónunum kleift að tengjast viö
frumumar og virka. Markmið
þeirra er að finna lyf sem
hindrar tengingu hormónsins
við móttakarana. Iteuter-SÞJ
Fjórir af fimm þingmönnum Norðurlands vestra vilja að Ríkisendurskoðun rannsaki sölu hlutabréfa í Þormóði ramma hf.:
Bréfin seld undir sannvirði
Fjórir af fimm þingmönnum Norð-
urlands vestra hafa ritað forseta
sameinaðs Alþingis bréf þar sem
þeir óska eftir að forseti feli Ríkis-
endurskoðun að rannsaka sölu ijár-
málaráðherra á meirihluta í Þor-
móði ramma hf. á Siglufirði. Þing-
mennirnir segjast telja söluna þess
eðlis að óhjákvæmilegt sé að Ríkis-
endurskoðun rannsaki málið.
Þingmennirnir fjórir eru Páll Pét-
ursson, Pálmi Jónsson, Stefán Guð-
mundsson og Jón Sæmundur Sigur-
jónsson. Ragnar Arnalds, þingmað-
ur Alþýðubandalagsins, skrifar ekki
undir bréfið. Tíminn spurði Pál Pét-
ursson hvort ekki væri óvenjulegt
að þingmenn bæru fram ósk um að
Ríkisendurskoðun rannsakaði
gjörðir ráðherra.
„Jú, enda er hér á ferðinni óvenju-
legt mál. Þormóður rammi hf. er
lykilfyrirtæki í atvinnulífi Siglfirð-
inga. Það á gott frystihús, fiskverk-
HUSNÆÐISNEFND REYKJAVIKUR
ALMENNAR KAUPLEIBUÍBÚÐIR
Húsnæðisnefnd Reykjavíkur óskar eftir umsóknum um 10 almennar
kaupleiguíbúðir. íbúðir þessar eru tveggja herbergja íbúðir í nýbyggingu
við Ásholt-Laugaveg, byggðar af Ármannsfelli h.f. íbúðunum fylgir bíl-
skýli.
Um úthlutun íbúðanna gilda eftirfarandi reglur:
a) Umsækjandi skal hafa haft lögheimili í Reykjavík a.m.k. frá 1. des.
1989.
b) Umsækjandi skal hafa hærri tekjur en viðmiðunartekjur samkv. 80. gr.
laga nr. 86/1988 með áorðnum breytingum.
c) Umsækjandi má ekki eiga íbúð fyrir eða samsvarandi eign í öðru
formi.
d) Við úthlutun verður tekið tillit til fjölskyldustærðar og húsnæðisað-
stæðna umsækjanda.
Umsóknareyðublöð verða afhent á skrifstofu húsnæðisnefndar,
Suðurlandsbraut 30 og verða þar veittar allar almennar upplýsingar. Um-
sóknarfrestur rennur út 21. jan. nk.
ORÐSENDING FRÁ HÚSNÆÐISNEFND.
Auglýst verður eftir umsóknum um félagslegar eignaríbúðir (verka-
mannabústaði) um .miðjan jan. nk.
un, þrjá togara og aflakvóta sem mér
er tjáð að hægt sé að selja fyrir 900
milijónir. Segja má að nær 60%
Siglfirðinga byggi afkomu sína beint
og óbeint á atvinnu frá Þormóði
ramma. Fyrirtækið er því bæjarfé-
laginu afar mikilvægt.
Ríkisvaldið hafði forystu um að
stofna hlutafélagið Þormóð ramma
á sínum tíma og átti orðið 98%
hlutafjár þegar fjármálaráðherra
ákvað að afhenda fyrirtækið tveimur
mönnum sem hann hefur sérstaka
velþóknun á. Þeir kaupa það í nafni
tveggja lítilla og veikburða sjávarút-
vegsfyrirtækja. Kaupin fóru fram í
andstöðu við þorra bæjarbúa og í
andstöðu við verkalýðsfélagið á
staðnum. Um 200 Siglfirðingar
bundust samtökum og gerðu sam-
eiginlegt tilboð í fýrirtækið þrátt
fyrir að þeir fengju mjög lítinn frest
til að koma saman tilboði. Fjármála-
ráðherra hunsaði gjörsamlega þetta
tilboð án skýringa.
Okkur þingmönnum ber að standa
vörð um hagsmuni byggðarlaganna
í kjördæminu. Ég tel að hagsmunir
Siglfirðinga hafi verið fyrir borð
bornir þegar fjármálaráðherra af-
henti Þormóð ramma þessum
tveimur mönnum. í kauptilboðinu
er engin trygging gefin fyrir því að
ekki verði braskað með kvótann.
Sala kvótans gerir gott betur en að
borga allar skuldir fyrirtækisins. Ég
tel því að hagsmunum Siglfirðinga
væri best borgin með því að ríkið
eigi fyrirtækið áfram eða að það
verði selt þeim breiða hópi Siglfirð-
inga sem hafa boðist til að kaupa
fyrirtækið.
Þess ber einnig að geta að þing-
menn eiga að standa vörð um hag
og eigur ríkisins og sjá til þess að
eignum ríkisins sé ekki sólundað
eða þeim ráðstafað með óeðlilegum
hætti. Ég tel að hlutabréfin í Þor-
móði ramma hafi verið seld á verði
sem er langt undir sannvirði. Ríkið
er þarna að láta frá sér góða eign fyr-
ir 15 milljóna króna útborgun á
næsta ári. Þetta er óeðlilegt og því
teljum við rétt að Ríkisendurskoðun
rannsaki málið.
Það er fróðlegt að bera þessa sölu
saman við söluna á fiskiskipinu Haf-
þóri, sem sjávarútvegsráðherra seldi
fyrr á þessu ári. Sjávarútvegsráð-
herra lét menn gera bindandi tilboð
í skipið sem síðan voru metin og op-
inberlega kynnt. Sjávarútvegsráð-
herra var ekki að pukrast við að selja
einhverjum kunningjum sínum eða
stuðningsmönnum, eins og hér var
gert. Allir höfðu jafna rétt til að
bjóða í skipið og eðíilega var með til-
boðið farið,“ sagði Páll.
Páll Pétursson og Pálmi Jónsson
fluttu, skömmu áður en hlutabréfin
voru seld, frumvarp þar sem gert var
ráð fyrir að fjármálaráðherra væri
óheimilt að selja hlutabréfin í Þor-
móði ramma nema að fengnu sam-
þykki Alþingis. Páll sagði óeðlilegt
að fjármálaráðherra hefði vald til að
ganga frá svo stórri sölu án samráðs
við Alþingi. Ef selja ætti kotið Streiti
í Breiðdal þyrfti að flytja um það sér-
stakt frumvarp.
Það eru fleiri en þingmenn kjör-
dæmisins sem hafa gagnrýnt söluna
á Þormóði ramma. Verkalýðsfélagið
Vaka hefur mótmælt sölunni og
bendir á að meirihlutaeign fjárhags-
legra veikra aðila að fyrirtækinu geti
stefnt atvinnuöryggi verkafólks í
hættu og jafnvel ógnað tilveru
byggðarlagsins. Bæjarstjórn Siglu-
fjarðar gerði samhljóða samþykkt
áður en salan á hlutabréfunum fór
fram og hvatti til þess að sem flest-
um einstaklingum og íyrirtækjum á
Siglufirði væri gefinn kost á að
kaupa hlutabréf í fyrirtækinu.
-EÓ