Tíminn - 22.12.1990, Page 7

Tíminn - 22.12.1990, Page 7
Laugardagur 22. desember1990 Tíminn 7 þekkja frakkann og um leið var honum sýndur maðurinn’ og Iýsti Emil honum fyrir mér og var það einn og hinn sami er mig sótti heim aðfangadags- kvöldið. Aftur hafði hann leitað fyrir sér á sama stað og verið fengsælli en sér þá um leið til falls. Tal varð um manninn og þýfið í blöðunum og hafði mað- urinn rétt fyrir jólin strokið úr varðhaldi. Ekki er hún merkilegri eða fal- legri en þetta sagan. En við að rifja þetta upp minnist ég ann- arrar heimsóknar sem ég fékk á Garði að kveldi dags, á afmælis- daginn minn. Mér fannst heim- sóknin þá kynleg, einhver hug- arsending á ferðinni, eða eitt- hvert dulið viljaafl. Meinlaust ef einhver vill brosa að þeirri Garðssögu líka. En þar reynir ekki á minnið. Ég var eins og fleiri á námsárunum með dag- bókarhald og í dagbókina var það samstundis ritað og úr henni tekið alveg orðrétt. Til þess að menn síður hlæi að þessu „óskiljanlega", sem um er talað í dagbókinni, þá verða menn að hafa það hugfast hvað beiningamenn komu sjaldan á Garð, þangað ekki mikið að sækja og slíku fólki víst bandað burt af vörðunum. Þessi ábætir við jólasöguna mína frá Garði hljóðar þá svo: „í dag er ég fæddur. Nú er ég 22 ára. Fullorðinn. Nú minnast ástvinir mínir mín heima. Hér man enginn eftir því, sem ekki er von. Enn þá einu sinni rek ég mig á óskiljanlegt. í kvöld fyrir tíma síðan gekk ég fram og aftur um garðinn. Ég hugsaði um sjálfan mig, líf mitt og fæðingardaginn. Ég hugsaði hvort ég gæti gert nokkuð gott í dag. Ég fann það ekki. í dyrun- um stóðu drengir tveir. Ég vildi það væru betlarar; hugsaði ég með sjálfum mér. Ég skyldi gefa þeim það litla fé sem ég á. Ég hef engu eytt til dagsins og það gæti verið mér afmælisgleði. Ég gekk fram í garðhliðið, en drengirnir yrtu ekki á mig, og ég fór inn á herbergi mitt og sat þar einn og læsti að mér. Rétt áðan heyrðist mér drepið á dyr. Ég var fastráðinn í að hleypa engum inn, til þess að geta lifað við góða bók og hug- ann heima, en af forvitni gekk ég að dyrunum og heyrði að það var enginn gestur. Ég opnaði og þetta var vesalingur, nýkominn af sjúkrahúsi, og bað um fé. Ég gaf honum allt það litla sem ég átti. Þetta er undarlegra, þar eð þessi er sá einasti betlari sem enn hefur komið að mínum dyrum." Síðari frásögnin, sem sótt er til löngu liðins tíma, er eftir Vll- hjálm Finsen, ritstjóra og síðar sendiherra, víðförlan og marg- reyndan íslending í útlöndum. Þar bregður hann upp myndum af sjómannajólum sem hann lifði fjarri fjölskyldu og heimilislífi, þegar hann sigldi sem loft- skeytamaður á belgísku hafskipi ungur að árum og segir annars vegar frá jólum í hafi og hins vegar dvöl á jólum á sjómanna- heimili í Rotterdam í Hollandi. Þessar frásagnir eru frá því um 1910. Vilhjálmi segist svo frá: „Aldrei er leiðara að vera fjarri konu og börnum en um jólin. Jól- in eru framar öllu hátíð barnanna og heimilanna og það grípur mann óendanleg þrá og leiði, þegar maður getur ekki verið með sínum nánustu um jólahá- tíðina. Það var svo sem auðvitað að ég, sem var í siglingum í rúm sex ár, kæmist ekki hjá því að vera að heiman einhver jólin. Það eru ör- lög flestra sjómanna. Þrisvar sinnum var ég að heiman um jól- in. Fyrstu jólin, sem ég var að heiman, var ég á belgíska skipinu „Vaderland". A aðfangadagskvöld var skipið á siglingu milli New York og Antwerpen, nokkurn veg- inn á miðju Atlantshafi. Það var skrýtið með þetta skip. Það var eiginlega eign breska skipafélagsins Red Star Line, en sigldi undir belgískum fána. Skipstjórinn var norskur, hét Barmann og var frá Drammen. Fyrsti stýrimaður var þýskur og hét Paradies. Og svo voru yfir- menn frá ýmsum löndum. Það voru sex þjóða menn í borðsal yf- irmanna. Þarna héldum við heilög jól, höfðum jólatré, gáfum hver öðr- um smágjafir, sungum jólasálma, hver á sínu tungumáli, og skemmtum okkur vel fram eftir kvöldinu. Miklu betri matur var framreiddur en hversdagslega og skipstjórinn lagði á borð með sér nokkrar flöskur af víni sem ég bragðaði þó ekki á. En smátt og smátt tók alvöru- svipur að færast yfir menn, við- ræðurnar urðu hljóðlátari og söngurinn dofnaði. Hugurinn hvarflaði heim til hinna nánustu og hver af öðrum fórum við brátt til herbergja okkar. Einstaka tár sást renna niður kinnarnar. Sjó- mönnum hættir til að tárfella þegar þeir komast í „stemmn- ingu“ og svo var um þessa vini mína í „messunni". Ein jólin hélt ég á sjómanna- heimili í Rotterdam. Þetta sjómannaheimili, „Christ- ilijk Theehuis voor Zeelieden", VILHJÁLMUR FINSEN SENDIHERRA: Sjómannajól i Rotterdam var rekið sumpart af ríkinu og sumpart af borginni. Því stjórn- aði hollensk aðalskona, sem lengi hafði dvalist á Jövu og stjórnaði þar sams konar hæli. Hún var mesta gæðakona, sem vildi allt fyrir okkur gera, ákaflega guð- hrædd og las bænir fyrir og eftir hverja máltíð. Á aðfangadagsmorgun fór þessi kona sjálf í vélbáti, sem hæiið átti, um alla höfnina frá skipi til skips að bjóða skipverjum öllum, sem vildu koma, á jólahátíð sjó- mannaheimilisins. Þegar hátíðin byrjaði munu hafa verið þarna 200- 250 manns. Okkur var fyrst veittur beini og síðan söfnuðust allir saman í hinum afar stóra samkomusal hælisins. Þar voru menn frá öllum álfum heims: Japanir, blámenn, Englendingar, Frakkar, Skandinavar, Spánverjar,v Þjóðverjar, Ameríkumenn, Kín- verjar o.fl. o.fl. Á veggjunum voru stórar myndir af drottningunni og Júlíönu prinsessu og óteljandi myndir úr biblíunni. í salnum var fyrst í stað háreysti, hlátrar og sköll. Allir tala saman eins og bræður, enda þótt þeir hafi aldrei sést. Nokkrir eru ölv- aðir og stór svertingi frá Kame- rún hoppar og dansar þarna á gólfinu og syngur undir. Hann er með háan línkraga, rautt knýti og á gljáskóm. En brátt hefst hátíða- haldið og hann verður að hætta dansinum. Skyndilega eru dyr opnaðar inn í annan sal, og í honum stendur á miðju gólfi gríðarstórt jólatré, fagurlega skreytt kertaljósum og alls konar mislitu skrauti. í sömu andránni dettur allt í dúnalogn í salnum. Augu allra mæna á hið skreytta jólatré, og á hverju and- liti má líta angurblíðan svip, sem er þó sjómönnum eiginlega ekki eiginlegur. Hugirnir hverfa heim, heim á æskustöðvarnar til for- eldra og vina, og margir klökkna svo að tár koma í augu þeirra. Það eru endurminningar liðinna gleðistunda um jólin sem snerta viðkvæmustu strengina í sálum þeirra. En þó voru þarna nokkrir menn, svertingjar og mongólar, sem höfðu aldrei áður séð jólatré og skildu ekki hvers vegna allur þessi ljósagrúi var tendraður. í svip þeirra má lesa undrun og forvitni en engum stekkur bros. Allur þessi misliti mannfjöldi bíður þess með eftirvæntingu að byrjað verði að syngja jólasálminn. Og svo kveða við fyrstu orgel- tónarnir. „Heims um ból“ hljóm- ar um salinn. Og söngurinn dyn- ur í eyrum manns, margraddaður og á ýmissa þjóða málum, því að allir sem lagið kunna syngja með, hver á sínu móðurmáli. Allir haldast í hendur og ganga hægt í kringum jólatréð, alveg eins og þetta færi fram í heimahúsum. Svo er beðin stutt bæn á hol- lensku fyrir vinum og vanda- mönnum heima. Margir hneigja höfuðið, loka augunum og biðja í hljóði. Síðan er sungið á ný og veiting- ar bornar fram, kaffi, gosdrykkir og sætabrauð. Forstöðukonan kemur inn og biður alla ganga inn í stóra salinn á ný. Þar hafði hún séð um að sett höfðu verið upp löng borð og voru þau þakin alls konar böggl- um, stórum og smáum. Það voru hálsklútar, sokkar, peysur, tóbak og pípur, bækur og ýmislegt ann- að sem góðir menn og konur höfðu sent sjómannaheimilinu til útbýtingar á jólunum. Hverri gjöf fylgdi nafn og heimilisfang gef- andans og margir telja það sjálf- sagt að þeir, er slíkar gjafir þiggja, sendi gefandanum þakkarbréf. Mér var sagt að oft hefði það komið fyrir að sjómenn hefðu á þennan hátt kynnst ungum stúlk- um sem síðar urðu konur þeirra. Síðan voru framreiddar enn meiri veitingar og okkur skemmt með söng, hljóðfæraslætti og myndasýningu langt fram á nótt. Ég hlaut að gjöf dálítinn út- saumaðan poka til að geyma í óhreint hálslín. í honum var spjald og á það letrað með skraut- letri: „Die in Mij Gelooft heeft eeuwige Leven" — sá, sem trúir á mig, mun öðlast eilíft líf. Þennan poka á ég enn og nota daglega." ASLAUG VAA: Róið var handati, ríðin varbláin, stefht yfír grandann og stikluð áin. Á prestsseturshlaðinu hápamir þéttust, er hringingin kvað við í kirkju settust. Frá Leiti ogMyrká, Lóni og Haugi þama var Styrkár ogþama varLaugi, þama varHeiða, þama var Stína, Pálmi ogHreiðar, Petra og Lína. Pau settust í bekki sín hvorum megin, en hugur var ekki við hjálprœðisveginn. Þótt syngju þau sálma og svömðu tóni, starsýnt varð Pálma á Petru frá Lóni, og Heiðu á Styrkár og Hreiðar á Línu, en Lauga frá Myrká varð litið til Stínu. Svo drúptu þau höfði og drottni sig fólu. Um grátumar vöfðust geislar frá sólu. Svo var klukka slegln, úr kirkju fíýtt sér, heilsað og hlegið, hliðrað ogýttsér, þrifin höndin og þrýstur lófínn. Svo var ekin ströndin og áttinn róinn. Bragl Sigutjónsion hefur nýl«ga sent frá *ér tí- nndu ljóðabók sína & mcira en 40 ára höfundarferlL NtfnUt hún Af erUnduœ tungum, enda geymtr bóidn eingongu þýðingar úr ensku, dönsku, norsku <4 sætulcu. Þar er að finHa á ijöunda tug kvæða eftlr melra en 30 höfunda, b-á >*»• wenska ikáldið Tomai Transtriimer, sem hlotið hefur bókmennta- verðlaun Norðurlandariðs. Þesii bók sýnlr að Braga lætur vel að þýða Ijóð án þesi að af þeim ié þýðtngaHceimur, ekki itit þegar beitt er hefðbundnu fortnl og (slenskum bragregl- um, sem hann hefur ágætlega á valdi sínu, en sú Ilit er nú á hvörfum hjá mörgum. Lj&ðlð, sem hér birtiit, er úr hlnnl nýútkomnu bók Braga Sigurjónssoaar. 1C. Bragi Sigurjónsson

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.