Tíminn - 22.12.1990, Blaðsíða 14
14
HELGIN
Laugardagur 22. desember 1990
Hvaö er á
boðstólum
yfir stór-
hátíðina?
Nú um þessar mundir eru kvikmyndahús í Reykja-
vík að hefja sýningar á jólamyndum og er í mörg
hom að líta og oft erfitt að ákveða hvað á að sjá.
Þess vegna höfum við ákveðið að auðvelda val bíó-
gesta og stuðla að því að allir geti farið í kvik-
myndahús án þess að sjá eftir peningunum.
Litli prakkarínn geröur brottrækur úr klaustrinu.
LAUGARASBIO
Jólamynd Laugarásbíó er
gamanmyndin Problem
Child eða Prakkarinn eins
og hún útleggst á íslensku.
Myndin segir frá 7 ára
snáða sem er að gera for-
eldra sína vitlausa með all-
skyns uppátækjum og
hrekkjum og afrekar það
að verða brottrækur ger úr
nunnuklaustri og setja
heimilisköttinn í þurrkara.
ívan grimmi, Egill Skalla-
grímsson og A1 Capone
voru englabörn miðað við
prakkarann, segir í kynn-
ingu frá Laugarásbíó. Aðr-
ar myndir sem sýndar eru
þar eru myndirnar Henry
og June sem byggir á dag-
bókum Anais Nin og sög-
um Henrys Miller og segir
frá ástarsambandi Anais
við Henry og konu hans
June. Myndin er erótík-
drama og bönnuð börnum
innan 16 ára.
The Guardian er hryll-
ingsmynd sem fjallar um
ungt par sem taka á það
ráð að fá sér barnapíu en
sjá fljótlega að ekki er allt
með felldu með barnfóstr-
una og ýmsir óvenjulegir
atburðir taka að gerast.
Þess má geta að næsta
mynd Laugarásbíós verður
Pump Up the Volume, en
ekki er endanlega ákveðið
hvenær sýningar hefjast.
BIOHOLLIN-
BÍÓBORGIN
Sagan endalausa 2 er fyrri
jólamynd Bíóhallarinnar.
Hún er sjálfstætt framhald
af fyrri myndinni sem sýnd
var hér á landi fyrir nokkr-
dyrnar hjá sér. Nú er Mary
orðin tveggja ára og aftur
komin í pössun og ævin-
týrin fara að gerast. Þeir
Tom Selleck, Steve Gutt-
enberg og Ted Danson fara
með hlutverk piparsvein-
anna og eru þeir allir
þekktir leikarar. Ekki er
sami leikstjóri ráðandi nú,
heldur er Emile Ardolino,
sem leikstýrði Dirty Danc-
ing, kominn í stað Leonard
Nimoy. Fyrri myndin var
endurgerð franskrar
myndar með sama nafni,
en handritið af þessari
nýju er sérstaklega skrifað
fýrir þessa mynd. Börnin fá
sinn skammt þessi jól og
nú er sýnd bæði í Bíóborg-
inni og Bíóhöllinni teikni-
myndin Litla hafmeyjan
María de Medeiros, Fred Ward
og Uma Thurman í hlutverkum
sýnum í Henry & June.
um árum síðan og fjallaði
um ungan pilt sem komst
yfir töfrabók og lifði sig
inn í draumaheim hennar.
Nýja myndin segir frá nýj-
um ævintýrum Bastians
Bux (Jonathan Brandis) og
ferð hans inn í drauma-
landið þar sem hann hittir
margar furðuskepnur og á
í höggi við hið illa þar sem
Xayide norn er fremst í
flokki. Jonathan Brandis
er aðeins 13 ára og hefur
verið starfandi sem leikari
ein 11 ár af ævi sinni, og
komið fram í fjölda sjón-
varpsþátta. Seinni jóla-
mynd Bíóhallarinnar er
myndin Þrír menn og lítil
dama sem er einnig óbeint
framhald af fyrri mynd þar
sem piparsveinarnir þrír
fundu barn fyrir utan
Liprí og Bastian á tau ur Sögunni Endalausu 2.