Fréttablaðið - 27.02.2009, Page 9
8 27. febrúar 2009 FÖSTUDAGUR
ALÞINGI Frumvarp ríkisstjórnar-
innar um breytingar á skipulagi
yfirstjórnar Seðlabankans varð
að lögum í gær. 33 stjórnarliðar
greiddu frumvarpinu atkvæði en
18 sjálfstæðismenn voru á móti.
Mestur hluti þingfundar gær-
dagsins fór í umræður um
breytingar sem meirihluti við-
skiptanefndar (fulltrúar stjórnar-
flokkanna og Framsóknarflokks)
vildi gera og dreift var í þinginu í
gær. Snúast þær um að ný peninga-
stefnunefnd Seðlabankans gefi út
viðvaranir ef hún sér ógnir við
fjármálakerfi landsins.
Þingmenn Sjálfstæðisflokks-
ins lýstu andúð sinni á ákvæðinu
og sögðu það geta grafið undan
fjármálakerfinu. „Þetta getur
verið stórskaðlegt,“ sagði Birgir
Ármannsson sem fór fyrir þing-
mönnum Sjálfstæðisflokksins í
umræðum og meðferð seðlabanka-
frumvarpsins í þinginu. Hann
sagði breytingartillöguna van-
hugsaða, hlutverki nefndarinn-
ar hefði verið breytt og það sem
alvarlegast væri; ekki hefði fengist
álit sérfræðinga á breytingunni.
Öllu þessu mótmæltu stjórnar-
liðar og sagði Álfheiður Ingadótt-
ir, formaður viðskiptanefndar, að
ekki væri um grundvallarbreyt-
ingu á störfum peningastefnu-
nefndarinnar að ræða. „Það er
aðeins verið að ítreka hlutverk
hennar,“ sagði hún.
Jón Magnússon, Sjálfstæðis-
flokki, hafði, líkt og Birgir, margt
við breytinguna að athuga og vitn-
aði í fræðibækur valinkunnra lög-
spekinga þegar hann sagði ótækt
að gera svo margháttaða breytingu
á frumvarpinu á milli annarrar og
þriðju umræðu.
Höskuldur Þór Þórhallsson,
Framsóknarflokki, furðaði sig á
gagnrýni sjálfstæðismanna og
sagði að tæki líkt og það sem pen-
ingastefnunefndinni væri fært
hefði betur verið við lýði fyrr.
Sjálfstæðismenn lögðu einn-
ig fram breytingatillögu. Snerist
hún um að í fyrsta sinn sem for-
sætisráðherra skipar bankastjóra
við Seðlabankann skuli hann leita
staðfestingar Alþingis. Sú tillaga
var felld með atkvæðum stjórnar-
liða.
Með nýjum lögum um Seðla-
bankann, sem öðlast gildi við und-
irritun forseta og birtingu í Stjórn-
artíðindum, verður við bankann
einn bankastjóri og einn aðstoðar-
bankastjóri í stað þriggja banka-
stjóra. Skulu þeir skipaðir á grund-
velli hæfis og menntunar til fimm
ára að undangenginni auglýsingu.
Þá verður peningastefnunefnd
sett á fót sem taka á ákvarðanir
um beitingu stjórntækja bankans
í peningamálum.
Um málsmeðferðina alla sagði
Birgir Ármannsson að hana mætti
kalla langt og flókið uppsagnar-
bréf en Álfheiður Ingadóttir sagði
að vel hefði verið staðið að málum.
bjorn@frettabladid.is
1 Hvað heitir félagið sem
keypti Árvakur, útgáfufélag
Morgunblaðsins?
2 Hvað heitir maðurinn sem
sagði af sér eftir að hafa setið
sem stjórnarformaður Nýja
Kaupþings í tvo daga?
3 Hvaða þrjú félög berjast um
knattspyrnumanninn Baldur
Sigurðsson?
SJÁ SVÖR Á SÍÐU 34
Íslenskt efnahagslíf
- áskoranir og tækifæri
Straumur fjárfestingabanki stendur að morgunfundi laugardaginn 28. febrúar kl. 10:00-
12:00 í Iðnó. Á fundinum verða ræddar helstu áskoranir og tækifæri Íslands í náinni
framtíð.
Waltraud Schelkle, sem er meðal færustu sérfræðinga á sviði efnahags- og
peningamálastefnu Evrópusambandsins, mun fjalla um aðlögunarferli ríkja að stefnu
sambandsins og kosti og galla aðildar. Vilhjálmur Egilsson kynnir nauðsynlegar aðgerðir til
endurreisnar atvinnulífsins að mati Samtaka atvinnulífsins. Sveinn Hjörtur Hjartarsson
fjallar um hagsmuni íslensks sjávarútvegs í tengslum við Evrópusambandsaðild og að lokum
mun Arnór Sighvatsson fara yfir peningastefnu á óvissutímum.
Raffaella Tenconi, aðalhagfræðingur og greinandi Straums mun stýra fundinum sem lýkur
með pallborðsumræðum.
Laugardagur 28. febrúar 2009 - Iðnó
Nauðsynlegar aðgerðir til endurreisnar atvinnulífsins
Dr. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri, Samtök atvinnulífsins
Kostir og gallar aðildar Efnahags- og myntbandalags Evrópu (EMU)
Dr. Waltraud Schelke, dósent, Hagfræðideild Evrópumiðstöðvar
London School of Economics
ESB og sjávarútvegurinn
Sveinn Hjörtur Hjartarsson, aðalhagfræðingur, LÍÚ
Peningastefna á tímum óvissra gjaldeyrishafta
Arnór Sighvatsson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands
Pallborðsumræður og fyrirspurnir
Fundarstjóri er Raffaella Tenconi, aðalhagfræðingur Straums.
10:00
10:20
10:40
11:00
11:20
Fundurinn fer fram á ensku og er engin aðgangseyrir.
Skráning fer fram í síma 585-6600 eða með tölvupósti á receptionreykjavik@straumur.com
A
ug
lý
si
ng
as
ím
i
– Mest lesið
ALÞINGI Árni Mathiesen, þingmað-
ur Sjálfstæðisflokksins og fyrr-
verandi ráðherra, sækist ekki eftir
endurkjöri til Alþingis í kosning-
unum í apríl.
Hann segir að í samtölum við
samflokksfólk í kjördæmi sínu,
Suðurkjördæmi, hafi hann orðið
var við ríkan vilja til breytinga
innan flokksins. Hann geti best
orðið við þeim vilja með því að
óska ekki endurkjörs. „Maður
þarf að hugsa um heildarstöðuna
og hvað maður getur gert til að
flokkurinn fái þá niðurstöðu sem
hann þarf á að halda,“ sagði Árni
í samtali við Fréttablaðið. „Þó ég
telji mig hafa verið góðan leiðtoga
og hafa náð góðum árangri þarf
maður að vita hvenær maður á að
víkja.“
Aðspurður neitar Árni því að
samflokksfólk hans hafi beinlínis
talið ástand efnahagsmála honum
að kenna
„Þetta hefur lítið sem ekkert
beinst persónulega að mér heldur
verið almenn krafa um endurnýj-
un. En auðvitað er margt sem teng-
ist mér þótt bankamálin hafi ekki
heyrt undir fjármálaráðuneytið.
Ég var á staðnum og í ríkisstjórn
þegar þetta gerðist og það getur
vel verið að þetta sé það sem kall-
ast að axla ábyrgð.“
Árni býst við að gegna þing-
mennsku þar til þingi verður slit-
ið fyrir kosningar en kveður óljóst
hvað taki við hjá sér. - bþs
Árni Mathiesen ákvað að hætta í stjórnmálum eftir samtöl við samflokksmenn:
Hlýðir kalli um endurnýjun
HÆTTIR Árni hefur setið á Alþingi
síðan 1991 og verið oddviti Sjálfstæð-
isflokksins í Reykjanes-, Suðvestur- og
Suðurkjördæmum. Hann varð sjávarút-
vegsráðherra 1999 og fjármálaráðherra
2005. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Nýtt ákvæði
hlaut ekki
efnismeðferð
Hlutverki nýrrar peningastefnunefndar Seðlabank-
ans var breytt á síðustu stundu. Sjálfstæðismenn
óttast breytinguna en stjórnarliðar telja hana góða.
UNDIR UMRÆÐUNUM Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra gluggaði í fréttaskýr-
ingu Fréttablaðsins um þingmenn og viðskipti þegar rætt var um seðlabankafrum-
varpið í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Viðbótarhlutverk peningastefnu-
nefndar: Ef peningastefnunefnd
metur það svo að alvarleg
hættumerki séu til staðar sem
ógna fjármálakerfinu skal hún
opinberlega gefa út viðvaranir
þegar tilefni er til.
NEFNDIN VIÐVARI
DÓMSMÁL Frjálshyggjumaðurinn
Hlynur Jónsson fær ekki bætur
frá ríkinu fyrir handtöku sem
hann taldi ólögmæta. Hlynur
var handtekinn þegar hann var
ásamt Frjálshyggjufélaginu að
selja bjór á Lækjartorgi í nóvem-
ber 2006 til að mótmæla ríkisein-
okun á áfengissölu. Héraðsdóm-
ur hefur úrskurðað handtökuna
lögmæta.
Hlynur bar því við að „athöfnin
að láta af hendi bjór gegn gjaldi,
sem var langt undir því verði
sem hann var keyptur á, hafi
ekki verið sala heldur táknrænn
atburður“. Á það var ekki fallist.
Málskostnaður fellur niður. - sh
Mátti taka frjálshyggjumann:
Handtaka fyrir
bjórsölu lögleg
VEISTU SVARIÐ?