Fréttablaðið - 27.02.2009, Qupperneq 13
27. febrúar 2009 FÖSTUDAGUR
Fjármálanámskeið á vegum
Íslandsbanka og Opna háskólans
í Háskólanum í Reykjavík
Undanfarið hafa margir viðskiptavinir Íslandsbanka lýst þeirri skoðun sinni að bankinn eigi að bjóða
fjármálafræðslu fyrir almenning. Þess vegna býður Íslandsbanki nú fjármálanámskeið í samstarfi við
Opna háskólann í Háskólanum í Reykjavík. Leiðbeinandi verður Þór Clausen, M.Sc. í fjármálum,
ásamt ráðgjöfum frá Íslandsbanka.
Markmið námskeiðsins er að veita ráðleggingar um flest sem snýr að fjármálum fjölskyldunnar.
Þátttakendur verða fræddir um sparnað, lán, efnahagsreikning heimilisins, heimilisbókhald,
fjárfestingar, lífeyrissparnað og margt fleira.
Námskeiðin fara fram í Opna háskólanum í Háskólanum í Reykjavík, Ofanleiti 2, og eru öllum opin.
Hvert námskeið stendur í 3 klst. og þátttökukostnaður er 1.000 kr. eða 1.000 punktar í
Vildarklúbbi Íslandsbanka.
Nánari upplýsingar á islandsbanki.is/fjarmalanamskeid.
Næstu námskeið:
• Laugardaginn 28. febrúar Kl. 10.00–13.00
• Miðvikudaginn 4. mars Kl. 17.15–20.15 UPPSELT
• Laugardaginn 7. mars Kl. 10.00–13.00
• Miðvikudaginn 11. mars Kl. 17.15–20.15
Skráning á www.opnihaskolinn.is eða í síma 599 6394.
Hvernig fæ ég yfirsýn
yfir útgjöld heimilisins?
Eru skuldabréf málið í dag?
Hvort er betra að spara í
verðtryggðu eða óverðtryggðu í dag?
Er munur á nafn-
og raunvöxtum?
Hver er munurinn á vara- og neyslusparnaði?
Get ég hætt að vinna við 65 ára aldur?
Af hverju losna ég
aldrei við yfirdráttinn?
Hvernig næ ég
tökum á fjármálunum?
Hvað er verðtrygging
og hvernig virkar hún?
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
0
8
-2
2
5
4
EFNAHAGSMÁL Tryggvi Þór Her-
bertsson hafnar því að hafa lagst
gegn því að Indriði H. Þorláksson,
fyrrverandi
ríkisskattstjóri,
fengi að skrifa
kafla um eign-
ir Íslendinga í
skattaskjólum í
skýrslu nefnd-
ar sem falið var
að gera úttekt á
íslenska skatt-
kerfinu. Hann
muni ekki til
þess að hafa
setið fund í
nefndinni þar
sem t i l lög u
Indriða bar á
góma.
Sagt var frá
því í Fréttablað-
inu í gær að Ind-
riði hafi lagt til
við nefndina,
sem skipuð var
af fjármálaráð-
herra í febrúar 2006, að í henni
yrði kafli eftir hann um skatta-
skjól og erlend eignatengsl við
Ísland.
Fram kom að Ólafur Darri
Andrason, hagfræðingur ASÍ
og nefndarmaður, hefði stutt til-
lögu Indriða. Enn fremur sagði að
Tryggvi Þór og Vilhjálmur Egils-
son, framkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins, hefðu einkum
verið andvígir því að kaflinn yrði
í skýrslunni.
Tryggvi Þór, sem er fyrrverandi
efnahagsráðgjafi Geir H. Haar-
de forsætisráðherra, segist hafa
hætt að mæta á fundi nefndarinn-
ar í nóvember 2006 þegar hann
lét af störfum hjá Háskóla Íslands
og tók við sem bankastjóri Askar
Capital. Hann hafi síðan ekki setið
neinn fund fyrir utan þann allra
síðasta.
Vilhjálmur segir rétt að hann
hafi ekki verið fylgjandi tillögu
Indriða. Indriði hafi ekki kynnt
neina úttekt á skattaskjólum held-
ur „smávegis texta eftir sjálf-
an sig“, unninn upp úr grein sem
hann hafði skrifað, og viljað fá
hann birtan óbreyttan. Nefndar-
mönnum hafi ekki þótt textinn
eiga erindi í skýrsluna. Enn frem-
ur hafi ekkert verið í þessum texta
Indriða sem hafi neitt að gera með
það sem nú er í umræðunni varð-
andi skattaskjól og eignir Íslend-
inga þar.
Hann segist hafa viljað gera víð-
tækari úttekt sem sneri að því að
skoða hvað aðrar þjóðir gerðu til
að laða til sín skattgreiðendur en
nefndin hafi ekki haft tök á því og
umfjöllun um þau mál því orðið
afar fátækleg þegar upp var stað-
ið. „Við Tryggvi Þór fengum aldrei
hljómgrunn til að fjalla sérstak-
lega um þetta,“ segir hann.
„Þannig að það var ekki þannig
að við hefðum verið að beita okkur
gegn umfjöllun um skattaskjól
heldur þvert á móti. Ef við hefðum
fengið að ráða þá hefði verið vönd-
uð úttekt á því hvað aðrar þjóðir
eru að gera til að laða til sín skatt-
greiðendur. Sem er annað heiti á
því sem Indriði kallar skattaskjól,“
segir Vilhjálmur.
Aðspurður segir Vilhjálmur
orðið ‚við‘ í þessu samhengi meðal
annars eiga við um hann sjálfan og
Tryggva Þór. stigur@frettabladid.is
Lögðust ekki
gegn úttekt á
skattaskjólum
Tryggvi Þór Herbertsson og Vilhjálmur Egilsson
segjast ekki hafa lagst gegn því að kafli um skatta-
skjól yrði í skýrslu um íslenska skattkerfið. Vilhjálm-
ur segir þá hafa viljað gera enn víðtækari úttekt.
VILHJÁLMUR
EGILSSON
TRYGGVI ÞÓR
HERBERTSSON
SKATTASKJÓL Á eyjunni Tortola, sem tilheyrir Bresku Jómfrúareyjum, má rekja
eignaþræði frá Íslandi.
FJÖLMIÐLAR Auglýsingastofan
Fíton hlaut flestar tilnefningar til
Lúðursins, íslensku auglýsinga-
verðlaunanna, í ár. Fíton hefur
meðal annars annast auglýsing-
ar fyrir Vodafone og Sparisjóðinn
og framleiddi til að mynda her-
ferðirnar „Skítt með kerfið“ og
„Vodafone Gull“ fyrir símafyrir-
tækið.Næst á eftir Fíton í fjölda
tilnefninga kemur auglýsinga-
stofan Hvíta húsið með fjórtán
tilnefningar.
Íslensku auglýsingaverðlaunin
verða afhent við hátíðlega athöfn
á Hilton Nordica í kvöld.
ÍMARK, félag íslensks mark-
aðsfólks, hefur staðið fyrir
afhendingum verðlaunanna allt
frá árinu 1986. - kg
ÍMARK-verðlaunin verða afhent í kvöld:
Fíton með flestar tilnefningar
SKÍTT MEÐ KERFIÐ Herferðir sem Fíton
vann fyrir Vodafone vöktu athygli dóm-
nefndar ÍMARK.