Fréttablaðið - 27.02.2009, Blaðsíða 23
2 föstudagur 27. febrúar
Verður áfram á skjánum
Pétur Jóhann Sigfússon hefur
notið sívaxandi vinsælda frá því að
hann birtist landsmönnum í hlut-
verki Ólafs Ragnars í Nætur- og
Dagvaktinni. Eftir að þáttaröðun-
um lauk óttuðust margir að Pétur
Jóhann myndi ekki sjást á skján-
um í bráð, en sjónvarpsáhorfend-
ur þurfa ekki að örvænta því leik-
arinn hefur samþykkt að vera and-
lit Vodafone í eitt ár í viðbót og
mun því halda áfram að skemmta
landsmönnum í auglýsingum fyrir-
tækisins.
Auk þess leikur
Pétur Jóhann ein-
leik í sýningunni
Sannleikurinn um
lífið í Borgarleik-
húsinu um þess-
ar mundir þar sem
hann fer á
kostum í
spreng-
hlægilegu
hlutverki.
núna
✽ með á nótunum
þetta
HELST
augnablikið
Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Forsíðumynd Valgarð Gíslason
Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir
sigridurdagny@365.is sími 512 5462 Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
FÖGUR Indverska leikkonan Freida
Pinto hefur vakið mikla athygli fyrir
góða frammistöðu í kvikmyndinni
Slumdog Millionaire, en myndin sóp-
aði til sín Óskarsverðlaunum á dög-
unum. Freida tók sig vel út á hátíð-
inni, þar sem hún mætti í þessum
fagurbláa kjól.
Þ etta var ekki planað en auð-vitað alveg velkomið,“ segir
Freyja Sigurðardóttir fitnesskona,
sem er ófrísk að sínu þriðja barni
en yngri sonur hennar er aðeins
15 mánaða og sá eldri fimm ára.
Freyja og eiginmaður hennar, Har-
aldur Guðmundsson, hafa komið
sér fyrir í Limasson á Kýpur en
Haraldi bauðst þar góður knatt-
spyrnusamningur. Freyja
er komin 14 vikur á leið
og er alsátt í sólinni. Fjöl-
skyldan býr vel, húsið er
á tveimur hæðum og með
sundlaug svo Freyja á
eftir að geta kælt sig
niður þegar bumb-
an stækkar. „Við
erum rosalega
ánægð hérna og
það verður fínt
að geta vakn-
að og fengið
sér sundsprett
með bumbuna
út í loftið,“ segir
hún og bætir við:
„Við ætluðum allt-
af að eignast fleiri
börn og tímasetningin
er reyndar mjög góð þar
sem ég er bara heima og
get notið þess að vera ófrísk um
leið og ég hugsa um heimilið. Ég
ætla að njóta þess í botn að vera
ófrísk enda er þetta kannski síð-
asta skiptið. Mér finnst þetta ynd-
isleg tilfinning, að finna að það er
lítið líf þarna inni.“ Aðspurð seg-
ist hún ætla að fæða úti en að
foreldrar hennar ætli að koma og
vera hjá þeim þegar nýjasti fjöl-
skyldumeðlimurinn kemur
í heiminn. „Halli er alveg
viss um að þett sé stelpa
en ég veit það ekki. Það
er voðalega gaman
að eiga stráka og mér
finnst ég orðin nokk-
uð flink með strákana,
er svona strákamamma,“
segir hún hlæjandi en
bætir við að það væri
gaman að fá eina
stelpu í hópinn.
Þrátt fyrir barn-
eignir er Freyja alls
ekki búin að leggja
fitnessið á hilluna
og keppti á Norður-
landamótinu í október þar
sem hún lenti í öðru sæti. „Aron
Freyr var bara tíu mánaða en ég
hef aldrei verið í betra formi.“
indiana@frettabladid.is
Freyja Sigurðardóttir fittnesskona á von á þriðja barninu
NÝTUR ÞESS AÐ VERA
ÓFRÍSK Í SÓLINNI
ÁGÚST BENT SIGBERTSSON TÓNLISTARMAÐUR
Í kvöld fer ég í grillveislu og svo í partí með Istanbúl-þema ásamt hópnum sem
ég fór með þangað í haust. Reykt úr vatnspípum og legið á púðum. Á laugar-
dagskvöld er ég að spila á Prikinu ásamt félögum mínum í Rottweilerhundum.
Sunnudagurinn verður rólegur enda verð ég eflaust bugaður af þynnku.
Hamingjusöm
Freyja og Haraldur
eiga von á sínu þriðja
barni og hafa komið
sér fyrir í Limassol á
Kýpur þar sem Haraldi
bauðst góður knatt-
spyrnusamningur.
„Ég er komin tæpa fjóra mánuði á leið,“ segir Gunnhildur Arna Gunnars-
dóttir, fyrrverandi ritstjóri 24 stunda og núverandi blaðamaður á Morg-
unblaðinu. Gunnhildur og eiginmaður hennar, Björn
Friðrik Brynjólfsson, eiga von á öðru barni sínu í
ágúst en dóttir þeirra, Margrét Arna, verður 14 mán-
aða í mars. „Sjálf á ég systur sem er einu og hálfu
ári yngri. Mér fannst tilvalið að haga barneignum
eins og mamma, eiga tvö börn sem fylgj-
ast að í uppeldinu,” segir hún.
„Þetta var einfaldlega rétti tíminn fyrir
okkur. Ég náði að púsla heimilislífinu og
vinnu vel saman eftir að Margrét mín
fæddist og sá því fljótt að barneignir
þurfa ekki að standa í vegi fyrir að hægt
sé að sinna krefjandi verkefnum.” -iáh
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir blaðamaður:
Á von á öðru barni
Ánægð
Gunnhildur
á von á sínu
öðru barni í
ágúst.
„Ég reyni að leyfa þeim að njóta
sín eins og þær eru og í því sem
þær eru góðar í,“ segir Ástrós
Gunnarsdóttir dansari um stúlk-
urnar sem keppa í Ungfrú Reykja-
vík. Keppnin fer fram á Broad-
way í kvöld, þar sem 23 stúlk-
ur keppa um titilinn, en Ástrós
hefur séð um að þjálfa stelpurnar
að undanförnu. „Æfingarnar hafa
gengið mjög vel, en dagskrá-
in hefur verið ströng hjá stelpun-
um síðustu tvær vikurnar,“ bætir
hún við. Kynnir kvöldsins verður
Unnur Birna Vilhjálmsdóttir sem
var kjörin Ungfrú Ísland og Ung-
frú heimur árið 2005. Húsið verð-
ur opnað klukkan 19 á Broad-
way, en þeir sem heima sitja geta
horft á beina útsending á Skjá-
einum klukkan 22. Aðspurð seg-
ist Ástrós ekki hafa hugmynd um
hver muni bera sigur úr býtum.
„Ég er ekki að spá í hver vinn-
ur, því þær eru allar sætar á sinn
hátt.“ - ag
Ungfrú Reykjavík valin í kvöld
Flott Aðalbjörg Ósk Gunnarsdóttir mun
krýna arftaka sinn í kvöld, en hún var
kjörin Ungfrú Reykjavík 2008.
helgin
MÍN
S N Y R T I -A K A D E M Í A N
Brún án sólar!
Vorum að fá frábært nýtt brúnkuspray frá Su-do. Einstakt spray sem
gefur fallegan og eðlilegan lit. Auðvelt til notkunnar fyrir alla. Handhægar
umbúðir. Getur brúnkað þig sjálf hvar sem er.
Fæst í verslun Snyrtiakademiunnar, Snyrtistofunni Lipurtá
Snyrtistofunni Gyðjunni, Snyrtistofunni Laugar- spa og Snyrtistofunni Cöru.
Ekkert helv… væl
Markaðsmenn Íslands ætla að fjöl-
menna á íslenska markaðsdaginn
á morgun sem haldinn er undir yf-
irskriftinni Ekkert helv… væl. Að
sögn Elísabetar Sveinsdóttur, for-
manns stjórnar Ímark, gengur ráð-
stefna sem haldin er í tilefni dags-
ins út á pepp og að stappa í menn
stálinu, enda dugi ekkert annað á
þessum síðustu og verstu tímum.
Meðal fyrirlesara á ráðstefnunni
eru Árelía Eydís Guðmundsdóttir,
lektor við Háskóla Íslands, sem
er þekkt fyrir skrif um von
og hamingju meðal annars.
Um kvöldið verður svo blás-
ið til fagnaðar auglýsingafólks
en þá verða veitt verðlaun fyrir
bestu auglýsingar ársins 2008.