Fréttablaðið - 27.02.2009, Page 47
34 27. febrúar 2009 FÖSTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
HVAÐ VAR ÉG AÐ SPÁ?
LÁRÉTT
2. sléttur, 6. pot, 8. tala, 9. viðmót, 11.
spil, 12. skrá, 14. fyrirmynd, 16. hvað,
17. ái, 18. sprækur, 20. 999, 21. skrifa.
LÓÐRÉTT
1. hróss, 3. þys, 4. léttúð, 5. bjarg-
brún, 7. markmið, 10. sæ, 13. maka,
15. lipurð, 16. húðpoki, 19. númer.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. lygn, 6. ot, 8. sjö, 9. fas,
11. ás, 12. skjal, 14. mótíf, 16. ha, 17.
afi, 18. ern, 20. im, 21. skrá.
LÓÐRÉTT: 1. lofs, 3. ys, 4. gjálífi, 5.
nös, 7. takmark, 10. sjó, 13. ata, 15.
fimi, 16. hes, 19. nr.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8.
1 Þórsmörk.
2 Gunnar Örn Kristjánsson.
3 FH, KR og Valur.
„Það er eins og þjóðfélagið
vorkenni manni hálfpartinn að
vera ekki á föstu. Málið er að ég
þarf ekkert að vera á föstu til
að vera hamingjusamur. Ég fæ
bara ást og hlýju frá vinum og
fjölskyldu og svo sef ég hjá Lóa
Fimmbogasyni.“
Skjöldur Eyfjörð hárgreiðslumaður, í
Fókus 22. desember 2000.
„Ég myndi örugglega segja það sama ef
ég væri „single“ í dag,“ segir Skjöldur nú.
„Ég hef fengið það verkefni að
selja Morgunblaðið. Nýi-gamli-
Glitnir, Íslandsbanki, eða hvað
þetta nú heitir í dag, seldi Árvak-
ur en ég sel Morgunblaðið,“ segir
Pétur Þór Gunnarsson hjá Gallerí
Borg.
Pétur Þór hefur fengið það verk-
efni að selja í umboðssölu 1. tölu-
blað 1. árgangs Morgunblaðsins frá
árinu 1913. Blaðið er innrammað,
algerlega óskemmt og sennilega
ólesið að sögn Péturs sem aldrei
hefur fengið slíkan grip í umboðs-
sölu og hefur hann þó verið lengi
að. „Tekið verður við öllum boðum.
Líka frá Vilhjálmi Bjarnasyni.
Engar fimm þúsund milljónir hvíla
á blaðinu og engin Agnes Braga-
dóttir fylgir með í kaupunum,“
gantast Pétur.
Engin leið er að spá fyrir um
hvað menn eru tilbúnir að bjóða í
þennan einstaka grip. Og aðspurð-
ur segir Pétur Þór það ekki tíðk-
ast að gefa upp nafn seljanda en
um sé að ræða mann á miðjum
aldri sem hlaut blaðið að gjöf frá
afa sínum. „Þetta er allt blaðið og
má taka það úr rammanum. Enda
reikna ég með því að sá sem kaup-
ir vilji handfjatla blaðið og skoða.
En þetta er bráðfyndið og mjög
skemmtilegt,“ segir Pétur Þór.
Og les auglýsingarnar sem sann-
arlega mega teljast tímanna tákn:
„Reykið. Godfrey Phillips tóbak
og cigarettur sem fyrir gæði sín
hlaut á sýningu í London 1908: sjö
gull medalíur og tvær silfurme-
dalíur. Fæst í tóbaksverzlun R.P.
Leví.“ Þessi auglýsing yrði seint
samþykkt við laga- og reglugerð-
arfargan nútímans, boð og bönn.
Í þessu fyrsta tölublaði kemur
fram að blaðið komi út á hverjum
morgni, fjórar blaðsíður og tvö-
falt á sunnudögum. Á forsíðunni
er leiðari sem Vilhjálmur Finsen
ritar. Sem má heita athyglisverð-
ur í ljósi sögunnar. „Dagblað það,
sem hér byrjar starf sitt, á fyrst
og fremst að vera áreiðanlegt,
skemtilegt og lipurt ritað frétta-
blað. [...] Morgunblaðið tekur
engan þátt í flokkadeilum, þó
það auðvitað muni gefa lesendum
sínum kost á að kynnast fljótt og
greinilega öllu því helzta er ger-
ist í lands- og bæjarmálum. Þær
fréttir munu ritaðar með öllu lit-
laust.“
Pétur segir að menn geti boðið í
blaðið í galleríinu en hann stefnir
allt eins að því að það fari á upp-
boð sem hann ráðgerir innan tíðar.
jakob@frettabladid.is
PÉTUR ÞÓR GUNNARSSON: SELUR MORGUNBLAÐIÐ ÓSKADDAÐ
Agnes ekki með í kaupunum
PÉTUR ÞÓR GUNNARSSON Einstakan grip rak á fjörur hans, 1. tölublað Morgunblaðsins, en þar segir í forystugrein að blaðið taki
engan þátt í flokkadeilum og skrifi litlaust um pólitíkina. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
MORGUNBLAÐIÐ 1. TÖLUBLAÐ Meg-
inefni forsíðunnar er leiðari Vilhjálms
Finsen.
Hátíð tileinkuð gamanmyndinni
The Big Lebowski verður haldin
í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð í þriðja
sinn 7. mars.
The Big Lebowski kom út árið
1998 og síðan þá hefur myndast
í kringum hana hálfgerður sér-
trúarsöfnuður. Fjöldi Lebowski-
hátíða hefur verið haldinn víða
um heim þar sem fólk hefur mætt
í skemmtilegum búningum, keppt
í keilu, horft á myndina og drukk-
ið hvítan Rússa, uppáhaldsdrykk
aðalsöguhetjunnar The Dude.
„Þetta verður svaka flott. Núna
er þetta bara pantað á Netinu og
þá geturðu fengið sendan til þín
miðann og bolinn,“ segir skipu-
leggjandinn Svavar Helgi Jakobs-
son. Bætir hann við að búninga-
keppnin verði harðari með hverju
árinu, en fimmtíu manns mættu
á síðustu hátíð í Öskjuhlíðinni.
„Þetta er algjör snilld, sérstak-
lega þegar menn eru byrjaðir að
taka þetta alvarlega.“
Miðasala fer fram á Bolur.is
og í Keiluhöllinni og kostar 2.500
krónur inn. Innifalið í verðinu er
Big Lebowski-stuttermabolur,
keiluleikur, bjór og að sjálfsögðu
aðgangsmiðinn. - fb
Big Lebowski-hátíð haldin í þriðja sinn
THE DUDE Félagarnir Svavar Helgi (til
vinstri) og Ólafur Sverrir Jakobsson
bregða sér í hlutverk lata friðarsinnans
The Dude.
„Ef viðmælendur verða neikvæðir er
umsvifalaust skellt á þá eða þeir slegnir
úr loftinu,“ segir Þráinn Steinsson, yfir-
tæknimaður Bylgjunnar.
Næsta mánudag hefst jákvæð vika á
Bylgjunni. Að sögn Þráins er hugmynd-
in sú að enginn neikvæður komist í loftið.
Allir dagskrárgerðarmenn, viðmælend-
ur og umræða skal vera jákvæð. „Aðeins
að reyna að rífa okkur upp úr þessari
neikvæðni og bölmóði sem ríkir núna,“
segir Þráinn sem ekki velkist í vafa um
að svartsýnin sé hér öllu að ríða á slig.
„Niðurdrepandi er þetta endalausa tal um
kreppuna. Aðeins að reyna að hífa þetta
upp. Og kannski í leiðinni að fólk velti nei-
kvæðni aðeins fyrir sér sem slíkri.“ Þrá-
inn telur ekki víst að menn geri sér grein
fyrir því þegar neikvæðnin tekur völd-
in. Þeir sem mæta í stúdíó eiga að vera
sér meðvitaðir um að þeim beri að vera
jákvæðir.
Þeir sem eru eins konar yfirritskoðarar,
vaktmenn neikvæðninnar, eru tæknimenn
morgun- og síðdegisþátta Bylgjunnar, þeir
Þráinn og Bragi Guðmundsson. Þótt Þrá-
inn leggi á það áherslu að þetta sé sam-
starfsverkefni dagskrárgerðarmanna og
tækniliðs kemur það í hans hlut að henda
mönnum úr loftinu ef svo ber undir. Sem
kann að koma þeim sem til þekkja á óvart,
ekki að Þráinn sé neikvæð týpa nema
síður sé, heldur er maðurinn alræmdur
strigakjaftur sjálfur. En það þarf ekki að
vera neikvætt að mati Þráins. Og hann
segir aðspurður þetta ekki ganga út á það
að fá menn á borð við Jóhannes á Fóður-
bílnum til að segja brandara. „Sko, tvennt
ólíkt er að vera jákvæður og að reyna að
vera fyndinn.“ - jbg
Neikvæðum umsvifalaust hent úr loftinu
BRAGI OG ÞRÁINN Ritskoðarar Bylgjunnar; ef viðmælandi eða
dagskrármaður er neikvæður „bössa“ þeir allt slíkt úr loftinu
þannig að hlustir hlustenda Bylgjunnar fá bara jákvæðni í eyrun.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Tveir nýir þættir hófu göngu sína
á Skjáeinum um síðustu helgi.
Niðurstöður um áhorf liggja fyrir
hjá Capacent. Virðist sem svo að
Jón Jósep Snæbjörnsson hafi
haft betur í fyrstu lotu
í keppni um áhorf við
Sölva Tryggvason. 7,7
prósent landsmanna
á aldrinum 12-80
ára horfðu á fyndnar
fjölskyldumyndir
Jónsa á meðan
5,2 prósent í
sama aldurs-
hópi fylgdust
með viðtölum
Sölva við
stjórnmála-
menn.
Niðurstöður úr Botnlanganum,
vali á verstu auglýsingum síðasta
árs, voru kunngjörðar í gær. Versta
auglýsing ársins þótti vera Kollekt-
auglýsing Símans þar sem maður
festist inni í ketti. Í öðru sæti var
auglýsing KFC þar sem Herdís
Þorvaldsdóttir ræðir við börnin
um matarvenjur. Síminn þótti eiga
verstu auglýsingaher-
ferðina þar sem
Patrekur póstmað-
ur var í aðalhlut-
verki en þræla-
haldsherferð ASÍ
þótti næstverst.
Að síðustu var
Eimskip
verðlaunað
fyrir vöru-
merkja-
tæringu
árs-
ins.
Frægt er þegar Eurobandið
fór í massíft líkamsrækt-
arátak eftir sigurinn í
forkeppninni í fyrra.
Sigurvegarar þessa
árs ætla ekki síður
að vera í góðu
formi þegar stóra
stundin rennur
upp í Moskvu.
Bæði lagahöf-
undurinn Óskar
Páll Sveinsson og
Jóhanna Guðrún
eru komin í stífa
þjálfun í Laug-
um.
- hdm, jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
250
ÓKEYPIS
KROSSGÁTUR
NÝ GÁTA
Í HVERRI VIKU
w
w
w
.t
h
is
.i
s
/k
ro
s
s
g
a
tu
r
w
w
w
.t
h
is
.i
s
/k
ro
s
s
g
a
tu
r