Fréttablaðið - 27.02.2009, Blaðsíða 49

Fréttablaðið - 27.02.2009, Blaðsíða 49
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Þórgunnar Oddsdóttur 8.42 13.40 18.40 8.31 13.25 18.20 Í dag er föstudagurinn 27. febrúar, 58. dagur ársins. Hann fékk hugmyndina einn sunnudag þegar fjölskyldan fór í bíltúr um nýju íbúðahverfin á höfuðborgarsvæðinu. Þar sem hann stóð og virti fyrir sér fokheld hús og grunna sem verktakar höfðu náð að steypa áður en peningarnir kláruð- ust áttaði hann sig á því að þetta var vannýtt auðlind. Mánuði síðar hafði hann stofnað lítið sprotafyrirtæki og var kominn í blússandi ferða- mannabisness. HANN vissi af sambærilegri þjón- ustu erlendis. Í Úkraínu var til dæmis hægt að panta sér ferðir til draugaborgarinnar Chernobyl svo hann var ekki í nokkrum vafa um að fólk myndi flykkjast til Íslands til þess að skoða íslensku drauga- hverfin þar sem glænýir stein- kumbaldar standa mannlausir í hrönnum. Minnisvarðar um mesta góðæri Íslandssögunnar, afspyrnu ljótan byggingarstíl og skammsýni fámennrar þjóðar sem gleymdi að reikna hversu marga steinsteypta fermetra þarf undir 300 þúsund hræður. ÞETTA voru dagsferðir sem hann bauð upp á og þær seldust vel. Yfirleitt sótti hann ferðalangana á Keflavíkurflugvöll og brunaði með þá beint í úthverfi borgarinnar sem tóku þögul og mannlaus á móti þeim. Eftir notalega nestispásu í ónotaðri Bauhaus-skemmunni við Vestur- landsveg var brunað upp í Kópa- vog og þaðan í Garðabæ þar sem ferðalangarnir tóku myndir af sér brosandi fyrir framan óseljanlegar blokkir og kyrrstæða byggingar- krana. Á leiðinni niður í miðbæ var hann vanur að staldra aðeins við í Borgartúninu þar sem hann rukk- aði fólkið um nokkrar evrur fyrir að fá að hlusta á tónverkið sem verður til þegar vindurinn blæs í gegnum hálfbyggðan turninn við Höfðatorg. Þaðan var haldið í grunn tónlist- ar- og ráðstefnuhússins en þar hélt hann stuttan fyrirlestur og sýndi ljósmyndir af ókláruðum nýbygg- ingum utan höfuðborgarsvæðisins. SVO svaraði hann fyrirspurnum. „Ef þið áttuð svona mikla peninga af hverju byggðuð þið þá svona ljót hús?“ var algengasta spurningin og hann kom sér iðulega undan því að svara henni með því að smala liðinu upp í rútuna á ný og rifja upp ferða- áætlunina. Vallahverfið í Hafn- arfirði var næsti áfangastaður og síðan var það rúsínan í pylsuendan- um. „Við ætlum að taka smá krók á leiðinni út á Keflavíkurflugvöll og kíkja í kaffi til konu í Grindavík sem býr alein í nýbyggðri sjö hæða blokk,“ tilkynnti hann og það brást ekki að allir tóku andköf. SIGLING um Jökulsárlón eða ganga á Hvannadalshnjúk í miðnæt- ursól næðu aldrei að toppa þetta. Frumkvöðullinn Svínakjötsútsala Hagamel 39Sta fr æ na p re nt sm ið ja n- 59 74 föstudag - laugardag - sunnudag ...á meðan birgðir endast Seljabraut

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.