Tíminn - 05.03.1991, Qupperneq 9
8 Tíminn
Þriðjudagur 5. febrúar 1991
Þriðjudagur 5. febrúar 1991
Tíminn 9
Mikil gleði við vígslu Múlaganga sl. föstudag. Greiðari samgöngur efla byggðina:
EITT SAMFELLT ATVINNUSVÆDI
Múlagöngin í Ólafsfjarðarmúla voru formlega
vígð sl. föstudag, að viðstöddu fjölmenni. For-
seti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, heiðr-
aði Ólafsfirðinga með naerveru sinni, og al-
þingismenn og fjöldi góðra gesta mættu á
staðinn. Óhætt er að segja að mikil hátíðar-
stemmning hafi ríkt í Ólafsfirði á föstudaginn,
og gáfu flest fyrirtæki starfsfólki sínu frí í til-
efni af vígslunni.
Dagskráin hófst með skrúðgöngu frá Brim-
nesi og upp í göngin, þar sem Steingrímur J.
Sigfússon samgönguráðherra klippti á borða
og veitti göngunum formlega móttöku frá
vegamálastjóra. Flutt var stutt vígsluathöfn,
þar sem sóknarprestur Ólafsfirðinga blessaði
göngin, Litla lúðrasveitin lék og samkór Ól-
afsfjarðar söng. Að því búnu var haldið í fé-
lagsheimilið þar sem bæjarstjórn Ólafsfjarðar
bauð upp á kaffiveitingar. Forseti íslands,
samgönguráðherra o.fl fluttu ávörp, og tónlist
var leikin. í félagsheimilinu var einnig sam-
sýning nokkurra ólafsfirskra myndlistar-
manna, og myndverk og ritsmíöar yngstu
kynslóðarinnar voru til sýnis í Barnaskólan-
um. Um kvöldið var tónlistardagskrá í félags-
heimilinu, þar sem Ólafsfirðingarnir Örn
Magnússon píanóleikari og Jón Þorsteinsson
óperusöngvari skemmtu, og að því búnu dun-
aði dansinn fram eftir nóttu.
Eitt samfellt
Eyjafjarðarsvæði
Margir hafa velt þeirri spurningu fyrir sér
hvaða þýðingu Múlagöngin hafi fyrir Ólafs-
fjörð og Eyjafjarðarsvæðið í heild. Er þá helst
haft í huga samstarf sveitarfélaga, hvort held-
ur er á sviði atvinnuuppbyggingar eða félags-
legrar þjónustu. Því er spáð að Múlagöngin
eigi eftir að valda byltingu í samstarfi sveitar-
félaga við Eyjafjörð og að í framtíðinni verði
þar eitt atvinnusvæði. Þannig verði greiðari
samgöngur til að efla byggðina, en menn noti
ekki tækifærið og flytji burt. Múlavegurinn
hefur löngum verið erfiður ljár í þúfu og
hindrað eðlilegar samgöngur við Ólafsfjörð.
Ljóst er að Ólafsfirðingar eru fegnir að vera
lausir við Múlann. Bjarni Kr. Grímsson bæjar-
stjóri sagði m.a. í ávarpi við vígsluathöfnina
að Ólafsfirðingar færu í dag frjálsir ferða
sinna, lausir við hættur Múlavegarins. Um
ieið horfðu Ólafsfirðingar með tilhlökkun til
aukins samstarfs og samvinnu við nágranna-
byggðalögin, samstarfs sem reyndar væri þeg-
ar hafið.
Þótt Ólafsfirðingar hafi sætt sig við Múlaveg-
inn, reyndist oft erfiðara að fá aðra til að fara
yfir hann. Greiðar samgöngur eru eitt stærsta
hagsmunamál hvers byggðarlags. Það á ekki
síst við nú á tímum vaxandi ferðaþjónustu og
þess hraða sem nútímaneysluþjóðfélag krefst.
Afskekkt byggðarlög og byggðarlög sem búa
við erfiðar samgöngur hafa orðið útundan og
hefur Ólafsfjörður ekki farið varhluta af því.
Helsti kostur ganganna eru öruggar sam-
göngur. Á síðustu árum hefur verið leitað hag-
ræðingar og samruna fyrirtækja. Á sínum
tíma voru bæði sláturhús og mjólkursamlag í
Ólafsfirði, nú eru hins vegar bæði mjólk og
sláturdýr flutt til Akureyrar. Því þurfa Ólafs-
firðingar að fá mjólk, brauð og ýmsar nauð-
synjavörur að. Samskiptin við Eyjafjarðar-
svæöið hafa aukist á fleiri sviðum. Dalvíkingar
og Ólafsfirðingar eru nú með sameiginlega
sorphirðu, samvinnu í skólamálum, á íþrótta-
sviðinu og svo mætti áfram telja.
Helsta áhyggjuefni Ólafsfirðinga er að þeir
verði að einhverju leyti afskiptir. Þ.e. að upp-
bygging atvinnu og þjónustu verði fremur á
Dalvík eða Akureyri. Hins vegar hlýtur sam-
starf sveitarfélaganna að byggjast á því að báð-
ir aðilar hagnist á þvf og hafa forsvarsmenn
annarra sveitarfélaga við Eyjafjörð lýst yfir
vilja sínum þar að lútandi.
Helstu staðreyndir
Framkvæmdir við jarðgangagerð í Ólafsfjarð-
armúla hófust í ágúst 1988, og sprengdi Stein-
grímur J. Sigfússon fyrstu hleðsluna þann 11.
október sama ár. Steingrímur var síðan aftur á
ferðinni með „skæruliðaútbúnað" sinn 15.
mars 1990 og sprengdi síðustu hleðsluna.
Göngin voru óformlega tekin í notkun 19.
desember 1990, en formleg vígsla fór fram 1.
mars 1991, u.þ.b tveimur og hálfu ári eftir að
framkvæmdir hófust. Heildarkostnaður við
verkið er um 1250 milljónir króna. Tilboð
Krafttaks sf í gangagerðina nam 537 milljón-
um króna í júlí 1988, en framreiknað lætur
nærri að tilboðið sé tæpar 950 milljónir
króna.
Göngin sjálf eru 3140 m löng, 5 m breið og
5,5 m á hæð. Að vegskálum meðtöldum er
heildarlengd ganganna um 3400 metrar. Veg-
skálinn Ólafsfjarðarmegin er 165 m langur, og
er ekið inn í hann í 75 m hæð yfir sjó. Vegskál-
inn Dalvíkurmegin er 100 m langur, og ekið
inn í hann í 125 m hæð yfir sjó. Halli gang-
anna er um 2%, og liggja þau í því sem næst
beinni línu. Allkröpp beygja er þó þar sem
göng og vegskáli mætast Ólafsfjarðarmegin,
og telja kunnugir það helsta annmarka gang-
anna. Göngin eru styrkt með sprautusteypu
og bergboltum, auk þess sem um 1600 fer-
metrar af gúmmíklæðningu var sett innan í
göngin til að varna frosti og að vatn falli á ak-
brautina. Drenkerfi var komið fyrir í vegstæð-
inu og leiðir það vatn út úr göngunum. Eftir
miðjum göngunum og í forskálum var settur
upp kapalstigi og í hann hengd lýsing. Lýsing-
in í forskálunum verður breytileg og fer eftir
birtunni utan ganganna. Ein akrein er í göng-
unum, en 19 útskot með 160 m millibili eru
Eftir
Halldór Inga
Ásgeirsson
Steingrímur J. Sigfusson samgönguráðherra klippir á borðann og opnar Múlagöngin fórmlega. Hjá honum stendur Snæbjöm Jónasson vegamálastjórí.
ætluð til að mætast. Þá eru í göngunum 5
neyðarsímar tengdir beint við lögreglustöðina
á Ákureyri.
Nærri lætur að um 100 þúsund rúmmetrar
af föstu bergi hafi verið sprengdir upp og þeim
ekið út úr fjallinu.
Samkvæmt upplýsingum sérfræðinga jafn-
gildir það um 130 þúsund rúmmetrum af
lausu grjóti, og var efnið m.a. notað sem upp-
fylling fyrir veginn að göngunum sitt hvorum
megin og hluti þess var harpaður og nýttur í
undirlag í göngunum sjálfum. Alls fóru um
200 tonn af dínamíti í um 1000 sprengingum
í að losa um bergið.
Að meðaltali voru sprengdir 50 metrar inn í
fjallið í viku hverri. Verkið gekk mun hraðar
en gert var ráð fyrir í upphafi. Framkvæmdum
lauk nokkrum mánuðum fyrr en ráð var fyrir
gert og umferð hleypt á göngin einum vetri
fyrr en ella. Það var helst að vatnsagi tefði
framkvæmdir. Reyndar kom verulega á óvart
hversu mikið vatn leyndist í berginu. Vatns-
streymið var mælt, og reyndist rennslið um
120 lítrar á sekúndu. Til tals kom að reyna að
nýta vatnið í þágu Ólafsfjarðarbæjar, en vegna
þess hve framkvæmdir við það hefðu orðið
dýrar var horfið frá því.
Mörgum kemur á óvart hversu fámenn sveit
manna vann við jarðgöngin. Yfirleitt voru 25
manns að störfum, þar með talið starfsfólk í
eldhúsi og skrifstofu. í fjallinu sjálfu unnu var
unnið á fimm manna vöktum. Á meðan unnið
var að gerð vegskálanna voru undirverktakar
einnig að störfum, þ.a. starfsmannafjöldin fór
í 40-50 manns þegar mest var. Vinnan við
gangagerðina er hættuleg, og verða menn að
gæta fyllstu varúðar. Þrátt fyrir það urðu tvö
vinnuslys. Annars vegar slaðaðist íslendingur,
sem vann við ásprautun á bergið, er laust
grjót úr loftinu hrundi yfir hann. Maðurinn
meiddist í baki, en var kominn aftur til vinnu
sex mánuðum síðar. Hitt slysið var alvarlegra.
Norðmaður, margreyndur við jarðgangagerð,,
var að vinna inni í göngunum þegar grjót tók
að hrynja úr loftinu. Maðurinn reyndi að forða
sér en oddhvass steinn féll á annan fót hans og
tók hann af fyrir neðan hné. Maðurinn fékk
staurfót, en hann kom samt aftur og var við-
staddur þegar síðasta hleðslan var sprengd.
Verklok og framtíðaráætlanir
Þar með eru formlega tekin í notkun lengstu
jarðgöng sem byggð hafa verið á íslandi til
þessa, fyrsti stóráfanginn á sviði gangagerðar
og jafnframt fyrsti áfanginn í sérstakri jarð-
gangaáætlun. Næsta skref er jarðgangagerð á
Vestfjörðum og er stefnt að því að fram-
kvæmdir hefjist þar í sumar eða haust. Áætl-
aður verktími er fjögur ár, en fyrirhuguð jarð-
göng á Vestfjörðum verða mun lengri en
Múlagöngin, eða ríflega níu kílómetrar.
Múlagöngin og fyrirhugaðar framkvæmdir á
Vestfjörðum hafa vakið vonir um úrbætur hjá
íbúum byggðarlaga sem búa við erfiðar sam-
göngur. Nú hafa verið kveðnar niður úrtölu-
raddir, ráðamenn og fræðingar sem töldu að
jarðlög og bergtegundir íslenskra fjalla væru
svo erfið viðureignar að það útilokaði jarð-
gangagerð á íslandi. Austfirðingar vilja gjarn-
an sjá áætlanir um úrbætur og einnig hafa
Siglfirðingar reifað hugmyndir um nýjan veg
og jarðgöng sem tengi Siglufjörð og Ólafsfjörð
og komi í stað vegarins yfir Lágheiði sem
margir kalla ógreiðfærustu fjárgötur á íslandi.
hiá-akureyri.
1 - m m \ Wm