Tíminn - 05.03.1991, Síða 15
,íííhióbMi5
t>rlðjUCiágu'r S.'febrúár 1991
IÞROTTIR
Handknattleikur — Bikarúrslit:
Bkarinn
g er nú bara rétt að ná mér niður
á jörðina núna. Það var frábær bar-
átta í 6-0 vöminni og góð mark-
varsla Sigmars sem braut þá niður.
Við vorum yfirspenntir í byijun og
það tók tíma að ná sér niður, við er-
um ekki vanir að vera í þessari að-
stöðu. Eftir að Sigbjöm var rekinn
út af fundum við að við stóðum ein-
ir og þurftum að klára dæmið sjálf-
ir, enginn mundi hjálpa okkur, og
það tókst,“ sagði Sigurður Gunn-
arsson, þjálfari ÍBV, eftir að liðið
tryggði sér sigur á Víkingum í úr-
slitaleik bikarkeppninnar á laugar-
daginn.
Tímamynd Pjetur
Liö ÍBV, bikarmeistarar í handknattleik 1991.
Sigmar Þröstur Óskarsson, fýríriiði ÍBV, lyftir bikamum eftir sigurínn á Víkingum á laugardag. Bak við hann
fagna þeir Sigurður Gunnarsson, Sigurður Fríðríksson og Jóhann Pétursson. Tímamynd Pjetur
„Næsta verkefni er að ná mann-
skapnum niður á jörðina fyrir úr-
slitakeppnina. Ég er dauðhræddur
við hana, það verður alltaf visst
spennufall eftir svona nokkuð,"
sagði Sigurður.
Það leit ekki gæfulega út fyrir Eyja-
mönnum í upphafi leiksins. Víking-
ar réðu gengi mála fyrstu 15 mín. og
leikmenn ÍBV voru hreinlega ekki
með. Eftir að Sigbjörn Óskarsson
fékk rauða spjaldið á 16. mín. og
staðan var 7-3 Víkingum í vil, vökn-
uðu Eyjamenn til lífsins og breyttu
stöðunni í 7-11. Víkingar áttu síð-
asta markið í fyrri hálfleik og staðan
í leikhléi var 8-11.
Víkingar vöknuðu til lífsins í síðari
hálfleik og minnkuðu muninn í 13-
14, en Eyjamenn svöruðu með
þremur mörkum 13-17. Aftur
minnkuðu Víkingar muninn í 1
mark 19-20, en Eyjamenn voru bún-
ir að finna lyktina af bikarnum og
baráttan var meiri í liði þeirra í lok-
in og lokatölur voru 22-26.
Þessi leikur verður lengi í minnum
hafður, og þá sérstaklega fyrir þá
miklu stemmningu sem ríkti í Höll-
inni. Fjöldi Eyjamanna í röðum
áhorfenda setti svip á leikinn og
spennan var mikil lengst af. Fögn-
uður Eyjamanna í leikslok var gífur-
legur. Þeir unnu bikarinn í fyrstu
tilraun, en Víkingar verða enn um
sinn að bíða endurreisnarinnar.
Ágætir dómarar leiksins voru þeir
Rögnvald Erlingsson og Stefán Arn-
aldsson.
Mörkin. Víkingur: Birgir 7, Trufan
5/3, Guðmundur 3, Árni 3/2, Bjarki
2, Karl 1 og Björgvin 1. ÍBV: Guð-
finnur 6, Sigurður G. 5, Sigurður F.
5/3, Jóhann 4, Gylfi 4/1, Sigbjörn 1
og Þorsteinn 1.
„Ég hefði nú kosið önnur úrslit.
Þegar við vorum 4 mörkum yfir
hættum við að leika af skynsemi.
Þeir komust á bragðið og eftir það
var þetta erfitt. Þeir höfðu heppnina
með sér í leiknum og allir lausir
boltar féllu í þeirra hendur. Við lék-
um illa, alls ekki eins og við höfum
gert í allan vetur. Við höfum verið
mjög óheppnir með meiðsl að und-
anförnu og það hefur háð okkur að
geta aldrei haft fyrstu 7 mennina
með á æfingum,“ sagði Guðmundur
Guðmundsson, þjálfari Víkinga, eft-
ir leikinn.
„Nú reynir á okkur. Framundan er
úrslitakeppnin. Við erum ekki
brotnir, við bítum á jaxlinn og bölv-
um í hljóði. Úr því sem komið er
höfum við allt að vinna en engu að
tapa.“ BL
Framsókn-
arkonur
Suðurlandi
Félag framsóknarkvenna I Ár-
nessýslu heldur spjallfundl
með konum á framboðslista
Framsóknarflokksins á Suð-
urlandi sem hér segir:
Bryðjubúð, Vík föstudaginn 8.
mars kl. 21.
Kirkjuhvoli, Kirkjubæjar-
klaustri laugardaginn 9. mars
kl. 14.
Framsóknarkonur eru hvattar
til að fjölmenna og taka með
sérgesti. Stióm FFÁ.
n y
Unnur Stefánsd. Ólafía Ingólfsd.
1 á§k
Þuriður Bemódusd.
Ungt framsóknarfólk
í Rangárvallasýslu
Nú lífgum við félagsskapinn við og höldum fund ( Hllðarenda á Hvolsvelli
þriðjudaginn 12. mars nk. kl. 21.00 og að sjálfsögðu mæta allir.
Margir góðir gestir koma á fundin.
_ F.h. undirbúningsnefndar
GunnarJón Yngvason og Gunnsó
Framkvæmdastjómarfund-
urSUF
verður haldinn 7. mars kl. 19.00 að Hafnarstræti 20.
Formaður SUF
Kópavogur
Bæjarmálafundur verður haldinn flmmtudaginn 7. mars nk. kl. 20.30 í hús-
næði framsóknarfélaganna (Kópavogi að Digranesvegi 12.
Fundarefni: Kosningastarfið framundan.
Allir framsóknarmenn velkomnir.
Vestlendingar - Akranes
Opnum kosningaskrifstofu á Akranesi laugardaginn 9. mars nk. kl. 16 í
Framsóknarhúsinu við Sunnubraut. Eftir formlega opnun verða stutt ávörp
frambjóðenda Allir velunnarar velkomnir. Veitingar á staðnum.
Framkvæmdanefnd
Kópavogur
Skrifstofa framsóknarfélaganna í Kópavogi erflutt i nýtt húsnæði að Digra-
nesvegi 12,1. hæð. Skrifstofan eropin alla mánudaga og miðvikudaga kl.
9-12. S(mi41590. Opið hús alla laugardagsmorgna kl. 10-12. Heittá könn-
unni.
I
Framsóknarfólk
Sauðárkróki og
Skagafirði
Framvegis verður skrifstofan I Framsóknarhúsinu opin á laugardags-
morgnum milli kl. 10-12.
Komiö og takiö þátt f undirbúningi kosninganna. Kaffi á könnunni.
Framsóknarfélag Sauðárkróks.
Framsóknarfélag
Þorlákshafnar og Ölfuss
heldur aðalfund sunnudaginn 10. mars kl. 20.30 ( Veitingastofunni
Duggunni, Þoriákshöfn.
Fundarefni: Venjuleg aöalfúndarstörf.
Ólafia Ingólfsdóttir formaður kjördæmasambandsins mætir á fundinn.
Stjómin.
Austfirðingar
Kosningastjóri KSFA hefur aðsetur á skrifstofu Austra, s. 97-11584.
Stjóm KSFA.
Miðstjómarfundur
Framsóknarflokksins
verður haldinn í Reykjavík laugardaginn 16. mars og hefst kl. 10 árdegis.
Dagskrá og fundarstaöur verður auglýst síðar.
Undirbúningsnefnd
Keflavík -
Opin skrifstofa
Félagsheimili framsóknarmanna að Hafnargötu 62 er opiö alla virka daga
milli kl. 17 og 18.
Starfsmaður framsóknarfélaganna, Guðbjörg, verður á staðnum.
Sími 92-11070.
Framsóknarfélögin.
Borgnesingar- Nærsveitir
Spiluð verður félagsvist I Félagsbæ föstudaginn 8. mars kl. 20.30.
Allir velkomnir.
Framsóknarféiag Borgamess.
ísafjörður og nágrenni
Skrifstofa Framsóknarflokksins að Hafnarstræti 8, Isafirði, verður opin frá
og með mánudeginum 4. mars kl. 2-6, alla virka daga.
Verið velkomin. Heitt kaffi á könnunni.
Jens og Gréta.
Ræðunámskeið L.F.K.
Síðasta kvöldnámskeiðið verður þriðjudaginn 5. mars kl. 20.30-22.30 að
Hafnarstræti 20.
Ef fleiri konur vilja bætast ( hópinn, hafið samband við Þórunni eða
Önnu I síma 91- 624480.
Framkvæmdastjóm L.F.K.
Norðurland vestra
Skrifstofa Einherja, kjördæmisblaðs framsóknarmanna, hefur verið flutt frá
Sauðárkróki á heimili ritstjóra að Ökrum ( Fljótum.
Hægt er að ná I ritstjóra alla daga i síma 96-71060 og 96-71054.
________________________________________K.F.N.V.
Suðuriand
Skrifstofa Kjördæmasambandsins á Eyrarvegi 15, Selfossi, er opin á
þriðjudögum og fimmtudögum kl. 15.00-17.00. Slminn er 22547.
Félagar eru hvattir til að lita inn.
K.S.F.S.
Alþingiskosningar 1991
Undirbúningur er hafinn af fullum krafti fyrir kosningamar ( vor. Málefna-
nefnd Framsóknarflokksins I Reykjavík hefur þegar hafið störf. Þeir sem
hafa hug á að starfa með henni geta látið vita i sfma 624480 eða mætt á
fund nefndarinnar miðvikudagskvöld, kl. 20.00 ( Hafnarstræti 20, 3ju hæð.
Málefnanefndin
Norðurlandskjördæmi
eystra
Kosningaskrifstofa ffamsóknarmanna ( Norðurlandskjördæmi eystra
að Hafnarstræti 90, Akureyri, s(mi 96-21180, er opin alla virka daga frá
kl. 9.00-19.00.
Ungir framsóknarmenn
Garöabæ
Stofnfundur Félags ungra framsóknarmanna, Garðabæ, verður haldinn 5.
mars að Goðatúni 2, 2. hæð, kl. 20.30.
Allir sem áhuga hafa eru hvattir til að mæta.
GunnarJón Yngvason.
Ungir framsóknarmenn
Opið hús verður framvegis á skrifstofu Framsóknarflokksins á fimmtu-
dagskvöldum frá kl. 20.00.
Kíkið ( kaffi og létt spjall.
FUF Reykjavik/SUF
Félagsvist
Spiluð verður félagsvist að Eyrarvegi 15, Selfossi, þriðjudagskvöldið
5. mars kl. 20.30.
Kvöldverölaun - Heildarverðlaun. Fjölmennum.
Framsóknarfélag Selfoss