Tíminn - 16.03.1991, Blaðsíða 16

Tíminn - 16.03.1991, Blaðsíða 16
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300 RÍKISSKIP NUTIMA FLUTNINGAR Halnorhusinu v Tryggvagotu. a 28822 ---& ** Vtt Ókeypis auglýsingar fyrii^lnstaklinga^ POSTFAX 91-68-76-91 Shögg- DEYFAR GSvarahlutir Verslið hjá fagmönnum Haaaidiöfða l-s^Té^^j TVÖFALDUR1. vinningur I111111111 LAUGARDAGUR16. MARS 1991 Gjaldþrot Arnarflugs: Ekkert bókhald engin yfirsýn í gær var haldinn fyrsti skiptafundur í þrotabúi Arnar- flugs. í skýrslu sinni gera bústjóramir, Brynjólfur Kjart- ansson hrl. og Jóhann H. Níelsson hrl., margar athuga- semdir við rekstur þess. Kemur fram að bókhald var í mol- um og yfírsýn yfír fjárhag engin. Gjaldþrotið varð enda stærra en hefði þurft að vera. Arnarflug hætti flugrekstri í ágúst 1990. Starfsfólki var þó ekki sagt upp. Bústjórarnir telja það mjög vítavert. Þannig hafi stjórnendur Arnarflugs valdið ríkissjóði og skatt- greiðendum stórtjóni og gert gjald- þrotið stærra en hefði þurft að verða. í skýrslu bústjóra kemur og fram að laun höfðu ekki verið færð til bókar síðan í aprfl 1990, þar til þeir tóku við í október. Tekjubókhald var líka í molum. í skýrslunni segir að Arnarflug hafi verið rekið frá degi til dags, án tillits til hagsmuna lánadrottna, annarra viðskiptavina eða starfsmanna. Kröfur voru greiddar með farmiðum og starfsfólk fékk laun sín í inn- heimtukröfum. Samkvæmt bókhaldi Arnarflugs átti félagið útistandandi nokkrar fjárhæðir í viðskiptakröfum. Þær reyndust ekki eiga við rök að styðj- ast. Þær voru ýmist greiddar eða á móti þeim komu aðrar og meiri kröfur. Bústjórar segja að enginn hafi haft sýn yfir fjárhag félagsins. Stjórnend- ur hafi ekki haft hugmynd um hve alvarleg staðan var. Þegar beðið var um greiðslustöðvun hafi Kristinn Sigtryggsson forstjóri þannig talið skuldir umfram eignir vera 500 millj. kr. Þrotabú Arnarflugs er hins vegar krafið um nálega þrefalda þá upphæð, 1.400 millj. kr. Upp í þær fæst sáralítið, eignir félagsins eru metnar á 80 millj. Næsti skiptafundur í þrotabúi Arn- arflugs verður eftir mánuð. Skiptin ganga væntanlega fljótt og vel fyrir sig, enda eftir litlu að slægjast. Að þeim loknum senda bústjórar skýrslu sína til ríkissaksóknara. Hann ákveður hverjir verða eftir- málar þessa eins stærsta gjaldþrots á íslandi. -aá. ER ÁRBORG FRAMTÍÐIN? í dag, laugardag, mun Lions- ókosti. Á eftir framsöguerindum klúbbur Hveragerðis gangast fyrir verða frjálsar umræður. opnum fundi á Hótel Örk í Hvera- Oft hefur verið rætt um kosti og gerði þar sem rætt verður um galla sameiningar sveitarfélaga á hvort sameining sveitarfélaga á þessu svæði, en málið verið lítíð Árborgarsvæðinu sé æskileg og rætt á almennum vettvangi. Ár- hvaöa áhrif hún myndi hafa. borgarsvæðið markast af þéttbýl- Frummælendur verða Brynleifur isstöðunum í vestanverðri Árnes- H. Steingrímsson, læknir á Sel- sýslu og lágsveitum hennar. Sum fossi og fyrrum sveitarstjómar- sveitarfélaganna á þessu svæði maöur, og Hallgrímur Guð- hafa haft samvinnu um ýmsa mundsson, bæjarstjóri í Hvera- hluti og svæðið er almennt talið gerði. Brynleifur talar um kosti vera eítt atvinnusvæði. sameiningar en Hallgrímur um -sbs. Þórir Ólafsson kjörinn rektor Kennaraháskólans Síðari umferð rektorskjörs Kenn- afsson prófessor 67,8%. araháskóla íslands fór fram í gær. Þórir Ólafsson er réttkjörinn rektor Kjörsókn var 53,4%. Tveir voru í Kennaraháskóla íslands. Hann tek- kjöri: Anna Kristjánsdóttir dósent ur til starfa 1. ágúst nk. hlaut 30,3% atkvæða, en Þórir Ól- Sumar og sól við Svartahaf F/itV FERÐAmVAL hf LINDARGATA 14 - FAX: 91-13450 SÍMAR: 91-14480 & 91-12534 Elenite á sólarströnd Búlgaríu býður þér og fjöl- skyldu þinni heilmikið af sólskini, sjó og fjöllum. Elenite býður ykkur öll- um þægilega hvild, upp- lyftingu, íþróttir og áhuga- verðar skoðunarferðir. Elenite er einungis 10 kilómetra frá hinni þekktu Svartahafsströnd Sunny Beach. Þaðan eru 15 kíló- metrar til Nessebar. Ströndin við Elenite er um 700 metra löng og 10-50 metrar á breidd. Bæklingur kominn. Brottfarir alla þriðjudaga frá 28. maí. Nánari upplýsingar á skrifstofunni.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.