Tíminn - 26.03.1991, Page 3
Þriðjudagur 26. mars 1991
Tíminn 3
Frá ráðstefnunni sem haldin var um samgöngur og fjarskipti á nýrri öld. Tfmamynd:
Skýrsla um samgöngur og fjarskipti á nýrri öld:
Góðar samgöngur höfuð-
atriði byggðaþróunar
Samgöngubætur eru hagkvæm fjárfesting fyrir margra hluta sak-
ir. Með öflugum samgöngum má ná fram bættri nýtingu á ýmsu.
Þannig hefur t.d. brú yflr Ölfusárósa sparað hafnargerð á Eyrar-
bakka og Stokkseyri. Þá munu jarðgöng á Vestfjörðum hafa í fÖr
með sér að færri áætlunarflugvalla verður þar þörf. Jafnframt skap-
ast möguleiki á verkaskiptingu milli hafna.
Þetta kom fram á ráðstefnu í sl.
viku á vegum samgönguráðuneytis-
ins, þar sem rætt var um framtíðar-
skipulag samgangna á íslandi á
komandi öld. Ráðstefnan var haldin
vegna skýrslu sem ráðuneytið er að
gefa út og fjallar um stefnumörkun
og framtíðarskipulag samgangna á
íslandi. Skýrslan er afrakstur nefnd-
ar sem fjalíað hefur um þessi mál.
Eitt af meginmarkmiðum nefndar-
innar var að athuga á hvern hátt
samgöngur geta haft áhrif á byggða-
þróun. Segir í skýrslu hennar að
mikilvægasti þáttur samgöngubóta
sé að búa til fjölmennari atvinnu- og
þjónustusvæði á landsbyggðinni
með lagningu góðra vega. Slík svæði
eru nefnd þróunar- og kjarnasvæði í
skýrslunni. Ennfremur segir að í
sumum tilvikum séu vegalengdir
milli staða stuttar, en fjallvegir
hamli samgöngum hluta ársins.
Þannig sé þetta á Vestfjörðum og
Austurlandi og þar verði samgöngur
ekki bættar nema með jarðgöngum.
í öðrum tilvikum sé hægt að stækka
þjónustusvæði með betri vegum
með bundnu slitlagi. Stærri mark-
aðir stuðli að aukinni atvinnu- og
þjónustustarfsemi, sem jafnframt
auki uppbyggingu iðnaðar um leið.
Um leið aukist möguleikar fólks
með mismunandi menntun að fá
starf við sitt hæfi.
í skýrslunni segir að í ýmsum
greinum samgangna sé unnið að
áætlunum til langs tíma, eins og á
sviði vega- og hafnagerðar og flug-
mála. Segir að um það verði ekki
deilt að góðar samgöngur séu for-
senda þess að íslendingar nái að
standa öðrum þjóðum jafnfætis
hvað varðar lífsgæði.
-sbs.
Breyting á lögheimili eftir 1. mars hefur ekki áhrif á kjörskrá:
Frestur til að skila
framboðum styttist
Frestur til að skila framboðum til yfirlg'örstjórnar rennur út föstu-
daginn 5. apríl klukkan 12 á hádegi. Frestur til að skila inn umsókn
um listabókstaf rennur út þremur dögum fyrr, eða 2. aprfl. Hefja má
utanlgörfundaratkvæðagreiðslu nú þegar, þrátt fyrir að öll framboð
séu ekki komin fram, og getur kjósandi sem greiðir atkvæði nú
greitt atkvæði að nýju síðar, ef nýir listar koma fram sem höfða bet-
ur til hans.
í þessum kosningum verður í
fyrsta skipti kosið eftir nýjum lög-
um sem samþykkt voru á Alþingi
Ökumenn
hvattir til
umhverfis-
verndar
í akstri
Félag íslenskra bifreiðaeigenda
hefur gefið út bækling með ein-
fóldum hugmyndum um hvað
hver og einn ökumaður getur
tileinkað sér í umhverfismálum.
í bæklingnum er bent á fjöl-
margar leiðir til bensínsparnað-
ar, því minni útblæstri bifreiða
fylgir minni mengun. „Notaðu
strætó ef mögulegt er. Minni
mengun fylgir fullnýttum stræt-
isvagni en ferð farþeganna sömu
leið í eigin bíl,“ segir í bæklingn-
um.
Allir þeir sem eru að fá bílpróf
munu fá bæklinginn sendan á
næstunni, en auk þess mun
hann liggja víða frammi.
fyrir skömmu. Breyting var gerð á
reglum um kjörskrá, sem felur í
sér að í alþingiskosningunum sem
fara fram 20. apríl verður ekki
hægt að gera breytingu á kjörskrá
eftir 1. mars. Hafi kjósandi breytt
um heimilisfang og ekki tilkynnt
það fyrir þann tíma verður hann
að kjósa í sínu gamla kjördæmi
eða kjósa utankjörstaða.
íslenskir ríkisborgarar, sem flust
hafa af landi brott, halda nú sjálf-
krafa kosningarétti í átta ár frá því
þeir fluttu lögheimili af landinu.
Þetta þýðir að þeir sem fluttu af
landinu eftir 1. desember 1982
verða á kjörskrá í því sveitarfélagi
sem þeir síðast áttu skráð lög-
heimili hér á landi. íslendingar,
sem hafa búið lengur erlendis,
hafa því aðeins kosningarétt ef
þeir hafa sótt um það til Hagstofu
íslands fyrir 1. desember síðastlið-
inn.
Sveitarstjórn skal leggja kjörskrá
fram, almenningi til sýnis, 24 dög-
um fyrir kjördag. Vegna þess hve
stutt var til kjördags þegar boðað
var til kosninga hefur þessum
tímamörkum verið breytt með
sérstakri auglýsingu og skal kjör-
skrá lögð fram eigi síðar en
þriðjudaginn 2. apríl. Kærur
vegna kjörskrár skulu hafa borist
hlutaðeigandi kjörstjórn eigi síðar
en kl. 12 á hádegi þriðjudaginn 9.
apríl og sveitarstjórn skal hafa úr-
skurðað þær eigi síðar en mánu-
daginn 15. apríl.
Hægt er að greiða utankjörfund-
aratkvæði á stofnunum fyrir fatl-
aða og í fangelsum, auk sjúkra-
húsa og dvalarheimila aldraðra,
svo sem verið hefur. Þá er enn
fremur heimilað að láta kosningu
fara fram í heimahúsum þegar
kjósandi getur ekki vegna sjúk-
dóms, fötlunar eða barnsburðar
sótt kjörfund á kjördegi. Slík at-
kvæðagreiðsla má ekki fara fram
fyrr en þremur vikum fyrir kjör-
dag og þarf skrifleg ósk, studd
vottorði læknis, um kosningu að
berast kjörstjóra í því sveitarfélagi
þar sem kjósandi dvelur eigi síðar
en viku fyrir kjördag.
í nýju lögunum er ákveðnara
ákvæði um að kjósandi skuli sýna
persónuskilríki á kjörstað áður en
hann fær kjörseðilinn afhentan.
-EÓ
Space Guys eru
hættir störfum
Dansdúóið Space Guys frá Selfossi
hefur nú hætt störfum. Eins og
Tíminn greindi frá á dögunum
komu þeir fram á dansleik á Njáls-
búð í Landeyjum og vakti dansatriði
þeirra misjafna hrifningu meðal
Rangæinga. Var siðgæðisvitund
sumra þeirra misboðið.
Sagt var að í atriðinu hafi tromm-
ukjuða verið stungið í óæðri endann
á öðrum dansaranum og honum síð-
an hent út í sal. Þá ofbauð Rangæ-
ingum. „Þetta var uppspuni frá rót-
um og þarna var verið að gera Eif-
felturn úr mýflugu," sagði Auðunn
Pálsson, annar dansarana
Vinningstölur laugardaginn
23. mars '91
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 0 2.715.006
4af5L$JE 3 156.852
3. 4af 5 156 5.203
4. 3af 5 4.969 381
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
5.890.419 kr.
Ath. Vinningar undir 12.000 krónum eru greiddir út
á Lottó sölustöðum.
Ekki spyrja
„Hvað varstu lengi
á leiðinni ?“
Ekki segja
„Ég varekki ...nema...
1
+
1
- 2
HEILBRIGD
SKYNSEMI!
Segjum frekar
„Ég óká löglegum
hraða, og eins og
ég vil að aðrir geri!“
yUMFERÐAR
RÁÐ
Aðalfundur
Aðalfundur íslandsbanka hf. árið 1991
verður haldinn í Súlnasal Hótels Sögu tnánu-
daginn 8. apríl 1991 og hefst kl. 16.30.
Dagskrá:
1. Aðalfindarstörf í samrœmi við 28. grein samþykkta
bankans.
2. Tillögur til breytinga á samþykktum bankans.
3. Tillaga um heimild til að undirbúa sameiningu
eignarhaldsfélaganna við bankann.
4. Tillaga um heimild til aukningar hlutafjár.
5. Önnur mál, löglega upþ borin.
Hluthafar sem vilja fá ákveðið mál tekið til meðferð-
ar á aðalfmdinum skulu í samrœmi við ákvceði 25.
greinar samþykkta bankans gera skrifega kröfi um það
til bankaráðs, Kringlunni 7, Reykjavík, í síðasta lagi
27. mars 1991.
Aðgöngumiðar að findinum og atkvœðaseðlar verða
afhentir hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra í litibúi
íslandsbanka, Kringlunni 7, Reykjavík, 4., 5. og 8. aþríl
ncestkomandi kl. 9.15-16.00 og á fmdardag við inn-
ganginn.
Ársreikningur félagsins fyrir árið 1990, ásamt tillög-
um þeim sem fyrir fundinum liggja, verða hluthöfum til
sýnis á sama stað.
Reykjavík, 21. mars 1991
Bankaráð íslandsbanka hf.
ÍSLANDSBANKI
-sbs.