Tíminn - 26.03.1991, Side 4
4 Tíminn
Þriðjudagur 26. mars 1991
ÚTLÖND
r í Bagda
LOFTARASIR
Á KÚRDISTAN
Talsmenn kúrdiskra upp-
reisnarmanna í írak sögðu
í gær að íraski stjómarher-
inn hefði gert loftárásir á
borgir í Kúrdistan sem eru
á valdi uppreisnarmanna
með þeim afleiðingum að
fjöldi manns hafí látist eða
særst.
Þeir sögðu að þrjár árásir hefðu
verið gerðar í gærmorgun á olíu-
borgirnar Kirkuk og Dhouk og
hefðu bæði þyrlur og sprengjuflug-
vélar tekið þátt í árásunum. Kúrd-
arnir skoruðu á fjölþjóðaherinn
sem heldur til í suðurhluta lands-
ins að beita sér gegn flugher íraska
hersins en Bandaríkjamenn hafa
varað írösk stjórnvöld við að beita
flughernum til þess að bæla niður
uppreisnina í landinu því það brýt-
ur í bága við vopnahléssamningana
sem voru gerðir til bráðabirgða.
Þeir hafa þegar skotið niður tvær
herflugvélar íraska stjórnarhersins
yfir norðurhluta íraks.
Hins vegar virðist gæta nokkurs
tvískinnungs hjá Bandaríkja-
mönnum. Talsmenn Kúrda sögðu
að loftárásirnar hefðu komið í
kjölfar yfirlýsingar bandarískra
herforingja þess efnis að í vopna-
hléssamningunum stæði ekkert
Uppreisnarmenn í irak á skríödreka sem þeir náðu af Lýðveldisverðinum.
um að íraska flughernum væri
bannað að nota þyrlur og að beit-
ing flughersins í norðurhluta
landsins mundi ekki ógna fjöl-
þjóðahernum sem er staðsettur í
suðurhluta landsins. Þannig vilja
þeir meina að bandarísku herfor-
ingjarnir hafi óbeint gefið Saddam
Utankjörfundaratkvæðagreiðsia
í Reykjavík vegna alþingiskosninga 1991 fer
frarp í skrifstofu embættisins að Skógarhlíð 6, 3.
hæð, á reglulegum skrifstofutíma, kl. 10 til 15,
þriðjudaginn 26. mars og miðvikudaginn 27.
mars nk.
Frá og með laugardeginum 30. mars verður op-
inn sérstakur kjörstaður að Skógarhlíð 6, jarð-
hæð. Þann dag verður opið frá kl. 14 til 18, en
síðan verður þar opið alla virka daga frá kl. 10 til
12, 14 til 18 og 20 til 22, en sunnudaga og helgi-
daga kl. 14 til 18. Lokað verður páskadag.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík
Úthlutun styrkja
úr Sáttmálasjóði
Umsóknir um utanfararstyrki og verkefnastyrki
úr Sáttmálasjóði Háskóla Islands, stílaðar til há-
skólaráðs, skulu hafa borist skrifstofu rektors í
síðasta lagi 30. apríl nk.
Tilgangi sjóðsins er lýst í 2. gr. skipulagsskrárfrá
29. júní 1919, sem birt er í Árbók Háskóla ís-
lands 1918-1919, bls. 52.
Umsóknareyðublöð og nánari úthlutunarreglur,
samþykktar af háskólaráði, liggja frammi í skrif-
stofu Háskóla íslands hjá ritara rektors.
Hussein leyfi til að beita flughern-
um gegn þeim.
Saddam Hussein segir að her
sinn hafi bælt niður uppreisn
sjítamúslima í suðurhluta lands-
ins en talsmenn sjíta sögðu í gær
að liðsmenn þeirra beittu enn
skæruhernaði gegn stjórnarhern-
um í nokkrum borgum. Þeir
skýrðu einnig frá því í gær að þyrl-
ur hefðu varpað napalmsprengj-
um og sprautað fosfórsýru á upp-
reisnarmenn og óbreytta borgara í
borginni Karabala í Suður-írak.
Þetta er í þriðja sinn sem upp-
reisnarmenn saka Saddam um að
beita efnavopnum.
Kúrdar virðast hafa náð meiri
fótfestu fýrir norðan Bagdad en
sjítamúslimar fyrir sunnan og
hafa Kúrdar nú mestan hluta
fjallahéraðsins Kúrdistan á sínu
valdi.
Talsmenn uppreisnarmanna
sögðu einnig frá mótmælum sem
hefðu átt sér stað í úthverfum
Bagdad í gær og átökum milli
mótmælenda og Lýðveldisvarðar-
ins (sérsveita Saddams Hussein).
Samkvæmt þeim hefur Bagdad
verið sett í herkví vegna orðróms
um yfirvofandi valdarán hersins
og varnir borgarinnar og aðset-
urs Saddams verið efldar til
muna með aukaliði Lýðveldi-
svarðarins.
Saddam gerði breytingar á stjórn
sinni á laugardag. Útvarpið í
Bagdad greindi þá m.a. frá því að
Saadoun Hammandí, sem er sjíta-
múslimi, yrði forsætisráðherra en
þeirri stöðu hefur Saddam sjálfur
gegnt samhliða forsetastöðunni.
Hammandí var titlaður sem að-
stoðarforsætisráðherra en Tareq
Aziz tók við því embætti en lét af
stöðu utanríkisráðherra.
Reuter-SÞJ
Albanía:
Lögreglan ræðst á
almenning í Durres
Óeirðalögreglan í hafnarborginni
Durres í Albaníu hleypti af skotum
í gær og réðst að fóíki sem ætlaði
að flýja land og barði það með kylf-
um.
Nokkur hundruð flóttamanna
höfðu safnast saman í borginni í
gær og reyndi lögreglan að dreifa
mannfjöldanum með því að skjóta
nokkrum kúlum yfir höfuð fólks-
ins og ráðast síðan á það með kylf-
um. Fjöldi manns var handtekinn
og margir slösuðust. Margir leit-
uðu skjóls í verslunum og hliðar-
götum.
Fólk tók að flykkjast til borgar-
innar á sunnudag vegna orðróms
um að tvö erlend skip væru í höfn-
inni. Fjöldi lögregiumanna var á
járnbrautarstöðinni í Durres og
handtóku þeir hvern þann sem þeir
grunuðu um að koma til borgar-
innar í þeim tilgangi að flýja land.
Þetta var í fyrsta skipti sem átök
brutust út í Durres milli óeirðalög-
reglu og flóttamanna síðan stjórn-
völd kommúnista settu höfnina í
borginni undir stjórn hersins til að
sporna við flóttamannastraumnum
til ítalfu.
Forseti landsins, Ramiz Alia, sem
tók við völdum þegar stalínistinn
Enver Hoxha lést árið 1985, hefur
beitt sér fyrir umbótum í landinu á
síðustu misserum og m.a. leyft
starfsemi annarra stjórnmála-
flokka en Kommúnistaflokksins.
Einn nýr stjórnmálaflokkur hefur
verið stofnaður, Lýðræðisflokkur-
inn. Almennar kosningar fara fram
í landinu á sunnudag.
Reuter-SÞJ
Fréttayfirlit
Damascus/Nikósía - Tals-
menn kúndiskra uppreisnar-
manna í írak sögðu í gær að
sflómartierinn heföi beitt þyrl-
um og flugvélum f árásum sín-
um á olíuborgina Kirkuk í Kúrrt-
istan, en borgin er á valdi upp-
refenarmanna. Þeír báðu um
aðstoð Qölþjóðahersins sem
heidur enn til í suðurhluta
landsins en samkvæmt vopna-
hléssamningunum sem geröir
voni til bráðabirgða millí traska
stjómarhersins og Qölþjóða-
hersíns þá mega írakar ekki
nota flugherinn til annars en
flutninga á starfsliði. Iranskir
skæruliðar sem berjast gegn ír-
önskum sflómvöldum og hafa
bækfetöðvar í NorðurJrak,
sögðust í gær hafa hafið sókn
gegn írönskum henmönnum
sem réðust á bækistöðvar
þeirra í seinustu viku.
Túnis - Yasser Arafat sagði f
gær að Frelsissamtök Palest-
ínu (PLO) mundu samþykja ör-
yggissvæði milli ísraels og rikfe
Palestínumanna með Friðar-
gæslusveítum Sameinuðu
þjóðanna þannig að sveitimar
yrðu fyiir utan landamæri fsra-
els og ísraelsmenn myndu ekk-
ert land missa.
Riyadh - Allt að 100.000 írask-
ir hermenn létust i Persaflóa-
stríðinu, að sögn vestrænna
embættismarma innan fiöl-
þjóðahersins.
Bamako, Malí - Rikfes^ómin
á Malí samþykktí á sunnudag
að aflétta neyðariögum í land-
Inu sem hún setti á síðastliðinn
föstudag, sleppa öllum pólitísk-
um föngum og draga herinn af
götum höfuðborgarinnar, Ba-
mako. Talið er að a.m.k. 150
manns hafi látist og um 1.000
slasast í átökum hers og al-
mennings á nýtiðinni helgi. Alfe-
herjarvefkfall hófst i landinu f
gær og kretjast verkfallsmenn
að forsetí landsins segi afsér.
Durres, Albaníu - Óeirðalög-
reglan í Dumes skaut í gær yfir
mannfjölda, sem safhast hafði
saman i hafnarborginni, og
réðst á hann með kylfum til að
drerfa honum. Fjöldi manna var
handtekinn. Talið var vfst að
fólkið hafi ætiað að fiýja land
meðskipum.
Kinshasa - Yfir fimm hurtdruð
manns hafa látist úr mlslingum
í austurhluta Zaire nú á undan-
tömum vikum en mikill mis-
lingafaraldur geisar nú f land-
inu.
Moskva - Þrír Georgíubúar
létust og tveir særðust í skot-
bardögum við sovéska herinn í
suðurhluta lýðveidistns, að
sögn óháðu fréttastofúnnar Int-
erfax.
Búkanest - Herdómstóllinn í
Rúmeníu dæmdi í gær 16 fyrr-
verandi leiðtoga kommúnista i
landinu í fangelsí fýrir að vera
viðriðnir drap á yfir 1.000 borg-
urum í desember árið 1989.
Mennimirfengu tveggja til fimm
ára fangelsfedóma
Bangalore, Indlandi - Flutn-
ingavél ffá indverska hemum
hrapaði í gær við Bangalore i
suðurhluta landsins með þeim
afleiðingum að allir mennimir
28 sem voru um borð létust
Vélin var i hefðbundnu
kennsluflugi.
Toulon, Frakklandi - Fyrstu
frönsku hermennímir sem
börðust f Persaflóastríðinu
komu til Frakklands í gær, sam-
tals 400 hermenn. Frakkar
sendu um 10.000 hermenn til
Persaflóa. Reuter-SÞJ