Tíminn - 26.03.1991, Síða 5
Þriðjudagur 26. mars 1991
Tíminn 5
BORÐA ÍSLENDINGAR
STERA í MORGUNMAT?
Kristín Ingólfsdóttir og Guðborg A. Guðjónsdóttir rita grein í
febrúarhefti Læknablaðsins, fréttabréfs lækna. Hún er niðurstaðan
af rannsókn þeirra á innihaldi og verkan ginsengs. í henni kemur
fram að kjamar ginsenosíðs sambanda, virka efnisins í ginsengi,
líkjast efnabyggingu stera.
Sveinbjöm Bjömsson.
Þórólfúr Þórlindsson.
Kynningarfundur rektorsframbjóðenda í
Háskólanum:
Háskólinn er
mikilvægt afl
í þjóðfélaginu
Félag háskólakennara hélt á dögun-
um kynningarfund á frambjóðend-
um í rektorskjöri sem fer fram við
Háskóla íslands 5 apríl nk. Boðið
var öllum þeim sem fengu atkvæði í
prófkjöri félagsins fyrir skömmu.
Tveir frambjóðendur þáðu boðið og
héldu framsöguræður; þeir Svein-
bjöm Bjömsson og Þórólfur Þór-
lindsson.
Sveinbjörn Björnsson sagði Há-
skólann hafa miklu hlutverki að
gegna í þjóðfélaginu. Hann leggi
mat á þá menningarstrauma sem
berast erlendis frá og sé í forystu um
varðveislu tungunnar. Hann sagði
að þótt mikið væri fjallað um gildi
þekkingar frá nýrri deildum skólans
mætti hlutverk eldri deildanna aldr-
ei falla í skuggann.
Hann fjallaði síðan um sex megin-
atriði: bætt Iaunakjör starfsmanna
háskólans, Happdrætti Háskólans,
bætta virkni og gæði rannsókna,
bætta kennslu og aðbúnað stúdenta,
aukna miðlun þekkingar til almenn-
ings og aukin tengsl við megin-
strauma þjóðlífsins.
Sveinbjörn lagði áherslu á að rjúfa
þyrfti samhengi launa og viðveru.
Hann ræddi einnig um byggingu
Þjóðarbókhlöðunnar og sagði há-
skólann hafa óttast að þurfa að axla
byggingu hennar vegna brigsla rík-
isins.
Hann hvatti til að sjónvarpið yrði
meira notað við kennslu. Að síðustu
hvatti Sveinbjörn til þess að góður
árangur í rannsóknum á vegum
skólans yrði verðlaunaður.
Þórólfur Þórlindsson gerði að um-
talsefni rannsóknir á vegum Háskól-
ans og hve mikilvægar þær væru at-
vinnulífi þjóðarinnar. Velgengni
þjóða ætti jafndjúpar rætur í menn-
ingu þjóða og í verktækni þeirra. Því
væri nauðsyn að Háskólinn hefði
forystu um nýsköpun í íslensku at-
vinnulífi og móta þyrfti skýra stefnu
þar um. Efla þyrfti sjálfstæði deilda
og námsbrauta án þess að skerða
mikilvægi yfirstjórnarinnar.
Hann sagði að byggingafram-
kvæmdir þyrfti að setja í forgangs-
röð og nauðsynlegt væri að ljúka
þeim byggingum Háskólans sem
byrjað væri á. Þá fjallaði Þórólfur
um kjaramál, húsnæðismál, bóka-
safnið, rannsóknir og alþjóðlegt
samstarf. Hann sagði rektor jafnan
standa í orrahríð við fjárveitingar-
valdið en þátt fyrir það hefði margt
áunnist.
Þá sagði Þórólfur að rektor þyrfti að
beita sér í kjaramálum. Núverandi
100 tíma þak á mánuði á kennslu
væri allt of hátt, miðað við aðrar
starfsskyldur. Að lokum sagði hann
að rektor reyndi sífellt að draga fram
ólík sjónarmið, samræma stefnuna
og framíylgja ákvörðunum.
G.T.K7-sbs.
Rætur ginseng jurtarinnar hafa
lengi verið notaðar til lækninga og
ýmsar afurðir unnar úr henni eru
seldar hérlendis.
Þær eru vinsæll morgunmatur og
mest seldar af svo kölluðum nátt-
úrulyfjum.
í ginsengi eru líffræðilega virk
efni, ginsenosíð. Þau eru mörg og
hlutfall þeirra í einstökum ginseng
afurðum er mjög mismunandi. Þau
geta haft væg örvandi áhrif. Ýmsar
aukaverkanir eru kunnar, ginseng
hækkar t.d. blóðþrýsting.
Einstakar tegundir ginsengs hafa
ekki fyrr verið rannsakaðar á Islandi.
f grein sinni staðhæfa þær Kristín
og Guðborg, að mjög mismikið sé af
ginsenosíði í ginseng afurðum sem
seldar eru hérlendis. Einnig eru ráð-
leggingar framleiðenda um dag-
skammta mjög breytilegar þannig
að heildarmagn ginsenosíðsam-
banda í dagskammti, samkvæmt til-
mælum framleiðenda, er frá því að
vera nánast ekkert og upp í 55 mg.
Kristín og Guðborg komast að þeirri
niðurstöðu, „að þörf sé fyrir strang-
ara og virkara eftirlit með náttúru-
vörum.“
„Kjarni ginsengs líkist ekki bara
sterum, ginsenosíð er sterakjarni.
Sumar af verkunum ginsengs líkjast
að vissu leyti verkunum kvenkyn-
hormóna, estrógena. Við þekkjum
þær þó ekki til hlítar, þær eru ekki
nógu vel rannsakaðar.
Sumt af þessu ginsengi er greini-
lega svikin vara, ef engin virk efni
eru í því.
En það er líka varasamt ef þau eru
of mikil, ginseng hækkar blóðþrýst-
ing.
Þeir sem eru hlynntir ginsengi
segja það þrautreynt og prófað því
það hefur verið notað í 5000 ár. Það
er ekki rétt. í 4980 ár voru skammt-
arnir 10 til 100 sinnum minni en
nú.
Menn hafa miklar áhyggjur af
þessum efnum og Bandaríkjamenn
hafa, að vísu árangurslaust, reynt að
banna þau.
Það þarf að efla rannsóknir á gin-
sengi og eftirlit með náttúruvör-
um,“ segir Magnús Jóhannsson, sér-
fræðingur í lyflækningum og full-
trúi í samstarfshópi um náttúrulyf, í
samtali við Tímann í gær.
-aá.
Alþingiskosningar
20. apríl 1991
Hér með er vakin athygli á eftirfarandi varðandi undirbúning og fram-
kvæmd kosninga til Alþingis 20. apríl 1991.
1. Kjörskrá skal lögð fram almenningi til sýnis eigi síðar en þriðjudaginn
2. apríl.
2. Beiðni um nýjan listabókstaf skal hafa borist dómsmálaráðuneyti eigi
síðar en kl. 12 á hádegi þriðjudaginn 2. apríl.
3. Framboð skal tilkynna yfirkjörstjórn eigi síðar en kl. 12 á hádegi
föstudaginn 5. apríl.
4. Kærufrestur til sveitarstjórna vegna kjörskrár rennur út kl. 12 á há-
degi þriðjudaginn 9. apríl.
5. Framboð skulu auglýst eigi síðar en þriðjudaginn 9. apríl.
6. Sveitarstjórn skal hafa skorið úr aðfinnslum við kjörskrá eigi síðar en
mánudaginn 15. apríl.
7. Utankjörfundaratkvæðagreiðslu í Hafnarfirði, Garðabæ og á Sel-
tjarnarnesi verður hagað sem hér segir:
Frá 20. mars til föstudagsins 5. apríl, að þeim degi meðtöldum, verð-
ur kosið á aðalskrifstofu bæjarfógetaembættisins, Strandgötu 31,
Hafnarfirði, efri hæð.
Laugardaginn 6. apríl kl. 13.30, verður opnaður kjörstaður í gamla
bæjarfógetahúsinu að Suðurgötu 8, suðurdyr, sími 652460. Verður
þar opið alla daga, jafnt helga sem virka, frá kl. 12.30 til 18.20. Komi
fólk eftir kl. 16 eða um helgar eru vinsamleg tilmæli að það taki með
sér tvo votta.
Fyrir hádegi á virkum dögum, þ.e. frá kl. 8.00 til 12.30, verður þó
einnig eftir 6. apríl hægt að kjósa á aðalskrifstofu að Strandgötu 31,
allt fram að kjördegi 20. apríl.
Seltirningum er bent á að einnig á að vera hægt að kjósa hjá borgar-
fógeta í Reykjavík. Kjörstaður þar verður að Skógarhlíð 6, a.m.k.
fram yfir páska, sími: 17720.
8. í Bessastaðahreppi annast kosninguna Einar Ólafsson hreppstjóri,
Gesthúsum, heimasími 50569. Einvörðungu kosið utan reglulegs
vinnutíma.
í Mosfellsbæ annast kosninguna Jón Guðmundsson hreppstjóri,
Reykjum, sími 666150. Kosningin fer fram á heimili hans til 10. apríl,
en frá þeim degi verður opinn kjörstaður kl. 16-18 á lögregluvarðstof-
unni, Þverholti.
í Kjósarhreppi annast kosninguna Magnús Sæmundsson hrepp-
stjóri, Eyjum, sími 667007.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði, Garðabæ
og á Seltjamamesi, sýslumaðurinn í Kjósarsýslu.
Hafnarfirði, 20. mars 1991.
Már Pétursson