Tíminn - 26.03.1991, Qupperneq 6
6 Tíminn
Þriðjudagur 26. mars 1991
Tímirm
MÁLSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og
Framsóknarfélögin I Reykjavík
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason
Ritstjórar: Indriði G. Þorsteinsson ábm.
Ingvar Gíslason
Aöstoðarritstjóri: Oddur Ólafsson
Fréttastjórar: Birgir Guðmundsson
Stefán Ásgrlmsson
Auglýsingastjóri: Steingrímur Glslason
SkrlfstofurLyngháls 9,110 Reykjavik. Slml: 686300.
Auglýsingasíml: 680001. Kvöldsímar Áskrift og dreifing 686300,
ritstjórn, fréttastjórar 686306, íþróttir 686332, tæknideild 686387.
Setning og umbrot: Tæknideild Tlmans. Prentun: Oddi hf.
Mánaðaráskrift kr. 1100,-, verð I lausasölu kr. 100,- og kr. 120,- um
helgar. Grunnverð auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri
Póstfax: 68-76-91
Farsæl forysta
Kjörtímabils þess sem nú er á enda verður ekki síst
minnst fyrir árangursríka stjóm eíhahagsmála og
batnandi rekstrarafkomu undirstöðuatvinnuvega
þjóðarinnar.
Þessi árangur kemur ffam í því að náðst hefur efna-
hagslegur stöðugleiki, sem sýnir sig fyrst og ífemst í
lítilli verðbólgu og stöðugu gengi. Vert er að minna
rækilega á þessa staðreynd, því að vandi íslensks
efnahagslífs hefur áratugum saman legið i allt of
mikilli og skaðlegri verðbólgu ásamt óstöðugu gengi
krónunnar gagnvart öðrum gjaldmiðlum.
Verðbólgan síðustu tólf mánuði hefur mælst aðeins
4,6% og Þjóðhagsstofnun gerir ráð fyrir að á yfir-
standandi ári verði verðbólgan 6%. Þegar svo er
komið að verðbólgustigið fer ekki yfir 5-6% er óhætt
að fullyrða að þar er um byltingarkennd umskipti að
ræða. Meðalverðbólga var milli 20 og 30% á ári
1984-1989 og raunar miklu meiri á löngu tímabili
þar á undan.
Þessi breyting á verðbólgustiginu leiðir skýrt í ljós
hinn tölulega mun á verðlagsþróun allra síðustu ára
og tímabila þar á undan, þegar verðbólga var óhóf-
leg. En undir niðri sýnir þessi samanburður annað og
meira en einfaldar tölulegar staðreyndir. í raun og
veru hefur átt sér stað hugarfarsbreyting með þjóð-
inni og ráðandi þjóðfélagsöflum.
Ráðamenn í landsmálum, forystumenn í atvinnu-
rekstri og kjarabaráttu eru sammála um að óðaverð-
bólga sé efnahagslegt skaðræði — sem aldrei hefur
verið ágreiningur um — en hitt skiptir þó meira máli
að ráðandi þjóðfélagsöfl hafa áttað sig á því að þeim
bar að vinna saman að úrræðum til þess að lækka
verðbólgustigið og ber að hafa í sameiningu hemil á
verðbólguþróun framvegis. Hugarfarsbreytingin
hefur komið fram í því að aðilar vinnumarkaðarins
og ríkisvaldið vinna nú saman á miklu markvissari
hátt en nokkru sinni áður um lausnir á efnahagsleg-
um vandamálum. Þjóðin sér að þessi samvinna hef-
ur borið góðan árangur og treystir því að framhald
verði á henni.
Síst af öllu skal gert lítið úr frumkvæði forystu-
manna launþega og atvinnurekenda í sambandi við
þjóðarsáttina. An þeirra framlags væri engin þjóðar-
sátt. En ekki er síður skylt að kjósendur geri sér
grein fyrir hlut stjómmálamanna í þessu sambandi.
Ríkisstjómin undir forystu Steingríms Hermanns-
sonar hefur á farsælan hátt leitt þjóðarsáttina og not-
ið fulltingis meirihluta Alþingis, stuðningsmanna
ríkisstjómarinnar í þingsölum.
Hitt mega kjósendur annars muna að stærsti flokk-
ur þjóðarinnar, Sjálfstæðisflokkurinn, var úr leik á
farsældartíma líðandi kjörtímabils og á engan þátt í
góðum efnahagsárangri síðustu tveggja til þriggja
ára. Það kom í hlut Steingríms Hermannssonar og
Framsóknarflokksins að veita þá pólitísku forystu
sem þörf var á og vera hinn pólitíski bakhjallur efna-
hagsumbóta síðustu ára. Þessi gæfumunur stærstu
flokkanna er aðalkosningamálið.
GARRI
Musteri hallans
Á sýníngum á Pétri Gaut hafa gest*
Ir í Þjóðleikhúsinu kynust þeiœ
breytingum á áhorfendasal húss-
ins, sem gerðar hafa verið. Teknar
voru neðri svalir og þaer fjariægðar,
en halli á gólfí salar aukinn að
mun, svo leiksviðið er opnara fyrir
áhorfendum en áður, hljómburður
virðist betri, en þeir bekkir sem
bestir þóttu áður, fyrsti, annar og
þriðji bekkur, eru eiginlega úí úr
myndinni sem stðeir. Aftur í mótl
hafa þeir sem sitja um miðjan sal
eins konar stúkusýn til teiksviðs-
ins. Þjóðieikhúsið hefur löngum
verið katlað musteri tungunnar. Nú
er hægt að kalla það musteri hall-
ans. Ahorfendasal haliar mjÖg tíl
sviðsíns, og viögerð og breytingar á
því fara langl fram úr áætlun.
Breytingin kostar núna um fímm
hundruö milijónir, og snýr hun þó
aðetns að áhorfendum. Trúlega
kostar breytíngin í beild yfir einn
miltjarö. Þessar upphæðir Íenda
eidd ailar hjá smiðum og múrbrots-
mönnum Yfir þeim vaka menn með
blýanta og ætia sér mikinn hluta af
kökunni.
Næst geimmusteri
Með breytingunni á áhorfendasal
leikhússins hefur verið brotið gróf-
lega gegn Guðíóni Samúelssyni,
heista aridtekt þjóðarinnar. Lág-
marks kurteisi við þann góða lista-
mann væri að hafa á áberandi stað
stórt líkan af ieikhússainum, eins
og Guðjón gekk frá honum, en sá
frágangur mun hafa verið eitt síð-
asta veridð sem Guðjón vann. Það
væri ekM nema kurteisl við ariri-
tektinn. Hússpjallsmenn eiga að
stóJja þannig við verif sitt. Breytir
engu þótt verk hússpjalismanna sé
á þann veg, að fóik sé ánægðara
með salinn. Sú ánægja varir eflaust
þangað tii byggt hefur verið þriðja
ieikhúsið í borginni. I>á verður að
breyta á ný svo þjóðarhyggingin
verði ailtaf eins og það nýjasta. Um
minjar varðar menn ekkert. Gott cr
á meðan Þjóðleikhúsinu verður
ekki breytt í geimstöð, eins og þær
voru sýndar í „Star Wars“. Þau
veric sem eftir er að vinna eru ekki
fyrir augað. Menn sem eyöa háifum
milljarði til að sýna, að GuðjÓn
Samúelssoo hafi ekki teiknað svaiir
á réttum stað, þurfa á nokkurri
augiýsingastarfsemi að halda. Því
er ástæða til að spyrjæ Lekur húsið
enn? Leikarar verða að búa um sinn
t óbreyttum kytrum baksviðs.
Fleira, sem eidd sést, hefur verið
iátið hiða.
Heiðskapur heldri
manna
Um sýninguna á Pétri Gaut er
fjallað af til þess bærum mönnum.
Samtíminn er næsta miskunriár-
Jaus í garð þess sem var og fær
fleíra að fjúka en svalir. fslenska
tónlistin við Pétur var ágæt, mest
fyrir þaö^að fyrirferð hennæ- var
ur Gaut í stuttri útgáfu á sýningu í
Hann var
forseti heimsótti Hákon konung.
Þá var tónlfst Griegs notuð. Ein-
hvem veginn er þetta þannig, að
Pétur Gautur og Grieg eru sam-
vaxnir f vitundinni og erfitt að
skÐja þá að. En það hefur verið gert
víðar en hér. Jafnvei Norðmenn
sjálfir nota nú aðra tónlist við Pét-
ur. Að hinu ieytinu erum við fast-
heldin áþýðingu Einars Benedikts-
sonar á Pétri. Hefði vei mátt hugsa
sér að fá aðra þýöingu eftir orðhag-
an mann og skátd td. á borð við
Kristján Karisson, Matthfas Jo-
hannessen eða Hannes Pétursson.
A reiðskapnum kennist hvar heldri
menn fara, stendur að visu f þýð-
ingu Einars. Það mætti svo sem
standa áfram.
Nonæn klassík
Leikritið Pétur Gautur er fuilt af
spakmælum, eins og Einari var
gjamt að nota í skáldskap. Þeir sem
ið um þetta „spögelse“ í Guð-
brandsdal eflaust minna hjá Ibsen
en hjá þýöandanum. Þeim sem aka
norðurieíðína í dág finnst vegurinri
heldur ekki gefa tilefni til spakmæl-
is á borð við „Það er annað að
kveðja á Kotum en komast í Bakka-
sei", eins og Davíð tó’að á Ford-öld-
inni. Þannig breytast menn, vegir,
spakmæii og svaiir með tímanum.
Við þurfum stöðugar breytingar
breytinganna vegna. Breytinga-
smiði eigum við ágæta ekki síður
en húsbrotsmenn. Textinn í Pétri
Gaut er iangur. Það tekur t.d. upp:
undir hálftíma aö sphma endinn.
Þá er margur oröinn þreyttur að
sitja. Hinu er ekki að Jeyna, að Pét-
ur kom fyrir sjónir sem ein stór-
bmtnasta Jdassík norræn raeð sinn
Dofira jýð- og þjóðsagnablæ, sem
okkur iék kunnugiega við eyru.
VÍTT OG BREITT llilll BHÍiBNl
Næstöflugasti flokkurinn
Framsóknarflokkurinn er orðinn
næststærsti stjórnmálaflokkurinn
í Reykjavík og hefur Sjálfstæðis-
fiokkurinn einn meira kjörfylgi.
Þetta kemur fram í skoðanakönn-
un sem DV birti í gær og staðfestir
það sem mætir menn hafa haft á
orði að Framsókn er í góðri upp-
sveiflu á Suðvesturhorninu, því út-
koman í Reykjaneskjördæmi vel
við unandi og er Framsókn í þriðja
sæti þar og heggur á forskot Al-
þýðuflokksins sem næststærsti
flokkur í því kjördæmi.
Tíminn hefur ávallt boðað að var-
ast beri að rugla saman skoðana-
könnunum um flokkafylgi og
kosningum. Hins vegar eru skoð-
anakannanir, þótt ófullkomnar
séu, vísbending um hvernig
straumarnir liggja hverju sinni
eins og margoft hefur sannast.
í Reykjavíkurkjördæmi ber Sjálf-
stæðisfiokkurinn höfuð og herðar
yfir aðra flokka, sérstaklega þó í
skoðanakönnunum. Þar fær hann
einatt mun meira fyigi en í kosn-
ingum og á það einnig við um fyigi
á landsvísu.
Því ber að taka því með mikilli
varúð að íhaldið tryggi sér hreinan
þingmeirihluta íkomandi kosning-
um, eins og kannanir benda til.
Sá allra minnsti
Sú staða, að Framsókn sé komin
með næstmesta kjöríylgi í Reykja-
vík, hefur ekki komið upp áður og
er í sjálfu sér sögulegur atburður.
Þá ber einnig að hafa í huga að
flokkurinn hefur ávallt haft mun
minna fylgi í skoðanakönnunum
en í kosningum, og er engin
Sigurvegarar í skoðanakönnun:
ástæða til að ætla að breyting varði
þar á.
Ekki er síður athygiisvert að Al-
þýðubandaiagið er samkvæmt
sömu könnun með minnsta fylgi
allra stjórnmálafiokka í borginni.
Kratar og Kvennalisti eru með
drjúgum meira fylgi en allaballarn-
ir.
Alþýðubandalagið og forverar þess
á vinstri kantinum hafa átt miklu
fylgi að fagna í höfuðborginni í ríf-
lega hálfa öld og hafa verið næst-
stærsti flokkurinn á eftir íhaldinu
bæði á Alþingi og í borgarstjórn.
Nú er öldin önnur. Framsóknar-
flokkurinn er að taka við sem helsti
andstæðingur Sjálfstæðisflokksins
í borginni. Kratar skáka eftirhreyt-
um kommanna aftur íyrir sig og
Kvennaflokkurinn hrósar einnig
sigri yfir þeim.
Hrun kommúnismans um aust-
anverða Evrópu og víðar er loks
farið að hafa áhrif á íslenska pólitík
og þykir engum mikið.
Gott veganesti
Engin nýmæli eru það í þessari
skoðanakönnun að Borgaraflokk-
urinn er kominn til síns heima og
fer saman útþurrkun kjörfylgis
hans og aukning á fyigi Sjálfstæðis-
flokksins. Hinn skammvinni klofn-
ingur íhaldsins mælist því bæði
sem tap og sigur, en hverjir tapa og
hverjir græða er nokkuð á huldu.
Framboð áhugahópa og smá-
flokka sýnist engan hljómgrunn
eiga, en samt er rétt að vanmeta
ekki sóknargetu einhverra þeirra
þegar nær dregur kosningum, þótt
enn sem komið er sé ekki sýnilegt
að neitt þeirra framboða hafi kraft í
sér til að taka á rás og halda í við
hin kröftugri stjórnmálaöfl.
Menn mæna nú mjög á styrk
Sjáifstæðisflokksins í skoðana-
könnunum og vex hann í augum.
En þar sem Borgaraflokkurinn er
að mestu kominn heim og kjörfylg-
ið er ávallt mun meira í könnunum
en kosningum er óþarfi að láta það
fylgi þyrma yfir sig.
En einhvern tíma hefði þótt saga
tii næsta bæjar að Framsókn væri
orðið næstöflugasta stjórnmálaafl-
ið í Reykjavík, jafnvel í skoðana-
könnun. En það er staðreynd, eins
og hitt að Alþýðubandalagið víkur
úr öðru sætinu og er komið í það
síðasta og má muna sinn fífil fegri.
En allir heilvita menn sjá að það er
söguleg nauðsyn að fylgi allabaila
hjaðni og eru þeir sjálfir manna
færastir að rýja sig tiltrúnni.
Nú í byrjun kosningabaráttu er
Framsókn með tvo menn inni í
Reykjavík, samkvæmt DV, og þykir
heldur engum mikið.
En það sem máii skiptir er svo
auðvitað fylgið á kjördegi, en lagt
er í kosningabaráttuna með gott
veganesti.
OÓ