Tíminn - 26.03.1991, Page 7
Þriðjudagur 26. mars 1991
Tíminn 7
w tl IVANuU K
Skúli Magnússon:
Fundinn leiðtogi?
Flokksþingi Sjálfstæðisflokksins er nú lokið. Auðvitað sigraði
Davíð. Annað hefði ekki passað í goðsögnina. En Þorsteinn Páls-
son má vei við una. Sjálfstæðismenn höfnuðu á sínum tíma —
svo dæmi sé tekið — sómamanninum og hugsuðinum Ólafi
Björnssyni (arkitekt Viðreisnarinnar), hagfræðiprófessor. Hann
„tók sig ekki nógu vel út“. Þeir höfnuðu líka formanni sínum,
Geir Hallgrímssyni, fyrir sparkstjömu. Öllum ber saman um að
Geir hafi veríð einstakur dánumaður sem ekki mátti vamm sitt
vita í nokkrum hlut. Fjöldi manns hefir tjáð mér að allt — bók-
staflega allt — sem Geir hafi lofað, hafi staðið einsog stafur á
bók. Auðvitað höfnuðu sjálfstæðismenn slíkum manni. Hann
hafði ekki nógu lipran talanda (kannski af því hann hugsaði áður
en hann talaði). En annars staðar gilda mannkostir meira en ytrí
glæsileiki. Þorsteinn Pálsson, sem ég veit ekki annað en vilji
reynast grandvar maður, má því vel við una í góðra manna hópi.
Ég bý rétt hjá Laugardalshöllinni.
Á laugardaginn var ég á heimleið á
öðrum tímanum eftir hádegi. Þegar
ég sá bílana hópast að, hugsaði ég
með sjálfum mér: Hvaða spark-
keppni skyldi nú vera á döfinni?
Ekki skjöplaðist mér í það skiptið.
Flokksþing Sjálfstæðisflokksins,
sem svo nefnir sig, hefir ekkert um-
fram venjulega „popp-sensasjón“,
áþekkt landsleikjum þar sem skríll
æpir umhverfis uppáhalds popp-
stjörnuna sína.
Þumalfingurreglan segir að meiri-
hlutinn velji jafnan þann kostinn
sem síst skyldi. Enda kaus hann
Davíð. Davíð datt á sínum tíma í
þann lukkupott að endurheimta
borgarstjómar-meirihluta sjálf-
stæðismanna og verða borgarstjóri
í höfuðborg sem vegna stærðar
sinnar og sérstöðu býr við miklar
tekjur og þarafleiðandi rúman fjár-
hag. Ekki er það allt honum að
þakka, þótt aimáttugur sé — eða
allt að því. En yrði það slys að hann
tæki við þjóðarskútunni, yrðu ytri
aðstæður honum ekki jafn hall-
kvæmar.
Þótt ungur sé, er Davíð þegar far-
inn að reisa sjálfum sér minnis-
varða — rétt einsog hver annar ein-
ræðisherra. Faraóarnir vörðu allri
sinni ævi til að reisa sjálfum sér
minnisvarða. Samt guðsþakkarvert
að hann skuli enn ekki hafa reist sér
líkneskju einsog Jósef Stalín gerði á
Volgubökkum — enda tekur Stalín
sig betur út sem líkneskja en Davíð.
En Davíð hefir þó þegar lánast að
reisa bæði gagnslausustu opinbera
byggingu landsins (Perluna fögru)
ásamt þeirri ljótustu (ráðhúsinu).
Það var að bera í bakkafullan læk-
inn að reisa nýtt veitingahús (enda
nóg af auðum húsakynnum), og út
í hött að láta Hitaveituna reisa það.
Nær hefði verið að Hitaveitan hefði
byggt haughús yfir drulluna frá
Nesjavallavirkjun. Enda er mér nú
tjáð af kunnugum að verið sé að
brjóta Perluna niður innanverða og
grafa líkhús undir henni. Báðar
byggingarnar aðeins komnar helm-
ing framúr áætlun (ætli það nemi
ekki um tveimur milljörðum —
munar um minna).
Einhver mun nú svara því til að
það sé smekksatriði hvort mönnum
finnist ráðhús sem önnur hús ljót
eða fögur. En því miður: því er ekki
að heilsa. Ég verð að skýra það með
nokkru innskoti.
Það lá ekki í augum uppi að tónlist
skyldi reynast stærðfræði. Samt var
það svo. Tálið er að Pýþagóras hafi
uppgötvað að væri strengur helm-
ingaður framkalli hann næsta tón
fyrir neðan í tónstiganum. Það hafi
riðið baggamuninn um það að
hann komst að þeirri niðurstöðu,
að fyrst jafnvel tónlist væri stærð-
fræði, þá hlyti afgangurinn af tilver-
unni einnig að vera það. Og Guð
mesti stærðfræðingurinn.
Því hefir lítt verið haldið að fólki
að fagurfræði sé stærðfræði — en
það er nú samt svo. Best að taka
dæmi sem allir þekkja: Formfegurð
Kópavogskirkju byggist á einfaldri
stærðfræðiformúlu sem nefnist
„parabóla". Það sem mönnum fell-
ur vel við Hallgrímskirkju, byggist
á því að útlínur turnsins eru dregn-
ar samkvæmt annarri formúlu sem
nefnist „hyperbóla". Og Perlan er
regluleg kúla. Latneski krossinn
byggist á formúlu sem nefnist
„gullinsnið" og er innbyggt í
mannsaugað eða öllu heldur í hlut-
fallið milli beggja augna hans. Þetta
er ekki smekksatriði, þetta er ein-
föld stærðfræði. Þannig mætti
halda áfram. Það er því sára-einföld
stærðfræði að sanna að ráðhúsið sé
- - einkum í núverandi umhverfi
sínu (sumir vilja rífa öll húsin á
Tjarnarbakkanum og reisa önnur
sem „klæði" betur ráðhúsið, ekki
minnkar kostnaðurinn við það) —
einhver sú ljótasta opinbera bygg-
ingin sem sést hefir á Fróni.
Davíð hefir aldrei unn-
Ið með neinum. Hann
hefir bara ráðskast
með sjáifan sig. Nú á
hann að vinna með
öðrum— innanflokks
og utan — í landsmála-
pólitík. Hvemig fer?
Hann hneykslaðist ný-
verið á minnihlutanum
að hann skyldi dirfast
að bera fram breyting-
artillögur við tjárhags-
áætlun Reykjavíkur-
borgar. Til hvers ann-
ars er minnihlutinn kjör-
inn? Og til hvers hefir
hann rétt, ef ekki til að
bera fram breytingartíl-
lögur? Ætli Davíð eigi
eftir að hneykslast á
hugsanlegum sam-
starfsflokkum?
Leikmanni virðist það hafa verið
einfaldara að innrétta nytsama hús-
ið Ijóta undir formfögru þaki Perl-
unnar gagnslausu. Reisa eitt hús í
stað tveggja og spara í leiðinni
Reykvíkingum svosem 2-3 millj-
arða. Davíð hefði þá líka getað snú-
ið borgarstjórnarminnihluta sem
meirihluta í jafnmarga hringi sem
honum sýndist í það og það skiptið
- - og „fílað“ sig sem raunverulegan
konung.
Ég lærði það fyrir rúmum 30 árum
í jarðfræði hjá Steindóri frá Hlöð-
um að Reykjanesskaginn væri að
síga í sjó. Éinkum sykki Álftanesið
ört — og ekki langt á milli Álftaness
og Seltjamarness. Hvert stórhýsið á
fætur öðru er nú reist á sandi og
mýri á rimanum milli Tjarnar og
hafnarinnar gömlu. Enda flestallir
kjallarar þar hriplekir. í næstu al-
varlegum jarðhræringum sekkur
þetta allt í sjó. Þáverandi borgar-
stjóri getur þá haldið innreið sína í
ráðhúsið í „gondól“ í stað tvíeykis-
ins sem Davíð reið á sínum tíma.
Báðar byggingarinnar — sú ljóta
og sú gagnslausa — eru nú sagðar
komnar um helming framúr kostn-
aðaráætlun. Fyrir það afrek var
Davíð kjörinn. Ekki skortir sjálf-
stæðismenn dómgreind.
Davíð hefir aldrei unnið með nein-
um. Hann hefir bara ráðskast með
sjálfan sig. Nú á hann að vinna með
öðrum — innan flokks og utan — í
landsmálapólitík. Hvernig fer?
Hann hneykslaðist nýverið á
minnihlutanum að hann skyldi dir-
fast að bera fram breytingartillögur
við fjárhagsáætlun Reykjavíkur-
borgar. Til hvers annars er minni-
hlutinn kjörinn? Og til hvers hefir
hann rétt, ef ekki til að bera fram
breytingartillögur? Ætli Davíð eigi
eftir að hneykslast á hugsanlegum
samstarfsflokkum?
Mér hefir verið tjáð að Ingibjörg
Sólrún væri bæði greind og gegn
kona — og hélt að svo væri. Mér
urðu það því sár vonbrigði að heyra
í konunni um daginn. Hingað til
hafa kvennalistakonur verið pólit-
ískt hreinar meyjar og ekki verslað
með meydóminn. Nú leggur þessi
greinda kona til að þær leggist með
„húsgangsdrussa" svo vitnað sé í ís-
landsklukkuna.
Framsóknarmenn eru á ýmsan
hátt skynsamari sjálfstæðismönn-
um. Davíð er gerræðisfyllsti stjóm-
málamaður lslands síðan Hriflu-
Jónas var uppá sitt besta. Þó hafði
Jónas ýmsa kosti til að bera og þá
umfram Davíð, en hann hafði Iíka
afleita ókosti. Þeir Eysteinn og Her-
mann báru gæfu til að skáka Jónasi
til hliðar. Sjálfstæðismenn ættu að
fara eins að hvað Davíð varðar.
Af slysni drap ég niður auga í grein
einhvers stuðningsmanns Davíðs
fyrir poppsamkomuna í Laugar-
dalshöll. Þessi höfundur sagði: „Við
höfum formann, en okkur vantar
foringja (eða Ieiðtoga)." Er það allt
sjálfstæði sjálfstæðismanna þegar
öll kurl koma til grafar? Þjóðverja
vantaði líka (sællar minningar)
sinn foringja — og fengu hann
ósvikinn: Der Fiihrer. Ég býst við að
allir viti hver „Der Fuhrer" var.
Nú hafa ósjálfstæðir sjálfstæðis-
menn fengið sinn „Der Fuhrer".
Þjóðargæfa íslendinga veltur nú á
því fremur flestu öðru að frekari
framgangur „foringjans" verði heft-
ur og stöðvaður.
Skúli Magnússon
yogakennari
Hlutabréfamarkaður á Islandi:
Enskilda-skýrslan
5. grein.
Enskilda Securities tók 1988 saman
skýrslu um hlutabréfamarkað á ís-
landi ásamt starfsmönnum Iðnþróun-
arsjóðs og Seðlabankans, og í henni
segir m.a.:
„Við teljum það æskilegt að hvetja til
langtíma erlendrar fjárfestingar í
hlutabréfum á íslandi... erlend hluta-
fiárþátttaka mun(i) best geta átt sér
stað gegnum fiárfestingarsjóð, sem
stjómað væri af reyndum íslenskum
stjómendum... Við höfum skoðað
nokkra... valkosti...:
a. Fjárfestingarsjóður
Sjóðurinn væri opinn fyrir takmark-
aðan fiölda fjárfesta, sem taka myndu
þátt í honum á langtíma grundvelli...
frá sjónarmiði fiárfestandans er erfitt
... að losa sig út úr honum og því er
þetta ekki góður kostur frá hans sjón-
armiði.
b. Verðbréfasjóður
Hér mundi fiárfestirinn kaupa ein-
ingar af stjórnanda hans á grundvelli
nettóvirðis eigna sjóðsins, þegar ein-
ingin er keypt, eftir að tekið hefur ver-
ið tillit til mismunar á kaup- og sölu-
verði. Ókosturinn við verðbréfasjóð er
sá, að ef fjárfestirinn selur bréf sitt, þá
getur stjómandinn neyðst til að selja
þau verðbréf, sem þar liggja á bak við,
til að fiármagna endurgreiðslu bréfs-
ins...
c. Fjárfestingarfélag
Fjárfestingarfélag mundi hafa tiltek-
ið hlutafé og vera skráð á kauphöll ut-
an íslands. Þótt viðskipti í hlutabréf-
um slíks fiárfestingarfélags mundu
vera lítil, vegna þess að stofnfé þess
mundi ekki vera mikið, þá mundi
skráning bjóða upp á möguleika fyrir
slík viðskipti. Félagið mundi fiárfesta
eigur sínar í íslenskum hlutabréfum...
hlutabréf í því gætu gengið kaupum
og sölum meðal fiárfesta..." (Bls. 49-
50)
„Það eru nokkur atriði... sem koma
erlendri fiárfestingu við:
a. Gjaldeyrishömlur.... lög... krefiast
meirihluta eignar af mönnum búsett-
um á íslandi í íslenskum íyrirtækjum,
þ.m.t. fyrirtækjum í iðnaði, fiskveið-
um, námagreftri, verslun, og að vissu
leyti í þjónustugreinum, þá eru engar
viðbótarhömlur á fjárfestingu í hluta-
bréfum af erlendum fiárfestum. Nú
verður samt að tilkynna slíkar fiárfest-
ingar til Seðlabankans... þarf erlendur
fjárfestir leyfi til þess að færa arð eða
stofnfiárfestingu út úr Iandinu... eru
engin ákvæði þess efnis... að það verði
að veita það...
b. Skattlagning.... höfum við mælt
með, að þeir, sem ekki eru heimilis-
fastir hér á landi verði ekki eigna-
skattsskyldir...
c. Takmörkun á hlutabréfaeign er-
lendra aðila... þá eru einu takmörkin
á hlutafiáreign útlendinga, að þeir
mega ekki eiga meirihluta í vissum
fyrirtækjum. Til viðbótar finnst það
einnig í samþykktum sumra fyrir-
tækja, að útlendingar megi ekki eiga
hlut í þeim. Þessar takmarkanir eru
mun minni heldur en þær, sem finn-
ast á öðrum Norðurlöndum. í Svíþjóð
t.d. er erlend hlutabréfaeign í fýrir-
tæki takmörkuð við 40% og 20% at-
kvæða, en Noregur leyfir 20% hluta-
bréfaeign í iðnfyrirtækjum og nú eru
tillögur uppi um að auka þennan hlut
í 33%.“ (Bls. 51-52)
Bankar í Luxemborg
Belgía og Luxemborg hafa sameig- eftiriitið. Ennfremur voru þar starf- ópu verið komið upp tveimur
inlegan gjaldmiðil, franka (og fram á andi 5.118 eignarhaldsfélög. greiðslujöfnunarstöðvum. önnur
síðasfa ár voru tvö gengi á franka Eignir banka í Luxemborg (í árslok þeirra, Euroclear, er í Briissei (á
þcirra, hiö lægra á franc réglementé, 1980) námu Lux.fr. 4.000 milfiörð- vegum allmargra banka, en starf-
sem gekk til vörukaupa, og hið um (120 milljörðum dollara). Af rækt af Morgan Guaranty). Hin,
hærra á keyptum gjaldmiðli vegna þeirri upphæö voru 3.400 milfiarðar Centrale de Llvraison de Valeurs Mo-
annarra viðskipta). Það er vegna í öðrum gjaldmiðlum en beigisk- biliéres (CEDEL), er í Luxemborg
legu sinnar, en eldd skattafvilnana, luxemborgskum frönkum. Og og var stofnuð 1971. Að tveímur
sem Luxemborg hefur orðið alþjóð- höfðu bankar í Luxemborg þá í þriðju hlutum hefur greiðslujöfnun
legbankamiðstöð. Þarvoru (17. júlí vörslu sinni 12% af öllum evró- þessi farið fram í Eurodear, en að
1981) 113 bankar og voru 29 þeirra gjaldmiölum banka heims. Enn þriðjungi í CEDEL í Luxemborg.
þýskir, 14 skandinavískir, 12 belg- stærri var hlutdeild þeirra í útgáfu (Þýskir bankar notfæra sér þessa
ísk- lu.xeniborgskir, 12 bandarísldr, skuldabréfa í evró-gjaldmiðlum eða greiðslujöfnun tiltölulega lítið.)
10 svissneskir og 4 japanskir. Þá 20%. KauphöIUn í Luxemborg er alþjóð-
voru þar Iíka 104 verðbréfasjóðir Evró-skuldabréf, boðin út í einu legur maricaður fyrir hlutabréf og
(fons commun de placement) og landi, eru keypt af peningastofnun- skíildabréf, Um hann er félag, Soci-
störfuðu 77 þeirra að lögum Lux- um og öðrum fyrirtækjum og eln- eté de la Bourse de Luxembourg, en
emborgar en 27 voru útiendir og staklingumvíðaum heim, þannigað rfkisstjómin skipar henni eftirllts-
störfuðu að lögum landa sinna. mariaður þeirra er alþjóðlegur. mann.
Heyra þeir sem bankar undir banka- Vegna þeirra viðsldpta hefur í Evr-