Tíminn - 26.03.1991, Síða 15
Þriðjudagur^26. mars 1991
Tíminn 15
I ^ ■ “ #— ■ imihi ■ ^ ■ ■ ■ ■ ■ ■
Körfuknattleikur — Úrslitakeppnin:
Ótrúleg umskipti hjá KR
og ÍBK sneri tapi í stórsigur
— Þriðja leik þarf til að úrslit fáist — Sigurliðið mætir Njarðvíkingum
KR-ingar hófu leikinn á sunnudagskvöld eins og tvö síðustu leiki
gegn IBK, meö snilldarleik og náðu strax afgerandi forystu. En
ólíkt því sem gerst hefur í tveimur síðustu leikjum, héldu KR-ingar
ekki út og misstu unna stöðu niður í stórtap. Keflvíkingar fögnuðu
í lokin 17 stiga sigri, 75-92. Þriðji leikur liðanna verður á miðviku-
dagskvöld í Keflavík kl. 20.00, en liðið sem þar sigrar mætir Njarð-
vfldngum í úrslitum íslandsmótsins.
KR-Iiðið sýndi góðan leik í 25 mín.
í HöIIinni á sunnudagkvöldið. Þeir
keyrðu upp hraðann í upphafi leiks-
ins og Keflvíkingar voru eins og
áhorfendur að sýningu íslands-
meistaranna. Eftir nokkurra mín.
leik var staðan orðin 20-5, en mest-
um mun náðu KR-ingar 16 stigum
29-13. Keflvíkingar minnkuðu
muninn í 8 stig 39-31, en KR náði
að bæta við á ný fýrir hlé, en í leik-
hléi var staðan 49-35 KR í vil.
Eftir 5 mín. leik í síðari hálfleik
fékk Axel Nikulásson KR- ingur sína
4. villu og var tekinn út af. Staðan
var þá 58-50. Ekki var að sökum að
spyrja eftir að Axel fór út af, Keflvík-
ingar söxuðu á forskotið 58-56, en
KR-ingar voru ekki á því að láta for-
ystuna af hendi. Það kom þó að því
fyrr en síðar, Guðjón Skúlason sá
um það þegar 6 mín. voru til leiks-
loka 71-72. Þegar hér var komið
sögu bjuggust margir við að KR-
ingar vöknuðu til lífsins á ný, en það
var öðru nær. Þær 6 mín. sem eftir
voru skoruðu KR-ingar 4 stig gegn
20 stigum Keflvíkinga, sem unnu
öruggan sigur eins og áður segir 75-
92. Á þessum kafla fékk Axel sína 5.
villu og varð að yfirgefa völlinn.
Það gekk ekkert upp hjá KR-ingum
síðustu mín. í þessum leik, hittni
var engin, ekki einu sinni úr víta-
skotum og 5 sinnum brenndu KR-
ingar bónusskot. Keflvíkingar voru
lengi í gang í þessum leik og það var
ekki fyrr en Ieikur KR-inga hrundi
að þeir komust almennilega í gang.
Leikur liðanna á miðvikudaginn í
Keflavík verður upp á líf og dauða,
enda mikið í húfi. Sá leikur verður
KR-ingum gífurlega erfiður; þeir
hafa að vísu sigrað í síðustu tveimur
leikjum sínum í Keflavík, en það
verður erfitt að ná sér eftir annað
eins hrun og á sunnudaginn.
Jonathan Bow, Axel, Lárus, Páll og
Guðni byrjuðu leikinn fyrir KR og
léku allir mjög vel í 25 mín. Gauti
Gunnarsson átti góða spretti í sókn-
inni, en Hermann Hauksson var
mistækur að þessu sinni.
Tairone Thornton átti sinn besta
leik með ÍBK til þessa, skoraði 28
stig og hirti 16 fráköst. Þá var varn-
arleikur hans þokkalegur. „Leyni-
skyttan" Guðjón Skúlason náði nú
loks að sýna sínar réttu hliðar. Hann
kom inná í fyrri hálfleik og skoraði 3
þriggja stiga körfur í röð, en fékk
síðan lítið að vera með í sóknarað-
gerðum liðsins. í síðari hálfleik
skoraði hann þrjár körfur og átti í
heildina ágætan leik. Jón Kr. Gísla-
son, Falur Harðarson og Sigurður
Blak;
KA mætir HK
í úrslitum
Wimbledon-Sheff. United____1-1
2. deild
Blackbum-OIdham ......„....2-0
Bristol City-VVoIves ..„....1-1
KA sigraði Þrótt 3-2 í undanúrslit-
um bikarkeppninnar í blaki nvröra á
Iaugardag. Leikurinn var mjög
spennandi og með honum fylgdust
um 500 áhorfendur.
Þróttur vann fyrstu hrinuna 8-15,
KA jafnaði 15-7, Þróttur náði aftur
forystu 9-15, en KA vann tvær
næstu hrinur naumkga 15-13 og
16-14.
KA mætir HK í úrslitaleik bikar-
keppninnar.
Frjálsar [þnóttín
Bubka með enn
eitt heimsmetið
Sovéski stangarstökkvarinn Sergei
Bubka bættt heimsmet sitt í þriðja
sinn á niu dögum um helgina er
hann fór yfir 6,12m á innanhúss-
mótí.
Enska knattspyman:
Liverpool á toppinn
eftir 1-7 sigur á Derby
Liverpool er á ný komið í efsta sæti
1. deildar ensku knattspymunnar
eftir 1-7 sigur á Derby County á
Baseball Ground á laugardag. Á
sama tíma gerði Arsenal marka-
laust jafntefli gegn Nonvich.
ÚrsÚtin urðu þessi;
1. deild
Chelsea-Southampton *•*•*«••»*• 0-2
Covenby-Manchester City •....3-1
Deiby-Uverpool ••»•••••••••••«••••••1-7
Everton-NottForest ••••••••*•••••• 0-0
Leeds-Crystal Palace •••••••••••••■1—2
Manchester United-Luton „....4-1
Norwich-Arsenal „„....0-0
Sunderland-Aston Villa .........1-3
Tottenham-QPR __________0-0
Chariton-Port Vale ■•»•»••■•»•»••»•■ 0-0
Hull-West Ham »••••■•••••••.•.,.,.,■0-0
Ipswich-PJymouth •••••••••••••••.•3-1
Middlesbro-Watford ••*••••••••»••• 1-2
Notts County-Leicester .........0-2
Oxford-Bamsley.........„...„2-0
Portsmouth-Newcastle ...„..0-1
Sheff. Wed.-Bristol Rovers ....2-1
Swindon-Brighton 1-3
WBA-MilhvaU ••••••••••••••••••»••••■•0-1
Körfuknartílakun
Valur áfram í
úrvalsdeildinni
Valur sigraði Vfkveija 106-75 í au-
kaleik liðanna um sætí í úrvals-
deildinni í körfuknattleik að ári.
Glíma:
Ólafur vann
ólafur Haukur Ólafsson KR sigr-
aði í Landsflokkaglímunni í +90 kg
flokki, en glíman var háð í Hrafna-
gilsskóla f Eyjafirði um helgina. Ól-
afur lagði Jóhannes Sveinbjöms-
son HSK í úrslitaghmunni.
Handknattieikur
Kvennaliðið fór
inn um bakdyrnar
ísland leikur { næstu B-keppni í
handknattleik kvenna. Þessi niður-
staða fékkst í C-keppninni á Ítalíu
um helgina þar sem íslenska lands-
Íiðið tapaði fyrir Spáni 20-26 í úr-
slitaleik um 5. sætíð. Þar sem Ung-
veijar halda næstu B-keppni og
urðu í einu af efstu sætunum á ítal-
íu. Kvennalandsliðið kemst því inn
um bakdymar, þrátt fyrir slaka
frammistöðu á ítab'u.
BL
Ingimundarson áttu einnig ágætan
leik. Albert Óskarsson barðist vel í
vörninni og fráköstunum. Júlíus
Friðriksson lék einnig, en fékk fljót-
lega 5 villur.
Góðir dómarar leiksins voru þeir
Kristinn Albertsson og Kristján
Möller.
Stigin KR: Bow 24 (18 fráköst), Páll
12, Guðni 10, Gauti 8, Lárus 8, Axel
7 og Hermann 6. ÍBK: Thornton 28
þar af eina þriggja stiga körfu, Falur
15, Guðjón 15, Jón Kr. 12, Sigurður
11, Albert 6 og Júlíus 5.
BL
Jón Kr. Gíslason, þjálfari Keflvíkinga, með boltann í leiknum í leiknum á sunnudag. Lárus Ámason KR-ingur
reynir að ná til boltans. Tímamynd Pjetur
Njarðvík í úrslit í
fyrsta sinn í 3 ár
- sigraði Grindvíkinga öðru
Grindvíkingum tókst ekki að
klekkja á grönnum sfnum úr Njarð-
vík er liðin mættust í öðrum leik
sínum í úrslitakeppninni f körfu-
knattleik á laugardag í Grindavík.
Njarðvíkingar tryggðu sér ömggan
sigur 82-93 og em því komnir í úr-
slitaleikina um íslandsmeistaratit-
ilinn í fyrsta sinn í 3 ár, en Grind-
víkingar em úr leik.
Leikurinn var jafn framan af, en
Njarðvíkingar náðu yfirhöndinni
þegar skammt var til leikhiés. í leik-
hléi var staðan 37-45. í síðari hálf-
leik höfðu Njarðvíkingar ávallt for-
ystu, mismikla þó, en lokamínútur
leiksins náðu ekki að verða spenn-
andi. Til þess var forskot Njarðvík-
inga of mikið. Lokatölur voru eins
og áður segir 82-93.
Ronday Robinson átti stórleik fyrir
Njarðvíkinga í sókn, vörn og frá-
köstum. Teitur var einnig góður, en
liðsheildin hjá Njarðvíkingum var
mun sterkari en hjá Grindvíkingum.
Dan Krebbs var bestur heima-
sinm
manna, en aðrir léku undir getu.
Vert er þó að geta frammistöðu
Sveinbjörns Sigurðssonar, en hann
stendur alltaf fyrir sínu.
Stigin UMFG: Krebbs 29, Guð-
mundur 19, Sveinbjörn 10, Jóhann-
es 10, Hjálmar 8 og Rúnar 6. UMFN:
Robinson 37, Teitur 15, Friðrik 11,
ísak 11, Kristinn 10, Hreiðar 4,
Gunnar 3 og Ástþór 2.
Góðir dómarar leiksins voru þeir
Kristinn Óskarsson og Jón Otti ÓI-
afsson. BL