Tíminn - 03.05.1991, Side 8
Eftir
Stefán
Eiríksson
Tíminn 9
kjól, með fallega hárgreiðslu og vel
máluð, ef stúlkan getur ekki borið það.
Það eru stúlkurnar sem eru orðnar
mjög meðvitaðar um sjálfa sig sem
sigra oftast,“ sagði Katrín. Hún sagði
að hún reyndi eftir því sem hægt væri
að ná þessu fram hjá stúlkunum en það
væri einnig lögð áhersla á að þær
styddu hver aðra. „Ég held að þetta sé
draumur hverrar lítillar stelplu að vera
prinsessan á sviðinu og í sviðsljósinu
og margar þeirra fá ekki tækifæri til að
upplifa þessa stund aftur,“ sagði Katr-
ín.
Ákaflega lítilsvirð-
andi og niðurlægjandi
Baráttufólk fyrir réttindum kvenna
hefur mjög gagnrýnt fegurðarsam-
keppnir. Heldur hefur þó dregið úr há-
værum mómælum og var sú spurning
lögð fyrir Ingibjörgu Hafstað kvenrétt-
indakonu, hvort sigrar fegurðar-
drottninga á erlendri grund hafi kæft
þessar raddir:
„Nei, mínar skoðanir á þessu máli
hafa ekki breyst. Hins vegar er þetta
alltaf dálítið viðkvæmt mál. Við búum í
þjóðfélagi þar sem þetta þykir sjálfsagt
og eðlilegt og það er mjög erfitt að
berjast gegn þessu öðruvísi en að
gagnrýna konur, sem ég hef engan
áhuga á að gera. Mér finnst þetta af-
skaplega lítilsvirðandi fyrir konur.
Þessi gerð fegurðar er orðin módel fyr-
ir aðrar konur og mikil pressa er á þær
að troða sér inn í það módel. Fegrun-
araðgerðir eru orðnar mjög algengar
og það er farið að heyrast að konur
sem ekki gangast undir slíkt séu
subbulegar og hugsi ekki nógu vel um
sig. Hið eðlilega er því orðið óeðlilegt
og hið óeðlilega er orðið eðlilegt.“
Ingibjörg sagði að þetta væri mjög
svo óheillavænleg þróun. „Að sjálf-
sögðu er þetta sýning, þetta er gripa-
sýning og einhver dómnefnd er sett í
þá aðstöðu að geta dæmt um hvernig
konur eiga að vera, dómnefndin býr til
módel fyrir dýrategundina alveg á ná-
kvæmlega sama hátt og dómnefndir á
öðrum gripasýningum gera. Að sjálf-
sögðu er það mjög niðurlægjandi fyrir
konur að ganga í gegnum þetta en það
sem er alvarlegra í þessu er hugarfarið
á bak við þetta og hvaða áhrif þetta
hefur á ungar stúlkur,“ sagði Ingibjörg
Hafstað.
Vegna orða Ingibjargar Hafstað var
haft samband við Olafur R. Guðjóns-
son, reyndan hrossadómara, og það at-
hugað hvort mat á hrossum ætti eitt-
hvað skylt við það hvernig ungar stúlk-
ur í fegurðarsamkeppnum væru metn-
ar.
Ólafur sagði að það sem helst væri
lagt til grundvallar þegar hestar væru
dæmdir í keppni væri margt. „Við met-
um ganginn, hversu takthreinn hann
er, hversu hreyfingarnar eru fallegar
og hvort hesturinn fari úr réttum
gangi á réttum tíma, skipti á réttum
stað o.s.frv.," sagði Ólafur. Einnig færi
þetta eftir ásetunni hjá knapanum,
hvernig hann stjórnaði hestinum,
hvort ábendingar hans væru grófar eða
vart sýnilegar.
— Hvað með ytri fegurð hestsins?
„Hún skiptir líka miklu máli, en fal-
legur hestur getur gert hlutina miklu
verr en ljótur hestur.“
— Hvernig lítur fallegur hestur út?
„Fallegur hestur ber hálsinn vel upp
úr herðunum og hefur fallegan bol,
ber höfuðið rétt, er mátulega reistur,
mjúkur í beisli, mjúkur í hreyfingum
og ber lappirnar vel þegar hann geng-
ur. Þetta er í raun sambland af fegurð
og hæfileikum hestsins sem lagt er til
grundvallar," sagði Ólafur R. Guðjóns-
son, og dæmi nú hver fyrir sig.
8Tíminn
Föstudagur 3. maí 1991 Föstudagur 3. maí 1991
Það er víst eins gott að eiga ekki þessar
stúlkur á fæti.
Katrín Hafsteinsdóttir leiðbeinir einni stúlk-
unni.
Fegurð á fegurð ofan.
Hin árlega
Fegurðarsam-
keppni íslands er
haldin í kvöld
með pompi og
prakt en stúlkurn-
ar hafa undirbúið
sig sl. einn og
hálfan mánuð:
það sé eitthvað á milli eyrnanna á okk-
ur.“
„Ó, ég er svo happý," söng Ragnhildur Gísladóttir sem fegurðardrottning, en það er Ijóst að það er ekki tekið út með sældinni að vera fegurðardrottning.
Glenntar, togaðar, teygðar
grenntar, mýktar, reigðar
í kvöld fara fram úrslit í hinni árlegu
Fegurðarsamkeppni íslands á Hótel Is-
landi en að þessu sinni keppa 18 stúlk-
ur um titilinn fegurðardrottning ís-
lands. Undirbúningur fyrir keppnina
hefur sl. einn og hálfan mánuð verið í
fullum gangi. Stúlkurnar eru í þjálfun í
World Class heilsuræktinni undir
stjórn Katrínar Hafsteinsdóttur. Blaða-
maður og ljósmyndari Tímans litu inn
á æfingu hjá stúlkunum í vikunni.
Stúlkurnar 18 höfðu komið sér fyrir í
einu horni heilsuræktarinnar og lágu
þar og lyftu löppunum á sér út og suð-
ur af mikilli elju. Katrín gaf þeim góð
ráö: „Stúlkur, ekki gleyma að anda þó
það sé verið að taka mynd af ykkur,
passið upp á mjaðmirnar," og þar fram
eftir götunum.
Eykur sjálfstraust
og bætir framkomu
Tvær af stúlkunum átján eru Selma
Unnsteinsdóttir og Sólveig Kristjáns-
dóttir. Selma er nýkjörin ungfrú Aust-
urland og sagði hún aðspurð að miklu
meira væri í kringum þessa keppni
miðað við keppnina á Austurlandi.
Meira væri lagt í æfingarnar. Aðspurð
sagði Sólveig að undirbúningurinn fyr-
ir keppnina hefði ekki komið henni á
óvart. Hún sagði að undirbúningurinn
fælist aðallega í gönguæfingum og lík-
amsþjálfun. Þær hefðu hist síðasta
mánuðinn þrisvar í viku en núna síð-
ustu vikuna væru æfingar á hverjum
degi. Þá væru þær sendar í nudd og ljós
og nú síðustu vikuna væru stífar
gönguæfingar öll kvöld. „Við vissum
samt að hverju við gengum og vorum
því undirbúnar undir þessar miklu æf-
ingar,“ sagði Selma.
Um síðustu helgi hittu stúlkurnar
Heiðar Jónsson snyrti og sögðu þær að
sú heimsókn hafi komið að góðum not-
um. Bæði hafi hann verið skemmtileg-
ur og uppörvandi. Sólveig sagði að það
væri mjög góður andi í hópnum og alls
ekki hægt að sjá að þær væru allar að
bítast um efsta sætið.
Aðspurð sagði Selma að þessi keppni
ætti örugglega rétt á sér. Hún sagði að
náinn ættingi sinn hefði verið mjög á
móti þessu af ýmsum ástæðum og jafn-
vel talið keppnina mannskemmandi.
„Ég ákvað nú samt að drífa mig, eitt-
hvað heillaði mig,“ sagði Selma. Stúlk-
urnar voru sammála um það að keppn-
in yki sjálfstraustið, þær lærðu margt í
framkomu og síðast en ekki síst þá
kynntust þær sjálfri sér, sérstaklega í
gegnum það að í þessari keppni þyrftu
þær að standa mikið til á eigin fótum
þó svo að þeim væri uppálagt að styðja
vel hver við aðra.
Selma, sem er ungfrú Austurland,
sagði að það hefði breytt litlu fyrir
hana að vinna þann titii. „Það var mjög
skemmtilegt að taka þátt í þessari
keppni og það að vinna titilinn var bara
góður endir á góðu ævintýri," sagði
Selma.
En það er ekki eingöngu göngulag og
gott útlit sem vekur áhuga dómnefnd-
armanna. Stúlkurnar hafa einu sinni
verið kallaðar fyrir dómnefndina og
hafa svarað þar ýmsum spurningum,
bæði um þær sjálfar sem og það sem er
að gerast í kringum þær, eða eins og
Selma orðaði þaö: „Þeir þurfa að sjá að
Draumur allra stúlkna að
vera prinsessan á sviðinu
Katrín Hafsteinsdóttir í World Class
sér um þjálfun stúlknanna. Við upphaf
æfingatímans arka stúlkurnar á sund-
bolum fyrir framan hana, hún gerir at-
hugasemdir, bendir á hvað megi betur
fara, hvaðan þurfi að losna við nokkur
kíló og annað í þeim dúr. Síðan ráð-
leggur hún þeim um æfingar og fylgist
náið með árangri og framförum stúlkn-
anna.
Katrín hefur séð um að undirbúa
stúlkur fyrir þessa keppni sl. sjö ár. Að-
spurð sagði hún að hóparnir væru
mjög mismunandi ár frá ári. „Mér
finnst þessi hópur núna vera nokkuð
jafn, það eru nokkrar sem skera sig úr
en ég tel að það verði mjög erfitt að
dæma þennan hóp,“ sagði Katrín. Hún
sagði að í gegnum árin hefði hún oft
getað séð hvaða stúlka komi til með að
vinna þegar fer að líða að keppninni.
„Þetta er mjög mikið spurning um
hvað kemur frá þeim sjálfum, koma
þær til með að æfa mikið og taka þessu
alvarlega. Síðan er það auðvitað þeirra
útgeislun, það er ekki nóg að vera með
ægifagran líkama og vera í fallegum
Æfingamar virdast kreflast mikillar einbertingar.