Tíminn - 03.05.1991, Side 10
10 Tíminn
Föstudagur3. apríl 1991
MINNING
Hákon Guðröðarson
Efri-Miðbæ, Norðfirði
Fæddur 10. nóvember 1937
Dáinn 24. apríl 1991
Þó hugur minn sé enn að glíma
við þann kalda veruleika að Hákon
bróðir minn sé horfinn af heimi —
en sú fregn hefur mér óvæntust og
verst borist, og sennilega ætti ég
að halda að mér hendi um skrif
minningarbrota, get ég ekki annað
en rifjað upp og sett á blað ofurlít-
ið í kveðjuskyni.
Hákon Guðröðarson var fæddur í
Neskaupstað 10. nóvember 1937,
næstelstur barna þeirra Guðröðar
Jónssonar kaupfélagsstjóra og
Halldóru Sigfinnsdóttur konu
hans. Hin eru: Friðjón sýsjumaður,
Hvolsvelli, f. 1/8 1936, Sigríður,
deildarstjóri í Neskaupstað, f.
27/11 1941, og Ágúst, bóndi á
Sauðanesi, f. 27/10 1944.
Hákon var bjartur yfirlitum, bros-
mildur og blíður í lund. Hann var
allra uppáhald og efndi eigi að
fyrra bragði til vandræða, en gat
orðið nokkuð reiður ef á hann var
leitað.
Þótti mér hann þola illa stríðni
framan af árum og notaði mér það
nokkuð á meðan á meðan ég þorði
og gat. En upp úr fermingu snerist
dæmið við og litli bróðir hafði mig
undir — ég varð að biðjast vægðar,
játa mig gjörsigraðan.
Samband okkar var þó gott og ná-
ið og taldi ég mér skylt að vernda
drenginn fyrir hættum heimsins.
Þegar við vorum á 7. og 8. aldurs-
ári þurfti ég að taka afdrifaríka
ákvörðun. Hún var í því fólgin
hvort ég gæfi Hákoni eftir sumar-
pláss í Miðbæ, sem ég hafði haft frá
1943 hjá afa og ömmu, Jóni
Björnssyni og Sigríði Björnsdótt-
ur, og fara sjálfur í vist til móður-
foreldra minna, Sigurfinns Sig-
mundssonar og Jóhönnu Halldórs-
dóttur í Borgarfirði eystri.
Þessa fórn færði ég út á tárugar
kinnar og skelfingarsvip á andliti
mín kæra bróður, þegar hann var
orðaður við dvöl í Borgarfirði. Ráð-
stöfun þessi varð okkur báðum til
góða. Eg fékk að snatta í hrossum
og kynnast góðu fólki í leik og hóf-
legu starfi, en Hákon byrjaði í raun
lífsstarfið þetta sumar 1944.
Já, Hákon var alira stráka dug-
mestur og ekki lét hann sig muna
um að vakna til að sækja kýrnar kl.
6:30 og fara svo í mjaltirnar með
þeim fullorðnu, smápollinn.
Þarna komu fljótt í ljós þeir eigin-
leikar er Hákon átti í ríkum mæli.
Dugnaður, harðfylgi, þrautseigja
og kraftur. Jafnframt því að vera
ákaflega góður og glaður félagi í
starfi og leik og alltaf tilbúinn að
hlaupa sporin, vera fyrstur í verkið
og dró aldrei af sér — hvorki þá né
síðar á lífsleiðinni.
Faðir okkar var gamall Eiðamað-
ur og þekkti þar skólastjórann Þór-
arin Þórarinsson og Þórarin
Sveinsson, kennara frá Kirkjubóli í
Norðfirði. Taldi hann að vel mundi
séð fyrir námi og þroska okkar
bræðra ef við færum í Eiðaskóla.
Sú ráðstöfun var gerð haustið
1950. Ég man vel haustkvöldið
þegar við bræður skriðum undir
brekánin, aleinir í heimavistinni
því við höfðum komið deginum
fyrir skólasetningu.
Þetta var fyrsta ferð Hákonar að
heiman og hjartað ekki stórt né
aldurinn hár, varð 13 ára síðar um
haustið.
Eiðadvölin reyndist okkur gott
veganesti.
Hugur Hákons stóð ekki til lang-
skólanáms, þótt hann væri góðum
gáfum gæddur. Veit ég að hann
gerði það fyrir föður okkar að fara
einn vetur norður í M.A., en þar
með var sú braut á enda runnin.
Piltur hafði ákveðna stefnu á bú-
skapinn, vildi verða sveitabóndi.
Þetta studdi pabbi — var sjálfur
alltaf með hugann ,við bú&kap„
þrátt fyrir — eða ef til vill vegna
þess að hann starfaði sem kaupfé-
lagsstjóri. í þá daga voru slíkir
menn í nánum tengslum við starf
fólksins í sveitinni — og ekki keypt
kýr nema í samráði við kaupfélags-
stjórann, hvað þá um stærri fram-
kvæmdir. Trúr uppruna sínum
hafði faðir okkar keypt litla en
notadrjúga jörð, Efri-Miðbæ, 1949.
Þarna var nokkur heyskapur og að
mig minnir um 100 fjár á vegum
pabba.
Um 1955 ákvað Hákon að hefja
búskap í Efri-Miðbæ og byrjaði þar
einyrkjastarf, með búsetu í föður-
húsum úti í Neskaupstað. Þótti
honum ráðlegt að afla sér ein-
hverrar menntunar á sviði land-
búnaðarins og fór Hákon einn vet-
ur á Hvanneyri, fékk að setjast í
annan bekk.
Undir vorið 1956, þegar prófum
var lokið, fór Hákon að ókyrrast
enda sauðburður að hefjast austur
í Norðfirði. Leitaði hann eftir því
við Guðmund skólastjóra að fá að
sinna búi sínu í maímánuði.
Það kom ekki til greina, því ýmsir
verklegir þættir væru eftir í nám-
inu, svo sem aö moka út úr húsum
og pæla garða.
Hákon sat fast við sinn keip, taldi
fjármann sinn vera á förum og
honum væri nauðugur einn kostur
að fara austur í búskapinn. Skóla-
stjóri kvað hann þá ekkert prófskír-
teini fá, þótt hann hefði staðist
prófin. Hákon kvað það einu gilda,
en hann kynni að moka skít og
væri nú farinn.
Skildi þar með þeim, og hélt hvor
sínu striki. Dvölin á Hvanneyri var
Hákoni ánægjuleg og gagnsöm og
taldi hann sig fullgildan Hvanneyr-
ing og mætti þar með sínum vin-
um og félögum vorið 1981. Enn
um sinn er Hákon einn í búskapn-
um, nema á sumrin þá er Ágúst í
heyskapnum og um sauðburð, en
brátt vænkast hagur. Sumarið
1958 takast náin kynni með þeim
Sigurlaugu Bjarnadóttur í Þrastar-
lundi, Norðfirði, glæsilegri ungri
bóndadóttur.
Þeirra fyrsta barn, Bjarni, fæddist
30/4 1959.
Þau Hákon og Sigurlaug hófu síð-
an búskap í Efri-Miðbæ vorið 1960.
Húsakynni voru þröng og þægindi
lítil er þau hófu búskap sinn, en
það bjargaðist með miklum dugn-
aði húsmóðurinnar og nægjusemi
beggja. Var síðan ráðist í byggingu
nýs íbúðarhúss og var það fullbúið
1966. Þetta var bylting í öllum að-
búnaði fjölskyldunnar en börnin
voru orðin fjögur.
Fjárbúskapur Hákonar efldist og
voru byggð ný fjárhús og hlaða auk
þess sem þeir feðgar festu kaup á
jörðinni Fannardal. Dalurinn
geymdi vel fé, en það varð er best
lét um 500 fjár. Auk þess voru
ræktuð þar tún en nokkuð land-
þröngt var í Efri- Miðbæ fýrir bú-
skap sem þennan.
Þessi tilhögun var í marga staði
góð og náði sínum tilgangi, en hún
hafði í för með sér afar mikla
vinnu, einkum við heimflutning
heyfengsins um langan veg og
grýtta götu.
Fjárbúskapur gerðist þó affalla-
samur mjög í Norðfirði vegna riðu-
sjúkdóms og var svo komið upp úr
1970 að fé hrundi niður. Skömmu
eftir 1980 skar Hákon niður allt fé
sitt. Hafði hann þá ákveðið að byrja
kúabúskap og undirbúið það mál.
í mikið var ráðist og undirbún-
ingur var í höfn 1984 og mjólkur-
framleiðsla í fullum gangi. Þau
hjón Hákon og Sigurlaug sáu um
mjaltir og hirðingu. Þeir sem til
þekkja vita hversu mikil vinna fylg-
ir kúabúskap og það alla daga árs-
ins.
Á sumrum bættist svo heyskapur-
inn við. Þar naut heimiliö dyggrar
aðstoðar Guðröðar,. sonar. þeirra
hjóna, sem er sinnaður fyrir sveita-
störf og harðduglegur. Hann rétti
og hjálparhönd þegar svo bar undir
við fjósverkin nú síðari tímana.
Það gerði einnig yngsti sonurinn,
Jón Björn, sem enn er heima en í
skóla, nýorðinn 18 ára. Bjarni vann
að heyskap á sumrum á meðan
hann var við nám. Eftir leiðrétt-
ingu mjólkurkvóta nýverið hyllti
undir betri tíð í afkomu búskapar í
Efri-Miðbæ, en búið stóð vel undir
verulegum fjármagnskostnaði
vegna búháttabreytinganna.
Börn þeirra Hákonar og Sigur-
laugar eru:
Bjarni, stúdent og búfræðikandid-
at, f. 30/4 1959, stundar nú bygg-
ingavinnu, búsettur í Dilksnesi,
Hornafirði. Hans kona er Finndís
Harðardóttir, þau eiga tvo drengi.
Halldóra Guðrún, f. 6/9 1960,
húsmóðir og verkakona í Neskaup-
stað. Hennar maður er Birgir Ól-
afsson rafvirki. Þeirra börn eru
þrjú.
Sigurborg, stúdent, f. 28/8 1961,
fæst við skrifstofustörf í Neskaup-
stað. Hún er gift Bjarna Aðalsteins-
syni, smiði og sjómanni. Þau eiga
tvo drengi.
Guðröður, bílstjóri og landbúnað-
arverkamaður, f. 30/4 1962.
Kvæntur er hann Þóru Bjarkadótt-
ur og eiga þau einn son. Börn Þóru
frá fyrra hjónaband, en maður
hennar lést af slysförum, eru þrjú.
Jón Björn, nemandi í Fjölbrauta-
skóla Neskaupstað, f. 27/1 1973,
enn í foreldrahúsum.
Ég hef freistast til að rekja í gróf-
um dráttum helstu atriði í lífs-
hlaupi Hákonar Guðröðarsonar.
Auk þess sem getið er vann hann
að félagsmálum. Sat í stjórn Kf.
Fram frá 1977 til dauðadags. Var í
hreppsnefnd Norðfjarðarhrepps frá
1962 til 1990, þar af oddviti síðustu
8 árin.
Þessum störfum skilaði Hákon
vel, var glöggskyggn og framfara-
sinnaður. Honum varð það mikil
raun er Kf. Fram í Neskaupstað
riðaði á barmi gjaldþrots um 1988,
en það var á árum áður með traust-
ari félögum.
Á engan mun hallað þótt fullyrt sé
að hvatning Hákonar og ákveðin
afstaða til að forða félaginu frá
gjaldþroti, auk viðtala við forsvars-
menn í Samvinnuhreyfingunni,
kunni að hafa bjargað því að samn-
ingar náðust og félagið starfar enn.
Mjólkurflutninga annaðist Hákon
með búskapnum í liðlega tvo ára-
tugi. Jafnframt hafði hann á hendi
póstdreifingu í Norðfjarðarsveit frá
1967.
Gestkvæmt var í Efri-Miðbæ, þar
var oft margt í heimili, ekki síst á
sumrin, þegar sumarbörn og
heimafólk flögraði að hreiðrinu
eftir skólavist vetrarins.
Mín börn áttu eins og aðrir góðu
að mæta hjá þeim hjónum og voru
þar viðloða marga sumarparta.
Fyrir það og fjölmargt er nú þakk-
að. Veitingar og myndarskapur
hjónanna var einstakur.
Einstaka menn eru þeirrar gerðar
aö þeir standa sem klettur, til
þeirra er leitað og enginn á von á
slíkir falla stendur fólk ráðþrota og
hálflamað. En lífið heldur áfram.
Miðvikudaginn 24. apríl um há-
degisbil áttum við Hákon símtal,
hinsta sinn.
Helfregnin kom síðari hluta þess
dags.
Aðgætinn og þaulvanur maður
verður fyrir slysi við vinnu sína og
er látinn á augabraði.
Öll stöndum við eftir með harm í
hjarta.
Eiginkonu, börnum, tengdabörn-
um og barnabörnunum ungu bið
ég Guðs blessunar og veit að end-
urminningin um heilsteyptan
drengskaparmanna og mikinn fjöl-
skylduföður mun milda harm
þeirra.
P.t. Neskaupstað 30. apríl 1991
Friðjón Guðröðarson
Með fáeinum línum langar mig til
að kveðja kæran bræðrung minn
Hákon Guðröðarson, bónda í Efra-
Miðbæ í Norðfjarðarsveit, sem lést
af slysförum langt um aldur fram
24. apríl sl. aðeins 54 ára.
Foreldrar hans voru Guðröður
Jónsson kaupfélagsstjóri frá Miðbæ
og Halldóra Sigfinnsdóttir ættuð
frá Borgarfirði eystra.
Frá foreldrum hafði hann gott
upplag og þeirra heimilisbragur
hefur haft mótandi áhrif á hans
heimili síðar. Þar voru ákvarðanir
teknar og málin rædd í hans upp-
eldi.
Þegar við Hákon kynntumst fyrst
var ég 7 ára. Báðir vorum við þá í
sveit undir handarjaðri afa okkara.
Ég smádrengur sem ekkert not var
í, en hann 17 ára fuilgildur vinnu-
maður. Þá strax leit ég upp til hans
af mikilli aðdáun. í mínum huga
gat hann flesta hluti og þá mat ég
sérstaklega að eiga frænda sem var
sterkari en nokkur sem ég hafði
séð til áður. Góðri heilsu og mikill-
ar hreysti hélt hann til hinstu
stundar.
Sína góðu konu fann hann í sveit-
inni sinni, en hún er Sigurlaug
Bjarnadóttir frá Þrastarlundi. Ung
settu þau saman bú á jörðinni Efri-
Miðbæ. Börnin komu fljótt og urðu
5 og í aldursröð heita þau: Bjarni,
Halldóra, Sigurborg, Guðröður og
Jón Björn. Allt er þetta myndarfólk
sem stofnað hefur sín heimili nema
yngsti sonurinn sem átt hefur
heima í foreldrahúsum.
Það er tekið eftir sumum mönn-
um meira en öðrum, þeir hafa
þannig fas og yfirbragð. Þannig var
Hákon. Hann hafði skoðanir á
mönnum og málefnum og var
reyndar oft ekkert að pakka þeim
inn í fínan pappír þegar hann sagði
þær. En það sem fólk tók oftast eft-
ir var hans persónuleiki. Kraftur og
hvatning frá honum hafði áhrif og
ég hef fyrir því ágætar heimildir að
ef ekki hefði komið til hans atorka
þá væri hans kaupfélag, en þar var
hans stjórnarmaður, verr statt en
ella í dag. „Drengur" var hann van-
ur að segja við okkur hina þegar
honum fannst þurfa að ýta á okkur.
Hann var höfuð og herðar á stórri
fjölskyldu og hann ásamt Sillu
konu sinni naut þess að veita af
rausnarskap fjölskyldu og vinum.
Hann var heill í öllum býtum og
smásálarháttur og meðalmennska í
nokkurri mynd var honum víðs
fjarri. Þessa naut ég og mín fjöl-
skylda af honum.
Slíkra manna er sárt saknað þegar
þeir eru burtkallaðir snögglega en
minning um mætan eiginmann,
föður, afa, tengdaföður og vin er
líka dýrmæt eign.
Við verðum að trúa því að tíminn
lækni sárin.
Jón Júlíusson
Kær frændi minn er dáinn. Burt
kallaður á einu andartaki. Eftir sitj-
um við lömuð og harmi slegin.
Kvöld-, nætur- og helgidagavarsla apóteka I
Reykjavlk 26. aprfl tll 2. mal er I Borgarapótekl
og Reykjavlkurapótekl. Það apótek sem fyrr er
nefnt annast eltt vörsluna frá kl. 22.00 aö kvöldi
til kl. 9.00 aö morgni virka daga en kl. 22.00 á
sunnudögum. Upplýsingar um læknls- og lyfja-
þjónustu eru gefnar I sima 18888.
Neyðarvakt Tannlæknafólags Islands
er starfrækt um helgar og á stórhátlöum. Slm-
svari 681041.
Hafnarfjöröun Hafnarljaröar apótek og Norö-
urbæjar apótek eru opin á virkum dögum frá
kl. 9.00-18.30 og til skiptis annan hvern laug-
ardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl. 10.00-
12.00. Upplýsingar I slmsvara nr. 51600.
Akureyri: Akureyrar apótek og Stjörnu apótek
eru opin virka daga á opnunartíma búöa. Apó-
tekin skiptast á sina vikuna hvori aö sinna
kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. Á kvöldin er
oplð i þvi apóteki sem sér um þessa vörslu, til
kl. 19.00. Á helgidögum er opiö frá kl. 11.00-
12.00 og 20.00-21.00. Á öörum tlmum er lyfja-
fræöingur á bakvakt. Upplýsingar eru gefnar I
slma 22445.
Apótek Keflavfkur Opiö virka daga frá k. 9.00-
19.00. Laugardaga, helgidaga og almenna frl-
dagakl. 10.00-12.00.
Apótek Vostmannaeyja: Opið virka daga frá kl.
8.00-18.00. Lokaö I hádeginu milli kl. 12.30-
14.00.
Selfoss: Selfoss apótek er opiö til kl. 18.30.
Opiö er á laugardögum og sunnudögum kl.
10.00-12.00.
Akranes: Apótek bæjarins er opiö virka daga til
kl. 18.30. Opiö er á laugardögum kl. 10.00-
13.00 og sunnudögum kl. 13.00-14.00.
Garðabæn Apótekiö er opiö rúmhelga daga kl.
9.00-18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00.
Læknavakt fyrir Reykjavfk, Seltjamames og
Kópavog er I Heilsuvemdarstöð Reykjavíkur alla
virka daga frá kl. 17.00 til 08.00 og á laugardög-
um og helgidögum allan sólarhringinn.
Á Selljamamesl er læknavakt á kvöldin kl.
20.00-21.00 og laugard. kl. 10.00-11.00. Lokaö á
sunnudögum.
Vitjanabeiönir, slmaráöleggingar og tímapant-
anir I síma 21230. Borgarspitalinn vaktfrá kl. 08-
17 alla virka daga fyrir fólk sem ekki-
hefur heimilislækni eöa nær ekki til hans (sími
696600) en slysa- og sjúkravakt (Slysadeild)
sinnir slösuðum og skyndiveikum allan sólar-
hringinn (slmi 81200). Nánari upplýsingar um
lyfjabúðir og læknaþjónustu erugefnar I slm-
svara 18888.
Ónæmisaögeröir fyrir fulloröna gegn mænusótt
fara fram á Heilsuvemdarstöö Reykjavikur á
þriöjudögum kl. 16.00-17.00. Fólk hafi með sér
ónæmisskírteini.
Seitjamames: Opiö er hjá Tannlæknastofunni
Eiðistorgi 15 virka daga kl. 08.00-17.00 og
20.00- 21.00, laugardaga kl. 10.00-11.00. Slmi
612070.
Garöabær Heilsugæslustöðin Garöaflöt 16-18
er opin 8.00-17.00, slmi 656066. Læknavakt er I
slma 51100.
Hafharflörður Heilsugæsla Hafnarfjarðar,
Strandgötu 8-10 er opin virka daga kl. 8.00-
17.00, slmi 53722. Læknavakt slmi 51100.
Kópavogun Heilsugæslan er opin 8.00-18.00
virka daga. Simi 40400.
Keflavik: Neyðarþjónusta er allan sólarhringinn á
Heilsugæslustöö Suöumesja. Slmi: 14000.
Sálræn vandamál: Sálfræöistööin: Ráögjöf I sál-
fræöilegum efnum. Slmi 687075.
Landspftalinn: Alla daga kl. 15 til 16 og kl. 19 til
kl. 20.00. Kvennadeildln: kl. 19.30-20.00.
Sængurkvennadelld: Alla daga vikunnar kl. 15-
16. Heimsóknartimi fyrir feöur kl. 19.30-20.30.
Bamaspftall Hringslns: Kl. 13-19 alla daga.
Öldrunarlæknlngadeild Landspitalans Hátúni
10B: Kl 14-20 og eftir samkomulagi. - Landa-
kotsspftali: Alla virka kl. 15 til kl. 16 og kl. 18.30
til 19.00. Barnadeild 16-17. Heimsóknartimi
annarra en foreldra kl. 16-17 daglega. - Botg-
arspftalinn I Fossvogi: Mánudaga til föstudaga
kl. 18.30til 19.30 og eftir samkomulagi. Á laug-
ardögum og sunnudögum kl. 15-18.
Hafnarbúöir Alla daga kl. 14 til kl. 17. - Hvíta-
bandiö. hjúkrunardeild: Heimsóknartimi frjáls
alla daga. Grensásdeild: Mánudaga ti föstu-
daga kl. 16-19.30. - Laugardaga og sunnu-
daga kl. 14- 19.30. - Heilsuvemdarstöðin: Kl.
14 til kl. 19. - Fæöingarheimili Reykjavikur: Alla
daga kl. 15.30 til kl. 16.30. - Kleppsspftall: Alla
daga kl. 15.30 til kl. 16ogkl. 18.30 til kl. 19.30.
- Flókadeild: Alla daga kl. 15.30 til kl. 17. Kópa-
vogshælið: Eftir umtali og kl. 15 til kl. 17 á
helgidögum. - Vífilsstaöaspítali: Heimsóknar-
tími daglega kl. 15-16 og kl. 19.30-20. - St
Jósepsspitali Hafnarfiröi: Alla daga kl. 15-16
og 19-19.30.
Sunnuhliö hjúkrunarheimili I Kópavogi: Heim-
sóknartfmi kl. 14-20 og eftir samkomulagi.
Sjúkrahús Keflavikuriæknlshéraðs og heilsu-
gæslustöövar: Vaktþjónusta allan sólarhring-
inn. Simi 14000. Keflavfk-sjúkrahúsið: Heim-
sóknartimi virka daga kl. 18.30-19.30. Um
helgarog á hátíöum: Kl. 15.00-16.00 og 19.00-
19.30. Akureyri- sjúktahúsiö: Heimsóknartimi
alla daga kl. 15.30-16.00 og 19.00-20.00. Á
barnadeild og hjúkrunardeild aldraöra Sel 1:
Kl. 14.00-19.00. Slysavarösstofusími frá kl.
22.00- 8.00, slmi 22209. Sjúkrahús Akraness:
Heimsóknartimi Sjúkrahúss Akraness er alla
daga kl. 15.30- 16.00 og kl. 19.00-19.30.
Slökkvilið - Lögregla
Reykjavík: Seltjamames: Lögreglan slmi
611166. slökkviliö og sjúkrabifreiö sími 11100.
Kópavogun Lögreglan sími 41200, slökkviliö
og sjúkrabifreið simi 11100.
Hafnarflöröur Lögreglan simi 51166, slökkvilið
og sjúkrabifreiö simi 51100.
Keflavfk: Lögreglan simi 15500, slökkviliö og
sjúkrabíll simi 12222, sjúkrahús 14000, 11401
og 11138.
Vestmanneyjan Lögreglan, sími 11666,
slökkvilið simi 12222 og sjúkrahúsiö slmi
11955.
Akureyri: Lögreglan simar 23222, 23223 og
23224, slökkviliö og sjúkrabifreið simi 22222.
Isafjöröur: Lögreglan slmi 4222. slökkviliö simi