Tíminn - 03.05.1991, Page 13
Föstudagur3. maí 1991
Tíminn 13
Forkeppni EM í körfuknattleik:
Framsóknarkonur
Reykjavík
Félag framsóknarkvenna fer í vorferð fimmtu-
daginn 9.5. — uppstigningardag.
Nánar auglýst síðar.
Stjómin
Borgnesingar— Nærsveitir
Spilum félagsvist í Félagsbæ föstudaginn 3. maí kl. 20.30.
Síðasta kvöldið í þriggja kvölda keppni.
Mætum öll vel og stundvíslega.
Framsóknarfélag Borgamess.
Suðuiiand
Skrifstofa Kjördæmissambands framsóknarfélaganna á Suður-
landi, Eyrarvegi 15, Selfossi, verður opin á þriðjudögum og
fimmtudögum frá kl. 15-17. Sími 98-22547. Félagar hvattirtil að
líta inn.
KSFS
HAPPDRÆTTI
KJÖRDÆMISSAMBANDS
FRAMSÓKNARFÉLAGANNA
í REYKJANESKJÖRDÆMI
Dregið var i happdrættinu þann 22. apríl hjá bæjarfógetanum í
Kópavogi.
Vinningsnúmer verða birt 6. maí nk.
PORTUGALIR EINFALDLEGA
MEÐ MUN STERKARA LIÐ
— sigruðu íslendinga 86-70 í gærkvöld
Jón Kr. Gíslason, fyrirliði ís-
lenska liðsins. Tímamynd Pjetur
íslendingar töpuðu fyrir Portú-
gölum í forkeppni Evrópumótsins
í körfuknattleik í Laugardalshöll-
inni í gærkvöld 86-70. Portú-
galska liðiö var einfaldlega mun
betra en það íslenska og það var
vel að sigrinum komið.
Það voru þó íslendingar sem
náðu forystu í upphafi 4-0, en
gestirnir voru ekki leng' að jafna
og komast yfir. Þeir komust yfir 8-
16 og 33- 18. Þegar hér var komið
sögu skoraði íslenska liðið ekki í
lengri tíma og á þessum kafla
lögðu Portúgalir grunninn að
sigri sínum. I leikhléi var staðan
30-46. Munurinn jókst í síðari
hálfleik, mest í 22 stig, en 16 stig-
um munaði þegar upp var staðið
30-46.
Portúgalir léku mjög góða maður
á mann vörn í leiknum, eins og
þeir gerðu gegn Finnum, og ís-
lenska liðið náði ekki að komast á
skrið. Þeir Ferreira og Seica voru
sem fyrr mjög góðir í liði Portú-
gala og ekki virtist koma að sök
þótt Mike Plowden lenti í villu-
vandræðum. Þá ótti Steve Rocha
einnig góðan leik.
í íslenska liðinu stóð í raun eng-
inn uppúr, vörnin var slök og bar-
áttuna vantaði. Teitur Örlygsson
verður þó aö teljast maður leiksins
í íslenska liðinu.
Stig íslands: Teitur 14, Jón Kr.
11, Guðmundur 11, Pétur 10,
Magnús 8, Jón Arnar 5, Falur 5,
Guðjón 3, Guðni 2 og Axel 1.
í kvöld eiga íslendingar frí, en kl.
18 leika Norðmenn og Finnar og
kl. 20 leika Portúgalir og Danir.
BL
ÚRSLIT
Knattspyma:
Vináttulandsleikir
Wales-ísland..........1-0
Mark Wales gerði Paul Bodin úr
vítaspyrnu á 35. mín.
Svíþjóð-Austurríki 6-0
Evrópukeppni landsliöa
Albanía-Tékkóslóvakía .......0-2
Búlgaría-Sviss ..............2-3
San Marínó-Skotland..........0-2
Noregur-Kýpur................3-0
Ítalía-Ungverjaland .........3-1
Júgóslavía-Danmörk ..........1-2
N-Irland-Færeyjar............1-1
Þýskaland-Belgía.............1-0
Írland-Pólland ..............0-0
TVrkland-England ............0-1
Badminton:
Heimsmeistaramótið í Danmörku:
ísland-írland................2-3
Broddi Kristjánsson vann sigur í
einliðaleik og með Árna Þór Hall-
grímssyni í tvfliðaleik. Elsa Nielsen
tapaði í einliðaleik og með Ásu Páls-
dóttur í tvfliðaleik. Þá töpuðu Ása
og Árni Þór í tvenndarleik.
NBA-deildin — Úrslitakeppnin:
Boston Celtics-Indiana Pacers 112-105
Boston er 2-1 yfir í viðureigninni.
Golden State Warr.-SA Spurs 109-106
Warriors eru 2-1 yfir.
BL
Forkeppni EM í körfuknattleik:
------------------------------------------------->
Útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu
Guðríðar Stefaníu Sigurðardóttur
fyrrverandi stöðvarstjóra Pósts og síma, Grundarfirði,
Dalbraut 20, Reykjavik, verður gerð frá Grundarfjarðar-
kirkju laugardaginn 4. maí kl. 14.
Boðið er upp á rútuferð frá Bifreiðastöð (slands kl. 10.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á að láta Grundarfjarðar-
kirkju eða liknarfélög njóta þess.
Sigurður Hallgrímsson Erla Eiríksdóttir
Selma Hallgrímsdóttir Ruga Erastus Ruga
Sveinn Hallgrímsson Geröur K. Guðnadóttir
Ingibjörg Hallgrímsdóttir Kristinn Ólafsson
Halldóra Hallgrímsdóttir Laszlo Peter Laszlo
Guðni E. Hallgrímsson Bryndís Theodórsdóttir
Hallgrímur Hallgrímsson Guðríður J. Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
LENGI í
Forkeppni Evrópumeistaramóts
karla í körfuknattleik hófst á mið-
vikudaginn með leik íslendinga og
Dana. Ekki leit vel út fyrir okkar
mönnum í upphafi leiksins, en sig-
ur vannst þó um síðir, 85-77.
Danir komust í 0-12, en Páll Kd-
beinsson kom íslandi yfir, 27-26. ís-
land hafði yfir í leikhléi, 45-44. I
upphafi síðari hálfleiks setti ís-
lenska liðið á fulla ferð og náði um
skeið 17 stiga forskoti, 70-53. Danir
náðu að rétta sinn hlut undir lokin,
en lokatölur voru eins og áður segir
85-77.
Stigin fsland: Teitur 19, Pétur 13,
Guðjón 9, Axel 8, Valur 7, Guð-
munndur 7, Magnús 7, Falur 6,
Guðni 4, Páll 3 og Jón Kr. 2. Dan-
mörk: Henrik Nörre Nielsen 17,
Steffen Reinholt 14, Flemming
Danielsen 13 og Langager 11, aðrir
GANG
minna.
Torfi Magnússon landsliðsþjálfari
sagði eftir leikinn að leikmenn sínir
hefðu verið taugaveiklaðir í byrjun.
Sigur unglingaliðsins á NM í Stykk-
ishólmi hefði sett pressu á menn og
meiri kröfur væru nú gerðar en áð-
ur. Torfi var ánægður með vörn liðs-
ins í síðari hluta fyrri hálfleiks og
fyrri hluta síðari hálfleiks, en fannst
að of mörg mistök hefðu verið gerð.
Portúgal-Finnland
Það tók Finna 15 mín. að skora í
leiknum. Á meðan höfðu Portúgalar
gert 25 stig! Staðan í leikhléi var 30-
10. Ótrúlegar tölur! Síðari hálfleik-
ur gekk öllu eðlilegar fyrir sig og
Portúgalar unnu nauman sigur eftir
allt, 60-52.
Stigahæstir, Portúgal: Ferreira 20,
Seica 19. Finnland: Markkanen 16,
Pehkonen 14. BL
(slenskar getraunir:
TVÆR
TÓLFUR
Tveir seðlar komu fram með 12
réttum um síðustu helgi í 17. lei-
kviku getrauna. Hvor vinnings-
hafi fær í sinn hlut 167.067 kr.
Þá voru 49 með 11 rétta, þeir fá
hver í sinn hlut 3.407 kr. Með 10
rétta voru 564, 296 kr. koma í
hlut hvers vinningshafa. Úrslita-
röðin um síðustu helgi var þessi:
121, 221,112, HX.
Bráðabani í hópleiknum hófst
um síðustu helgi og ekki réðust
úrslit í fyrstu tilraun. BONS og
ÖSS voru báðir með 11 rétta og
áfram heldur því bráðabaninn þar
til annar hópurinn fær hærra skor
en hinn.
Sölukerfið lokar kl. 13.55 á laug-
ardaginn. BL
MERKIÐ VIÐ 12 LEIKI 4. maí 1991 Viltu gera uppkastað þinni spá?
1. Chelsea-Liverpool □ mrxifn
2. Coventry City-Sheff. United □ iTimn
3. Derby County-Southampton □ mmm
4. Everton-Luton Town □ msm
5. Leeds United-Aston Villa □ E0S
6. Manch.United-Manch. City □ 000
7. Norwich City-Q.P.R. B000
8. Sunderland-Arsenal QE00
9. Tottenham-Notth. Forest □ 000
10. Wimbledon-Crystal Palace EE 000
11. Notts County-Oldham ed rrjsm
12. Sheff. Wed-Millwall EE 000
13. Ekki í gangi að sinni. mmBiT]
1 FJÖLMIÐLASPÁl
, O z z 9 T= z 2 3 1 I DAGUR | RlKISt/TVARPtÐ 5 1 CD CM 8 tö 1 LUKKULÍNAN m 2 SA *TA -s 1
1 X I 2 |
1 2 2 2 2 2 2 2 2 2 1 1 0 9
2 x 1 X 1 1 1 1 1 2 1 7 2 1
3 2 1 2 2 1 2 2 X X 2 2 2 6
4 1 1 1 1 1 1 1 1 1 X 9 1 0
5 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 10 0 0
6 x 1 1 1 1 X 1 1 X 2 6 3 1
7 1 1 1 1 1 X 2 X X 1 6 3 1
8 2 2 2 2 2 2 X X 2 2 0 2 8
9 1 1 1 1 X 1 1 1 1 1 9 1 0
10 1 X 1 1 X 1 2 X X X 4 5 1
11 2 1 X 2 2 1 X 1 X 2 3 3 4
12 i 1 1 1 1 1 1 1 1 1 10 0 0
13
1 ....... .................,
STAÐAN í 1. DEILD
Arsenal 35 22 12 1 65-16 76
Liverpool 35 22 7 6 72-34 73
Crystal Pal 36 18 9 9 44-41 63
Man. City 36 16 11 9 61-50 59
Leeds 35 17 7 11 55-40 58
Man. United ....34 15 11 8 45-38 55
Wimbledon 36 14 13 9 52-42 55
Nott. Forest .... ...34 12 11 12 58-45 47
Tottenham ...35 11 14 10 49-46 47
QPR 36 12 9 15 43-5145
Chelsea ....36 12 9 15 52-65 45
Everton ...35 13 11 13 45-43 44
Southampton 36 12 8 16 55-62 44
Coventry .. 36 11 10 15 41-43 43
Sheffield Utd... 35 12 6 17 33-52 42
Norwich 35 12 6 17 38-60 42
AstonVilla 35 8 13 14 40-50 37
Luton 36 9 7 20 40-60 34
Sunderland 36 8 9 19 36-57 33
Derby 35 4 9 22 29-68 21
STAÐAN í 2. DEILD
West Ham.......43 23 14 6 57-34 83
Oldham.........43 23 13 7 78-49 82
Sheffield Wed...41 20 14 7 72-45 74
Notts County... 43 20 11 12 69-53 71
Millwall......44 19 13 12 67-48 70
Brighton.......44 20 7 17 61-66 67
Middlesbro......43 19 9 15 64-44 66
Bristol City ...43 19 6 18 63-65 63
Bamsley........43 17 11 15 59-46 62
Oxford.........44 14 19 11 69-64 61
Bristol Rov...43 15 12 16 54-54 57
Newcastle.....43 14 15 14 46-52 57
Charlton ......44 13 16 15 56-58 55
Wolves........44 12 18 14 59-61 54
Ipswich.......43 12 18 13 55-61 54
PortVale.......43 14 10 19 51-61 52
Blackbum.......44 14 9 21 49-63 51
Swindon .......44 12 14 18 63-68 50
Portsmouth ...44 13 11 20 54-66 50
Plymouth......44 11 17 16 52-66 50
Watford.......44 11 15 18 42-56 48
WBA............44 10 16 18 50-59 46
Leicester......43 13 7 23 57-80 46
Hull............44 8 15 21 53-84 39