Tíminn - 17.05.1991, Blaðsíða 2
2 Tíminn
'\r\ A -r-r**
Föstudagur 17. maí 1991
BHMR:
Aðgerðir stjórn-
valda varasamar
Launamálaráð BHMR hefur sent frá sér ályktun varðandi stöðu rík-
isfjármála og bent á nokkur atríði í því sambandi. í fyrsta lagi er í
ályktuninni talað um að ríkið hafí ekki efnt kjarasamninga við
BHMR og þess vegna sé launaþáttur ríkisútgjalda verulega vanmet-
inn.
Einnig sé vanmetinn sá þáttur út-
gjalda er varðar lögbundin fram-
lög í Lífeyrissjóð starfsmanna rík-
isins þar sem ríkið hafi ekki greitt
þau framlög. Þá er bent á að ríkið
eigi útistandandi 14 milljarða í
óinnheimtum sköttum, sem er
hærri fjárhæð en nemur nýjum
hallatölum ríkissjóðs. Einnig er í
ályktuninni vakin á því athygli að
þrátt fyrir mjög góða afkomu fyrir-
tækja skili þau mun minni skött-
um en reiknað hafi verið með og
að þrátt fyrir mjög háa raunvexti
séu skattar af fjármagnstekjum
engir.
I ályktuninni varar Iaunamálaráð
BHMR við aðgerðum af hálfu ríkisins
er bitna á laúnafólki. Þar eru nefndar
sérstaklega raunvaxtahækkanir,
skerðingar á húsnæðislánakerfi,
hækkanir á opinberum gjaldskrám
og niðurskurð í velferðakerfinu.
Þá skorar BHMR á launanefndir að
hækka laun í samræmi við hækkun
verðlags og bata viðskiptakjara.
GS.
Teikning af fyrirhugaðri kirkju í Hjallasókn í Kópavogi.
Hvítasunnudagur í Kópavogi:
Skóflustunga að nýrri
kirkju og safnaðarheimili
Á hvítasunnudag, þann 19. maí nk.,
mun Sigurbjöm Einarsson biskup taka
fyrstu skóflustungu að nýrri kirkju og
safnaðarheimili í Hjallasókn í Kópa-
vogi. Athöfhin hefst kl. 14 með hátíðar-
guðsþjónustu í messusal Hjallasóknar.
Að lokinni blessun verður gengið frá
messusalnum til kirkjulóðar að Álfa-
heiði 17. Þar mun formaður sóknar-
nefndar, Hilmar Björgvinsson, flytja
ávarp og sunginn verður lokasálmur
guðsþjónustunnar. Að því loknu mun
dr. Sigurbjöm flytja ritningarorð og
bæn og taka fyrstu skóflustunguna að
hinni nýju kirkju og safnaðarheimili.
Biskup íslands, herra Ólafur Skúlason,
flytur blessunarorð og helgar staðinn.
Athöfninni lýkur með því að sunginn
er sálmur. Skólahljómsveit Kópavogs
undir stjóm Jónasar Bjömssonar ann-
ast hljóðfæraleik, ásamt organistanum
Elíasi Davíðssyni, sem jafnframt
stjómar kór Hjallasóknar. Að athöfn
lokinni er öllum viðstöddum boðið til
kaffidrykkju í salarkynnum Digranes-
skóla. —SE
Fatan er orðinn full og vatn lekur niður á blöð og tæki Amar
Páls Haukssonar þingfréttamanns. Tímamynd Ámi Bjarna
Fréttamenn kvarta yfir leka í Alþingishúsinu!
Alþingishúsið er farið að leka.
Einn af þakgluggum hússins er
úþéttur og nú pípir vatn inn um
gluggann, en rigningar hafa verið
sérstaklega miklar að undan-
fðmu.
Það er þingfréttaritari Ríkisút-
varpsins sem mest verður var við
Íekann, en umræddur þakgluggi
er í kompu þeirri sem hann hefur
til umráða. Starfsmenn Alþingis
settu fótu undir iekann þegar
hann kom í ljós, en hún hefur
verið Rjót að fyílast að undan-
fÖmu þegar regnið hefur barið
þak Aiþingishússins. Amar Páli
Hauksson þingfréttaritari segir
það ekki vera í sínum verkahring
að tæma vatnsfötur og er allt
annað en ánægður með vistina í
hripleku súðherberginu. Hann
segir að búast megi við að það
fari að ieka ofan á forseta þings ef
svo heidur áfram sem horfir.
Það er ekkert nýtt að leki sé í Al-
þingishúsinu. Fréttum hefur
löngum verið lekið í fréttamenn.
Stundum hefur fréttaleki valdið
uppnámi meðal þingmanna.
Frægt er þegar þvf var ieldð í
Amar Pái Hauksson að handhafi
forsetavalds hefði keypt óeðiilega
mikið áfengi á sériqörum. Nú fær
Amar Páll hins vegar að kynnast
annars konar leka.
Alþingishúsið við Austurvöil var
reist 1880-1881 og er því 110
ára gamalt. -EÓ
Islendingar mótmæla
geymslu á efnaúrgangi
Framsóknarmenn skora á Mosfellsbæ:
Kaupið Blikastaði!
íslensk stjómvöld hafa ákveðið að mótmæla, á fundi aðildarríkja Par-
ísarsamkomulagsins um mengun sjávar, áformum breskra stjómvalda
að geyma geislavirk úrgangsefni í neðanjarðargeymslum undir sjávar-
botni við Dounreay í Skotlandi eða Sellafield á vesturströnd Englands.
Stjórn Framsóknarfélags Kjósar-
sýslu hefur skorað á bæjarstjórn
Mosfellsbæjar um að leita samninga
við eigendur Blikastaða um kaup á
landi jarðarinnar.
{ályktunni er skorað á bæjarstjórn-
ina að hvika ekki frá núverandi
landamerkjum milli Mosfellsbæjar
og Reykjavíkur.
Nú er verið að rannsaka jarðlög við
Dounreay og Sellafield með tilliti til
þess hvor staðurinn sé betur til þess
hæfur að geyma geislavirk úrgangs-
efni. Áformað er að gera djúp jarð-
göng út frá ströndinni á öðrum hvor-
um staðnum og geyma úrgangsefnin
í þeim. Göngin verða undir sjávar-
botni að stærstum hluta. Eftir að bú-
ið er að koma efnunum fyrir verður
steypt fyrir munna ganganna þannig
að ekki verður hægt að fylgjast með
ástandi þeirra. Mörg hundruð ár
munu líða áður en efnin verða orðin
skaðlaus mönnum og dýrum.
Ekkert er minnst á þessa aðferð við
að geyma úrgangsefni í Parísarsam-
komulaginu, sem ísland og Bretland
eru aðilar að. Á fundi aðildarríkja
Parísarsamkomulagsins í fyrra bar
Bættar horfur á kísiljárnmarkaðnum. Jón Sigurðsson framkv.stjóri Grundartanga:
Markaðurinn er að komast í jafnvægi
Horfur á kísiljámmarkaönum
hafa batnað að undanförnu. Mun-
ar mestu að framleiðendur hafa
dregið mikið saman seglin. Birgð-
ir hafa minnkað og jafnvægi fram-
boðs og eftirspurnar er að nást.
Jón Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri íslenska járnbiendifélags-
ins, segir að ekkl sé von tii þess að
þetta skill sér í bættum rekstrí fyr-
írtækisins fyrr en í fyrsta lagi á
síðasta fjórðungl ársins.
„Það þarf ýmislegt að gerast tii
þess að vonimar rætist Þangað til
er ekkert hægt að segja. Þessa
mánuðina er að nást jafnvægi miUi
framboðs og eftirspumar. Birgðir
framleiðenda um allan heim eru
að minnka. Þegar þær verða nægi-
lega Utiar er hægt að fara taia við
kaupenduma um hærra verð.
Þetta stafar fyrst og fremst af því
að menn, m.a. við, hafa dregið
saman framleiðsiu. Við höfum
ekki rekið nema annan ofninn síð-
an um miðjan apríl og reiknum
fastiega með þyí að svo verði fram
í september. Útlitið er ekki bjart-
ara en það.
Þegar verðið hækkar breytir það
hins vegar fljótt afar mlklu. En
það er samdráttur í stálfram-
leiðslu ( heiminum. Hún þarf að
aukast á ný til að breytingamar
vari eitthvað til frambúðar. Annars
er þessi markaður mjög sveiflu-
kenndur. Ég hef stundum sagt að
þetta sé eins og að gera út á
Íoðnu,“ segir Jón Sigurðsson.
-aá.
ísland upp tillögu um að reglur yrðu
einnig settar um þessa geymsluað-
ferð, en hún náði ekki fram að ganga.
Ekki er talið útilokað að fram-
kvæmdir við jarðgöngin hefjist strax
á næsta ári þannig að á fundinum í ár
kann að gefast síðasta tækifærið til
aö hafa áhrif á áform stjórnvalda í
Bretlandi. Norsk stjórnvöld hafa þeg-
ar ákveðið að gerast meðflutningsað-
ilar að tillögunni og líklegt er talið að
fleiri þjóðir bætist í hópinn. -EÓ
Yfirgangur
Bæjarmálaráð Einingar í Mosfellsbæ
telur það yfirgang af hálfu Reykjavíkur-
borgar að gera kauptilboð í land sem
annað sveitarfélag hefur skipulagt sem
framtíðaríbúðabyggð sína og sérstak-
lega að ætlast til lögsögubreytingar í því
sambandi.
Bæjarmálaráð ályktar að Mosfellsbær
hafni forkaupsrétti á kaupsamningi
milli Reykjavíkurborgar og eigenda
Blikastaða. Jafnframt að hafnað skuli
viðræðum við Reykjavíkurborg um
breytingu á lögsögumörkum milli sveit-
arfélaganna í tengslum við umræddan
kaupsamning. Bæjarmálaráðið hvetur
bæjarstjóm og íbúa Mosfellsbæjar að
standa gegn allri skerðingu á Iögsögu
bæjarins í þessu sambandi. —SE