Tíminn - 17.05.1991, Page 4
4 Tíminn
Föstudagur 17. maí 1991
Baker fór til Bandaríkjanna í gær:
Er ekki búinn aö
gefa upp alla von
James Baker, utanríkisráöherra Bandaríkjanna, og Yitzhak Sham-
ir, forsætisráðherra fsraels. Þeir binda enn miklar vonir við að frið-
arráðstefna veröi haldin um Palestínumálið.
James Baker, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sneri
aftur til Washington í gær og
batt þar með enda á fjórðu
friðarferð sína um Miðaustur-
lönd frá því að Persaflóastríð-
inu lauk. Honum tókst ekki að
fá ísraelsmenn og Araba að
samningaborðinu, en tölu-
verður ágreiningur er enn um
hvemig friðarráðstefnan eigi
að fara fram og hverjir eigi að
taka þátt í henni. Baker sagði
í gær, eftir að hafa átt viðræð-
ur við ísraelska ráðamenn, að
hann hefði ekki orðið fyrir
vonbrigðum þótt ekki hefði
tekist að fá ísraelsmenn og
Araba að samningaborðinu.
Hann sagði, á sameiginlegum
fréttamannafundi sem hann
hélt með David Levy, utanrík-
isráðherra ísraels, rétt áður
en hann flaug til Bandaríkj-
anna, að enn væru miklir
möguleikar á að halda friðar-
ráðstefnuna. Baker sagðist
vonast til að geta hitt Bush
Bandaríkjaforseta í dag og
þeir mundu í sameiningu
ákveða hvað yrði gert næst.
Forsætisráðherra ísraels,
Yitzhak Shamir, sagði eftir
seinasta fund þeirra Bakers í
gær að hann teldi að áform
Bakers um að koma á friðar-
ráðstefnu yrðu að veruleika.
Hann gaf engar ástæður fyrir
bjartsýninni.
Baker átti viðræður við Shamir,
Levy og Moshe Arens, varnarmála-
ráðherra ísraels, í fjórar klukku-
stundir í gærmorgun, en fljótlega
að þeim loknum hélt hann til
Bandaríkjanna. Ágreiningurinn er
mestur milli ísraelsmanna og Sýr-
lendinga. Deilt er um hvort Sam-
einuðu þjóðirnar eigi að fá full-
trúa á ráðstefnuna og þá hvert
hlutverk þeirra eigi að vera. Arab-
arnir eru fylgjandi þátttöku Sam-
einuðu þjóðanna. Þá er einnig
deilt um hvort ráðstefnuna eigi að
Ekki náðist tilskilinn meirihluti í
forsetaráði Júgóslavíu í fyrradag
til þess að Króatinn Stipe Mesic
gæti orðið næsti forseti Júgó-
slavíu.
Lýðveldin sex og sjálfsstjórnarhér-
uðin tvö hafa skipst á að fara með
forsetaembætti Júgóslavíu, eitt ár í
senn. í gær var komið að því að
skipta um forseta og átti Mesic að
taka við af Serbanum Borisav Jovic.
Þetta verður til að auka mjög á
halda einu sinni eða reglulega.
ísraelsmenn vilja að hún sé haldin
einu sinni og aö síðan hefjist tví-
hliða viðræður milli þeirra og ein-
stakra Arabaríkja. Einnig hefur
verið deilt um hverjir eigi að vera
stjórnmálakreppuna í Júgóslavíu,
en Mesic lýsti því yfir á þriðjudag-
inn að Króatía mundi segja sig fyrir
fullt og allt úr ríkjasambandinu ef
hann yrði ekki samþykktur sem
forseti.
Tanjug-fréttastofan sagði að Mesic
og fulltrúar Slóveníu, Bosníu- Her-
segóvínu og Makedóníu hafi sam-
þykkt hann sem forseta, en fulltrúi
Serbíu og fulltrúar sjálfsstjórnar-
héraðanna Vojvodínu og Kosovo
fulltrúar Palestínumanna. Hátt-
settur bandarískur embættismað-
ur sagði í gær að svo virtist sem
málamiðlun hefði náðst um það
atriði, sem fælist í því að Palest-
ínumenn og Jórdanir mynduðu
saman eina samninganefnd, en
hann vildi ekki fara út í smáatriði,
þar sem málið væri enn á við-
kvæmu stigi.
Bush Bandaríkjaforseti hringdi í
Hussein Jórdaníukonung á mið-
vikudag. Jórdanska fréttastofan
Petra sagði að Bush hefði lofað að
bandarísk stjórnvöld myndu reyna
að koma á friðarráðstefnu sem
byggði á ályktunum Sameinuðu
þjóðanna um að ísraelsmenn færu
af herteknu svæðunum. Shamir,
sem leiðir hægrisinnuðustu
stjórnina í sögu Ísraelsríkis, hefur
heitið því að fara ekki frá Vestur-
bakkanum og Gazasvæðinu.
Reuter-SÞJ
hafi verið á móti. Fulltrúi Svart-
fjallalands sat hjá.
Þetta er í fyrsta skipti sem þetta
gerist síðan íyrrum kommúnista-
leiðtogi landsins, Josip Broz Tito,
kom þessu kerfi á til að stuðla að
valddreifingu.
Umboð Borisavs Jovic rann út á
miðnætti í fyrradag og einnig um-
boð varaforsetans, en Stipe Mesic
var einmitt varaforseti.
Reuter-SÞJ
Stjórnarkreppan í Júgóslavíu:
Stipe Mesic hafnað
sem forseta landsins
Tvennar aðskildar náttúruhamfarir í Bangladesh:
FÓRNARLÖMB
FLÓDANNA FÁ
LITLA AÐSTOÐ
Mlldl flóð hafa verið í nokkrum
héruðum í norðausturhluta
Bangladesh vegna monsúnrign-
inga og inikils vatnsstreymis yflr
landamærin frá Indlandi. Yflr 200
manns hafa látið Hflð í flóðunum
og talið er að þau hafl gert um
milljón manns heimilislausa.
Þetta eru aðrar náttúruhamfarim-
ar sem dynja yflr Rangladesh, en
ekld er langt siðan öflugur fellibyl-
ur gekk yflr strönd landsins og lék
nærliggjandi héruð grátt Staðfest
hefur verið að yflr 138.000 manns
hafi látist af völdum fellibylsins og
að hann hafl gert tíu milljónlr
manna heimilislausar, Fómar-
lömb flóðanna hafa fallið í skugg-
ann af fómarlömbum fellíbylsins í
hjálparstarflnu, en neyðin er síst
minni.
Flóðin hófust reyndar fyrir um
viku síðan, en em stöðugt að fær-
ast í aukana. Veðurfræðingar
sögðu síðdegis í gær að vatns-
magnið í nær öllum ám í norð-
austurhluta Bangladesh væri yfir
hættumörkum. Yflrvöld hafa flutt
yfir 1.000 fjölskyidur til ömggari
svæða, en enn er fjöldi manna
ínnikróaður á hóium og hæðum
vegna flóðanna og geta hvorki
hreyft legg né lið. Þorpin líkjast
smáeyjum úti í vatninu og þús-
undir manna hafast við á þökum
húsanna. Mikill skortur er á bát-
um til að flylja fólkið og er dryklg-
arvatn flutt til fólksins á flekum
gerðum úr bananatrjám, en 34
hafa látist úr blóðkreppusótt eftir
að hafa dmkkið mengað vatn
ánna. Reuter-SÞJ
Þýskaland:
Seðlabankastjór-
inn segir af sér
Karl Otto Pöhl, seðlabanka-
stjóri Þýskalands, ætlar að láta
af embætti í lok október á þessu
ári. Theo Waigel fjármálaráð-
herra og Pöhl tilkynntu þetta í
gær. Afsögn Pöhls hefur legið í
loftinu undanfama daga, en
hann hefur mjög gagnrýnt
hvemig staðið var að samein-
ingu Þýskalands. Waigel og
Pöhl lögðu báðir áherslu á að
engin breyting yrði á peninga-
stefnu stjómvalda í kjölfar af-
sagnar bankastjórans og Pöhl
sagði ástæður uppsagnarinnar
væm eingöngu persónulegar.
Það vakti dálitla undrun að Waigel
tilkynnti afsögn Pöhls nokkrum
klukkustundum á undan Pöhl og
stjórnmálaskýrendur töldu það bera
vitni um óánægju stjórnvalda meö
bankastjórann. Til talsverðra
árekstra hefur komið á milli Pöhls
og stjórnvalda og hefur bankastjór-
inn gagnrýnt hvernig staðið var að
sameiningu þýsku ríkjanna. Hann
hefur sagt að sameining gjaldmiðl-
anna hafi verið stórslys. Hins vegar
lögðu bæði Waigel og Pöhl á það
áherslu að ágreiningurinn væri ekki
ástæðan fyrir uppsögninni. Waigel
sagði að hann hefði átt góð sam-
skipti við Pöhl og saknaði hans.
Pöhl, sem er sósíaldemókrati
(SPD), varð seðlabankastjóri árið
1980 og hélt stöðu sinni þegar
Helmut Kohl kanslari myndaði
miðju- og hægristjórn árið 1982.
Seðlabankastjóri Þýskalands er
skipaður til átta ára og eru nú um
fjögur ár eftir af seinna kjörtímabili
Pöhls. Waigel sagði að eftirmaður
Pöhls yröi valinn innan tveggja
vikna. Talið er aö Hans Tietmeyer,
sem á sæti í stjórnarnefnd seðla-
bankans og er mikill trúnaðarvinur
Kohls kanslara, eða Helmut Schles-
inger varaseðlabankastjóri veröi
fyrir valinu.
Reuter-SÞJ
Fréttayfirlit
BAGDAD • írösk yflrvöld neit-
uðu ásökunum bandarískra yfír-
valda um að þrír írakar heföu skot-
ió á bandaríska þyriu á vemdar-
svæðunum í gær.
AHMADI - Vel hefur gengiö að
siökkva eldana f ohulindum Kú-
væta. Tekist hefur að slökkva elda í
um 100 lindum á sextíu dögum.
Eldur logar enn í um 400 olíulind-
um.
SAN FRANCISCO - Fyrrver-
andl utanríkisráðherra Sovétríkj-
anna, Eduard Shevardnadze, sagði
í gær að sér fyndist að Sameinuðu
þjóðimar ættu að beita sér fyrir þvf
að stríð brjótist ekki út milli ein-
stakra lýðvelda Sovétríkjanna og
stjómarinnar í Kremf.
SEOUL - Roh Tae-woo, forseti
Suður- Kóreu, sagði í gær að for-
sætisráðherra iandsins yrði ekki
iátinn taka pokann sinn, en það
hefur verið ein af meginkröfum
andófsmanna og stjómarandstöð-
unnar. Forsetinn sagði að ríkis-
stjómin þyrfti ekkert að breytast
vegna mótmælanna og skipaði ráð-
herrum stjómarinnar að beita sér
af hörku til aö bæla niður mótmæl-
ín. Til harðra átaka kom í gær f
borginni Kwangju þegar andófs-
maður, sem fraradi sjálfsmorð til
að mótmæla stjóm lanðsins, var
borinn til grafar.
PARÍS - Hinn nýi forsætisráð-
herra Frakka, Edith Cresson, réðst
harkalega á óbeinar innflutnings-
hömiur Japana og þann ójöfnuð
sem ríkti f viöskiptum Japana og
Evrópubúa. Hún er þymir í augum
japanskra kaupsýslu- og stjóm-
málamanna, en þegar hún var ut-
anríkisviðskiptaráðherra Frakk-
iands bcitti hún sér af alefli gegn
japönskom fjárfestingum og inn-
flutningi í Frakklandi og Evrópu.
PHNOM PENH - Rfkisstjóm
Kambódfu varaði f gær Sameinuðu
þjóðimar við því að hún gæti þurft
að iáta til skarar skríða gegn
skæruiiðum Rauðra Khmera, þar
sem þeir heföu æ ofan í æ brotið í
bága við vopnahlésskilmálana.
Vopnahlé rfkir milli skæmiiða og
stjómarinnar og hafa Sameinuðu
þjóðimar haft eftirlit með að það
sé haldið.
LOS ANGELES - Bandarisk
kona myrti þýskumælandi ferða-
mann í strætisvagni í Beverly Hills
hverfinu í Bandaríkjunum í gær og
hélt tíu öðrum í gísUngu. Sérsveit-
ir lögreglunnar yfirbuguóu konuna
með þvf að skjóta hana til bana. Að
sögn eins farþegans bölsótaðist
konan eitthvað út í blökkumenn og
nasista.
LUANDA - Yfirmenn stjóraar-
hersins í Angóla sögðu að skæro-
liðar UNITA heföu brotið vopna-
hlésskilmálana aöeins nokkmm
klukkustundum eftir að formlegt
vopnahlé tók gildi, en það var f gær.
VÍN - Óháð verkafyðssamtök í Al-
baníu, sem krefjast 50-100%
launahækkana og rannsóknar á
dauða fjögurra manna sem voru að
mótmæla kommúnistum þann 2.
apríl síðastliðinn, efndu til verk-
falia í gær til að leggja áherslu á
kröfur sfnar. Talið er að 90% iðn-
aðarins sé lamaður vegna verk-
fallsins.
JÓHANNESARBORG • Mikfli
húsnæðisskortur er nú í Suður-
Afríku. í gær sagði F.W. de Klerk,
forseti landsins, að byggja þyrfti
hús á næstu 20 árum en byggð
heföu verið þegar evrópskir land-
nemar komu til landsins áríð
1652.
RÓM - Týrkinn Mehmet Ali Agca,
sem reyndi að myrða Jóhannes Pái
páfa fyrir 10 ámm, sagði í blaða-
viðtali sem birtist í gær aö sovéska
leyniþjónustan KGB og búlgarska
ríkisstjómin hefðu staðið á bak við
morötilræðið.
Reuter-SÞJ