Tíminn - 17.05.1991, Qupperneq 13
Föstudagur 17. maí 1991
Tíminn 13
BILALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLTÍ KRINGUM
LANDIÐ.
MUNID ÓDÝRU
HELGARPAKKANA OKKAR
REYKJAVÍK
91-686915
AKUREYRl
96-21715
PÖNTUM BÍLA ERLENDIS
interRent
Europcar
Sumar-
hjólbarðar
Hágæða hjólbarðar
HANKOOK frá KÓREU
Á lágu verði.
Mjög mjúkir
og sterkir.
Hraðar
hjólbarða-
skiptingar.
BARÐINN hf.
Skútuvogi 2, Reykjavík
Símar: 91-30501 og 84844
Rafstöðvar
OG
dælur
FRÁ
SUBARU
BENSÍN EÐA DIESEL
Mjög gott verð
Rafst.: 600-5000 w
Dælur: 130-1800 l/mín
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöfða 2
Sími 91-674000
Ókeypis auglýsingar
fyrir einstaklinga
SIMI
91-62-54-44
FRAMSÓKNARMENN
REYKJAVÍK OG
NÁGRENNI
Hvítasurmukaffi SUF verður haldið að Hafnarstræti 20, 3. hæð,
Reykjavik, mánudaginn 20. mai, kl. 15 (annan í hvitasunnu).
Ávarp um áherslur í fiokksstarfi á næstu misserum fiytur
Steingrimur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins.
Einnig mun Siv Friðleifsdóttir, formaður SUF, flytja ávarp um
áherslur í starfi SUF f sumar og haust
Gestgjafar verða meðlimirdeildar 13 i SUF, sérfræðingar í vöfflu-
bakstri.
Mikilvægt er að sem flestir jákvæðir og viðsýnir, ungir sem
aldnirframsóknarmenn mæti til að koma hugmyndum sinum
á framfæri.
Spömrn okkur hvitasunnubaksturinn og mætum öll.
Framkvæmdastjóm SUF
Almennurfundur
í Framsóknarhúsinu í Keflavík miðvikudaginn
22. maí, kl. 20.30.
Fundarefni: Stjórnmálaviðhorfið.
Frummælandi: Steingrímur Hermannsson.
Stjóm Fulltrúaráðsins
Steingrimur
SUMARTÍMI SKRIFSTOFU
FRAMSÓKNARFLOKKSINS
Frá 15. maí verður skrifstofa okkar í Hafnarstræti 20, III hæð, opin frá kl. 8:00-16:00
mánudaga-föstudaga.
Verið velkomin. Framsóknarflokkurinn
Suðurland
Skrifstofa Kjördæmissambands framsóknarfélaganna á Suðurlandi, Eyrarvegi 15,
Selfossi, verður opin á þriöjudögum og fimmtudögum frá kl. 15-17. Simi 98-22547.
Félagar hvattir til að líta inn.
KSFS
SPEGILL
Sonardóttir Elizabeth
Taylor er fegurðardís
sem býr við fátækt
Naomi Wilding á ekki langt að
sækja fegurðina. Amma hennar
er hin goðsagnakennda Eliza-
beth Taylor og tvisvar á ári
heimsækir Naomi hina frægu
ömmu sína til Hollywood. Ann-
ars býr hún hjá mömmu sinni í
Wales og þarf að velta hverjum
eyri fyrir sér. Hún er ekki nema
16 ára.
Naomi segist alltaf hlakka til að
heimsækja ömmu sína, enda fær
hún þar mat sem Elizabeth eld-
ar sjálf. Og þó að ótrúlegt megi
virðast þrífur hún líka húsið sitt
sjálf, engin vinnukona þar!
En þó að Naomi finnist gaman
að kynnast glæsilegum lífsstíl
ömmu sinnar, viðurkennir hún
að það geti haft sína galla að
eiga svo fræga ömmu, aðallega
þegar fólk kemst að raun um að
hún sjálf lifir allt öðru vísi en
kvikmyndastjörnur í Hollywood.
Hins vegar segir Naomi ömmu
sína mikla fjölskyldumann-
eskju. Hún er reyndar ekki
venjuleg amma eins og við eig-
um að venjast. T.d. hefur Naomi
ekki vogað sér enn að tala um
kærastamál við þessa lífsreyndu,
sjö sinnum giftu konu. En Na-
omi hefur lært af lífsferli ömmu
sinnar að varast áfengi og lyf,
sem hafa reynst Elizabeth þung
í skauti. Sömuleiðis segist hún
ákveðin í því að giftast ekki
nema einu sinni og búa lengi í
því hjónabandi.
Elizabeth Taylor á átta barna-
börn og mörg þeirra hafa lent í
vandræðum, þ.á m. hálfsystir
Naomi sem lenti á síðum blað-
anna í fyrra þegar upp komst að
hún bjó með kærastanum í skut-
bílnum hans í Idaho eftir að
þeim tókst ekki að standa í skil-
um með 235 dollara húsaleigu.
En Naomi segist dást að ömmu
sinni vegna þess að hún hafi
aldrei glatað gildismati sínu eins
og margar aðrar kvikmynda-
stjörnur. „Hún lítur ekki út fyrir
að vera deginum eldri en fertug
og er ungleg í anda. Ég lít á hana
eins og hverja aðra venjulega
manneskju. Ég.hef aldrei hugsað
um hana eins og stórstjörnu í
Hollywood. Hún er og verður
amma mín,“ segir Naomi.
Naomi Wilding þykir líkjast ömmu sinni í út-
liti, en hana langar ekkert til að verða fræg
kvikmyndastjarna.
Elizabeth Taylor á sama aldri og Naomi er nú.
Naomi segir ömmu sína hafa lagt ríka áherslu
á það við sig aö hún ánetjist ekki áfengi eða
lyfjum og hún ætlar ekki að giftast nema einu
sinni!
SÁPUDROTTNINGAR í
PERSÓNULEGUM ERJUM
Samkeppninni er ekki lokið
milli tæfanna tveggja í Dynasty-
þáttunum, Joan Collins og
Stephanie Beacham, þó að sjón-
varpsþættirnir hafi runnið sitt
skeið. Nú er komið upp nýtt rifr-
ildismál milli þeirra og veldur
taugatitringi í leikhúsheimin-
um, bæði á austur- og vestur-
strönd Bandaríkjanna.
Að undanförnu hefur Stephanie
leikið í leikriti eftir Noel Coward
í Los Angeles, en nú hefur Joan
Collins einsett sér að fá hlut-
verkið þegar leikritið verður sett
upp á Broadway síðar á þessu ári.
Hún hefur gert framleiðendun-
um það Ijóst að hún er reiðubú-
in, fús og fær um að taka að sér
hlutverkið á Broadway, hún hef-
ur séð sýninguna í Los Angeles
a.m.k. þrisvar og lært hlutverk-
ið. Að vonum er Stephanie ekki
mjög ánægð með þetta framtak
keppinautarins.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
þessar tvær leikkonur hafa ást
við á bak við tjöldin. Það er vitað
að Joan brást hin versta við þeg-
ar Stephanie var fengin til að
taka þátt í Dynasty-þáttunum.
Þá bar hún því við að þær væru
of líkar, báðar konurnar væru
andstyggilegar, breskar, verald-
arvanar og auðugar. Og nú bíða
menn spenntir eftir framhald-
inu.
Keppinautarnir í Dynasty-þáttunum, Stephanie Beacham og
Joan Collins, hafa tekið upp þráðinn frá sápuóperunni og
berjast nú grimmt um hlutverk á Broadway.