Tíminn - 17.05.1991, Qupperneq 15
Föstudagur 17 maí 1991
Tíminn 15
Austurríki
Heimsmeistaramótið"
fslenska landsliöið skipaö leik-
mönnum 18 ára og yngri vann
góðan sigur á austurríska Íands-
liði sama aldursflofcks í Austur-
ríki í íyrrakvöld.
íslenska Höiö skoraöi eina mark
lciksins og voru það heimaraenn
sjálfir sem gerðu þetta eina marfc.
Bestu menn ísienska liðsins voru
þeir Friðrifc Þorsteinsson raark-
vörður, vamarmennimir Ósfcar
Þórðarson og Auöunn Helgason,
sem léfcu mjög vel. Þá var Hákon
Sverrisson frískur á fcantinum.
Annars var liðið jafnt og léfc vel í
leiknum.
Þetta er í annað skiptið í röö
sem fslensfca liðið vinnur Austur-
ríki, á Hvolsvelli 3-0 og nú úti 1-
0. Frábær árangur.
Liðið hélt í gær til Téfcfcóslóvak-
íu þar sem hann tekur þátt í
sterku alþjóðiegu móti, þar sem
þeir mæta Íiðum Þýsfcalands,
Sovétríkjanna, Rúraenfu og Sióv-
akfu.
Knattspyrna:
Jón Meiriháttar
hrósar Man. Utd.
Jón Meiriháttar, eða John Major
eins og hann heitir á frummálinu,
forsætisráðherra Bretlands, hrós-
aði Manchester United og aðdáend-
um liðsins í breska þinginu í gær.
Liðinu fyrir að vinna Evrópukeppni
bikarhafa og aðdáendum liðsins
fyrir prúðmannlega framkomu á
meðan leikur stóð yflr og eftir
hann, en eins og flestir vita sigraði
Manchesterliðið Barcelona, 2-1.
John Major, sem er annálaður
stuðningsmaður Chelsealiðsins frá
Lundúnum, sagði í þinginu í gær að
framkoma aðdáenda enska liðsins
eftir leikinn hefði verið til fyrir-
myndar.
Þá óskaði hann Man. Utd. til ham-
ingju með sigurinn og sagðist von-
ast til þess að sjá mörg ensk lið í
framtíðinni hefja á loft fleiri slíka
bikara, eins og gerðist í fyrrakvöld.
Ensk lið voru árið 1985 útilokuð
frá keppni í Evrópukeppninni í
knattspyrnu, eftir hinn hörmulega
atburð sem átti sér stað á Heysel-
leikvanginum í Brussel.
Þessu banni var aflétt nú í vetur.
Reuter/-PS
Knattspyma:
Bordeaux dæmt
í aðra deild
Franska knattspymuliðið Bordea-
ux, sem Amór Guðjohnsen leikur
með, Ieikur í 2. deild næsta keppn-
istfmabil. Félagið stendur mjög illa
fjárhagslega og var til skiptameð-
ferðar nýlega.
Félagið var þá dæmt í 2. deild, en
dómnum þá áfrýjað. Sá dómur hefur
nú verið staðfestur. Líklegt er að fé-
lagið missi nokkra leikmenn í sum-
ar og er Arnór einn þeirra. Hann á
enn eftir þrjú ár af samningi sínum
við félagið, en líklega er hann laus
allra mála strax, fyrst félagið fellur í
aðra deild. Vitað er að nokkur félög
bæði í Frakklandi og í Belgíu hafa
áhuga á kappanum.
-PS
Knattspyma:
HOFUM RETT VIÐ!
KSÍ og Visa munu í sumar standa fyrir
átató þar sem fcnattspymuáhugamenn á öll-
um aídri, jafnt utan vallar sem innan, eru
hvattir til að sýna prúðmannlega framfcomu
og drengilegan leik undir kjörorðínu: Fair
Play — Höfura rétt við.
Það er flárstuðningur Vlsa, sem nemur
um einni og hálfri milljón króna fyrír þetta
fceppnistfmabil, sem gerir KSÍ fcleíft að
hefja hcrferð þessa nú. Styrfcur þessi fer
eingöngu til að standa straum af fcostnaði
við kynningu og gerð auglýsinga og áróð-
ursefnis.
Undanfarin þijú ár hefur Alþjóða knattspymusam-
bandið staðið fyrir Fair Piay-átató um allan heim, en
hingað til lands hefur það efctó náð fyrr. Markmíölð
með átatónu er aö fá fram jákvæða viðhorfs- og hugar-
farsbreytingu hjá knattspyrauáhugafólfci.
Merki átaksins
Herferðinni verður þannig háttað, að KSÍ
dreifir veggspjöldum, með merki átaksins tfl
íþróttafélaga og einnig veröur spjaldið sent í
öll íþróttamannvirid á landinu. Þá verður
límmiðum dreift til ungu kynslóðarinnar. í
samvinnu við Ijölmiöla verður mánaðariega
valinn prúðasti leikmaðurinn, þjálfarinn og
prúðasta liðið. Þessir aðilar munu fá viður-
kenningu frá Visa og KSÍ. Þetta mun ciga
við um 1. deild karia og kvcnna. Einnig
munu framkvæmdaaðilar áskilja sér rétt tfl
að velja prúðasta áhorfandann. Þá munu
prúðustu leikmenn í öðrutn deildum og
yngri flokkum veröa verðlaunaðir og einnig ielkmenn,
þjálfarar og Uð í úrslitakeppnum yngri flokka.
Mertó átaksins hefur verið hannað og var það Sam-
einaða auglýsingastofan sem það gerði.
-PS
Hinn nýbakaði Evrópumeistari í kraftlyftingum, Magnús Ver Magn-
ússon, kom til landsins í fyrrinótt. Magnús er reyndar tvöfaldur
meistari, þar sem hann sigraði í nokkurskonar opnum flokki, sem
var stigakeppni. En hann lætur ekki þar við sitja. Á þriðjudag heid-
ur hann til Skotlands þar sem hann tekur þátt í Hálandaieikunum.
Magnús sigraði í -125 kg flokki og
lyfti 962.5 kg samanlagt, en sá er
lenti í öðru sæti lyfti 915 kg, en það
var Hollendingur sem varð í 3. sæti
á síðasta Heimsmeistaramóti. Úr-
slitin réðust að sögn Magnúsar í
fyrstu greininni, hnébeygju, og eftir
það náði Hollendingurinn ekki að
vinna upp þann mun. En Magnús
vann ekki aðeins -125 kg flokkinn,
heldur sigraði einnig í opna flokkn-
um, ef svo má kalla, en reiknuð eru
út stig keppenda og er þá tekið tillit
til þyngdar keppanda og þeirrj
þyngd er hann lyftir í keppninni. í
þessum flokki sigraði Magnús og
fékk 503 stig, en sá er kom næstur
fékk 499 stig og keppti hann í 60 kg
flokki. Það má því segja að Magnús
Ver sé tvöfaldur Evrópumeistari.
„Þetta var mjög góð tilfinning að
standa á verðlaunapalli. Þetta er
reyndar í annað skipti á þremur ár-
um sem ég verð Evrópumeistari, en
í Finnlandi fyrir tveimur árum lenti
ég í öðru sæti í keppninni, en sá sem
lenti í fyrsta sæti féll á lyfjaprófi. Ég
fór í lyfjapróf eftir mótið og niður-
staðan úr því kemur nú eftir nokkra
daga,“ sagði Magnús Ver Magnússon
við heimkomuna.
En er toppnum náð hjá Magnúsi
sem kraftlyftingarmanni? „Nei,
toppnum er ekki náð. Heimsmeist-
aratitill er eftir. Ég hef ekki farið á
heimsmeistaramótið áður; hef viljað
prófa mig áfram á þessum Evrópu-
mótum og venjast því að keppa á
þeim. Ég hef viíjað vera tilbúinn til
þess og nú held ég að ég sé tilbúinn,
en þetta er spurning um fjármagn.
Maður fer í það núna að borga kred-
itkortareikninginn fyrir Frakklands-
ferðina. Næsta Heimsmeistaramót
er í nóvember næstkomandi og fer
það fram í Svíþjóð. Verkefnið er
heillandi, en þetta ræðst allt af því
hvort maður getur æft vel undir
mótið og fengið einhvern til að
styðja við bakið á sér fjárhagslega.
Þessi árangur minn ýtir kannski við
einhverjum aðilum."
En hvernig fer það saman að taka
þátt í kraftlyftingamóti í Frakklandi
og fara síðan viku seinna til Skot-
lands og taka þar þátt í alhliða afl-
raunakeppni? „Það er mjög erfitt að
vera að gera hvort tveggja. Núna til
dæmis hef ég ekkert hlaupið í þrjá
mánuði, en eins og allir vita er mik-
ið hlaupið í aflraunakeppnum,
þannig að menn sjá að það getur
verið erfitt að samræma og getur
komið niður á árangri í báðum
greinum," sagði Magnús Ver Magn-
ússon að lokum.
Tíminn notar tækifærið og óskar
Magnúsi til hamingju með árangur-
inn.
-PS
Magnús Ver Magnússon, tvöfaldur
Evrópumeistari í krafttyftingum, fær
hér heldur betur hlýjar móttökur hjá
Maríönnu dóttur sinni, en eins og
sjá má er Magnús hlaöinn verö-
launagripum. TímamyndAmi Bjama
Knattspyrna:
Þeir leika
í Albaníu
Bo Johansson hefur valið 16 leik-
menn til að leika gegn Albaníu 26.
maí í Evrópukeppni landsliða í Tir-
ana. Liðið er stópað eftirtöldum
leikmönnum:
Markverðir
Bjarni Sigurðsson Val
Ólafur Gottskálksson KR
Aðrir leikmenn:
Guðni Bergsson Tottenham
Sævar Jónsson Val
Gunnar Gíslason Hacken
Ólafur Kristjánsson FH
Einar Páll Tómasson Val
Þorvaldur Örlygsson Notth.Forrest
Rúnar Kristinsson KR
Ólafur Þórðarson Lyn
Sigurður Grétarsson Grasshoppers
Hlynur Stefánsson ÍBV
Arnór Guðjohnsen Bordeaux
Eyjólfur Sverrisson Stuttgart
Anthony Karl Gregory Val
Ragnar Margeirsson KR
Sjö breytingar eru á liðinu frá því í
leiknum gegn Spánverjum. Nýir
leikmenn eru þeir Hlynur Stefáns-
son, Ólafur Gottskálksson, Gunnar
Gíslason, Einar Páll Tómasson, Eyj-
ólfur Sverrisson, Ólafur Kristjáns-
son og Þorvaldur Örlygsson. Þessir
leikmenn koma í stað þeirra Birkis
Kristinssonar, Péturs Ormslev, Pét-
urs Péturssonar, sem er meiddur,
Þorgríms Þráinsson; sem lék sinn
síðasta landsleik á I ni, Kristjáns
Jónssonar og þeirr ftla Eðvalds-
sonar og Sigurðar íssonar sem
eru í banni.
-PS