Tíminn - 17.05.1991, Page 16
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300
RÍKISSKIP
NÚTIMA FLUTNINGAR
Holnarhusinu v Tryggvagolu.
S 28822
Ókeypis auglýsingar
fyrir einstaklinga
POSTFAX
91-68-76-91
iel
HÖGG-
DEYFAR
Versltó hiá faemönnum
varahluti
Hamarsböfóa I - s. 67-67-44
TVÖFALDURI.vinningur |
T
Iímimi
FÖSTUDAGUR 17. MAÍ1991
Rætt um vexti og þjóöarsátt á Alþingi:
Vaxtahækkanir eða tak-
mörkuð útgáfa húsbréfa
Ríkisstjórnin var spurö að því á Alþingi í gær hvort hún væri
ákveðin í því að hækka vexti á spariskírteinum og hvaða ákvörð-
un yrði tekin í launanefnd ríkisins og BSRB. Ráðherrar svöruðu
því til að ákvörðun yrði tekin eftir helgi. Halldór Ásgrímsson og
Steingrímur Hermannsson sögðu við umræðuna að það værí
fyrst og fremst óhófleg útgáfa á húsbréfum sem þrýstu vöxtum
upp og skoruðu á ríkisstjómina að takmarka útgáfu þeirra.
Svavar Gestsson hóf umræðuna
og sagði að fullyrðingar forsætis-
ráðherra og fjármálaráðherra
hefðu ýtt undir væntingar manna
um almennar vaxtahækkanir.
Hann minnti á samþykkt VMSÍ og
varaði við afleiðingum vaxtahækk-
ana. Hann sagði að þjóðarsáttin
byggðist á þrennu: launum, verð-
lagi og vöxtum, og hann sagðist
líta svo á að með því að hækka
vexti væri ríkisstjórnin að segja
þjóðarsáttinni upp.
Svavar spurði fjármálaráðherra
hvort búið væri að taka ákvörðun
um hækkun vaxta á spariskírtein-
um og ef ekki, hvenær sú ákvörð-
un yrði tekin. Hann spurði ráð-
herrann einnig hvort að hann
legði til við fulltrúa ríkisins^ í
launanefnd ríkis og BSRB að við-
skiptakjarabatanum yrði skilað til
launþega. Svavar spurði forsætis-
ráðherra um afstöðu hans til sam-
þykktar VMSÍ og til fyrirhugaðra
vaxtahækkana.
Forsætisráðherra sagðist skilja
áhyggjur forystumanna VMSÍ og
sagði að háir vextir væru óæskileg-
ir. Hann sagði hins vegar óhjá-
kvæmilegt að hækka vexti til sam-
ræmis við það sem gerðist á mark-
aðinum. Vaxtahækkunin væri af-
leiðing mikils halla á ríkissjóði.
Þann halla hefði fyrri ríkisstjórn
búið til og núverandi ríkisstjórn
yrði að takast á við hann.
Fjármálaráðherra sagði að launa-
nefndirnar væru að störfum og
niðurstaða myndi liggja fyrir um
næstu helgi. Hann sagði að
ákvörðun um vexti á spariskírtein-
um yrði lekin í næstu viku. Hann
sagði óhjákvæmilegt að hækka
vexti á spariskírteinum. Ástæðan
væri hallinn á ríkissjóði, sem væri
vandamál fyrri ríkisstjórnar. Það
vandamál hefði sú stjórn búið til
með því að reka ríkissjóð með
halla og með því að taka ákvarðan-
ir á síðustu starfsvikum sínum
sem krefðust aukins lánsfjár.
Steingrímur Hermannsson sagði
að fyrri ríkisstjórn hefði knúið nið-
ur vexti, en lægri vextir hefðu leg-
ið til grundvallar þegar þjóðarsátt
var gerð. Raunvextir voru lækkað-
ir úr 9,5% í 8%. Steingrímur vitn-
aði í skýrslu Seðlabanka um vexti,
en þar segir að ein meginástæðan
fyrir háum vöxtum hér á landi sé
að vextir á ríkisskuldabréfum séu
talsvert hærri hér en í öðrum
löndum. „Því þykir mér það ein-
kennilegt ef það er nú ráðið til að
halda niðri vöxtum að byrja á því
að hækka vexti á ríkisskuldabréf-
um. Ég leyfi mér að fullyrða að ef
menn gera það mun ekkert annað
gerast en það sem gerðist á árinu
1988, þegar vextir á ríkisskulda-
bréfum voru hækkaðir og á eftir
fylgdu almennir raunvextir í land-
inu,“ sagði Steingrímur.
Halldór Ásgrímsson sagði að það
væri skaðlegt að hækka vexti nú og
hann sagðist efast um að það
markmið sem liggur að baki vaxta-
hækkun næðist. Hann sagði að
vandinn fælist fyrst og fremst í
mikilli útgáfu húsbréfa, þau þrýstu
upp vöxtunum. Hann skoraði á
ríkisstjórnina að fara frekar þá leið
að takmarka útgáfu húsbréfa. Hall-
dór spurði forsætisráðherra hvort
stjórnin hefði ekki íhugað að fara
þá leið. Forsætisráðherra svaraði
því til að til athugunar væri að
hætta við að hækka lánshlutfallið,
en að engin ákvörðun hefði verið
tekin um að takmarka útgáfu hús-
bréfa. -EÓ
Nýr þingmaður boðinn velkominn
Landssamband framsóknarkvenna
hélt nýlega vorfagnað sinn í Reykja-
vík. Þar var nýr alþingismaður
Framsóknarflokksins, Ingibjörg
Pálmadóttir, boðin velkomin til
starfa. Á myndinni er Unnur Stef-
ánsdóttir, formaður Landssambands
framsóknarkvenna, og Ingibjörg
Pálmadóttir alþingismaður.
Mynd: S. Finnbogad.
ELDUR kom upp i sanddæluskipi í Reykjavíkurhöfn um hádegisbilið í gær. Járnsmiðir voru að
vinna með logsuðutæki um borð og neisti fór f olíu (vélarrúmi með þeim afleiöingum að allmik-
ill eldur kviknaði. Tókst járnsmiðunum að ráða niöurlögum eldsins áður en slökkviliöið kom á
staðínn. Skemmdir urðu litlar. Tímamynd Pjetur/GS.
Ríkið býðst til að kaupa fullvirðisrétt af sauðfjárframleiðendum allt að 3.700 tonnum:
Framleiðsla í samræmi við þarfir
Landbúnaðarráðuneytið hefur að
undanfömu unnið að framkvæmd á
viðauka I með búvörusamningi,
sem undirrítaður var þann 11.
mars 1991. Samkvæmt samningn-
um býðst ríkissjóður, fram til 31.
ágúst nk., til að kaupa af sauðfjár-
framleiðendum fullvirðisrétt allt að
3.700 tonnum og 55.000 ám, allt
eftir því sem framleiðendur óska.
Markmiðið er að framleiðsla
haustsins 1992 verði í samræmi
við þaríir innanlandsmarkaðar. Ef á
vantar að markmiðið náist fyrir 1.
sept. nk. verður fulivirðisréttur
færður niður í samræmi við 2. tl. í
viðauka I með samningnum.
Samningurinn er í fjórum hlutum,
þ.e. samningur um stjórn mjólkur-
og sauðfjárframleiðslunnar á tíma-
bilinu frá 1. sept. 1992 til 31. ágúst
1998, viðauki I um aðlögun fullvirð-
isréttar í sauðfjárframieiðslu að inn-
anlandsmarkaði sem framkvæmd
verður á tímabilinu frá 1. maí 1991
til 31. ágúst 1992, viðauki II sem
fjallar um stuðningsaðgerðir ríkis-
valdsins í tengslum við samninginn
og loks 12 bókanir sem snerta ýmis
atriði.
Framkvæmd þessa hluta samn-
ingsins er gerð með heimiid í 38.
grein lánsfjárlaga fyrir árið 1991,
sem voru samþykkt undir lok síð-
asta þings. Þar er ríkissjóði veitt
heimild til að stofna til skuldbind-
inga vegna viðauka I um áður-
greinda aðlögun og gildir heimildin
þar. til gerðar hafa verið nauðsynleg-
ar lagabreytingar vegna fram-
kvæmdar samningsins að öðru leyti.
Með hliðsjón af ákvæðum viðauka I
með samningnum og lánsfjárlaga
fyrir árið 1991 hefur verið ákveðið
að viðauki I komi óbreyttur til fram-
kvæmda og hefur landbúnaðarráð-
herra staðfest tillögur Fram-
kvæmdanefndar búvörusamnings
um starfsreglur um kaup ríkissjóðs
á fullvirðisrétti í sauðfjárfram-
leiðslu. I reglum þessum er gert ráð
fyrir því að bændur sem hug hafa á
að selja ríkissjóði fullvirðisrétt og
bústofn snúi sér til viðkomandi bún-
aðarsambands og fái þar sérstakt
umsóknareyðublað til útfyllingar.
Síðan mun landbúnaðarráðuneytið
annast frágang kaupsamninga og
skuldabréfa í samráði við fjármála-
ráðuneytið. Á næstu dögum verða
send út gögn til búnaðarsambanda
og geta bændur snúið sér til skrif-
stofu þeirra og fengið allar upplýs-
ingar og leiðbeiningar sem þeir
óska. —SE