Tíminn - 12.10.1991, Qupperneq 6
14
HELGIN
Laugardagur 12. október 1991
SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL
Þegar Rebecca Claypool, sem komin var þrjá mánuði á leið, var myrt
á óhugnanlegan hátt og henni nauðgað, var lögregian fljót að sjá
samhengið milli morðsins og nauðgunar sem framin hafði verið
rúmum mánuði áður. En það átti eftir að reynast snúið og erfitt að
koma hinum seka fyrir rétt og láta hann svara til saka.
Það var að kvöldi þess 18. júlí 1985
sem lík Rebeccu Elaine Claypool
fannst, klætt skyrtu einni fata. Líkið
fannst rétt við skógarstíg, ekki langt
frá heimili hennar.
Eiginmaður Rebeccu hafði sagt
henni að koma við hjá ættingja sín-
um á leiðinni heim úr vinnuni, en
hún vann við afgreiðslu á snyrti-
stofu, því hún ætti þar síðbúna af-
mælisgjöf.
Maður hennar og vinur hans höfðu
brugðið sér í stórmarkað í nágrenn-
inu og voru á leiðinni til baka, þegar
þeir fundu skó í rjóðri í skóginum
fyrir aftan blokkina sem þau hjónin
bjuggu í. Skórinn var alveg eins og
þeir sem Rebecca átti, og vöknuðu
því þegar með þeim grunsemdir.
Eiginmaðurínn finnur
konu sína
Þeir fóru og athuguðu hvort Re-
becca væri komin heim og spurðust
einnig fyrir hjá ættingjanum sem
hún ætlaði að sækja afmælisgjöfina
til. Hún var á hvorugum staðnum.
Nú var orðið dimmt, svo eiginmað-
ur Rebeccu og vinur hans náðu sér í
vasaljós og leituðu í skóginum.
Fundu þeir lík hennar rétt við skóg-
arstíginn sem þeir höfðu gengið eft-
ir skömmu áður. Þeir höfðu sam-
stundis samband við lögreglu og
morðrannsókn hófst innan skamms.
Við leit í næsta nágrenni fannst
taska Rebeccu og bifreið hennar
fannst þar sem henni hafði verið
lagt rétt við blokkina sem hún bjó í.
Gleraugun hennar fundust rétt hjá
bflnum.
Hafði hún kannski hitt morðingja
sinn þar sem gleraugun fundust?
Leitað var nú upplýsinga hjá ná-
grönnum, en enginn hafði orðið var
við neitt óvenjulegt. Morðinginn
hafði verið heppinn að enginn hafði
veitt honum athygli, en Rebecca að
sama skapi óheppin að enginn skyldi
hafa svarað neyðarópum hennar.
Við krufninguna komu nokkur
óhugnanleg atriði í ljós. Rebecca
Claypool var barnshafandi, komin
þrjá mánuði á leið. Ófætt barn
hennar hafði einnig orðið fórnar-
John Easterwood er dæmdur
til að afplána hvern
fangelsisdóminn eftir annan,
áður en hægt verður
að láta hann koma fyrir rétt
vegna morðsins
á Rebeccu Claypool.
lamb morðingjans. Henni hafði ver-
ið nauðgað.
Skóför, líklega eftir tennisskó,
fundust á höfði hennar, hálsi og
bringu. Það gaf til kynna að sparkað
hefði verið í hana þar til hún dó.
Skammt frá líkinu fannst dagblað
með blóðugum skóförum sem svip-
aði til þeirra sem fundust á líkama
Rebeccu.
Lögreglan gerði ráð fyrir að Re-
becca hefði orðið á vegi morðingj-
;vX;
'Sx/.'sX-
% *
;*.v.v *