Tíminn - 11.01.1992, Page 9

Tíminn - 11.01.1992, Page 9
Laugardagur 11. janúar 1992 Tíminn 9 Rúgbrauð og maltbrauð skera sig úr með langhæst hlutfall trefjaefna, mest kolvetni og minnsta fitu: Gamli „þrumarinn“ er trefjaríkastur Víðtæk rannsókn á næringargildi íslenskra brauða hefur leitt í ljós að gömlu, góðu rúgbrauðin og maltbrauðin innihalda frá helmingi til tvöfalt meira af trefjaefnum heldur en nokkurt af brauðunum með nýju nöfnin eins og múslíbrauð, kornbrauð, trefjabrauð og hafrabrauð. Hæsta kolvetnahlutfallið er líka að fínna í rúgbrauði, maltbrauði og normalbrauði. Þessi sömu brauð hafa hins vegar minnst fítuinnihald. Engin brauð virðast því falla betur að þeim ráðleggingum sem Manneldisráð gefur fólki, að auka hlutdeild trefjaefna og kolvetna í fæðunni og minnka fituneyslu. „Óhætt er að staðhæfa að íslenskt brauð sé hollt, vegna þess að það er góður kolvetnagjafi og trefjaefna- gjafi," segir m.a. í grein í ritinu Heil- brigðismál. En þar skrifar Þyrí Valdi- marsdóttir matvælafræðingur um niðurstöður rannsóknar, sem gerð var við fæðudeild Rannsóknarstofn- unar landbúnaðarins á næringargildi brauðs samkvæmt 312 uppskriftum frá bakaríum víðs vegar að af landinu. Tegundamöfn á öllum þessum upp- skriftum voru þó aðeins 18 talsins. Rannsakað var magn kolvetna, trefja- efna, fitu, prótína og natríums (salts). Þar sem hlutföll þessara næringar- efna voru misjafnlega há í brauðum með sama nafni var meðaltalið lagt til grundvallar. „Kolvetni er mikilvægasta næring- arefni í brauði," segir höfúndur. Rúg- brauð, maltbrauð og normalbrauð reyndust kolvetnaríkust (51-55%). Skýringin er fyrst og fremst sú, að rúgmjöl inniheldur meiri kolvetni heldur en hveiti (sem hins vegar inni- heldur meira prótín). IVefiabrauð og sólkjamabrauð, sem bökuð em úr hveiti og fræjum, innihalda hins veg- ar minnst kolvetni (46%), vegna þess að fræ em fremur kolvetnasnauð. Það kemur líklega einhverjum á Trefjaefni Grömm (100 grömmum. Rúgbrauð 7,5 Maltbrauð 7,1 Heilsubrauð 5,3 Sólkjarnabrauð 5,3 Múslíbrauð 5,2 Þriggjakornabrauð 5,1 Kornbrauð 5,1 Heilhveifibrauð 5,1 Bóndabrauð 4,8 Pálmabrauð 4,8 Trefjabrauð 4,8 Skólabrauð 4,6 Normalbrauð 4,5 Sojabrauð 4,3 Hafrabrauð 3,6 Hamborgarabrauð 2,7 Pylsubrauð 2,6 Franskbrauð 2,5 óvart að rúgbrauðin skuli innihalda 50-60% meira af trefiaefnum heldur en trefiabrauð gera jafnaðarlega. Og kannski ekki síður að trefiabrauð skuli raunar innihalda aðeins sáralít- ið meira af trefium heldur en normal- brauð. Varðandi magn trefiaefna skera rúgbrauð og maltbrauð sig úr, með 7,1 til 7,5 grömm trefia í 100 gr af brauði. Engin önnur brauð fóm yf- ir 5,3 gr. Að ,franskbrauðum“ undan- skildum var trefiainnihald flestra hinna brauðanna á bilinu 5,3 niður í 4,3 gr í 100 grömmum af brauði. Greinarhöfúndur bendir á að heiti brauðtegunda segi stundum lítið um trefiaefni í þeim. Nokkuð sé hægt að styðjast við útlit brauðanna, þótt ekki segi það allt Þannig nægi nokkur kom í ljósu brauði ekki til að gera það trefiaríkt Dökkbrún brauð gefi líka fremur til kynna notkun litarefha heldur en trefiar. í mörgum brauð- tegundum sjáist hins vegar móta fyr- ir miklu af hýði komsins. Fita er lítil í komi. Fita í brauði kem- ur því að mestu úr smjörlíki. Fita er langminnst í rúg-, malt- og normal- brauðum, aðeins rúmlega 1%. Flest önnur brauð innihalda 2,5% til 4% af fitu. Sólkjamabrauð eru fituríkust (5,2%) ásamt pylsu- og hamborgara- brauðum. Prótín er aftur á móti minnst í marg- nefndum þrem „rúgbrauðum", enda prótín meira í hveiti heldur en rúg, sem fyrr er nefnt Prótín er á bilinu 5,8 til 7,5 gr í 100 gr (%). Þama tróna trefia-, soja-, sólkjama- og heilsu- brauð á toppnum með 10 til 10,4 gr af prótíni í 100 grömmum brauðs. Hlutfall salts reyndist minnst í pylsu- og hamborgarabrauðum, að- eins um 0,25 gr í 100 grömmum brauðs. Þar næst koma sojabrauð og franskbrauð. Mest salt er aftur a móti í trefia-, normal- og maltbrauðum, 0,57 til 0,60 gr í hverjum 100 grömm- umafbrauði. -HEI Norrænu leikskáldaverðlaunin veitt í Reykjavík: Hrafnhildur valin fulltrúi íslands Breytt áætlun í innanlandsflugi Vegna þjálfúnar flugmanna á nýju Fokker 50 flugvélarnar, sem Flugleið- ir hafa fest kaup á, raskast áætlun innanlandsflugsins til nokkurra áætl- unarstaða IMlega á túnabilinu 6. janúar til 5. apríl. Fyrsta Fokker 50 flugvélin verður af- hent félaginu 15. febrúar og sú fiórða og síðasta 9. maí. Þjálfa þarf mikinn fiölda starfsmanna sérstaklega vegna nýju vélanna, og er sú þjálfún þegar hafin. 43 flugmenn félagsins fá þjálfun á Fokker 50. Þjálfún hvers flugmanns tekur rúman mánuð, og fer að stórum hluta fram í Amsterdam og Maastricht í Hollandi. 78 starfsmenn á tæknisviði verða þjálfaðir vegna Fokker 50 vél- anna, þar af um 50 flugvirkjar. Tækni- þjálfunin fer fram bæði hér heima og erlendis. Þá fara 280 flugfreyjur á sér- stök námskeið hér heima, og einnig verða haldin stutt námskeið fyrir hlað- menn innanlandsflugsins og aðra, sem kunna þurfa skil á réttri um- gengni við vélamar og hleðslu þeirra. Hrafnhildur Hagalfn Guðmunds- dóttir leikritahöfundur hefur ver- ið valin fulltrúi íslands í norrænu leikskáldaverðlaunakeppnina, en verðlaunin verða veitt í fyrsta sinn í Reykjavík í sumar. Hrafnhildur er tilnefnd fyrir leik- ritið „Ég er meistarinn", sem Borgarleikhúsið frumsýndi í októ- ber árið 1990. Hrafnhildur er jafn- framt yngsta ieikskáldið í hópi þeirra höfunda, sem tilnefndir voru til verðlaunanna. Aðrir, sem tilnefndir voru, eru Jes Örnsbo frá Danmörku, Björg Vik frá Noregi, Barbro Smeds frá Svíþjóð og Juha Siltanen frá Finn- landi. Hrafnhildur Hagalín Guðmunds- dóttir er fædd árið 1965. Leikrit hennar, „Ég er meistarinn", er hennar fyrsta leikrit. Leikritinu var afar vel tekið, jafnt af leiklist- argagnrýnendum og áhorfendum, og var sýnt 82 sinnum á litla sviði Borgarleikhússins. „Eg er meistarinrí' fjallar um innbyrðisátök þriggja tónlistar- manna, sem allir eru gítarleikarar. Persónurnar þrjár, tveir karlmenn og ein kona, eru bundin sterkum tilfinningaböndum þar sem ástin, listin og framabrautin eigast við. Auk þess takast á listamenn af yngri og eldri kynslóð, meistarinn og lærlingurinn. I áliti dómnefndar segir: „Hér er leikforminu treyst til að lýsa innri baráttu andstæðra tilfinninga á mörkum tungumálsins og þagnar- innar. Hér er margvísandi efni meðhöndlað að íþrótt og ástríðu." Gallup kannar hug Sunnlendinga: Atvinnumálin hafi forgang Almenningur á Suðurlandi telur eflingu atvinnulífs í héraðinu vera brýnasta verkefnið í kjördæminu og að þau ættu jafnframt að vera forgangsmál þingmanna þess. Meira en helmingur fólks á atvinnu- aldri er á þessari skoðun. Þetta kemur fram í skoðanakönnun, sem Gallup á lslandi hefur gert og birtist fyrst í blaðinu Dagskrá. Annars vegar spurði Gallup Sunn- Iendinga hvað þeir teldu vera helstu vandamál sín og Suður- lands í heild. 26% nefndu of fá- breytt atvinnulíf, 24% of litla at- vinnu, 9% styrk höfuðborgar- svæðisins og 8% erfiðleika í land- búnaði. Önnur atriði voru einnig nefnd, svo sem fábreytt þjónusta, einangrun og lág laun. Hins vegar var leitað svara við þeirri spurningu hvaða verkefni almenningur vildi að þingmenn Suðurlandskjördæmis létu hafa forgang á þessu kjörtímabili. 43% nefndu atvinnumál á breiðum grundvelli, 16% samgöngumál og 15% kjaramál. Þá nefndu 6% efnahagsmál og var þar átt við verðbólgu, orkuverð, og andstöðu við evrópska efnahagssvæðið. - SBS, Selfossi 7 BASAMOTJUR MUÍsoiðfy HÖFÐABAKKA 9 112 REYKJAVÍK SÍMI 91-670000 RÍKISSKIP Mpoútgofð fíld*'n». Hofnorhúonu. Tfyggvogðtu PóHhólf 908.121 Rovtfjovfc. Tt 28822. Talox 3008IS. Konrtfoto 590269-ÓW9 Vikulega vestur til Akureyrar Viðkomudagar Reykjavík Akranes Ólafsvík Þriöjudaga Þriðjudaga* Miðvikudaga* Mánudaga t Patreksfiörður Miðvikudaga Sunnudaga Tálknafjörður Miövikudaga Sunnudaga* Bíldudalur Miðvikudaga Sunnudaga* Þingeyri Miðvikudaga Sunnudaga Flateyri \ f Miðvikudaga Sunnudaga* Suðureyri Fimmtudaga Sunnudaga* Bolungarvík Fimmtudaga Sunnudaga* Isafjörður Fimmtudaga Sunnudaga Norðurfjörður Fimmtudaga* Sauðárkrókur Föstudaga t Siglufjörður Föstudaga Ólafsfjörður Föstudaga* Dalvík Föstudaga Hrísey ' ' Föstudaga* Akureyri Föstudaga Grímsey ** Föstudaga* Húsavík Laugardaga* Laugardaga* 1 ** Grímseyjarvaran er landsett á Dalvík Vikulega austur til Vopnafjaröar Viðkomudagar Reykjavík Föstudaga Fimmtudaga Akranes (Föstudaga) Vestmannaeyjar Laugardaga Fimmtudaga Höfn Homafirði Sunnudaga Miðvikudaga Djúpivogur Sunnudaga Breiðdalsvík Sunnudaga 1 1 E Stöðvarfjörður \ f Sunnudaga 1 g> Fáskrúðsfjörður Sunnudaga ■2 -ss (S) Reyðarfjöröur Mánudaga L- cn ; — Eskifjörður Mánudaga o 2 § Neskaupstaður Mánudaga E-g Mjóifjörður (Mánudaga) Seyðisfjörður Mánudaga o ~ > w Borgarfj. eystri Þriðjudaga Vopnafjörður Þriðjudaga Bakkafjörður Þriðjudaga* Þórshöfn ® Þriðjudaga* Raufarhöfn Þriöjudaga* Þriðjudaga* 1 * viðkoma aðra hverja viku () viðkoma ef vara er fyrir hendi Áskilinn er réttur til að breyta ferðaáætlun.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.