Tíminn - 06.02.1992, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 6. febrúar 1992
Tíminn 3
Starfsmenn á Landakoti mótmæla ákvörðun stjórnar
spítalans um að segja upp öllu starfsfólki:
Ráðist gegn velferð
Fundur starfsmanna á Landakots-
spítala, sem haldinn var síðastliðinn
laugardag, samþykkti ályktun þar
sem 38% niðurskurði á launalið
spítalans er harðlega mótmælt. Bent
er á að með uppsögnunum sé ekki
einungis ráðist á tilverurétt starfs-
manna, heldur einnig að öryggi og
lífslíkum sjúklinga og aldraðra í
þjóðfélaginu öllu. í ályktuninni seg-
ir að með aðgerðum af þessu tagi sé
ríkisvaldið að ráðast gegn grundvelli
velferðarinnar, sem byggður hefur
verið upp af almenningi um áratuga
skeið.
Fundurinn harmaði þá ákvörðun
stjómar Landakotsspítala að segja
upp öllu starfsfólki, sem þjónað hef-
ur spítalanum af trúmennsku, jafn-
vel svo áratugum skiptir. Fundar-
menn töldu að með þessu sé yfir-
stjóm spítalans að gera starfsmenn
að leiksoppum örlaganna, í stað þess
að leita lausna í samvinnu við starfs-
menn. Fundurinn benti á að ólög-
mætt sé að segja upp barnshafandi
konum eða foreldrum í bamsburð-
arleyfi.
Orðrétt segir í ályktun fundarins:
„Fundurinn skorar á heilbrigðis-,
mennta-, og félagsmálaráðherra að
taka nú þegar þessa stefnu til endur-
skoðunar. „Velferð á varanlegum
grunni“ hlýtur að hafa þá merkingu
Stéttarfélag verkfræðinga:
Þorsteinn heit-
ir formaðurinn
í frétt, sem birtist á forsíðu Tímans
í gær, var nafn formanns Stéttarfé-
lags verkfræðinga ranghermt og
hann nefndur Þórarinn Sigurjóns-
son. Hans rétta nafn er hinsvegar
Þorsteinn Sigurjónsson og biður
undirritaður blaðamaður Þorstein
afsökunar á því. -PS
að stoðir velferðarkerfisins verði
ekki brotnar, heldur styrktar og efld-
ar.“
-EÓ
Fulltrúarnir 90, sem sóttu fund forystumanna Landsbjargar um helgina.
Reykjavíkurdeild Norræna félagsins og Norræna húsið:
Ráðstefna um framtíð
norrænnar samvinnu
Reykjavíkurdeild Norræna félags-
ins og Norræna hússins standa á
laugardaginn, 8. febrúar, fyrir ráð-
stefnu um framtíð norrænnar sam-
vinnu í Norræna húsinu. Fyrirlesar-
ar á ráðstefnunni eru sjö talsins,
bæði íslenskir og erlendir. Meðal er-
lendra fyrirlesara eru Anita Hugau,
staðgengill samstarfsráðherra Norð-
urlanda í Danmörku, en hún er lög-
fræðingur að mennt og hefur starfað
við utanríkisþjónustuna í í tæp 20
ár. Þá flytur Inger Jagerhom, blaða-
maður hjá Dagens Nyheter í Stokk-
hólmi, fyrirlestur. Hún er hagfræð-
ingur og hefur Iengst af fengist við
Tannverndardagur 1992 er á morgun:
Tannverndardagur
Föstudagurinn 7. febrúar n.k. verð-
ur opinber tannvemdardagur sem
haldinn er árlega. Það er Tánnvernd-
arráð, sem starfar á vegum heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneyt-
is, sem stendur fyrir deginum. Að
þessu sinni verður lögð áhersla á
ábyrgð foreldra og uppalenda og því
hefur svokallað „vinnuþema" verið
ákveðið: „Tennur bama — okkar
ábyrgð". Þegar hefur verið sent
fræðsluefni til skóla landsins og
þeim tilmælum verið beint til skóla-
stjóra, kennara og heilsugæslufólks,
að á tannverndardaginn eða ein-
hvem annan dag, sem betur hentar,
verði fjallað um tannvemd í skólun-
um.
Aðstoðarfólk tannlækna, tannfræð-
ingar og nemendur á námsbraut fyr-
ir aðstoðarfólk tannlækna mun
verða í stórmörkuðum í Reykjavík á
föstudag og laugardag, þar sem upp-
lýsingar og leiðbeiningar um tann-
vernd verða veittar. Að auki hefur
verið skipulögð fræðsla á Akureyri.
-PS
blaða- og útgáfumál. Hún hefur
starfað fyrir Norðurlandaráð og Nor-
ræna fjárfesti ngarbankann. Aðrir
fyrirlesarar em Sverre Jervall frá
norska utanríkisráðuneytinu, Jón
Júlíusson staðgengill samstarfsráð-
herra Norðurlanda, Haraldur Ólafs-
son formaður Norræna félagsins á
íslandi, Matthías Á. Mathiesen fúll-
trúi í nefnd forsætisráðherra Norð-
urlanda um endurskoðun norrænn-
ar samvinnu, og Guðrún Helgadótt-
ir, alþingismaður og fuiltrúi á Norð-
urlandaráðsþingum um margra ára
skeið.
Á ráðstefnunni verður fjallað um
marga fleti á norrænni samvinnu,
m.a. í ljósi breytinga í Evrópu og
nýrrar stöðu Eystrasaltsríkjanna.
Ráðstefnan er öllum opin án endur-
gjalds og hefst klukkan 13.30 í Nor-
ræna húsinu.
-PS
Aídarafmæli Stýri-
mannaskólans:
m. w
sjomanna-
menntun
Laugardaginn 15. febrúsur stend-
or Stýrimannaskólinn fyrir mál-
þlngl um stöðu og framtíð »jó-
mannamenntunar i ísUndL Mál-
þingiö erhaldið ÍUlefniaf aldaraf-
mæli skólans, en það var á síðasta
íri. Vár afmsHslns minnst með
ýmsum hætti og var eitt þetrra at-
riða að skólinn hefði frumkvæði
að málþingi um menntunarmál
anum hafa unnið að i
og ílytja erindi á
trúar frá Vélskóla Islands, Fisk-
vinnsluskólanum, Sfysavama-
skóla sjómanna, Hótel- og veit-
ingaskðlanum, menntamálaráðu-
neyti, Slgiingamáiastofaun,
Sambandi íslcuskra kaupskipaút-
gerðMfpai>ffl*v^^FarmaniM- og
stjórafélagi íslands og fuiitrúar
nemenda.
Málþingið verðnr haldlö I Boig-
artúnl 6 og hefst kiokkan 9.00 og
HUSNÆÐISNEFND REYKJAVIKUR
Suðurlandsbraut 30 - 108 Reykjavík
Sími 681240 - Fax 679640
UMSÓKNIR
Húsnæðisnefnd Reykjavíkur óskar eftir umsóknum um kaup á 122 nýjum og
90 eldri félagslegum eignaríbúðum, sem koma til afhendingar fram á haus-
tið 1993. Ennfremur er óskað eftir umsóknum um 20 nýjar félagslegar kaup-
leiguíbúðir, sem afhentar verða á sama tíma.
Um ráðstöfun, verð og greiðsluskilmála þessara íbúða gilda lög nr. 86/1988
með áorðnum breytingum.
Umsóknareyðublöð verða afhent á skrifstofu Húsnæðisnefndar Reykjavíkur,
Suðurlandsbraut 30 og verða þar einnig veittar allar almennar upplýsingar.
Skrifstofan er opin mánudaga-föstudaga kl. 9-12 og 13-16.
Umsóknum skal skila eigi síðar en 6. mars nk.
Ennfremur er auglýst eftir umsóknum um 7 fjögurra herbergja og 5 tveggja
herbergja íbúðir í Veghúsum 31. Umsóknarfrestur um þessar íbúðir rennur
út 21. febrúar nk. og verður íbúðunum úthlutað í byrjun mars og þær afhent-
ar kaupendum.
HÚSNÆÐISNEFND REYKJAVÍKUR
Tónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar í kvöld:
Julie Kennard
syngur einsöng
í kvöld, fimmtudaginn 6. febrúar,
verða tónleikar Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands í Háskólabíói og
hefjast þeir klukkan 20. Á efnis-
skránni verða tvö verk, sinfónía nr.
2 eftir John Speight, en hann er
fæddur á Englandi og settist að hér
á landi árið 1972. Hitt verkið er
Myndir á sýningu, eftir Mússorg-
skíj. Einsöngvari á tónleikunum
verður sópransöngkonan Julie
Kennard og hljómsveitarstjóri
Petri Sakari, aðalhljómsveitarstjóri
Sinfóníuhljómsveitar íslands.
Julie Kennard er frá Suður-Wales
á Bretlandi og lauk prófi frá Há-
skólanum í Southampton. Hún
syngur verk gamalla og nýrra höf-
unda, allt frá Monteverdi til höf-
unda vorra daga, og tekur oft þátt í
frumflutningi verka. Hún hefur
hlotið sérstakar vinsældir fyrir
túlkun á rómantískri tónlist, en
söngskrá hennar er löng og hún
hefur sungið flest sópranhlutverk
óperutónbókmenntanna.
Landsbjörg:
Björgunarmenn
fata sig upp
Síðastliðna helgi var haldinn fúnd-
ur forystumanna Landsbjargar,
landssambands björgunarsveita.
Fundurinn var fjölmennur og var
haldinn á Hótel Lind í Reykjavík.
Alls sóttu fundinn um 90 fulltrúar
alls staðar að af Iandinu og voru til
umfjöllunar ýmis hagsmuna- og
skipulagsmál Landsbjargar. Sam-
þykktar voru tillögur um hlífðar- og
einkennisfatnað fyrir sveitimar og
var ákveðið að láta sauma fatnaðinn
innanlands, til þess að styrkja ís-
lenskan iðnað. -PS