Tíminn - 06.02.1992, Qupperneq 9
Fimmtudagur 6. febrúar 1992
Tíminn 9
Niget Havers féll strax fyrir Polly og réö ekki viö sig fyrr en þau voru búin aö ná saman. Breskur almenn-
ingur lét sér ekki á sama standa.
> u*4'
. í tii. JflMI
Skilnaöir beggja komu róti á
huga almennings í Englandi:
Polly og
Nigel
Havers fá
nú frið!
Nú er orðið tiltölulega hljótt um
hjónin Polly og Nigel Havers í Eng-
landi, en þannig var það ekki fyrir
nokkrum árum.
Nigel er vinsæll Ieikari og þar af
leiðandi allra manna eign. Aðdáend-
ur hans urðu þess vegna fyrir áfalli,
og öfundarmenn hans glöddust, þeg-
ar fféttist að hann, giftur maðurinn
og fjölskyldufaðirinn, hafði faliið svo
gersamlega kylliflatur fyrir fyrirsæt-
unni Polly, sem reyndar lfka var gift
á þeim tíma, að þeim voru allar aðr-
ar bjargir bannaðar en að yfirgefa
fjölskyldur sínar og stofna sitt eigið
heimili.
Ástarævintýrið þeirra og skilnaðir
voru umfjöllunarefni fjölmiðla um
langt skeið og voru flestir ófeimnir
að leggja dóm sinn á framferðið, sér-
staklega framferði Nigels, sem var
sakaður um illt innræti og dusil-
mennsku. En ekkert fékk haggað
ástfangna parinu.
Nú hefur öldumar loks lægt, þau
giftu sig fyrir tveim árum, og þá er
Nigel spurður hvort ekki hafi verið
erfitt að særa fyrri konuna og bömin
með þvf að hlaupa svona frá þeim, og
það undir opinberu eftirliti almenn-
ings. Jú, víst var það erfitt," segir
hann. „En það var ekki um annað að
ræða. Að ég varð ástfanginn af PoIIy
er bara eitt af þvf sem kemur fyrir
fólk og var ekki viðráðanlegt," segir
hann.
Polly er systir Simons Williams,
sem vann með Nigel Havers að sjón-
varpsþáttunum „Don’t Wait Up“.
Simon kynnti þau einn góðan veður-
dag fyrir sjö til átta árum, og þau
hafa orðið að ganga f gegnum margt
síðan, en nú eru þau nýflutt á gaml-
an bæ úti í sveit og eru að koma sér
þar fyrir. Þar verður framtíðarheim-
ili þeirra og tveggja sona Polly. Dótt-
ir Nigels býr hjá móður sinni, sem
fluttist til Spánar.
Alltaf má fá
annað skip
Heimspressan var sett á fulla ferð,
þegar leikarasonurinn og smáleik-
arinn Kiefer Sutherland og leik-
í spagli
Timans
konan Julia Roberts hétu hvort
öðru eiginorði í fyrra.
Aftur var kýlt í, þegar þau skildu
fyrir hálfu ári og fylgdist heims-
byggðin þrumu lostin með þeim
átakanlega aðskilnaði.
Nú, að sex mánuðum liðnum, eru
þau bæði búin að ná sér og trúlof-
uð á nýjan leik, en ekki hvort öðru.
Lisa Stoppard, sýningarstúlka,
hefur heitið Kiefer
eiginorði og er hann
afskaplega glaður yfir
því og ekki síður
pabbi gamli, leikarinn
Donald Sutherland,
sem hér leggur bless-
un sína yfir ráðahag-
inn.
Heimild f spegli
Tímans segir að Jason
Patric sé elskhugi
Juliu Roberts og það
gæti þýtt að hann sé
tilvonandi sambýlis-
maður. Á myndinni,
sem hér fylgir, eru
þau að fara á bíó,
meira að segja frum-
sýningu.