Tíminn - 08.02.1992, Blaðsíða 10
10
Laugardagur 8. febrúar 1992
Laugardagur 8. febrúar 1992
11
skulum
ekki
baöa. ..
pískunum allt í kring um hann, láta
hann hafa nokkurt slagrúm og
sleppa honum ekki úr kvínni, og því
hlýddu allir.
Sýslumaður óttaðist
skrollu
í öðrum fylkingararmi var gildur
bóndi, Loftur Guðmundsson á
Tjörnum, með óbilandi kjark og
hugrekki og hvatti liðið hefði þess
þurft. Sumir voru að segja við sýslu-
mann: „Skrifaðu nú upp þá, sem
ekki vilja baða. Þú skalt nú fá baðið
sjálfur á skrokkinn í Hellisvatninu",
og margt fleira sögðu þeir við hann,
sem ég ekki vil skrifa. Sýslumaður
sótti mest á brekkuna til Trampe, en
forðaðist Hellisvatnið, því að hann
óttaðist, að hann mundi fá þar
skrollu, en nú voru fáir faðmar frá
honum að vatninu og fylkingarnar á
báðar hendur komnar á bakkann og
hringurinn í kring um hann að for-
engjast. Nú verður að geta annars,
ekki verður allt sagt í einu.
Frá því að sýslumaður var um-
kringdur og til þess hann er kominn
að vatninu, stendur Trampe á flöt-
inni og horfir á þetta þegjandi og
hissa, og sýnist ekki gott á passan-
um með sýslumann og ekki annað
Iíklegra en að þeir aetli með hann í
Hellisvatnið og máski gera sér það
sama. Eitthvað verður nú til bragðs
að taka sem fyrst, og finnst þá til-
tækilegast að éta allt ofan í sig aftur,
ef það kynni að sefa bændur og segir
við Sighvat í Eyvindarholti: „Segðu
bændum, að ég gefi eftir að baða til
haustsins." Sighvatur sendi mann
niður í mýri að segja bændum þetta.
Þá kalla bændur hátt og segja: „Við
skulum heldur ekki baða þá, ef að
ekki verður kominn kláði.“ TVampe
eru sögð svör bænda, og er hann
heyrir það, þá skipar hann að segja
bændum, að hann skuli ekki skipa
að baða þar til vart verði við kláða
(hann var orðinn dauðhræddur og
gaf svo allt eftir, sem hann var búinn
að skipa). Þegar bændur heyra það,
kalla margir upp og segja: „Nú er
spilið unnið, og sleppum nú sýslu-
manni úr kvínni," en þá voru sumir
svo æstir, að þeir skeyttu ekki og
heyrðu ekki um skilaboðin og urð-
um við að stökkva á suma og halda
þeim svo að sýslumaður kæmist úr
kvínni. Þegar skarð kom í hana,
flýtti hann sér á fund TVampe reiður
og móður sem von var. Sagðist hann
aldrei hafa komist í annað eins haf-
arí, og að hér væri ekki við nein
börn að eiga.
Aldrei var skipað að
baða og aldrei kom
kláðinn
Bændur tóku nú hesta sína, stigu á
bak með sköllum og hlátrum og
riðu heim léttan og glaðan og sögðu
hinum, er heima sátu, hvernig farið
hefði, og þökkuðu þeir dugnaðinn,
komu með pytluna og var þá drukk-
ið fundarminni. Aldrei var skipað að
baða og aldrei kom kláðinn í hrepp-
inn.
Þeir fóru líka á bak, stiftamtmaður
og sýslumaður, og héldu í áttina
sína og þóttust ekki hafa farið
frægðarför. Stiftamtmaður hafði
sagt, að hann skyldi ekki hafa hreyft
sig úr Reykjavík, hefði hann vitað,
að bændur voru svona stífir og sam-
taka og mundi ekki fara þangað í
bráð aftur."
NOTAÐU
PENINGANA ÞÍNA
í EITTHVAÐ ÁNÆGJULEGRA EN
DRÁTTARVEXTI
Við minnum á gjalddaga
húsnæðislána sem var
1. FEBRÚAR
16, FEBRÚAR_______________
leggjast dráttarvextir á
lán með lánskjaravísitölu.
1. MARS___________________
leggjast dráttarvextir á
lán með byggingavísitölu.
cR] HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
O SUÐURLANDSBRAUT 24 ■ 108 REYKJAVÍK SlMI 696900
Krakkarnir sem leika Emil og fdu: Jóhann Ari, Álfrún, Anita og Sturla.
Emil í Kattholti
Höfundur: Astrid Lindgren
Þýöing: Vilborg Dagbjartsdóttir
Þýöing söngtexta: Böðvar Guömundsson
Lýsing: Páll Ragnarsson
Leikmynd og búningar: Karl Aspelund
Tónlistarstjóri: Jóhann G. Jóhannsson
Dansar: Marfa Gisladóttir
Leikstjórí: Þórhallur Sigurösson
Sýningarstaöur: Þjóöleikhúsiö, stóra sviöiö.
Kattholtsljölskyldan með Emil í
fararbroddi er mætt til leiks á fjöl-
um Þjóðleikhússins. Emil er meiri-
háttar grallari og hefur afar frjótt
ímyndunarafl og hikar ekki við að
hrinda hugmyndum sínum í fram-
kvæmd, oft lítt ígrunduðum. En
hugdettur hans passa ekki alltaf við
viðteknar venjur fullorðna fólksins
og afleiðingin verður sú að aum-
ingja Emil þarf oftar en ekki að af-
plána refsingu í Smíðakofanum al-
einn, en með tálguhnífinn góða.
En Emil lætur ekki deigan síga, því
eftir hverja vist í kofanum mætir
hann tvíefldur til leiks, tilbúinn í
slaginn.
Uppátæki Emils eru þungamiðja
leiksins og það sem allt snýst um.
Á frumsýningunni var Sturla Sig-
hvatsson í hlutverki Emils og átti
mjög góðan og yfirvegaðan leik,
þótt persónan mætti kannski vera
örlítið meiri grallari; en það er frek-
ar hlutverk leikstjóra að sjá um þá
hlið málsins. ídu systur hans lék An-
ita Briem af mikilli prýði. Frammi-
staða þessa ungu leikara bar þess
merki að vel hefur verið að æfingum
staðið.
Jóhann Ari Lárusson og Álfrún
Örnólfsdóttir munu einnig leika
þessi hlutverk til skiptis við þau áð-
urnefndu.
Bessi Bjarnason er í hlutverki
pabbans, sem á í stöðugum útistöð-
um við soninn Emil. Bessi er alltaf
jafn spaugilegur og rennir sér í
gegnum þetta eins og honum ein-
um er lagið.
Margrét Guðmundsdóttir á auðvelt
með að túlka hina skilningsríku
móður, sem er kjölfestan á heimil-
inu.
Margrét Pétursdóttir er hin söng-
elska vinnukona Lína, sem orðin er
ansi leið á rolugangi Alfreðs vinnu-
manns (Gísli Rúnar Jónsson), sem
hinsvegar óar við því að lenda í
hnappheldunni með Línu. Það sóp-
ar af Margréti, bæði í söng og leik,
og Gísli Rúnar er hér á ferð með
sína þjóðkunnu takta, æði spaugi-
lega, en kannski ofnotaða fyrir þá
sem eldri eru. En börnin kunnu
sannarlega að meta þetta einstaka
látbragð.
Helga Bachmann kemur skemmti-
lega á óvart með bráðfyndna takta
sem Títuberja-Maja.
Aðrir eru í minni hlutverkum og
allir í fleiru en einu, en þau eru:
Gísli Alfreðsson, Þór Tulinius,
Randver Þorláksson, Þorsteinn
Guðmundsson, Bríet Héðinsdóttir,
Bryndís Pétursdóttir og Erling Jó-
hannesson.
Að auki koma við sögu hestur og
kýr og er það vel til fundið að gera
þessar skepnur örlítið mannlegar og
vakti það ósvikna kátínu áhorfenda.
Til að fanga hug yngstu leikhús-
gestanna þarf til að koma annað-
hvort æsileg spenna þar sem aðal-
persónurnar eru í stöðugum lífs-
háska á harðahlaupum undan vonda
karlinum, eða fjöldi spaugilegra at-
vika þar sem tertum er kastað og
karlar detta á rassinn og annað í
þeim dúr.
Hér er frekar um það síðarnefnda
að ræða, en spaugilegu atvikin
mættu að ósekju vera aðeins farsa-
kenndari í bland.
í heild er sýningin hressileg; tón-
list og leikgerð ljómandi góð, að
ógleymdum góðum texta í snjallri
þýðingu Vilborgar og Böðvars.
Gísli Þorsteinsson
P.s.
Stjórnendur Þjóðleikhússins þurfa
endilega að finna upp einhver ráð til
að fylla húsið á frumsýningu barna-
leikrita. Nú gerðist það sama og
með Búkollu: salurinn var æði
þunnskipaður. Slíkt dregur úr réttri
stemmningu, jafnt fyrir áhorfendur
sem leikara.
Guörún Gísladóttir fer meö hlutverk ísbjargar í leikritinu.
Uppselt á
Leikritið „ísbjörg - ég er ljón“ hef-
ur fengið mjög góðar viðtökur hjá
áheyrendum og nú er uppselt á allar
16 sýningar sem auglýstar hafa ver-
ið. Leikritið var frumsýnt skömmu
fyrir mánaðamót á gamla smíða-
verkstæði leikhússins. Leikritið er
eftir sögu Vigdísar Grímsdóttur, en
leikgerð gerði Hávar Sigurjónsson,
sem jafnframt er leikstjóri.
Isbjörgu
Átta Ieikarar koma fram í sýning-
unni: Guðrún Gísladóttir, Bryndís
Petra Bragadóttir, Ragnheiður
Steindórsdóttir, Jóhann Sigurðar-
son, Þórarinn Eyfjörð, Pálmi Gests-
son, Ólafía Hrönn Jónsdóttir og
Hjálmar Hjálmarsson. Leikmynd og
búninga gerir Elín Edda Árnadóttir
og tónlist er eftir Lárus H. Gríms-
son. -EÓ
íslenska óperan minnist
10 ára í Ingólfsstræti:
Frumsýnir
Othello
Með frumsýningu á Othello Verdis,
sunnudaginn 9. febrúar, minnist ís-
lenska óperan þess að 10 ár eru liðin
frá því hún fékk fastan samastað í
Óperuhúsinu við Ingólfsstræti.
Garðar Cortes syngur Othello, Ólöf
Kolbrún Harðardóttir er í hlutverki
Desdemonu og Keith Reed í hlut-
verki Jagos. í öðrum einsöngshlut-
verkum eru Elsa Waage, Bergþór
Pálsson, Þorgeir J. Andrésson, Tóm-
as Tómasson, Jón Rúnar Arason og
Þorleifur M. Magnússon. Leikstjóri
er Þórhildur Þorleifsdóttir og hljóm-
sveitarstjóri Robin Stapleton.
Othello var frumsýnd í La Scala
óperunni í Mílanó 1887. Verdi var þá
orðinn 73 ára gamall og mörg ár lið-
in frá því hann samdi næstu óperu á
undan. Verkið gerist á Kýpur í lok
15. aldar og er byggt á leikriti eftir
Shakespeare.
Garöar Cortes veröur I hlutverki
Othellos.
Fyrsta vísitasía
í Bústaðakirkju
Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson, pró-
fastur Reykjavíkurprófastsdæmis
vestra, heimsækir Bústaðasókn
sunnudaginn 9. febrúar. Þetta er í
fyrsta sinn sem Bústaðakirkja er
vísiteruð af prófasti. Helsta skýr-
ing þess er sú, að dómprófastur í
Reykjavík var lengst af þjónandi
prestur kirkjunnar, herra Ólafur
Skúlason, biskup íslands.
Heimsókn prófasts hefst á fundi
með sóknarnefnd og starfsfólki.
En kl. 14:00 verður messa, þar
sem prófastur predikar, en sókn-
arpresturinn, sr. Pálmi Matthías-
son, þjónar fyrir altari. Eftir
messu verður kirkjugestum boðið
upp á kaffi í safnaðarheimilinu.
OKKAR VINSÆLA
STÓRÚTSALA
Á HEIMILISTÆKJUM
og áhöldum
fyrir örbylgjuofna er hafin
Áskrif-
endur!
Þeir áskrifendur Tímans, t
/ / d ári, eru vinsarhlega b
■*
......................MÉÉÉÉÉÉMttÉMtHÉtÉtÉÉÉtÉMÉMMÉÉtÉtÉÉÉtÉÉÉÉÉÉtÉÉÉÉII '
Þjónusta alla leið
TOLLVÖRU -
JB GEYMSLAN HF
FRÍCEYMSLA ■ VÖRUHÓTEL.
Við önnumst flutninga
• SAFNSF.NDINCAR
• FLUTNINGSMIÐLUN
Við sækjum vörur
—~-------
Við sjáum um skýrslugerð
Við meðhöndlum vörur
■
Við geymum vörur
mm
• FRAKTFI.UG
• SKII’AAFCREIDSLA
• PÓSTAFGREIDSLA
• TOL15KÝRSI.A
• ALMENN TOLLSKÝRSLA
• TRANSIT
• ENDURSENDINGAR
• VERDBREYTINGAR
• ÚTFLUTNINGUR
• CÁMALOSUN
• VÖRUMERKINGAR
• VÖRUFLOKKUN
•PÖKKUN
(JS0 &
Fjölbreyttur geymslumáti
--------------------
Við sendum vörur
• ÓTOLLAFCRF.IDDAR
• TOLLAFGREIDDAR
• INNLENDA FRAMLEIDSLU
• BÚSLÖÐIR OG ANNAD FYRIR
EINSTAKLINGA OC FYRIRTÆKl
• HILLUHUS
• KLEFAR
• GÁMAPLÁSS
• FRYSTIGEYMSI.UR
• ALMENN VÖRUGEYMSl.A
•SKÁPAR
• ÚTISVÆDI
• HEIMÁLACER
• Á VÖRUFLUTNINC.A-
MIÐSTÖDVAR
• BEINT TIL KAUPANDA
Salan er bitt mál
VIÐ EFTIRLATUM ÞER
SÖLUNA OG MARKAÐSMÁLIN
Flutningsmiðlun
BúsUSðageymsla
■^Tollskýrslur fyrir
einstaklinga og
fyrirtæki utan
tollvörugeymslu
■^Hilluhús
■^Skjalageymsla
■^Tölvubeintenging
Látum bíla ekki
ganga að óþörfu!
Útblástur bitnar
verst á börnum ...