Tíminn - 10.06.1992, Side 3

Tíminn - 10.06.1992, Side 3
Miövikudagur 10. júní 1992 Timinn 3 Leyfi gefið fyrir nýjum einkaskóla í Reykjavík: Kennarasambandið ekki innt álits Menntamálaráðuneytíö hefur veitt Miðskólanum starfsleyfi og er stefht að því að skólinn taki til starfa næsta haust. „Það eru einkaskólar í Reykjavík sem eru með aðra árganga, þann- ig að þetta er bilið milli Tjarnarskóla og fsaksskóla," segir Bragi Jósepsson, talsmaður Miðskólans. ,Að vísu eru einkaskólar á veg- um kirkjudeilda en ekki almennir einkaskólar.“ Skólinn er ætlaður bömum á aldr- inum 9-12 ára og verða fjórar bekkj- ardeildir, ein fyrir hvem árgang. Gert er ráð fyrir 25 nemendum í hverjum bekk. Hver mánuður mun kosta 15.000 kr. fyrir hvern nem- anda og eiga skólagjöldin að fjár- magna reksturinn. Fyrir þremur ár- um var gerð könnun á því hvort for- senda væri fyrir skólanum og virtist svo vera og býst Bragi við að svo sé enn. Skóladagurinn verður samfelldur, hefst kl.8:30 og stendur til 15:30. Bömunum verður ætlaður tími til að undirbúa sig fyrir skólann. Boðið verður upp á heita máltíð í skólan- um. „Það verður mjög rúmur tími fyrir Iistir og íþróttir,“ segir Bragi. „Tvisvar á dag verða sameiginlegar útiíþróttir fyrir alla nemendur í kortér, fyrir utan frímínútur að austurlenskri fyrirmynd." Hálftími verður helgaður tónlist á hverjum degi fyrir utan stundatöflu og einnig verður myndlist og dans ofarlega á baugi. Borgin ætlar að útvega húsnæði undir skólann og er búist við að það liggi fyrir í næstu viku. Hugsanlegt er að auglýst verði eftir umsóknum í vikunni. „Ég hef mjög mikla trú á frjálsu samfélagi og fólk fái að velja og haftia og þar á meðal hvað það gerir við peningana sína,“ segir Bragi. Kennarasamband íslands mælti gegn stofnun Miðskólans þegar fyrr- verandi menntamálaráðherra, Svav- ar Gestsson, innti það eftir áliti. „Kennarasambandið leggur áherslu á að nemendum sé ekki mis- munað og að gætt sé jafnréttis til náms," segir Svanhildur Kaaber, formaður Kennarasambands ís- lands. „Það teljum við ekki gert með stofnun skóla sem auk þess að taka af ríkisfjárlögum og fjárlögum sveit- arfélaga, lætur foreldra borga sér- stök gjöld. Það verða því ekki aðrir foreldrar en þeir sem eiga peninga sem geta þetta.“ Svanhildur segir þetta sérstaklega óviðeigandi í núverandi niðurskurði að einkaskóli skuli vera leyfður og borgin ætli að útvega húsnæði. „Það er mjög sérkennilegt á sama tíma og margir skólar borgarinnar búa við þvflík húsnæðisþrengsli að það er aldeilis ótrúlegt. Það er verið að flytja saman og ftölga nemendum í bekkjardeildum, þannig að við telj- um þetta mjög hæpið og vafasamt." Svanhildur segir að nú sé aðeins efriuðum foreldrum gert kleift að njóta þess skólakerfis sem æskilegt þykir og samþykkt var í grunnskóla- lögunum fyrir rúmu ári. „Þetta er í fyrsta skipti í 10 ár eða svo, sem gengið er frá svona heimild og ekki leitað álits Kennarasam- bandsins á málinu,“ segir Svanhild- ur. Aslaug Brynjólfsdóttir, fræðslu- stjóri Reykjavíkur, hafnaði skólan- um í ágúst á síðasta ári, þegar stofn- un hans var borin undir embættið, á þeim forsendum að engin námsskrá lægi fyrir og einnig var húsnæðið óöruggt „Ég sé litla ástæðu til að vera með einkaskóla ef ekki er komin sérstök skólastefna sem á að fylgja," segir Aslaug. „Það er ekkert við skólanum að segja ef hann er einkaskóli rekinn algerlega af sínum gjöldum. Ef op- inberir aðilar ætla að styrkja hann stangast það á við umræður um að leggja þurfi skóla niður því þeir þykja orðnir svo litlir með einungis 250 nemendur. Þá þykja þeir vera orðnir óhagkvæmir. Þegar nemend- ur tínast héðan og þaðan að, sparast ekki deildafjöldinn í öðrum skólum. Þannig getur þetta orðið viðbótar- kostnaður fyrir ríkið," segir Aslaug að lokum. —GKG. iÆS33i.f« Nýi Herjólfur í Vestmannaeyjahöfn. Tímamynd: SBS, Selfossi. Nú komast 500 manns og 70 bílar í einu milli lands og Eyja: Nýr Herjólfur er kominn til Eyja Mikil eftirvænting ríkti í Eyjum á mánudaginn var, annan í hvíta- sunnu, þegar þangað kom til heimahafnar í fyrsta sinni hinn nýi Herjólfur. Skipið sem er 2.222 brúttótonn að stærð leysir af hólmi Mótmæli A aðalfundi Félags háskólakennara, sem haldinn var 29. maí síðastliðinn, var samþykkt ályktun þar sem mót- mælt er harðlega þeirri miklu skerð- ingu á fjárlögum sem Háskóla ís- lands er gert að sæta. Félagið krefst þess að stjómvöld endurskoði nú þegar fjárframlög til Háskóla íslands svo hann geti staðið undir þeirri rannsókna- og kennslu- starfsemi sem lög kveða á um. eldra skip sem þjónað hefur Eyja- skeggjum dyggilega síðustu 17 ár- in. Á ári ferðast um 60 þúsund far- þegar „veginn" milli lands og Eyja og má gera því skóna að umferð aukist verulega með tilkomu hins nýja skips. Smíðakostnaður þess var um 1.100 milljónir króna. Nýi Herjólfur er 70,5 m langur og sjö hæða. Gegnumkeyrsla er um bflaþilfar og tekur skipið um 70 bfla og 500 farþega. 16 manna áhöfn er á hinu nýja skipi. Jón Eyjólfsson skipstjóri sagði í samtali við blaðamann að Herjólfur hefði reynst vel á heim- siglingunni, en hann var smíðaður hjá skipasmíðastöðinni Simtek í Flekkefjord í Noregi. Smíði Her- jólfs tók um eitt ár. —SBS Selfossi. Nachi legurer japönskgæóavara á sérsaklega hagstæóu verói. Allaralgengustu tegundir fáanlegará lager. Sérpantanir eftir þörfum. TiZLésútífu; HÖFÐABAKKA 9 112REYKJAVÍK SÍMI91 -670000 og 6B5656 ---------- optibelt KÍLREIMAR OG VIFTUREIMAR REIMSKÍFUR OG FESTIHÓLKAR IMUTLJIVK SAMSETTAR REIMAR í STÆRÐUM 10/z - 13/a - 17/b - 22/c Þekking Reynsla Þuónusta FÁLKINN SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI: 81 46 70 1ÚF Umboðsmenn Tímans: Kaupstaður Nafn umboðsmanns Helmlll Slml Keflavík Guðrlður Waage Austurbraut 1 92-12883 Njarðvfk Katrln Sigurðardóttir Hólagata 7 92-12169 Akranes Aðalheiður Malmqvist Dalbraut 55 93-11261 Borgarnes Soffla Óskarsdóttir Hrafnarkletti 8 93-71642 Stykkishólmur Erla Lárusdóttir Silfúrgötu 25 93-81410 Grundarfjörður Anna Aðalsteinsdóttir Grundargötu 15 93-86604 Helllssandur Lilja Guðmundsdóttir Gufuskálum 93-66864 Búðardalur Sigurlaug Jónsdóttir Gunnarsbraut 5 93-41222 fsafiörður Jens Markússon Hnlfsdalsvegi 10 94-3541 Hólmavík Elfsabet Pálsdóttir Borgarbraut 5 95-13132 Hvammstangi Hólmfflður Guðmundsd. Flfusundi 12 95-12485 Blönduós Snoni Bjamason Urðarbraut 20 95-24581 Skagaströnd Ólafur Bemódusson Bogabraut 27 95-22772 Sauðárkrókur Guðrún Kristófersdóttir Barmahllð 13 95-35311 Slglufjörður Sveinn Þorsteinsson Hllðarvegi 46 96-71688 Akureyri Halldór Ingi Ásgeirsson Sólvöllum 7 96-24275 Svalbarðseyrl Þröstur Kolbeinsson Svalbaröseyri 96-25016 Húsavlk Sævar Salómonsson Vallholtsvegi 11 96-41559 Ólafsfjöröur Helga Jónsdóttir Hrannarbyggð 8 96-62308 Raufarhöfn Erla Guðmundsdóttir Aöalbraut 60 96-51258 Vopnafjörður Svanborg Vlglundsdóttir Kolbeinsgötu 44 97-31289 Egllsstaðlr Páll Pétursson Árskógum 13 97-11350 Seyöisfjörður Margrét Vera Knútsdóttir Múlavegi 7 97-21136 Neskaupstaður Heimir Ásgeirsson Melagötu 14 97-71461 Reyðarfjörður Ólöf Pálsdóttir Mánagötu 31 97-41167 Eskifjörður Björg Sigurðardóttir Strandgötu 3B FáskrúðsfjörðurGuðbjörg Rós Guðjónsd. Skólavegi 26 97-51499 Djúplvogur Ingibjörg Ólafsdóttir Borgarlandi 21 97-88962 Höfn Sigurbjörg Einarsdóttir Vlkurbraut 11 97-81274 Selfoss Margrét Þorvaldsdóttir Enaiavegi 5 98-22317 Hverageröi Þórður Snæbjamarson Heiömörk 61 98-34191 Þorlákshöfn Halldóra S. Sveinsdóttir Egilsbraut 22 98-33627 Eyrarbakki Bjami Þór Erlingsson Túngötu 28 98-31198 Laugarvatn Halldór Benjamlnsson Flókalundi 98-61179 Hvolsvöilur Jónlna og Ámý Jóna Króktúni 17 98-78335 Vlk Ragnar Freyr Karlsson Ásbraut 3 98-71215 VestmannaeyjarMarta Jónsdóttir Helgafellsbraut 29 98-12192 RAUTT ^ÓS^RAUTT ^ÖS! llUMFERÐAR

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.