Tíminn - 13.06.1992, Síða 2

Tíminn - 13.06.1992, Síða 2
2 Tíminn Laugardagur 13. júni 1992 HÖFÐABAKKA 9 .112 REYKJAVÍK . SÍMI 91-634000 ELDUR kom upp í litlum söluskúr Alaska í Breiöholti aðfaranótt föstudags. Slökkvilið slökkti eldinn á skammri stund. EldsupptöJt_ eru ókunn. Skúrinn er gjörónýtur. Timamynd Ami Bjama Við eigum þrjár gerðir af KVERNELAND SILAWRAP rúllupökkunarvélum á mjög hagstæðu innkaupsverði Kvemeland 7512DL er meö sjálfvirkum tengi- og skuröarbúnaöi, þannig aö hún byrjar aö vefja næsta bagga án þess aö manns- höndin komi þar næm. Snúningsboröiö er vel op- iö, svo hey safnast þar ekki fyrir. Hún er meö telj- ara og barkastýringu inni i ekilshúsi. Verð kr. 597.000,- + vsk. Kvemeland 7515 er meö sama búnaöi, en auk þess meö vökvastýröum sleppi- sporöi, sem hlífir filmunni þegar baggarnir falla af. Þá er hún meö tölvu l ekilshúsi, sem stýrir pökk- un. Þessi vél notar bæöi 50 og 75 sm filmu. Verö kr. 710.000,- + vsk. Aö auki bjóöum viö 7581 vélina. Hún er tengd á þrí- tengi og fæst meö eöa án hjóla. Henni er ekiö aö hliö baggans, sem er mun þægilegra en þegar bakka þarf að honum, og slöan er bagganum velt upp á vélina. Þetta er ódýr en vönduð vél. Verö kr. 435.000,- + vsk. Kvernelandsvélarnar eru mest seldu rúllupökkunarvélarnar hérlendis og hafa veriö lengst á markaðnum. Þær hafa veriö prófaðar á Hvanneyri. Þar sem verksmiðjurnar anna ekki eftirspurn er vissara aó panta vélar strax, til að tryggja afhendingu fyrir slátt. Tvímælalaust bestu kaupin á markaönum. TiZUÍsorffý Hagnaður íslandsbanka minnkaði úr 12,9% í aðeins 1,4% milli ára: Um 5,3 mil|jarðar upp í töpuð banka- lán á 2 árum Arðsemi eigin fjár viðskiptabankanna og 16 stærstu sparisjóða landsins varð aðeins 2,6% að meðaltali í fyrra borið saman við 6,5% árið áður. í Hagtölum Seðlabankans er fjaliað um fremur siæma afkomu bankanna á síðasta ári. Mest hrakaði afkomunni hjá íslandsbanka frá árinu á undan. Bændur! KVERNELAND rúllu- pökkunarvélar ÞRJÁR Á HAGSTÆÐU VERÐI Hagnaður af eigin fé minnkaði úr 12,9% í aðeins 1,4%. Seðlabankinn segir margt benda til þess að vaxta- munur muni fara minnkandi og að framlög í afskriftareikning útlána muni ekki lækka á næstu misserum. Framlög vegna útlánaafskrifta nema samtals tæpum 5,3 milljörðum króna síðustu tvö ár og eru hlut- fallslega svipuð hjá sparisjóðunum og bönkunum. Þetta er nálægt fjór- földun að raungildi frá því fyrir fimm árum. Að sögn Seðlabankans ræðst af- koma bankanna að nokkru af við- skiptasviði þeirra og öðrum sérað- stæðum. Þannig hafi afkoman hjá Landsbanka og áður hjá Útvegs- banka verið slæm þegar illa áraði í sjávarútvegi. Gengistap/hagnaður hafi nær eingöngu skrifast á við- skiptabankana, en afkoma sparisjóð- anna verið jöfn og yfirleitt fremur góð. Hjá Búnaðarbanka minnkaði arð- semin einnig mjög á síðast ári, eða úr 7,3% niður í 2,1% milli ára. Þótt arðsemin væri minnst hjá Lands- banka þá jókst hún á hinn bóginn heldur, eða úr 0,5% í 0,8%. Arðsemi sparisjóðanna minnkaði úr 9,8% í 8,1%. Seðlabankinn telur varla mikið svigrúm til að auka ýmsar tekjur banka og sparisjóða. Þeir virðist því nauðbeygðir til aö lækka kostnað verulega til þess að ná viðunandi arðsemi eigin fjár. —HEI Hluti undirbúningsnefndar hátíðarinnar á sviöi Héðinshússins við Seljaveg þar sem m.a rokktónleik- ar og Ijóðalestur munu fara fram. Frá vinstri Halldór Auðarson tónlistarmaöur, Þór Ludwig Stiefel myndlistarmaður, Finnur Arnar myndlistarmaður og Guðmundur Rúnar Lúðvíksson myndlistarmað- ur. Tímamynd Áml Bjama Óháða listahátíðin hafin: Loftárás á Seyðis- fjöið hefst í dag Óháða listahátíðin með undirtitilinn „Loftárás á Seyðisfjörð" hefst í dag og stendur til 28. júní. Um 500 listamenn taka þátt í hátíð- inni og verður boðið upp á flestar greinar lista. Að sögn Guðmundar Rúnars Lúð- víkssonar úr undirbúningshópi Ó.l. var stofnað til hennar í því skyni að sýna fram á þörfina fyrir fjöllistahús, sem listafólk ungt sem gamalt gæti nýtt sér án þess að þurfa að leggja fram mikla peninga. „Einnig átti að reyna að virkja jað- arhópana sem eiga erfitt með að koma sér á fram færi því það kostar of mikla peninga," segir Guðmund- ur. Aðdragandi hátíðarinnar var sá að í mars boðuðu nokkrir ungir menn til fúndar í Djúpinu fyrir þá sem Iangaði að koma list sinni á framfæri og segir Guðmundur að sá fjöldi sem mætti hafi sýnt fram á að það er vissulega þörf á fjöllistahúsi. „í upphafi var íiugmyndin að Iðnó gæti hugsanlega nýst sem fjölleika- hús. Iðnó er að vísu mjög lítið hús og gæti ekki hentað t.d. myndlist en það væri hægt að tengja það húsi sem væri nálægt," segir Guðmundur. Halldór Auðarson, sem einnig situr í undirbúningsnefnd Ó.I., segir borg- ina hafa verið mjög jákvæða fyrir þessa nýtingu á Iðnó: „Þetta er í höndum þeirrar framkvæmdanefnd- ar sem hefur verið skipuð í kringum Iðnó, sem á að leggja fram tillögur um hvað verði framtíðarstarf Iðnó. Við erum búnir að sýna fram á þenn- an möguleika á nýtingu." Seldir hafa verið forsölumiðar á listahátíðina á 3000 kr. og gilda þeir á öll atriðin. Miðamir eru í takmörk- uðu upplagi en verði einhverjir eftir verður hægt að kaupa þá á 2500 kr. um helgina á ýmsum kaffihúsum bæjarins eða á milli 14:00-16:00 á Laugavegi 22. „Við vonum að aðrir standi fyrir Óháðu listahátíðinni að ári,“ segir Guðmundur. „Við erum búnir að sýna fram á að þetta er hægt.“ Hugmyndin er jafnvel að hafa hana annað hvert ár og láta hana stangast á við Listahátíð í Reykjavík. Verði ágóði af hátíðinni í ár verður hann lagður í sjóð til stuðnings fjöllista- húsi. í dag kl.l4:00 verða opnaðar fjöl- margar myndlistarsýningar m.a. í Gallerý Bergstöðum, Hlaðvarpan- um, Gallerí Ingólfsstræti og Geysis- húsinu. Boðið verður upp á ýmis skemmtiatriði við flestar opnanimar og að auki verða veitingar í boði á Gallerí Bergsstöðum. Kl.20:00 í kvöld verða svo tónleikar í Héðinshúsinu með hljómsveitun- um Páskum, íslenskum tónum, Sir- kus Babalú og Strigaskóm nr. 42. Á sunnudaginn kl.14:00 verður bamadagskrá í Héðinshúsinu þar sem m.a. Friðrik Erlingsson les úr bók sinni Benjamín dúfu og Augna- blik sýnir leikritið Dimmalimm. K1.20:00 verður svo boðið upp á blandaða dagskrá. —GKG. Þýskalands* forseti kemur til landsins Richard von Weizsácker, forseti Þýskalands, og eiginkona hans, frú von Weizsácker, koma í op- inbera heimsókn til íslands 16. júní næstkomandi. Þýsku for- setahjónin verða hér á landi í tvo daga og fara utan 18. júnf.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.