Tíminn - 13.06.1992, Page 15
Laugardagur 13. júní 1992
Tíminn 15
heilmargt fólk sem ég hafði
enga þörf fyrir.“
Ivana veldur
höfuðverk
í þeim hópi er skáldsöguhöf-
undurinn, með hjálp, Ivana
Trump, uppyngd með skurðað-
gerðum, og hún hefur alger-
lega neitað allri hagræðingu.
Þó að hún hafi þegar fengið
greiddar uppsagnarbætur,
heldur hún áfram að valda höf-
uðverk. Eftirlætisviðfangsefni
meðaumkunar í New York upp
á síðkastið — þar sem hún hef-
ur aðeins nokkrar milljónir
dollara milli handanna nú til
að kaupa tískufatnað frá Val-
entino — er á 500 blaðsíðum í
bók hennar lítið annað að
finna en nöfn frægra tísku-
hönnuða, ríkar konur sem
neyta hádegisverðar á Le
Cirque, og hávært bergmál af
lífi hennar sjálfrar. Söguhetjan
er tékknesk skíðadrottning,
mótspilari hennar glæsilegur
athafnamaður og eiginmanns-
þjófurinn stór, ljóshærð götu-
drós með Suðurríkjahreim og
allt of mörg atriði sem eru
sameiginleg með Marla Ma-
ples, kærustu Donalds, fyrir
hans smekk.
Eftir að hafa borgað Ivönu 25
milljónir dollara í skilnaðar-
bætur er „The Donald“, eins og
hún kallar hann, óskaplega
óánægður. „Þessi bók er brot á
samningi sem við gerðum fyrir
giftinguna, þar sem segir að
hún megi ekki skrifa neitt um
líf mitt. Hún reyndi að fá því
breytt fyrir dómstóli, en tókst
ekki... Nú verð ég að ákveða
hvað eigi að gera í málinu. Ég
reyni alltaf að tala vel um
Ivönu, ég mun elska hana alla
tíð, vegna þess að hún er móð-
ir barnanna minna þriggja og
það er mjög erfitt að berjast
gegn henni. En það, sem hún
gerði, er ófyrirgefanlegt."
Bókarhöfundur hefur hins
vegar snúið brotthlaupi manns
síns upp í auglýsingu á bók-
inni, sem hefur stóraukið sölu
á henni, ræðusöluframa frúar-
innar (innihald ræðanna er
„Að þora að vera eins og þú
ert“), framleiðslu hennar á
snyrtivörum og ilmvatninu
Ivana, sem hótað er að komi á
markað á hverri stundu.
Þáttur Marla Maples
í endurreisn Donalds
Ef fína fólkið hefur komist að
þeirri niðurstöðu að Donald sé
drullusokkurinn í bókinni,
húsgögnin færðu í
mestu úrvali hjá okkur.
Als skápur
HÚSGAGNA
HÖLiLiIIV
BILDSHOFÐA 20 - »: 91-681100
heldur hann samt ró sinni og
trúlofun hans og Marla Maples
— sem hann eyðir með
ánægjulegum tómstundum við
íþróttir, sem stöku sinnum er
lífgað upp á með ljósmynda-
skotum paparazzi-Ijósmyndara
og demantahringskasti — er
enn viðhaldið. Hann segir að
þau séu guðdómlega ham-
ingjusöm. „Fyrri konu minni
þótti yndislegt að fara í alla
þessa líknarmálakvöldverði,
elskaði að vera í sviðsljósinu,
að komast í blöðin. Það geri ég
ekki.“
Þvert á móti því, sem ætla
mætti, segir hann að Marla sé
hlýleg og dygg, heimakær
stúlka, sem hann vilji helst af
öllu eyða með vetrarhelgum á
Mar A Lago, stórkostlegu land-
areigninni sinni í Palm Beach
þar sem Ivana hefur tryggt sér
rétt til að dveljast á stundum,
og þar sem prinsinn af Wales
kom í heimsókn fyrir tveim
sumrum til að virða fyrir sér
húsagerðarlistina. „Segðu mér
eitt,“ segir Trump og setur upp
áhyggjusvip þjáningarbróður.
„Talar lafði Di enn við blaða-
menn?“ Ekki svo að skilja að
nokkur hlutur bugi hann.
„Meðan skilnaðurinn og fjár-
hagsvandinn stóð yfir, var fólk
bara stórundrandi. Það kom til
mín og sagði: „Jahérna, þú lít-
ur vel út... þú ert unglegri en
þú varst fyrir fimm árum!“ Og
maður verður að geta staðist
það. Maður verður að geta sof-
ið á næturnar. Þeir, sem geta
það ekki, verða að hætta. Ég
kann á lífið, maður verður að
hugsa jákvætt og þá kemur allt
vel út.“
Hann lítur vissulega út fyrir
að vera undir minna álagi en
hann á sennilega skilið, með
eilíft sólbrúnt liftaraft, grá-
sprengt hár sem liðast niður á
flibbann, ber ofurlítla auka-
þyngd — ef máttarstólparnir í
New York kjósa æðstu fremstu
eiginkonurnar sínar gegnsætt
grannar, gefur það risunum
leyfi til að sýna ofurlítla efna-
lega yfirþyngd að vissu marki
— og tennur sem vitna um
kraftaverkin í nútíma tannvið-
haldi.
Hann er nýlega búinn að vera
liðsstjórnandi í líknarmálaleik
í „softball“ á Yankee Stadion í
New York, en meðal liðsmanna
hans voru Billy Joel og Mi-
chael Bolton. Hann nýtur þess
töfraljóma, sem leikur um
hann. „Hvað mig sjálfan varð-
ar, þykir mér gaman að búa til
fallega hluti, en kannski finnst
fólki það sem ég geri svo
glæsilegt vegna þess á hvaða
aldri ég er, eða hvernig ég lít
út. Ég bara veit það ekki.“
Er alltaf að leika
sjálfan sig
Þegar hlustað er á Trump, er
maður minntur á að hann er
alltaf að leika sjálfan sig —
eins og hann gerði þegar hann
lék í sjónvarpsþáttunum sem
gerðir voru eftir bók Judith
Krantz „1*11 Take Manhattan"
— og það er hlutverk sem
hann er algerlega sáttur við.
Blaðamaður fékk far með
Trump í lengdri límúsínu og
þar sagði hann í trúnaði með-
an hann var að hringja til
Marla með annarri hendi til að
ákveða stefnumót, að hann
tæki gildi fjölskyldunnar fram
yfir allt annað. Á illkvittnis-
andartaki fylltist blaðamaður
löngun til að spyrja hann
hversu mikils hann mæti það.
En gerði það ekki. Vegna þess
að af fullkomnu velsæmi og
vinsemd er Donald Trump rétt
nýbúinn að bjóða blaðamann-
inum og fjölskyldu að heim-
sækja hann á Flórida og nú
kyssir hann spyril bless og
býður afnot af bílnum sínum.
„Fólk, sem þekkir mig, hefur
tilhneigingu til að líka við
mig,“ segir hann. „Þú getur
sagt lesendum þínum það.“
Þáverður heimkoman ánægjulegri
Það er ómetanlegt að komast í
gott sumarfrí en það er líka notalegt að
koma heim aftur — ef allt er í lagi. Áður
en við förum göngum við tryggilega frá
öllu. Við greiðum rafmagnsreikninginn
svo að heimilistækin geti sinnt skyldum
sínum í fjarveru okkar og þjónað okkur
strax við heimkomuna.
ódýra orku, ef þeir aðeins greiða fyrir
hana á eðlilegum tíma. Verði misbrestur
þar á bætast við dráttarvextir - og þá er
líka stutt í hvimleiða lokun.
Rafmagnsreikningar eru sendir út á
tveggja mánaða fresti. Gjalddagi þeirra er 5. dagur
næsta mánaðar eftir útgáfudag. Ef reikningur hefur ekki
verið greiddur á gjalddaga reiknast á hann dagvextir.
Dreifikerfi Rafmagnsveitu Reykja-
víkur er eitthvert hið öruggasta í heimi.
Viðskiptavinirnir geta treyst á góða og
Láttu rafmagnsreikninginn hafa
forgang!
RAFMAGNSVEITA
REYKJAVÍKUR
SUÐURLANDSBRAUT34
108 REYKJAVÍK SÍMI 60 46 00