Tíminn - 13.06.1992, Blaðsíða 24

Tíminn - 13.06.1992, Blaðsíða 24
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300 HEIÐI Bl LAPARTASALA Varahlutir í árgerðir '74-'87 Ýmsar smáviðgerðir Kaupi bíla til niðurrifs HEIÐI ■ BÍLAPARTASALA Flugumýrl 18D ■ Mosfellsbœ ftímar fUUH3fl A. Rfi7M7 AIÍÐVITAÐ Suðurlandsbraut 12 Oðruvísi bílasala BÍLAR • HJÓL • BÁTAR • VARA- HLUTIR. MYND HJÁ OKKUR - BÍLL HJÁ ÞÉR SÍMI 679225 HOGG- . DEYFAR Verslið hjá fagmönnum varahlutir HanarsböfAa 1 - s. 67-67-44 3 Tíminn LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ1992 Miklu fleiri og mun stærri einbýlishús seld eftir tilkomu húsbréfakerfisins: Verö einbýlishúsa aðeins tvisvar eins hátt í 8 ár Miklu fleirí og mun stærrí einbýlis- og raðhús (notuð) voru seld á höfuðborgarsvæðinu síðustu tvö ár, þ.e. eftir tilkomu húsbréfakerfisins, en nokkurt annað ár frá 1984 a.m.k. Og samfara mikilli sölu var meðaiverð á hvern fermetra alveg í toppi í fyrra. Frá árínu 1984 hefur raunverð einbýlishúsa að- eins tvisvar sinnum faríð eins hátt um takmarkaðan tíma (síð- arí árshelming 1984 og fyrrihluta árs 1989). Meðalverð heils árs hefur hins vegar aldrei orðið eins hátt á þessu árabili eins Þróun á meðalveröi fermetra í einbýlishúsum (og raðhúsum) á höf- uöborgarsvæðinu 1984-1991 sem Fasteignamatið hefur reiknað til fasts verölags á seinni helmingi ársins 1991. I Ijós kemur að verð- ið hefur aðeins tvisvar komist eins hátt og á síðasta ári. Neðri lin- an sýnir reiknað staðgreiösluverö, sem t.d. var aðeins 8% undir nafnverði 1988 en sá munur var kominn í 13% á síöasta ári. Meðalstærð seldra húsa var tæp- lega 200 fermetrar og meðalverð um 68 þús.kr.á hvern fermetra, sem þýðir um 13,6 milljónir kr. Framreiknað eftir lánskjaravísi- tölu var verð samsvarandi húss aðeins kringum 11 milljónir kr. á árinu 1986, þegar fasteignaverð var í lágmarki. Með öðrum orðum að sá sem þá hefði fjármagnað húsakaup með verðtryggðum lán- um hefði vel getað staðið uppi með 2,5 milljóna króna gróða eft- ir sölu á síðasta ári. Fasteignamat ríkisins hefur reiknað út verðþróun einbýlis- húsa á höfuðborgarsvæðinu fyrir hvert misseri 1984 til 1991. Svo dæmi sé tekið var meðalverð á fer- metra um 20 þús. kr. þegar það náði toppi á síðari helmingi ársins 1984. Framreiknað með láns- kjaravísitölu samsvarar það rúm- lega 68 þús.kr. seinni hluta síðasta árs, þ.e. nán- ast sömu upphæð og meðalverð var þá, sem fýrr segir. Áárunum 1984 til 1989 var með- alstærð seldra húsa 184 fermetrar og fór aldrei upp fyrir 190 fer- metra. Með húsbréfakerfinu bætt- ist tugur fermetra við meðal- stærðina og í fyrra hafði hún auk- ist um 15 fermetra, eða í 199 fer- metra. Þetta bendir til að stærstu húsin hafi orðið auðseljanlegri út á húsbréf en áður. F.R. tekur fram að í stærð einbýlishúsa sé gólfflöt- urinn reiknaður með en flatarmál sameignar er jafnan undanskilið í stærð íbúða í fjölbýlishúsum. Á árunum 1984-1989 voru 130 til 260 hús á ári í úrtaki Fasteigna- matsins, eða um 200 árlega að meðaltali. Síðustu tvö ár er fjöld- inn hins vegar um 380 og 310 hús. Þetta bendir líka til þess að húsbréfakerfið hafi valdið miklum fjörkipp í sölu einbýlishúsa. Verðmæti upp á samtals 3,9 milljarða skipti um eigendur með sölu þessara 310 húsa á höfuð- borgarsvæðinu á síðasta ári. Þar af voru tæplega 1,8 milljarðar (45%) greiddir í peningum (þ.e. um 5,7 milljónir kr. að meðaltali af verið hvers húss). Um 1,6 milljarðar voru greiddir með húsbréfum (frumbréf og verðbréf). Mismun- urinn er síðan yfirtekin lán, að stærstum hluta frá Byggingar- sjóði ríkisins. Yfirtekin bankalán eru t.d. aðeins 28 milljónir, eða um 0,7% af heildarsöluverði hús- anna. Fasteignamatið sýnir einnig reiknað núvirði (staðgreiðslu- verð) kaupsamninga. Munurinn felst fyrst og fremst í afföllum, t.d. vegna afborgana sem algengt var að dreifðust á heilt ár án vaxta og síðan vegna húsbréfanna nú síðustu tvö árin. Minnstur munur var á reiknuðu staðgreiðsluverði og nafnverði á árunum 1987 til 1989, þ.e. á árum „gamla kerfis- ins“. Þessi ár var reiknað stað- greiðsluverð aðeins frá 8-10% lægra en nafnverð kaupsamning- anna. Síðan hefur munurinn far- ið vaxandi, upp í um 13% á síðari helmingi ársins 1991, þegar hver milljón í kaupsamningi var að- eins um 872 þús.kr. virði. Með lækkun affalla á húsbréfum er bú- ist við að þessi munur minnki á ný. Krani á staðnum sýnir hæð fyrirhugaðrar kirkjubyggingar Víghólasamtokin: Víghólasamtökin, samtök um náttúruvemd í Kópavogi, munu halda sýningu á Víghói um helgina. Settur verður upp krani á staðnum sem sýnir hæð iyrírhugaðrar kirkjubyggingar og einnig verða útlín- ur hennar markaðar. Þetta á að auðveida fólki að glöggva sig á um- fangi byggingarínnar á þessum víðsýna stað í Kópavogi. Víghólasamtökin voru stofnuð 18. maí síðastliðinn og hafa þau á stefnuskrá sinni almenna náttúru- og umhverfisvernd í Kópavogi. Verndun Víghólasvæðisins er lyrsta verkefni samtakanna og telja þau að þar stefni í alvarleg skipulagsmis- tök. Samtökin benda á að stefna bæjar- yfirvalda í Kópavogi hafi um árabil verið að svæði þetta skyldi friðað fyrir öllum byggingum og það í framtíðinni gert að útivistarsvæði. Fyrir nokkrum árum létu svo þáver- andi bæjaryfirvöld friðlýsa vestari hluta svæðisins á grundvelli nátt- úruverndarlaga og gerður var knatt- spyrnuvöllur á vestari hluta þess. Skipulag Víghólasvæðisins var svo endanlega staðfest þegar bæjar- stjórn Kópavogs samþykkti einróma aðalskipulag Kópavogs (sem gilda á til 2008) og var staðfest af umhverf- isráðherra árið 1990. Allt frá 1971, þegar Kópavogi var skipt í tvær kirkjusóknir, hafa for- ystumenn Digranessafnaðar sýnt áhuga á að reisa kirkju á svæðinu. Það var svo 25. júni á síðasta ári sem Bæjarstjórn Kópavogs lét und- an þrýstingi og samþykkti kirkju- byggingu, þrátt fýrir mótmæli 95% fasteignaeigenda við svæðið og að- varanir náttúruverndarmanna. Skipulagsstjórn ríkisins hefur nú kveðið á um að auglýsa skuli fyrir- hugaða breytingu á deiliskipulagi, þar sem fýrirhuguð kirkjubygging er ekki í samræmi við heimildir. Samkvæmt auglýsingu skipulags- stjóra skulu þeir sem andvígir eru skipulagsbreytingu senda skriflegar athugasemdir sínar til bæjarskipu- lags Kópavogs fyrir 15. júlí. Víghólasamtökin telja að háreist stórhýsi í 35-40 metra fjarlægð frá Víghóli muni skerða útsýni þar stór- lega og rýra því gildi staðarins óbæt- anlega. Samtökin skora á önnur náttúruverndarsamtök að senda mótmæli sín til Bæjarstjórnar Kópavogs. Heimilisiðnaðardagur á Árbæjarsafni: Hrosshár í strengjum og holaö innan tré! Sunnudaginn 14. júnf verður verður tóvinna í fulium gangi, haldinn í Árbæjarsafninu svo- ullin kembd, spunnin, prjónuó kaiiaður heimilisiðnaðardagur. og sýnt verbur hvemig hrosshár Sýndar verða ýmsar tegundir af er spunnið. vefnaði ásamt aðferðinni viö að Tii þess að auka á stemmníng- ilta uil og spinna úr hrosshári. una verða kveðnar rimur og Þá verður einnig sýnt hvemig grautarlummur bakaðar. Gestlr bond vora ofin og brugðin með geta kynnt sér osta- og skyrgerð ýmsum aðferðum, spjaldofin, og ennfremur keypt harðfisk af fótofin eöa kríluð. Jóni, fisksalanum síkáta. Á baðstofuioftinu í Árbænum

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.