Tíminn - 20.06.1992, Síða 3
Laugardagur 20. júnf
Tíminn 3
Verður Austurstræti göngugata á ný?
Tillögunni um lokun
vísað til borgarráðs
A fundi borgarstjórnar á fimmtudag var lögð fram tillaga frá Alþýðubanda-
laginu um að loka aftur Austurstræti fyrir umferð, en undanfarna mánuði
hefur verið í gangi tilraun um það hvort heppilegt sé að hafa götuna opna
fyrir umferð. Verslunarmenn í miðbænum eru ekki ánægðir með tillögu Al-
þýðubandalagsins, en hins vegar hafa átján þúsund Reykvíkingar skrifað
undir áskorun um að götunni verði
borgarráðs.
Borgarfulltrúarnir Sigrún Magn-
úsdóttir, Ólína Þorvarðardóttir og
Kristín Á Ólafsdóttir óskuð eftir að
bókað yrði að þær tækju undir það
sem feist í tillögu Alþýðubandalags-
ins að loka skuli götunni fyrir
bflaumferð að loknu 6 mánaða til-
raunatímabili, enda hafi þær sett
fram bókun um það í borgarráði ný-
lega. Töldu þær það sjálfsagt að
samþykkt borgarstjórnar frá 20.
lokað aftur. Tillögunni var vísað til
september síðastliðnum þess efnis
að gatan yrði opnuð fyrir umferð í
tilraunaskyni í sex mánuði yrði virt
og því þyrfti ekki að flytja sérstaka
tillögu um að henni ætti að loka aft-
ur. Tilraunatímabilinu lauk 31.maí
síðastliðinn, en gatan hefur ekki
verið lokuð nema í einn dag síðan.
Eins og segir hér að framan hafa
um 18 þúsund Reykvíkingar skrifað
undir áskorun um að götunni verði
lokað fyrir umferð, en verslunareig-
endur og eigendur fasteigna í mið-
bænum hafa brugðist kröftuglega
við. Þeir segja að umferð fólks í mið-
bænum muni minnka á daginn, að
verslunum muni stórlega fækka
verði götunni lokað aftur.
Á borgarstjómarfundinum lögðu
borgarfúlltrúar Sjálfstæðisflokksins
fram tillögu þar sem fram kemur að
enn hafi ekki reynt á tímabundnar
lokanir á góðviðrisdögum og því
væri eðlilegt að láta reyna á það
frekar. Einnig var það lagt til að til-
lögu Alþýðubandalagsins yrði vísað
til borgarráðs til ítarlegri umljöllun-
ar.
-PS
Lánskjaravísitala hækkar:
0,62% hækkun á mánuðinum
Seðlabankinn hefur reiknað út
lánskjaravísitölu fyrir júlí 1992 og
varð hækkun á Iánskjaravísitölu frá
mánuðinum á undan 0,62%.
Umreiknuð til árshækkunar hefur
breytingin verið 7,7% fyrir síðasta
mánuð, 3,8% fyrir síðustu 3 mán-
uði, fyrir síðustu 6 mánuði 2,1% og
fyrir síðustu 12 mánuði 3,5%.
Vísitala byggingarkostnaðar eftir
verðlagi um miðjan júní 1992
reyndist vera 188,6 stig og hækkar
um 0,1% frá maí 1992 (júní
1987=100). Þessi vísitala gildir fyrir
júlí 1992. Samsvarandi vísitala mið-
uð við eldri gmnn (desember
1982=100) er 603 stig.
Síðastliðna 12 mánuði hefur vísi-
talan hækkað um 1,5%. Síðustu 3
mánuði hefur vísitala byggingar-
kostnaðar hækkað um 0,8% og sam-
svarar það um 3,0% hækkun á ári.
Launavísitala fyrir júnímánuð
1992 miðað við meðallaun í maí sl.
er 130,0 stig eða 1,5% hærri en í
fyrra mánuði. Samsvarandi launa-
vísitala, sem gildir við útreikning
greiðslumarks fasteignaveðlána,
tekur sömu hækkun og er því 2.843
stig í júlí 1992.
Leiga fyrir íbúðar- og atvinnuhús-
næði, sem samkvæmt samningum
fylgir vísitölu húsnæðiskostnaðar
eða breytingum meðallauna, hækk-
ar um 1,8% frá og með 1. júlí 1992.
Þessi hækkun reiknast á þá leigu
sem er í júní 1992. Leiga helst síðan
óbreytt næstu tvo mánuði, þ.e. í ág-
úst og september 1992. —GKG.
Helga Steindórsdóttir í norðlenskri sól fyrir utan íbúöarhúsiö
að Fitjum. Timamynd: GKG.
Ferðaþjónusta í Lýtingsstaðahreppi:
Á áttræðisaldri
í ferðaþjónustu
Ein þeirra fjölmörgu sem opnað
hafa heimili sitt ferðamönnum er
Helga Steindórsdóttir að Fitjum í
Lýtingsstaðahreppi.
Þótt Helga sé jafngömul full-
veldinu hóf hún þjónustu við
ferðamenn í júní árið 1990.
Að sögn Heigu hefur hún rúm
opið allt árið og er rúm fyrir 12
manns. Þar að auki er boðið upp á
svefnpokapláss og afar snyrtilegt
tjaldstæði. Hægt er að fá morg-
unverð og einnig er girðing fyrir
hesta.
„Hingað koma margir lslending-
ar en hér hafa iíka verið Vestur-
íslendingar og Svisslendingar",
segir Helga.
Hún er löngu hætt búskap og
nýta nú synir hennar fjósið og
túnið. Áður en hún hóf ferðaþjón-
ustu rak hún barnaheimili, þar
sem allt að 18 börn dvöldu í einu.
En nú hefur Helga fundið sér
annan starfsgrundvöll og það ætti
ekki að væsa um ferðalanga að
Fitjum.
—GKG.
TY
t kOMMA
FJOItVlt >
AMN
ILIIKKIIP
Á LAIIGARMG!
AÓalvinningurinn í Happó gengur
alltaf út og gæti því orðið ríflegur
með Lukkupottinum á laugardaginn.
Áttu miÓa?
***gt$B»
SV""lAv'i^UVVt’’