Tíminn - 15.09.1992, Síða 4

Tíminn - 15.09.1992, Síða 4
4 Tíminn Þriðjudagur 15. ágúst 1992 Tíminn MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Tlminn hf. Framkvæmdastjóri: Hrólfur Ölvisson Ritstjóri: Jón Kristjánsson ábm. Aðstoöamtstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjórar Birgir Guðmundsson Stefán Asgrimsson Auglýsingastjóri: Steingrlmur Glslason Skrlfstofur: Lynghálsi 9,110 Reykjavik Sfml: 686300. Auglýslngaslml: 680001. Kvöldsfmar: Askrift og dreifing 686300, rits^óm, fréttastjórar 686306, Iþróttir 686332, tæknideild 686387. Setnlng og umbrot: Tæknideild Tlmans. Prentun: Oddi hf. Mánaöaráskrift kr. 1200,- , verð I lausasölu kr. 110,- Grunnverö auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 r Ovissan getur lamað sjávamtveginn Undirstöðuatvinnuvegur þjóðarinnar, sjávarútvegur- inn, byggir á auðlindum hafsins í kringum ísland. Þessar auðlindir hafa skapað okkur lífskjör sem eru með hinum bestu í heimi, og gert okkur fært að byggja upp nútímaþjóðfélag í landinu. Þessi stað- reynd ætti að vera öllum kunn. I samræmi við þetta ætti stjórnvöldum á hverjum tíma að vera það kappsmál að búa sjávarútveginum svo góð skilyrði sem unnt er. Á sviði hans eigum við möguleika á því að vera fremstir meðal þjóða og fara inn á nýjar brautir. Það hlýtur að vekja sérstaka athygli og æ meiri undrun, hve málefni sjávarútvegsins eru í fullkom- inni óvissu. Ekki verður þess vart að nokkur breyting verði þar á. Það er löngu ljóst að klofningur ríkir í stjórnarflokk- unum um afstöðuna til sjávarútvegsins, sem hófst með því að skipuð var nefnd undir formennsku beggja stjórnarflokkanna til þess að endurskoða fisk- veiðistefriuna. Ekkert heyrist nú frá þessari nefnd. Það heyrist ekki orð frá ríkisstjórninni um það hvemig á að mæta niðurskurði á aflaheimildum íýrir næsta ár. Málinu var á sínum tíma vísað til Byggða- stofnunar og ýmsar hugmyndir vom viðraðar um að- gerðir, en nú ríkir algjör þögn. Ljóst er af umræðum, sem fóru fram um atvinnumál í Alþingi nú nýverið, að forsætisráðherra telur fisk- vinnsluna búa við viðunandi skilyrði með því að end- urgreiða innistæður hennar í Verðjöfnunarsjóði sjáv- arútvegsins. Það er áreiðanlega ekki heiglum hent að stjóma fyr- irtækjum í útgerð eða fiskvinnslu við þessar aðstæð- ur. Kraftar stjórnenda beinast að því að halda í horf- inu, í fullkominni óvissu um hvað framundan er. Verður búið við sama stjórnunarkerfi í fiskveiðum áfram, eða verður söðlað um? Verður eitthvað gert til þess að jafna áfallið af niðurskurði fiskveiðiheimilda? Verður það látið afskiptalaust að halli í fiskvinnslu sé allt að 7% á næsta ári, án þess að bregðast við með nokkmm hætti? Þetta eru spumingar sem ekki fæst svar við, og það er ekki nokkur von til þess við þessar aðstæður að forsvarsmenn í sjávarútvegi sæki fram til nýjunga og atvinnuskapandi starfsemi við þessar aðstæður. Sú leið að úthluta aflaheimildum Hagræðingarsjóðs hefur ekki verið farin, og ástæðan er meðal annars yf- irlýsing forsætisráðherra um afsögn, ef þessi leið yrði farin. Allt of mikill tími hefur farið í að upphugsa leiðir til þess að sleppa frá málinu, og það er langt í frá að lausnin sé komin. Óvissan í málum sjávarútvegsins í heild er orðin stórskaðleg, og stórorsök að því hvemig horfir í at- vinnumálum. Meðan þeir, sem leiða höfuðatvinnuveg þjóðarinnar, vita ekki hvar þeir standa, er ekki von á góðu. Að sjá ekki og heyra ekki „AHtaf er gaman að börnunum þegar þau fara að sjá," sagði kerl- ingin, sem ekki gerði greinarmun á skemmtanagildi ungbarna og kettlinga. En það getur verið gaman að fleiri fýrirbærum, þegar þau ranka við sér úr sjónlausri veröld og fara að sjá og virða fyrir sér umheiminn. Þróunarfélag Reykjavíkur virðist vera á svona skemmtilegum tíma- mótum um þessar mundir. Sam- kvæmt frétt í Mogga um helgina er félagið — sem samanstendur af eigendum húseigna og fyrir- tækja í þeirri Reykjavfk sem var áður en hún var flytt inn fyrir auðnir Kringlumýrar sem átti sér endastöð í Fúla- læk — búið að ráða sér „húsvörð miðborgarinnar". Starfsvettvang- ur hans er frá Hlemmi að Aðal- stræti og hlutverkið er að vera augu Þróunarfélaglsins um það sem miður fer í útliti þeirrar ver- aldar sem var, því markmið sam- takanna er að endurvekja „gömlu Reykjavík" til fyrri reisnar og at- hafnasemi. Merkar uppgötvanir „Húsvörður miðborgarinnar" hefur nú starfað um skeið og skil- að góðum árangri og safnað mikl- um upplýsingum, sem að gagni mega koma í þeirri endurreisn sem að er stefnt. Framkvæmdastjóri Þróunarfé- lagsins segir í Moggaviðtali að starfskrafturinn hafí komið auga á ótal misfellur og skili inn skýrsl- um um rannsóknir sínar. Starfsmaður Þróunarfélagsins beinir haukfránum sjónum sín- um að öllu því á svæðinu, sem all- ir sjá nema Þróunarfélagið og svo auðvitað stjórnendur borgarinn- ar. Húsgarmur vestan Stjörnubíós er í mikilli niðurníðslu. Gangstétt við Snorrabraut er brotin og mið- eyja milli akbrauta ræfilsleg. Drusluverkið við Bjarnarborg er ósnyrtilegt og arfi er í stað skraut- blóma í steyptum kassa á Hlemmi. Þennan kassa er að vísu búið að brjóta og átti hann raunar að minna á brynningarþróna, sem var á þessum slóðum á þeim tíma þegar Reykjavík var lífleg versl- anamiðstöð og ekki var búið að flytja íbúana í svefnbæi á heiðum. Þá hefur húsvörður Þróunarfé- lagsins lagt leið sfna um Lindar- götu og hvað skyldi hann hafa séð þar? Ryðbrunna kumbalda og nið- urníðslu á flestum sviðum. Um moldar- og malarbornar víðáttur er ekki getið hjá umboðsmanni Þróunarfélagsins. Og vfðar er komið við. Á Skóla- vörðuholti rekur sá fráneygi aug- un í nánasta umhverfi Hallgríms- kirkju og er það bæði „ófagurt og nöturlegt". Satt er orðið. Hátimbrunin á holtinu, sem verið er að setja í hljómmesta orgel sem um getur við norðanvert Atlantshaf, stend- ur upp upp úr gróðursnauðum grjót- og moldarbingjum og haugum afganga byggingarefna. Þá er þarna geymslustaður vöru- bíla og lúinna vinnuvéla. Svona hefur þetta verið lengi, lengi og á eftir að vera lengi enn. Á réttri braut Umbi Þróunarfélagsins telur fátt eitt af því, sem sker í augu sjáandi fólks og við blasir þegar borgar- myndin í umdæmi hans er skoð- uð. Nöturleg smekkleysa, óþrifnaður og slóðaskapur er fremur regla en undantekningar, þegar sviðið er skoðað opnum augum. Ef það þarf einhvern sérstakan „húsvörð miðborgarinnar“ til að líta í kringum sig og skrá niður landlægan subbuskap og drasl- arahátt, til að sýna eigendum húsa og fyrirtækja fram á að þeir eru sóðar, þá er Þróunarfélag Reykjavíkur á réttri leið. Hins vegar mun erfitt að koma því inn fyrir höfuðskeljar þeirra sem ekki sjá, að nokkuð sé at- hugavert við ryðbrunnið skúra- dót, brotnar gangstéttar eða kirkju sem rís upp úr eigin úr- gangi allt upp í himinhæðir. Sorptunnur á almannafæri í gömlum miðbæ á bak og fyrir all- ar helstu stjórnsýslubyggingar ríkis og borgar er vörumerki sem engin önnur höfuðborg getur státað af. Fyrir glöggan mann, sem vanist hefur á þrifnað, er auðvelt að sjá hvað betur má fara; en takist Þró- unarfélagi Reykjavíkur að opna augu fasteignaeigenda og borgar- yfirvalda fyrir því sem allir aðrir sjá, vinnur það þarft verk, jafhvel kraftaverk. Refur í hettunni Víða má taka til höndum að þrífa í kringum sig og bæta sitthvað það sem betur má fara. Það þarf ekki alltaf að vera kostnaðarsamt, miklu fremur hitt að beitt sé kost- gæfni og smekkvísi til að betrum- bæta umhverfi sitt. Málsóðar og draslarar vaða til dæmis uppi í ofboði fjölmiðlunar- innar, sem orðin er veiga- mikill þáttur í daglegu umhverfi. f útvörpum og sjónvörpum er einatt ver- ið að gera málvöndunar- átök og jafnvel einhverjar kröfur til meðferðar starfsfólks á máli. Þakka skyldi það. En engar kröfur eru gerðar til viðmælenda starfsfólks og er hörmung að heyra hvað ríkis- rekna útvarpið leyfir sér að bjóða upp á. En þar á bæ eru menn sí- fellt að telja lýðnum trú um hvað þeir séu vandaðir og klárir. Um daginn var til að mynda boð- ið upp á þann fróðleik, að engum ætti að koma á óvart þótt hann Jói væri eigur að skora mörg í hand- boltanum, „svona gamall refur í hettunni". „Körfuboltalega séð“ er orðin málvenja í umfjöllun um tiltekna íþróttagrein. Körfuboltalega séð er leikur góður eða slæmur eftir atvikum. Hvað þetta þýðir hljóta þeir að vita, sem útvarpa því. Svona orðatiltæki er farið að breiða ískyggilega úr sér. í löngu viðtali við greiðasölumann úti á landi þar sem ferðamálafrömuður talaði við ferðamálafrömuð kom ítrekað fyrir orðasambandið, eða hvað á að kalla það, „ferðamanna- lega séð“. Aldrei var hægt að ráða í hvað þetta merkir, en ekki vafð- ist útvarpsmenni eða viðmæl'anda hans tunga um tönn þegar subbu- skapurinn vall út úr þeim og öll- um er sama, rétt eins og um ann- an sóðaskap í umhverfinu. Hér er aðeins talin ein óvenja af mörg- um, sem mokað er yfir landslýð í síbylju, og ekki tekur eini sinni að kvarta yfir. En þeir, sem hvorki sjá eða heyra, tala fjálglega um hreina borg og fögur torg og hve íslenskt mál sé yndislegt og þeim hugleik- ið. OÓ

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.