Tíminn - 02.02.1993, Blaðsíða 1
Þriðjudagur
2. febrúar 1993
21.tbl.77. árg.
VERÐ í LAUSASÖLU
KR. 110.-
Danir bjarga færeyska Sjóvinnubankanum frá gjaldþroti með 3,6 milljarða lánveitingu:
Danir setja Færeyingum
stöng skilyrði fyrir láni
Danska ríkið veitti í gær færeyska Sjóvinnubankanum lán uppá 3,6
milljarða króna. An lánsins hefði bankinn orðið gjaldþrota en talið
er að gjaldþrotið hefði haft keðjuverkandi áhríf á allt færeyskt efna-
hagslíf. í reynd hefði gjaldþrotið þýtt þjóðargjaldþrot Færeyja.
Dönsk stjórnvöld settu mjög ströng skilyrði fyrír lánveitingunni og
er almennt litið svo á að með þeim hafi Færeyingar misst efnahags-
legt sjálfstæði sitt; færeysk stjórnvöld geti ekki lengur tekið sjálf-
stæða ákvörðun í efnahagsmálum.
Færeyski Sjóvinnubankinn hefur í
marga mánuði rambað á barmi gjald-
þrots en talið er að hann hafi tapað
um 4,5 milljörðum króna frá því í
október á síðasta ári. Danska stjómin
hefur ítrekað orðið að lána bankanum
fé til að forða gjaldþroti bankans en
flestir eru sammála um að gjaldþrot
hans þýddi algjört skipbrot færeysks
efnahagslífs. Gjaldþrotið myndi þýða
að sá atvinnurekstur sem enn ber sig í
Færeyjum myndi stöðvast og fyrirtæki
og einstaklingar yrðu fyrir gífurlegu
tjóni. Gjaldþrot Sjóvinnubankans hafi
Fram til aldamóta þarf að skapa 20 þúsund ný störf
eða sem nemur ígildi 40 álverksmiðja. Þórarinn V.
Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ, segir skilboð at-
vinnurekenda til launamanna skýr:
Það er ekkert
til skiptanna
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitendasam-
bands íslands, segir að viðfangsefnið
framundan sé að reyna að vinna bug á
atvinnuleysinu og jafnframt að leggja
grunn að uppbyggingu efnahagsiífs-
ins á nýjan leik. Að þessum markmið-
um muni atvinnurekendur vinna í
vetur.
Yfirgnæfandi meirihluti verkalýðsfé-
laga landsins eru með lausa samninga
frá og með gærdeginum. Þórarinn V.
Þórarinsson segir að það þurfi ekki
langar viðræður við verkalýðshreyf-
inguna til að skipta því út sem til
skipta er enda sé raunverulega ekkert
til skiptanna.
„Það þarf ekki marga menn til að
dvelja lengi yfir því. Skilaboðin eru
skýr. Þau standa alls staðar og eru
skráð á alla veggi.“
Framkvæmdastjóri VSÍ leggur
áherslu á það vekefni að horfa til
framtíðar og reyna að skapa einhvem
sóknarkraft í þeim efnum.
„Við höfum átt ágætis samtöl við for-
ystu verkalýðshreyfingarinnar um
Flutningabíll
fauk út af
Stór flutningabíll skemmdist tals-
vert eftir að hafa fokið út af þjóðveg-
inum í nágrenni Akraness við bæinn
Ós í gær. Bflstjórinn sem var einn í
bflnum slapp án meiðsla.
Síðdegis var vemlega hvasst á vest-
anverðu landinu, allt að 9 vindstig
að suðvestan og hvassara í vindhvið-
um. Búist var við ofsaveðri í gær-
kvöldi suðvestanlands en er síðast
fréttist hafði spáin heldur mildast og
búist við hvassviðri.
nauðsyn þess að leggja upp í nýja sókn
í atvinnumálunum. Jafnframt höfum
við í sameiningu reynt að gera okkur
grein fyrir því verkefni sem ffamund-
an er í þessum efnum og hvaða mark-
mið við getum sett okkur. Á þessum
sjö árum sem eru til aldamóta þarf að
skapa 20 þúsund ný störf, ígildi 40 ál-
verksmiðja. Þannig að verkefnið fram-
undan er tröllaukið og við þurfum að
auka útflutning okkar um meira en
þriðjung svo nokkuð sé nefnL Okkur
veitir svo sannarlega ekki af að taka
höndum saman um hvar við eigum
sóknarfæri og fara að gera eitthvað
meira en að tala um þau.“ Hann seg-
ist jafnframt vona að enginn láti sér
það til hugar koma að verkföll og átök
á vinnumarkaði skili sér í einhverjum
bættum kjörum eða öruggari vinnu.
„Við erum búnir að dragast aftur úr
öðrum Evrópulöndum um 17% á síð-
ustu sjö árum og erum enn að. Menn
verða því að gera það upp við sig áður
en langt um líður hvort þeir vilja held-
ur stefna að fjölgun starfa, minna at-
vinnuleysi og áframhaldandi stöðug-
leika eða að því, sem sumir virðast
kunna best að hrópa á götuhomum,
einhverjar prósentuhækkanir launa."
Framkvæmdastjóri VSÍ segir að þeir
séu mjög fákunnandi sem haldi að það
sé hægt að hrópa sig frá vandanum.
Hann er ekki hrifinn af þeim sem tala
um að stjómvöld og atvinnurekendur
eigi ekki að komast upp með það nota
slæmt atvinnuástand sem grýlu á
Iaunamenn.
„Svona tal dæmir sig sjálft og er yfir-
máta hallærislegt. Menn ættu að fara
tala við fólkið sem er búið að missa at-
vinnuna og fólkið sem er hrætt við að
missa hana og spyrja það að því hvort
það sé ekki agalegt að verið sé að nota
atvinnuástandið sem grýlu. Það er
enginn að nota eitt eða neitt."
-grh
Verðlaunahafarnir ásamt forseta íslands. Frá vinstri: Vigdís Finnbogadóttir forseti fslands,
Þorsteinn frá Hamri, Sverrir Tómasson, Guörún Nordal og Vésteinn Ólason. Tímamynd Ami Bjama
Forseti íslands afhendir íslensku bókmenntaverðlaunin 1992:
Þorsteinn frá Hamri
var verðlaunaður
Þorsteinn frá Hamri fékk ís-
lensku bókmenntaverðlaunin
fyrir árið 1992 í flokki fagurbók-
mennta fyrir fjóðabókina Sæfar-
inn sofandi. í flokki fræðirita
fengu verðlaunin Guðrún Nor-
dal, Sverrir Tómasson og Vé-
steinn Ólason fyrir íslenska bók-
menntasögu I. bindi. Verðlaunin
afhenti Vigdís Finnbogadóttir,
forseti íslands.
Fjöldi manna var viðstaddur af-
hendingu bókmenntaverðlaun-
anna í Listasafni íslands sfðdegis í
gær. Verðlaunahafar þökkuðu fyr-
ir sig með stuttum ræðum. Verð-
launin nema 500 þúsund krónum
hvor auk þess sem afhent eru
skrautrituð verlaunaskjöl og feg-
ur verðlaunagripur, smíðaður af
Jens Guðjónssyni gullsmið, opin
bók á granítstöpli með nöfnum
verðlaunahafe.
Áður en verðlaunin voru veitt
flutti Jóhann Páll Valdimarsson
ávarp fyrir hönd bókaútgefanda.
Hann ræddi m.a. um þá ákvörðun
stjómvalda að leggja virðisauka-
skatt á bækur. Hann sagði að
samdráttur í bókaútgáfu væri
fyrsta og eðlilegasta afleiðing
aukinnar skattheimtu á bókum.
Skattheimtan myndi koma mikið
við alla þá sem koma að bókagerð
f Iandinu og fækka útgáfum
stærri og viðameiri verka. Jóhann
Páll sagði að ákvörðun stjórn-
valda að auka skattheimtu bóka
gengi þvert á þróunina annars
staðar. Nýlega hefði t.d. fram-
kvæmdastjóm EB hvatt til þess
að virðisaukaskattur á bókum
yrði afnuminn. Forysta EB óttað-
ist minnkandi lestur almennings.
-EÓ
í reynd þýtt þjóðargjaldþroL Undir
morgun í gær náðu dönsk og færeysk
stjómvöld samkomulagi um að
Sjóvinnubankinn fengi 3,6 milljarða
króna lán frá danska ríkinu. Breyting-
ar verða gerðar á starfsemi bankans.
Deildum verður fækkað og 30 manns
sagt upp störfum.
Láninu fylgja mjög strangir skilmál-
ar sem færeyska landsstjómin neydd-
ist til að fallast á. Miklar breytingar
verða gerðar á skatta- og trygginga-
lögum í Færeyjum. Tekjuskattur verð-
ur hækkaður en hann hefur verið
lægri í Færeyjum en annars staðar í
Danska ríkinu. Styrkir til sjávarútvegs
verða skomir niður og allar opinberar
framkvæmdir stöðvaðar. Nefnd verður
skipuð til að endurskoða allan rekstur
fyrirtækja í sjávarútvegi en talið er að
það þýði að skipum og fiskvinnslufyr-
irtækjum verði fækkað.
Samningamir hafa í för með sér
verulegar breytingar fyrir ríkisflugfé-
lagið Atlantic. Það mun ekki fá meira
fjármagn úr opinberum sjóðum og
mun það sennilega hafa þær afleiðing-
ar að félagið hættir rekstri.
Eitt af því sem talið er orsaka hve illa
er komið fyrir Færeyingum í efna-
hagsmálum er kjördæmaskipanin í
landinu. Danir kröfðust þess í samn-
ingunum í fyrrinótt að Færeyjar yrðu
gerðar að einu kjördæmi. Niðurstaðan
varð að kröfu Dana var breytt í áskor-
un á landsstjóm og lögþing Færeyjar.
Með þeim aðgerðum sem nú hafa ver-
ið ákveðnar er talið að atvinnuleysi í
Færeyjum muni enn aukast, fleiri fyr-
irtæki hætti starfsemi og þrengja
muni enn meira að fjárhag heimil-
anna.
í sjálfu sér er engin trygging fengin
fyrir því að Sjóvinnubankinn sé alger-
lega sloppinn frá yfirvofandi hættu á
gjaldþroti. Talsmenn bankans sögðu f
gær að bankinn væri tryggur a.m.k. út
þetta ár. Tálsmenn annarra banka í
Færeyjum sögðu að bankar þeirra
væru ekki í bráðri hættu.
-EÓ