Tíminn - 02.02.1993, Síða 2
2 Tíminn
Þriðjudagur 2. febrúar 1993
Hjúkrunarfræðingar og Ijósmæður drógu uppsagnir sínar til baka:
Samið var á
elleftu stundu
Samkomulag tókst seint á sunnudagskvöld í deilu hjúkrunarfræöinga og
ljósmæðra á Landspítala við stjórn spítalans. Svonefnd Borgarspítalaleið
verður farin sem þýðir að hjúkrunarfræðingar í fullu starfi munu hækka í
launum en aðrir ekki. Þá mun nefnd beggja aðila vinna að kjarasamanburði
við önnur sjúkrahús á höfuðborgarsvæðinu að sögn
Þorgerðar Ragnarsdóttur, eins af
talsmönnum hjúkrunarfræðinga. Ver-
ið var að kalla inn sjúklinga í gær sem
höfðu verið útskrifaðir síðdegis á
sunnudag.
Svonefnd Borgarspítalaleið felur það
í sér að hjúkrunarfræðingar sem
gegna fullu starfi hækka í launum en
aðrir ekki. Þar getur verið um launa-
hækkun sem nemur þremur til fimm
iaunaflokkum að ræða.
„Við sættum okkur við þetta með
hliðsjón af ástandinu í þjóðfélaginu,"
bætir Þorgerður við. Áður hafði hópn-
um verið boðinn sambærilegur ráðn-
ingasamningur og gildir á Borgarspít-
alanum og þá hafði einnig verið viðruð
hugmynd um kjaramálanefnd. Þor-
gerður telur að tilboð þessa efnis hafi
ekki komið fram samhliða fyrr en á
sunnudagskvöld og álítur að það hafi
ráðið úrslitum. Þá vekur athygli að
þegar hópurinn ákvað að segja upp
stöðum sínum var miðað við að allir,
hvort sem þeir gegndu fullu starfi eða
ekki, fengju leiðréttingu á kjörum sín-
um. „Þetta gekk ekki í bili en kannski
gengur það einhvem tíma. Það er alla-
vega búið að vekja máls á því,“ segir
Þorgerður.
Þess má geta að Landspítalinn hélt
sig innan fjárlagaramma á síðasta ári
en á þessu ári hafa framlög til hans
verið skorin nokkuð niður. Fjármála-
ráðherra hefur gert það Ijóst að spítal-
inn fái ekki aukafjárveitingu til að
bæta kjör hjúkrunarfræðinga og því
verður að gera breytingar innan spít-
alans ef takast á að útvega aukið fjár-
magn.
Haft var eftir forstjóra ríkisspítala í
gær að hann vonaðist til að ekki þyrfti
að koma til skerðingar á þjónustu þeg-
ar komið yrði til móts við hjúkrunar-
fræðinga. -HÞ
Bílgreinasambandið er óánægt með nýja reglugerð
dómsmálaráðherra um skoðun ökutækja:
Afram
skoðun
i
911
Bílgreinasambandið er óánægt
með reglugerð um skoðun öku-
tækja sem dómsmálaráðherra gaf
út á síðasta ári. Með reglugerð-
inni verður einkaréttur Bifreiða-
skoðunar íslands hf. ti! að skoða
bða afnuminn. Bðgreinasam-
bandiö telur hins vegar að reglu-
gerðin setji starfsemi verkstæða
sem eiga að fá leyfi til að skoða
bfla of þröngar skorður. Ólíklegt
sé að reglugerðin leiöl til þess að
samkeppní verði um almenna
skoðun Ökutækja.
Reglugerðin mun taka gildi um
næstu áramót. í henni er kveðið
á um að faggildingardeild Lög-
glidingarstofu setji nánari reglur
um útfærslur á stöðlunum í sam-
ráði við dómsmálaráðuneytið.
Bflgreinasambandið telur að nú
þegar verði að liggja fyrir út-
færsia á þessum reglum og stöðl-
um svo að verkstæði geti faríð að
undirbúa sig til að taka að sér
skoðun ökutækja.
dómsmálaráðherra segir nta.:
„Regiugerðin á að taka gildi um
næstu áramót og því ljóst að regl-
ur um framkvæmd og aöiögun að
þessum stöðlum veröa að liggja
fyrir hlð aflra fyrsta. Reyndar
virðist eiga að setja hér mjög
strangar reglur sem fáir eða eng-
ir geta uppfyHL Staðlar þeir sem
vitnað er til eiga varla við um
þessa starfsemi og eru ekki í
samræmi við aðstæður hér á
landL Svo virðist sem gera eigi
strangari kröfur en almennt er
gert í Evrópulöndum.“ Bfl-
greinasambandið telur því að taki
reglugerðin gildi óbreytt sé ólík-
legt að samkeppni verði um al*
menna skoðun ökutækja. -EÓ
Norðfirðingar leita að öðrum togara í stað Gyllis ÍS til hráefnisöflunar fyrir Dvergastein hf. á Seyðisfirði:
SKILYRÐI AÐ TOGARINN
HAFI VERULEGAN KVÓTA
„Það hefur ekkert gengið að finna
annan togara í stað Gyllis ÍS. Af okk-
Húsdgendur!
Nú er orðið dýrt að kynda
En hver hefur efni á því að láta hitann
streyma út í loftið? Enginn. Slík sóun á
fiármunum er vanhugsuð og ástæðulaus.
Aður en þú formælir orkukostnaði, sem á
vafalítið eftir að hækka á ókomnum árum,
skalt þú líta í eigin barm. Er húsið þitt
nægilega einagrað? Ef einangrun er ófull-
nægjandi verður aidrei heitt og notalegt
inni, hversu mikið sem kynt er. Reikning-
arnir hækka og hækka, en hrollurinn fer
ekki. Veist þú:
✓Að allt að 40% húshitans getur tap-
ast vegna lélegrar einaarunar í þaki
eða á loftplötu. Hver hefur efni á því?
s/Að við erum eina fyrirtækið hér á
landi sem blæs steinull í hús og skip. í
holrúm og veggi nýrra oa gamalla
timburhúsa. í þök. Ofan á loftplötur. í
milligólf og grunna.
s/Að steinullin sem við blásum er
vatnsvarin. Hún er fyrirtaks eldvörn.
Hún hijóðeinangrar betur en nokkur
einangrun. Hún rykast ekki vegna
viðloðunarefna sem í henni eru.
s/Að verðið frá okkur er sambærilegt
við aðra gæðaeinangrun.
HÚSAEINANGRUN
SÍMAR 91 - 622326/22866
EÐA 93-13152
ar hálfu verður viðkomandi togari
að hafa verulegan kvóta og það get-
ur tekið mánuð og jafnvel ár áður en
eitthvað gerist í þessum efnum en
við fylgjumst að sjálfsögðu vel með
markaðnum," segir Finnbogi Jóns-
son, framkvæmdastjóri Síldar-
vinnslunnar hf. í Neskaupstað.
Eins og kunnugt er keypti íshúsfé-
lag ísfirðinga hf. og Flateyrarhrepp-
ur togarann Gylli IS af Hjálmi hf. á
Flateyri eftir að samningar höfðu
tekist milli fyrirtæksins og Síldar-
vinnslunnar um kaup á togaranum
og hluta af kvóta hans. Af hálfu
Norðfirðinga var ætlunin að nota
togarann til hráefnisöflunar fyrir
Dvergastein hf. á Seyðisfirði í stað
togams Birtings NK sem seldur var
til Suður-Afríku.
Framkvæmdastjóri Síldarvinnsl-
unnar segir að engin eftirmál verði
af þeirra hálfu vegna kaupa fsfirð-
inga og Flateyrarhrepps, en hrepp-
urinn nýtti sér forkaupsréttinn að
togaranum og fjármagnaði kaupin í
samvinnu við íshúsfélagið með
stofnun hlutafélagsins Þorfmns hf.
Að undanfömu hefur Gullver séð
Dvergasteini hf. fyrir hráeíni til
vinnslunnar. Það dugar þó skammt
því ætlunin er að Gullver sigli á
næstunni með aflann. Finnbogi seg-
ir að reynt verði eftir föngum að sjá
fyrirtækinu fyrir hráefni og m.a. sé
ekki loku fyrir það skotið að einhver
fáist til að afla hráefnis með því að
Dvergasteinn leggi viðkomandi til
kvóta til veiðanna. -grh
A myndinni er Helgi Seljan að flytja hugleiðingu um ár aldraðra.
Tímamynd Áml Bjama
Menningarvika í Seljahlíð
í gær hófst menningarvika í dval-
arheimili aldraðra í Seljahlíð og
stendur hún yfir dagana 1.-5.
febrúar. Þetta er þriðja árið sem
slík vika er haldin í dvalarheimil-
inu. Flutt verða nokkur erindi og
má þar nefna erindi Bjöms Einars-
sonar, sérfræðings í öldrunarlækn-
ingum, um svefn og svefnvenjur
og erindi Helga Valdimarssonar
læknis og prófessors um ofnæmi
og ónæmiskerfi. Síðustu daga
menningarvikunnar munu svo
Bára Sigurjónsdóttir og Ingólfur
Margeirsson lesa úr bókinni Hjá
Báru. Á eftir hverju erindi verða
svo leyfðar fyrirspurnir og umræð-
ur. Einnig verður í tengslum við
menningarvikuna sýning á lista-
verkum eftir starfsfólk heimilisins.
-ÞIS