Tíminn - 02.02.1993, Page 3
Þriðjudagur 2. febrúar 1993
Tlminn 3
Nær tvö þúsund íbúðir í fjölbýlishúsum seldar í Reykjavík á síðasta ári:
Þaö virðist hafa sáralítil áhrif á söluverö íbúða í Reykjavík hvort húsnæðiö
var byggt fyrir einum áratug ellegar fímm ef marka má þá kaupsamninga
sem gerðir voru um sölu ibúða í fjölbýlishúsum í Reykjavík á síðasta ári.
Þannig reyndist meðalverð það sama, um 6,4 milljónir, á þeim 120 ibúðum
sem voru aðeins 10-15 ára gamlar og nær hundrað íbúðum sem voru 30 ár-
um eldri, þ.e. 40-45 ára gamlar. Raunar virðist hvað hæst meðalverð á íbúð-
um á aldursbilinu 25 til 35 ára (þ.e. sem voru byggðar áratuginn fyrir
Breiðholt, Arbæ og alkalí).
Um áramótin höfðu Fasteignamati
ríkisins borist um 2.150 samningar
um kaup eða sölu íbúðarhúsnæðis í
Reykjavík á árinu 1992. Þar af voru
um 260 einbýlishús sem seldust fyrir
nær 2,7 milljarða kr. eða um 10,3
milljónir kr. að meðaltali. En íbúðir í
fjölbýlishúsum, tæplega 1.900 talsins,
voru seldar fyrir rúma 11,6 milljarða
sem er tæplega 6,2 milljóna kr. meðal-
talsverð á íbúð.
Fasteignamatið skipti íbúðunum
niður í aldursflokka sem leiðir í Ijós þá
athyglisverðu niðurstöðu að ótrúlega
lítill verðmunur virðist á milli nýlegra
íbúða og margra áratuga gamalla.
Stærsti flokkurinn (um 270 íbúðir)
voru 0-5 ára íbúðir. Vafalaust hafa
margar þeirra verið ófullgerðar á ýms-
um stigum því meðalverð í þessum
flokki var aðeins 5,5 milljónir.
Hæsta meðalverð, 7 milljónir, var á
íbúðum frá 6 til 10 ára gömlum, þ.e.
íbúðum sem eru fullgerðar og enn
teljast nýlegar íbúðir.
Sé íbúð komin yfir tíu árin virðist
hins vegar skipta sáralitlu máli hvort
hún er 20,30 eða 40 ára gömul. Sé lit-
ið á íbúðir yngri en fimmtíu ára var
meðalverðið m.a. lægst, um 6,1 millj-
ón, á þeim flokki sem telst 16-20 ára,
þ.e. íbúðum byggðum á tímabilinu
1972-1977. Hæst var meðalverðið
hins vegar 6,8 milljónir á þeim rösk-
lega 350 íbúðum sem voru 26-35 ára
(byggðum 1957-1967).
Meðalverð var að vísu heldur lægra
(milli 5 og 6 milljónir) á íbúðum sem
byggðar voru á tímabilinu frá því fyrir
aldamót og til stríðsloka en um fjórð-
ungur allra seldra íbúða var í þeim
aldursflokkum. Þegar er hins vegar til
þess litið að mjög margar þeirra íbúða
sem byggðar voru á fyrri hluta aldar-
innar voru mjög litlar að flatarmáli
mætti ætla að söluverð þeirra væri
nokkru lægra á hvem fermetra en á
íbúðum sem byggðar vom t.d. á 8.
áratugnum.
Vekur það athygli að þær 91-95 ára
gömlu íbúðir sem skiptu um eigendur
í fyrra voru seldar fýrir 23 milljónir
samtals, eða nær 5,8 milljónir kr. að
meðaltali — þ.e. aðeins á 390 þús. kr.
lægra meðalverði en íbúðir sem voru
75 árum yngri.
Allt annað kemur hins vegar í ljós
þegar borinn er saman aldur og verð á
einbýlishúsum. Þar reyndust 11-15
ára hús seld fyrir hæst verð, um 15,9
milljónir að meðaltali. Vekur athygli
að fimm árum yngri hús seldust að
jafnaði fyrir hálfri annarri milljón
lægra verð.
Hús á aldursbilinu 16-20 ára seldust
á 13,8 milljónir kr. að meðaltali. Síðan
má segja að verðið hafi farið stiglækk-
andi með hækkandi aldri, með að vísu
nokkrum undantekningum, enda um
fá hús að ræða í hverjum elstu aldurs-
flokkanna. Meðalverð húsa sem orðin
eru eldri en 40 ára var um 7,6 milljón-
ir króna.
f þessum hópi skera sig þó úr þrettán
hús byggð á þriðja áratug aldarinnar
sem seldust á 121 milljón kr. en það
þýðir 9,3 milljóna meðalverð.
Á hinn bóginn virðast bæði íbúðir og
hús frá öðrum áratug aldarinnar í
áberandi minnstum metum hjá kaup-
endum fasteigna í Reykjavík.
- HEI
Efraim Zuroff, forstöðumaður Simon Wiesenthal-stofnunarinnar i ísrael, afhendir íslenskum stjórnvöldum ný gögn í
máli Edvalds Hinrikssonar:
„Teljum mál Edvalds vera
eitt af fimm forgangsmálum“
Efraim Zuroff, forstöðumaður Simon YViesenthal-stofnunarinnar i ísrael,
segir að mál Edvalds Hinrikssonar sé eitt af fímm stærstu málum sem
stofnunin fáist við þessa stundina. Zuroff átti í gær fund með embættis-
mönnum í dómsmála- og forsætisráðuneytinu. A fundunum kynnti hann
gögn sem hann telur sanna að ásakanir á hendur Edvald um morð og
mannréttindabrot í Eistlandi í síðari heimsstyrjöldinni séu réttar. Zuroff
segir að Edvald hafí sjálfur myrt 10 óbreytta borgara og gefíð fyrirskipanir
um að taka um 150 manns af lífí.
Zuroíf lagði til við íslensk stjóm-
völd að skipaður yrði sérstakur sak-
sóknari til að fara ofan í mál Edvalds
Hinrikssonar. Hann sagði við blaða-
menn í gær að íslensk stjómvöld
hefðu fram til þessa ekki látið fara
fram neina sjálfstæða rannsókn á
þeim ásökunum sem bomar hafa
verið á Eldvald Hinriksson. Hann
sagði það fyrirslátt að ekki hefðu
legið fyrir gögn sem sönnuðu nægi-
Iega vel sekt Edvalds. Zuroff sagði að
hefði einhvem tíma legið fyrir vafi
um sekt hans þá hefði þeim vafa ver-
ið eytt með þeim nýju gögnum sem
nú hefðu verið lögð fram.
Zuroff fór til Eistlands í nóvember
á síðasta ári til að afla sér nýrra
gagna um mál Edvalds. Zuroff sagði
að eistnesk stjórnvöld hefðu á marg-
víslegan hátt aðstoðað sig við öflun
gagna. Hann sagðist hafa tekið ljós-
rit af fjölda skjala sem geymd væru í
skjalageymslum í Eistlandi.
Zuroff sagði að gögnin sem nú
hefðu verið afhent íslenskum
stjórnvöldum hefðu að geyma yfir
Látum bíla ekki
ganga að óþörfu!
40 vitnisburði manna sem hefðu
orðið vitni að voðaverkum Edvalds í
Eistlandi. Mörg vitni væru enn á lífi
og tilbúin til að vitna gegn Edvaldi
hér á landi. Zuroff sagði gögnin hafa
að geyma ásakanir um að Edvald
hefði myrt 10 menn og að hann
hefði gefið fyrirskipanir um aftökur
150 annarra manna, allt óbreyttra
borgara. í gögnunum væri einnig að
finna ásakanir um að Edvald hefði
nauðgað konum.
Zuroff sagði að þess væru engin
dæmi að gögn frá Sovétríkjunum
sem notuð hefðu verið í réttarhöld-
um gegn meintum stríðsglæpa-
mönnum nasista hefðu verið fölsuð.
Hann hafnaði því algerlega að þau
gögn sem hann lagði fram í gær
væru að einhverju leyti fölsuð af
kommúnistum.
Einn þeirra embættismanna sem
Zuroff ræddi við í gær var Albert
Jónsson, deildarstjóri í forsætis-
ráðuneytinu. Hann sagði í gær að
farið yrði yfir þau gögn sem Zuroff
lagði fram hjá dómsmálaráðuneyti,
forsætisráðuneyti og embætti ríkis-
saksóknara. Albert sagðist ekki geta
svarað því hvenær væri að vænta
viðbragða við ásökunum Zuroffs af
hálfu íslenskra stjómvalda eða á
hvern hátt þau viðbrögð gætu orðið.
Á blaðamannafundinn sem Zuroff
efndi til í gær mætti Elías Davíðsson
en hann hefur í mörg ár barist fyrir
réttindum araba í Mið- Austurlönd-
um. Elías kynnti sig á fundinum og
spurði Zuroff hvers vegna hann,
sem segðist vera baráttumaður fyrir
réttlæti, rannsakaði ekki mannrétt-
indabrot og morð sem hann sagði
ísraelsmenn fremja daglega í Palest-
ínu. Zuroff sagðist ekki kannast við
að land með því nafni væri til en
sagði við Elías að ef hann teldi að
ísraelsmenn fremdu morð og brytu
mannréttindi þá skyldi hann leggja
fram gögn um það til réttra aðila.
Elías snaraði þá þegar fram blaða-
bunka sem hann sagði sanna sitt
mál og afhenti Zuroff þau. -EÓ
Efraim Zuroff, forstöðumaður
Simon Wiesenthal-stofnunar-
innar (fsrael, kynnti ný gögn í
máli Edvalds Hinrikssonar fyrir
blaðamönnum í gær.
Tímamynd Ámi Bjama
Seljum af lager flestar gerðir
af þessum þekktu þýsku
gírmótorum og rafmótorum.
Hagstætt verð!
Sérpantanir afgreiddar
með stuttum fyrirvara.
Sala, þjónusta og viðgerðir
á sama stað.
mtdsDiitý
HÖFÐABAKKA 9 112 REYKJAVÍK SÍMI: 91-634000 / 91 -634040