Tíminn - 02.02.1993, Side 7
Þriðjudagur 2. febrúar 1993
Tíminn 11
HESTAÞING 1993
Febrúar.
13. Gustur Veuarleikar Glaðheimar
27. Hörður Vetrarleikar Varmárbakkar
27. Fákur Vetrarleikar VfðiveUir
Mars.
6.-7. Léttir Vetrarleikar Akureyri
13. Gustur Vetrarleikar Glaðheimar
' 20. Sörli Opið íþróttamót Sörlavellir
27. Andvari Vetrarleikar Kjóavellir
27. Fákur Vetrarleikar Víðivellir
Apríl.
3. Hörður Vetrarleikar Varmárbakkar
8. Hörður Vormót Varmárbakkar
8. Sörli Skírdagskaffi
10. Gustur Vetrarleikar Glaðheimar
10. Svaði ískappreiðar ?
12. Gnýfari Firmakeppni Ólafsfjörður
17. Dreyri íþróttamót Æðaroddi
17. Sörli Opið íþróttamót Sörlavellir
18. Andvari Firmakeppni Kjóavellir
22. Fákur Firmakeppni Víðivellir
22. Funi íþróttamót Melgerðismelar
22. Geysir Firmakeppni Hella
22. Kópur Firmakeppni Kirkjubæjatklanstur.
24. Gustur Firmakeppni Glaðheimar
24. Dreyri Firmakeppni Æðaroddi
24. Máni Firmakeppni Mánagrund
24. Hörður Fáksreið
Maí.
1. Snæfaxi Firmakeppni
1. Geysir Firmakeppni Hvolsvöllur
1. Glaöur íþróttamót Búðardal
1. Smári Firmakeppni Ames
1. Faxi íþróttamót Hvanneyri
2. Sörli Firmakeppni Sörlaveilir
2. Hörður Firmakeppni Varmárbakkar
8. Stóöhestastöð Sýning Gunnarsholt
8. Sleipnir Firmakeppni Selfoss
8. Skuggi íþróttamót Vindás
7.-9. Fákur Reykjavíkurmeistaramót Víðivellir
8. Sóti Firmakeppni Mýrarkot
8.-9. Gustur íþróttamót Glaðheimar
14.-15. Hörður Iþróttamót Varmárbakkar
14.-15. Sörli íþróttamót Sörlavellir
15. Ljúfur Firmakeppni Reykjakot
15.-16. Máni Iþróttamót Mánagrund
15.-16. Léttir íþd. Deildarmót Akureyri
16. Fákur Hlégarðsreið
20. Hörður Gustsreið
20. Léttir Firmakeppni Breiðholtsvöllur
21.-22, Sörli Gæðingakeppni Sörlavellir
22. Skuggi Gæðingakeppni Vindás
22. Sleipnir íþróttamót Selfoss
22. Dreyri Gæðingakeppni Æðaroddi
22.-23. Andvari íþróttamót Kjóavellir
22.-23. Gustur Gæðingakeppni Glaðheimar
27.-31. Fákur Hvítasunnumót Víðivellir
29. Léttir Gæðingakeppni Hlíðarholtsvöllur
29. Gnýfari Innanfélagsmót/úrt.v.FM Ólafsfjörður
31. HornfirOingur Firmakeppni Fomustekkir
Júní.
5. Þytur Gæðingakeppni Króksstaðamelar
5. Funi Gæðingakeppni Melgerðismelar
5. Hending Hestamót Búðartún
5.-6. Andvari Gæðingakeppni Kjóavellir
5.-6. Hörður Gæðingakeppni Varmárbakkar
5.-6. Máni Gæðingakeppni Mánagrand
5.-6. Sóti Gæðingakeppni Mýrarkot
5. Smári íþróttamót Ámes
12. Svaði Félagsmót Hofsgerði
12. Þjálfi Firma- og bæjakeppni Einarsstaðavellir
12.-13. Suðurlandsmót í hestaíþróttum Selfossi
12.-13. Geysir Félagsmót og kynbótas. Rangárbakkar
13. Léttfeti Gæðingamót Sauðárkrókur
17. Þytur Firmakeppni Hvammstangi
18.-19. Hornfirðingur Hestaþing Fomustekkir
18.-19. Sindri Hestaþing Pétursey
19. Ljúfur/Háfeti Félagsmót Reykjakot
19. Faxi Gæðingakeppni Faxaborg
19.-20. Sörli Opið íþróttamót Sörlavellir
19.-20. Feykir/Snæfaxi Félagsmót Ásbyrgi
19.-20. Neisti/Óðinn/Snarfari Hestamót Húnvetninga Neistavellir
25.-26. Glaður Hestaþing Nesodda
26.-27. Freyfaxi Hestadagar Stekkhólmi
JÚIÍ.
1.-4. FJÓRÐUNGSMÓT A NORÐURLANDI Vindheimamelar
9.-11. Úrtökumót v. HM f Spaarnvoude Hollandi Reykjavik eöa nágr.
10. Dreyri Kappreiðar Ölver
10. Kópur Hestaþing Sólvellir
10.-11. Logi Hestaþing Hrísholt
15.-18. íslandsmót f hestaíþróttum Akureyri
16.-17. Stormur Félagsmót Sandar, Dýraf.
17. Stfgandi Félagsmót Vindheimamelar
17. Blakkur/Kinnskær Hestaþing Heiðabæjamelar
17.-18. Smári/SIeipnir Hestaþing Mumeyri
24. Snæfellingur Hestaþing Kaldármelar
24.-25. Léttir /Funi/Þráinn Háu'ðisdagar Melgerðismelar
24.-25. Þolreiðarkeppni íslands Laxnes/Skógarhólar
Ágúst.
31 .júl-l.ág Stórmót Vestiendinga Kaldármelar
31.júl-l.ág Léttfeti/Stígandi/Svaði Hestamót Skagfirðinga Vindheimamelar
7. Svaöi Firma-tölt og bæjakeppni Hofsgerði
7.-8. Stórmót sunnlenskra hestamanna og kynbótasýn. Rangárbakkar
7.-8. Þjálfi/Grani Félagsmót Einarsstaðavellir
7.-8. Hringur Félagsmót Flötutungur
14. Þráinn Bæja- og firmakeppni Áshóll
14. Faxi Faxagleði Faxaborg
14. Dreyri íþróttamót, opið Æðaroddi
14. Funi Bæjakeppni Melgerðismelar
14.-15. Þytur Iþróttamót Króksstaðamelar
17.-22. HEIMSMEISTARAMOTIÐ í HOLLANDI Spaamvoude
28.-29. Bikarmót Norðurlands Flötutungur
Þorkell Bjarnason hrossaræktunarráðunautur: Gífurlegur áhugi á ræktun fslenska hestsins
og kröfurnar alltaf að þyngjast. Aðrir við háborðiö frá hægri: Guömundur Jónsson formaö-
ur L.H., Guðbrandur Kjartansson varaformaður L.H., Sigurður Þórhallsson framkvæmda-
stjóri L.H. og Sigfús Guðmundsson meöstjórnandi. Ljósm.: G.T.K.
Kristinn Guðnason, formaður hestamannafélagsins Geysis :
Landsmótið aur
lýst um allan heim
Landssamband hestamannafélaga boðaði fund
með sunnlensku hestamannafélögunum í Pé-
lagsheimilinu Hliðskjálf á Selfossi á laugar-
daginn var. Guðmundur Jónsson, formaður
L.H., stýrði fundi en einnig var mættur fram-
kvæmdastjóri L.H., Sigurður Þórhallsson,
varaformaðurinn Guðbrandur Kjartansson og
Sigfús Guðmundsson meðstjómandi, ásamt
hrossaræktunarráðunautnum Þorkatli Bjama-
syni.
Mikill hugur var í mönnum að gera landsmót-
ið hið veglegasta og að sögn Kristins Guðna-
sonar, formanns hestamannafélagsins Geysis í
Rangárþingi, verður það auglýst með vegg-
spjöldum, miðum og bréfum um allan heim. Á
síðasta landsmót, sem haldið var á Vindheima-
melum í Skagafirði árið 1990, komu um fjögur
þúsund útlendingar og nú er að sjá hvort Sunn-
lendingunum tekst betur að laða að erlenda
hestamenn. Þessir gestir margir hverjir eru
tryggustu viðskiptavinir íslenskra hestamanna
í útflutningi.
Ýmis gamanmál voru höfð uppi á fundinum
og m.a. sagði Þorkell Bjamason hrossaræktun-
arráðunautur að hætta væri á því að hann dytti
úr stuði með lýsingar kynbótahrossa ef hann
þyrfti sífellt að gera hlé á máli sínu fyrir túlk.
Gall þá einhver við að túlkurinn gæti verið
kvenkyns til þess að ráðunauturinn héldi
dampi. Þorkell taldi það geta orðið stórhættu-
legt og væri það þá skömminni skárra að trufl-
ast í málæðinu heldur en á öðrum viðkvæmari
sviðum.
Þá upplýsti varaformaður L.H., Guðbrandur
Kjartansson læknir, að svokallaðar bandamerk-
ingar á gestum um handlegg gætu verið stór-
varhugaverðar því þessar merkingar væru líka
notaðar á fæðingardeildum sjúkrahúsanna.
Þannig hefði öllum merkjum fæðingardeildar
Sjúkrahúss Sauðárkróks verið stolið á síðasta
landsmóti, en heildarfjöldi gesta á landsmótinu
var um tólf þúsund þótt aðeins rúmlega sjö
þúsund borguðu sig inn. Gæti það orðið hinn
myndarlegasti sængurkvennagangur ef lækn-
amir tækju sig til og innheimtu á landsmótinu
alla þá gesti sem merktir vom fæðingardeild-
inni.
Sigurður Þórhallsson, framkvæmdastjóri
L.H., taldi að huga þyrfti að fjölda gesta á mót-
um og hvort eitthvað væri hægt að gera til þess
að hafa mótin jafnvel ennþá meira spennandi
fyriralmenning en nú er. Hann benti t.d. á hinn
gífurlega áhuga á ræktun núna en kynbótasýn-
ing Stóðhestastöðvarinnar í Gunnarsholti fær
jafn marga áhorfendur hluta úr degi eins og
fimm daga stórmót. Þá má éinnig benda á að
hin háu verðlaun sem notuð voru í kappreiðum
hér áður fyrr trekktu að margan áhorfandann
og gerðu kappreiðarnar spennandi fyrir al-
menning þótt áhugi á gæðingum og kynbóta-
sýningum væri ekki svo mikill að öðm leyti.
Þorkell Bjarnason sagði að nú væm stórsýn-
ingar í öllum héruðum — alltaf — og móta-
hald væri orðið miklu viðameira en áður var.
Áhuginn núna væri svo mikill að í rauninni
bæri hann allt þetta mótahald uppi með sóma
og væri það vel. Ræktunarbúasýningar á stór-
mótum hefðu lukkast vel en fullnóg væri að
hvert bú kæmi með sex hesta hámark, stærri
hópar væru of þungir í vöfum og tefðu of mik-
ið. í rauninni heföu inntökuskilyrði fyrir kyn-
bótahross verið þyngd stöðugt og ráðunautun-
um væri mikill vandi á höndum í upphafi skoð-
unartíma í hverju héraði að lúra á þeim upplýs-
ingum við eigenda kynbótahrossa hvort þau
kæmust inn í sýninguna. Því hefði sú stefna
verið tekin upp að láta einkunn ráða og eigand-
inn fengi að vita strax hvort gæðingurinn kæm-
ist inn. Það yrði svo bara að ráðast á seinni dög-
um og gæðingavali í héraði hversu mörg hross
mættu til sýninga. Gott væri að sýningardagar
kynbótahrossa á stórmótum yrðu svo auglýstir
sérstaklega; þá gætu gestir einbeitt sér að þeim
sýningaratriðum sem þeir hefðu áhuga á.
Á fundinn mættu flestir formenn félaganna á
Suðurlandi og gaf formaður L.H. þeim frest til
IO. febrúar nk. að skipa í framkvæmdanefnd
lansmótsins sem haldið verður á Gaddstaðaflöt
á Rangárbökkum eftir rúmt ár, eða dagana 27.
júni til 3. júlí I994. G.T.K.
Ur hnakktöskunni
...heimsmeistaramót í ár.
Pétur Jökull Hákonarson, formaður hestaíþrótta-
sambands íslands, segir sextán ríki senda keppnis-
sveitir á heimsmeistaramótið í reiðmennsku á ís-
lenskum hestum í sumar og hafa sveitimar aldrei
verið fleiri. Mótið verður í Spaamwoude í Hollandi
dagana 17. til 22. ágúst og er búist við 10 til 20
þúsund gestum hvaðaæva að úr veröldinni en
sveitir verða núna frá Bandaríkjunum, Kanada og
Bretlandi auk allra Evrópuþjóðanna að venju. Sjö
keppendur eru flestir frá hverri þjóð auk fjögurra í
kynbótakeppninni, tveir í eldri flokki kynbóta-
hesta og tveir í yngri flokki. Ráðunautamir Vík-
ingur Gunnarsson og Kristinn Hugason munu
væntanlega dæma kynbóthross á mótinu. Pétur
Jökull er nú í Hollandi að ganga frá smáatriðum
fyrir mótið.
...allt við það sama í reiðhallarmálum.
Reiðhöllin í Víðidal stendur ennþá tóm og ónot-
uð og liggur undir skemmdum. Enginn reið-
kennsla fer þar fram og engar sýningar áætlaðar.
Menntmálaráðuneytið hefur nú gert upp styrk-
veitinguna fyrir árið í fyrra, kr. 1,5 milljónir, en
vegna aukinna ávaöxtunarkrafna mun stofnlána-
deildin ekki treysta sér til að leigja húsið svo lágt
núna. Verðmæti hússins er um 100 milljónir króna
en fengist víst eitthvað ódýrara ef einhver vildi
kaupa. Lagt er hart að Reykjavíkurborg að kaupa
höllina fyrir æsku Reykjavíkur sem mjög stundar
hestamennsku. Þá er gjarnan vísað í höfðingsskap
borgarinnar varðandi íþróttafélagið Vfking sem nú
nýtur glæsilegrar fþróttaaðstöðu í Fossvogsdal.
Borgarstjóri og borgarfulltrúar leita nú logandi
Ijósi að peningum og munu víst kunna orðið fé-
lagatal fþróttadeildar Fáks utanað en kaupin
munu falla undir reglur íþróttaráðs. Hestamönn-
um til ómælds kvíða hefur það spurst, að sex bif-
reiðaumboð vilji jafnvel falast eftir höllinni og er
bílasala um það bil versta starfsemi sem þar getur
orðið í huga hestamanna. Umferðin í Víðidal dags
daglega er orðin þvílík að stórhætta er af, svo ekki
sé talað um vélsleða og skellinöðrur.