Tíminn - 02.02.1993, Síða 9
Þriðjudagur 2. febrúar 1993
Prjónuð
dúkkuíot og
ga'luci\T
^anrinpe
HhSMT*
W
Prjóna-
uppskriftir
á 1-4 ára
Nvf t hcfti
ur. 3
Prjónauppskriftir á
1-4árabörn
Út er komið blaðið Lanett nr. 3. Blaðið
er sérrit með 40 prjónauppskriftir á böm
á aldrinum 1-4 ára. Blaðið kemur nú út f
fyrsta skipti á íslensku og sem fyrr er það
Gambúðin Tinna sem gefúr blaðið ÚL Sú
nýjung hefur verið gerð að auk þess að
vera með prjónauppskriftir á böm þá eru
uppskriftir að prjónuðum gaeludýmm.
Lanett-blaðið kostar 495 kr. og faest í öll-
um helstu gambúðum á landinu.
BÍLALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM
LANDIÐ.
MUNID ÓDÝRU
HELGARPAKKANA OKKAR
REYKJAVÍK
91-686915
AKUREYRI
96-21715
PÖNTIIM BÍLA ERLENDIS
interRent
Europcar
Happdrætti Styktarfélags
vangefinna
Dregið hefur verið f jólakortahapp-
drætti félagsins árið 1992. Eftirtalin
númer hlutu vinning:
1. Hugsjón eftir Sólveigu Eggerz Péturs-
dóttur kom á nr. 3073.
2. Jóladagur eftir Erlu Axelsdóttur kom
á nr. 4627.
3. Bláu Ijósin mín eftir Svein Bjömsson
kom á nr. 3302.
Félag eldri borgara í Reykjavík
Leikritið Sólsetur sýnt á morgun, mið-
vikudag, kl. 16. Opið hús í Risinu kl. 13-
17. Frjáls spilamennska.
Gerum ekki margt í einu
við stýrið..
Akstur krefst fullkominnar
einbeitingar!
ÚUMFERÐAR
RÁD
3*
Hjartkær móðir okkar
Daðína Jónasdóttir
frá Auðkúlu, Amarfirði
andaðist að Sólvangi, Hafnarfirði, sunnudaginn 31. janúar.
Böm hinnar látnu
Útför eiginmanns mlns, föður, tengdaföður og afa
Guðjóns Magnússonar
frá Kjörvogi
Fumgerði 1, Reykjavík
fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 4. febrúar kl. 13.30.
Guömunda Þ. Jónsdóttir,
böm, tengdaböm og bamaböm
J
"\
Tíminn 13
Diandra feröaðist víös vegar um Spán og Bandarikin, til aö finna
innviöi og húsgögn viö hæfi og þar er hún vel að sér. Starf hennar
Michael Douglas vissi hvaöa er einmitt gerö heimiidarmynda um menntun og menningu fyrir
gjöf myndi gieöja konu hans Metropolitan Museum í New York. Grisku styttuna og márisku hurö-
Diandra mest. irnar keypti hún á Mallorca.
Gjöfin sem gleður:
Diandra Douglas fær
hús á bernskuslóðum
Diandra, kona Michaels Douglas,
er fædd í Valldemosa á Mallorca og
enn býr móðir hennar í Deía. Di-
andra átti svo yndislega bemsku á
þessum slóðum að hún hefur enga
ósk átt heitari en að eignast eitt-
hvert athvarf þar í grenndinni og
þá ekki síst til þess að sonur þeirra
hjóna, Cameron, fengi að kynnast
náið því enn óspillta bemskuum-
hverfi sem hún sjálf naut.
Oft hefur hrikt í hjónabandi
þeirra Michaels og Diandra, en í
mörg ár hafa þau gjaman eytt leyf-
um sínum á Mallorca og ómeðvit-
að hefur Diandra haft augun opin
fyrir áhugaverðum stöðum sem
kynnu að uppfylla óskir hennar.
Og, viti menn, einn góðan veður-
dag þegar þau voru í bátsferð við
norðurströnd eyjunnar, milli Vall-
demosa og Deía, komu þau auga á
hús á klettabrún sem var þannig
staðsett að ekki þurfti að leita
lengur. Draumahúsið — og land-
areignin — var fundið, S’Estaca.
Fyrir þrem árum færði Michael
konu sinni það að gjöf og nú heyr-
ast ekki lengur sögur af hjóna-
bandserjum.
í húsinu hafði ekki verið búið
lengi og það þarfnaðist mikilla við-
gerða. Og í tvö og hálft ár var Di-
andra á þeytingi um allan Spán til
að fylgjast með þegar rífa átti gaml-
ar og merkar byggingar, ef vera
skyldi að þar leyndist eitthvað sem
hún gæti notað. í Ameríku fann
hún líka sitthvað sem henni fannst
falla vel að spænska umhverfinu
sínu. Hún gerði líka upp átta úti-
hús til að þjóna sem íveruhús fyrir
gesti eins og td. Jack Nicholson og
Draumahús Diandra sést hvergi að nema frá sjónum.
vinkonu hans, Rebecca Broussard,
sem dvöldust þar í fyrrasumar.
Eitthvað hafa öll herlegheitin
kostað, bæði í fyrirhöfn og pening-
um, en nú er fjölskyldan ánægð og
lætur sér jafnvel detta í hug að
gera S’Estace að heilsársheimili
sínu.